Morgunblaðið - 15.06.1997, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 15.06.1997, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 1997 33 -4- Magnús J. Smith ' vélfræðingnr fæddist í Reykjavík 26. september 1925. Hann lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 8. júní síðastliðinn. For- eldrar hans voru Oskar Smith pípu- lagningameistari í Reykjavík og kona hans Eggertína Magnúsdóttir Smith. Systur Magnúsar eru Theodóra og Karó- lína. Hinn 21. júlí 1950 kvæntist Magnús Sigríði Þórð- ardóttur Smith. Foreldrar henn- ar voru Þórður Helgi Jóhannes- son verksljóri í Reykjavík og Sólveig Sigmundsdóttir. Börn Magnúsar og Sigríðar eru: 1) Sólveig, verkstjóri, maki Sig- urður Rúnar Kjartansson, raf- eindavirki. Þau eiga tvö böm, Sigríði Erlu og Kjartan Orra. 2) Alla Dóra, leik- skólakennari, maki Einar Ingimarsson arkitekt. Börn þeirra eru Magnús, Ingimar og Þórhild- ur. 3) Magnús Jón, sölumaður, maki Olöf Inga Heiðars- dóttir, tollfulltrúi, þeirra böm eru Heiðar og íris Kristín. 4) Þóra Björk, háskólanemi. Eina dóttur á fyrsta ári misstu þau 1955. Magnús lauk vél- stjóraprófi frá Vélskóla íslands 1949 og rafmagnsdeildarprófi frá sama skóla 1950. Eftir það starfaði hann sem vélstjóri hjá Eimskipafélagi íslands allan sinn starfsaldur. Utför Magnúsar fer fram frá Dómkirkjunni á morgun, mánu- daginn 16. júní og hefst athöfn- in klukkan 15. MAGNUS SMITH Hugurinn hvarflar rúm 20 ár aftur í tímann. Sonur minn lítill glókollur, lyklabarn þess tíma, ný- farinn að lesa Morgunblaðið, sér auglýsingu um ostakynningu í Austurveri. Hann hyggur gott til glóðarinnar og leggur af stað upp í búð. En eins og oftar í þá daga, kemur hann við í Hvassaleitinu hjá frænku sinni og Madda og gefur gjarnan skýrslu um ferðir sínar, meðan pabbi er í vinnunni. En Maddi stoppar snáðann af, ostakynning ha.......En heppilegt, ég er einmitt með ostakynningu hér í Hvassaleitinu í dag, má ég ekki bjóða þér að vera með?“ Lítill snáði er drifinn í eldhúsið, ostarnir á borðið. Síðan er smakkað og spjallað og enn einu sinni hefur lítill drengur eytt notalegum eftir- miðdegi hjá Madda og Diddu frænku. Þessi litla saga lýsir svo vel mági mínu Magnúsi Smith (Madda) sem nú er látinn eftir erfið veikindi. Maddi var fremur dulur og fá- skiptinn. Lét sig ýmislegt daglegt litlu varða og síst það sem var hon- um og hans nánustu óviðkomandi. En hann var hins vegar einstak- lega hjálpsamur maður, fljótur að rétta hjálparhönd og leggja lið þeim sem á þurftu að halda. Hann hafði mjög notalega kímnigáfu og barn- góður var hann með afbrigðum, eins og fram kom í þessu litla dæmi sem rakið var hér. Þessa nutu sér- staklega barnabömin. Eins og við vitum eru sjómenn mikið að heiman starfsins vegna. En samt veittist honum svo auðvelt að eiga vináttu barnanna sinna og vera þeim góður pabbi. Samband Diddu og Madda fannst mér alla tíð einkennast af gagn- kvæmri ást og virðingu og hún var hans stoð og stytta í langvarandi veikindum. Sjálfur kynntist ég Madda þegar hann kvæntist Diddu systur minni. Hún varð „framkvæmdastjóri“ á heimili þeirra, eins og títt var um sjómannskonur. Ég varð fljótlega eins konar aðstoðarmaður hennar um tíma. Mitt starf fólst aðallega í barnapössun og bílastússi. Þetta launaði Maddi mér á ýmsan hátt, e.t.v. ekki síst seinna meir þegar erfiðleikar steðjuðu að mér og mín- um. Þessa tryggu vináttu og sam- fylgdina viljum við nú þakka. Góður maður hefur nú fengið hvíld. Elsku Didda og börn, Guð styrki ykkur. Blessuð sé minning hans. Sigurður Þórðarson. Elsku afi, það er sárt að vita að þú ert farinn frá okkur, en við vitum að þér líður vel og Guð gætir þín. Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki, þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (Hallgr. Pét.) Við biðjum góðan Guð að vaka yfir ömmu Diddu og gefa henni styrk. Heiðar og íris Kristín. Á morgun kveðjum við afa okk- ar. Þegar við fæddumst var afi hættur að sigla en mamma hefur sagt okkur frá því þegar hún var lítil og hann kom heim af sjónum með ýmislegt gott, aldrei aðeins nokkur stykki, heldur heilan kassa af súkkulaði - sem afi kallaði súkk- laði, því afi var „nammigrís“. Afi okkar var líka mikill pítsukarl og við nutum góðs af því, til dæmis þegar hann átti afmæli. Hann kom líka með eitt fyrsta sjónvarpið, sem var í hverfinu okkar, Hvassaleitinu, að ógleymdu öllu Barbiedótinu handa mömmu. Við bræðurnir og síðan litla syst- ir okkar vorum oft í pössun hjá Madda afa og Ömmu Diddu og þau buðu okkur stundum á Laugarvatn í sumarhús Vélstjórafélags íslands eða Keðjunnar. Við hjóluðum líka oft til þeirra eða litum inn þegar við fengum eitthvað nýtt til að sýna afa og ömmu. Það var gott að búa nálægt þeim. Nú er afi farinn, eftir erfið veikindi. Guð geymi ömmu Diddu, mömmu okkar, Sólveigu, Þóru og Magnús frænda. Magnús, Ingimar og Þórhildur. Þegar drengur góður fellur frá, verður manni orða vant. Ekki kom mér í hug í vor er við Magnús hitt- umst í sundlaugunum í Laugardal, að hann ætti svo stutt eftir með okkur í þessu lífi. Að vísu vissi ég að heilsa hans var ekki góð, en það hafði verið svo lengi þannig, að mér virtist hún jafnvel betri nú en oft áður og hafði orð á því við hann. Með þeirri hógværð, sem honum var svo eðlileg, sagði hann mér að heilsufar hans væri misjafnt, stund- um betra. Skömmu eftir að þau hjónin komu heim úr vel heppnaðri utanlandsferð, er þau fóru með fé- lögum okkar, veiktist hann alvar- lega sem lauk með fráfalli okkar góða vinar og félaga. Ég kynntist Magnúsi Smith fyrst er ég var stundakennari við Iðnskól- ann í Reykjavík og Vélskóla íslands á árunum 1942-50. Þar komu eig- inleikar Magnúsar strax í ljós: Hið þýða viðmót og hógværð samfara góðu gengi og hæfni í starfi. í öllum störfum hans síðar á skipum Eim- skipafélags íslands hafa þessir eig- inleikar hans komið glöggt í ljós, enda farsæll í öllum störfum sínum. Magnús gekk í Oddfellowregluna í stúku nr. 11 Þorgeir árið 1965. Vegna starfa hans urðu fundarsókn og störf í stúkunni stopul eins og annarra, sem á sjó eru og í fjar- lægð starfa. Þegar hann hætti störfum, sótti hann fundi með okkur félögunum, en heilsu hans var þá þannig farið, að hann átti erfitt með að sitja á fundum þótt hann gerði það cft. Þau hjónin glöddust jafnan með stúkubræðrum og eiginkonum þeg- ar þau gátu. Þá, sem ávallt, naut Magnús sinnar traustu eiginkonu Sigríðar Erlu Þórðardóttur. Hennar trausts hafa fleiri notið því hún hefur verið formaður Kvenfél. Keðj- an (Fél. eiginkvenna vélstj.) í fjölda ára. Faðir Magnúsar, Óskar Smith, var einnig góður félagi í Oddfellow- reglunni. Hann var meðal annars einn af stofnendum stúkunnar. Við stúkubræður Magnúsar minnumst með söknuði góðs drengs, sem prúður var í öllu sinu framferði og sýndi mikið þolgæði við langvarandi heilsubrest. Við biðjum eiginkonu hans, börn- um og öðrum vandamönnum styrks og blessunar Guðs í söknuði þeirra. F.h. st. nr. 11 Þorgeirs, Friðgeir Grímsson. Við fráfall Magnúsar Smith rifj- ast upp okkar fyrstu kynni fyrir um hálfri öld. í september 1947 vorum við Magnús í hópi 39 nem- enda sem innrituðumst til þriggja ára náms í Vélskóla íslands. Áður höfðum við allir lokið fjögurra ára iðnnámi i vélsmiðjum en að hafa lokið slíku námi með sveinsprófi voru inntökuskilyrði fyrir því að hefja nám í Vélskólanum á þeim árum. Eftir að Magnús hafði lokið námi í Barnaskóla Austurbæjar hóf hann störf hjá föður sínum, Paul Óskari Smith, pípulagningameist- ara. Árið 1942 gerðist Magnús nemandi í rennismíði hjá Vélsmiðj- unni Hamri hf., samhliða námi við Iðnskólann í Reykjavík. Magnús lauk síðan námi sínu í Hamri og við Iðnskólann 1947. Á þeim tíma sem Magnús stundaði nám í Sjómannaskólanum, á árun- um 1947-1950, voru miklir upp- gangstímar í sögu skólans. Skólar sjómannastéttarinnar voru þá nær fullsetnir, stýrimanna, vélstjóra, og lofskeytamanna. Auk þess var þá til húsa í Sjómannaskólanum Ingimarsskólinn, sem á þeim árum var vel virtur Gagnfræðaskóli í Reykjavík. Veðurstofa íslands hafði einnig sína starfsaðstöðu í skólahúsinu, auk þess sem fjöldi nemenda utan af landi bjó í heima- vist skólans í efstu hæð skólahúss- ins. Það var einmitt á þeim árum sem Magnús átti því mikla láni að fagna að kynnast sinni góðu konu og lífs- förunaut, Sigríði Erlu Þórðardóttur Smith, en Sigríður var á sama tíma nemandi við Ingimarsskólann. Að námi í Vélskólanum loknu hóf Magnús sitt ævistarf sem vél- stjóri á skipum Eimskipafélags Is- lands. Magnús var á þeim vett- vangi afar vel virtur starfsmaður hjá góðum vinnuveitanda. Við starfslok var Magnús yfirvélstjóri á skipum Eimskipafélagsins. Magnús naut þess starfsframa hjá Eimskip að lengra varð ekki kom- ist, sem vélstjóri hjá félaginu. Um leið og við skólafélagar Magnúsar flytjum honum alúðar- þakkir fyrir góð kynni og vináttu í hálfa öld flytjum við eiginkonu hans, Sigríði Smith, börnum og öðrum vandamönnum samúðar- kveðjur. Eyþór Þórðarson. + Fallegi sonur okkar og bróðir, SIGURÐUR SÖLVASON, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtudaginn 5. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför litla drengsins okkar. Sérstakar þakkir til starfsfólks þarnadeildar FSA. Sölvi Ingólfsson, Guðrún Jónsdóttir, Rakel Sölvadóttir. t Ástkær móðir okkar, SIGURBJÖRG JÓNSDÓTTIR, áður til heimilis á Njálsgötu 10a, Reykjavík, lést á dvalarheimilinu Lundi, Hellu, miðviku- daginn 11. júní. Edda Guðjónsdóttir, Steinarr Guðjónsson. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, KATRÍNAR JÚLÍUSDÓTTUR frá Húsavík. Júlíus Stefánsson, Pétur Stefánsson, Katrín Júlíusdóttir, Sigríður Ingólfsdóttir, Lúðvík Júlíusson, Stefán Júlíusson. t Elskulegur eiginmaður minn, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og bróðir, FINNUR BENEDIKTSSON, Ljósheimum 6, Reykjavrk, sem lést 5. júní sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 16. júní kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Ólöf Jóhannsdóttir. Þórhildur Hinriksdóttir, Þórður Sigurjónsson, Sigurjón Þórðarson, Ólöf Dís Þórðardóttir, Finnur Dór Þórðarson, Harpa Rún Þórðardóttir, Guðrún Benediktsdóttir. t Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG SIGRÍÐUR SKÚLADÓTTIR, Efstaleiti 14, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðviku- daginn 18. júní kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á líknarstofnanir. Karl Eiríksson og fjölskylda. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess þess Mbl@centrum.is en nánari upp- lýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu- bil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. + SVANHILDUR TESSNOW, Maríubakka 24, Reykjavík verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánu- daginn 16. júní kl. 13.30. Sölvi Jónasson, Haukur Sölvason og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.