Morgunblaðið - 15.06.1997, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 1997 43
IDAG
Árnað heilla
^/AÁRA afmæli. Á
I V/morgun, mánudag-
inn 16. júní verður Una
Sigríður Ásmundsdóttir,
Norðurgötu 5, Siglufirði,
sjötug. Hún er stödd á
Reyðarfirði.
GULLBRÚÐKAUP. í dag, sunnudaginn 15. júní, eiga
fimmtíu ára hjúskaparafmæli hjónin Guðríður Þorkels-
dóttir og Cýrus Daneliusson, Skólabraut 3, Hellis-
sandi. Þau eiga tvö börn, fimm barnabörn og tvö barna-
bamabörn. Þau voru gefm saman af sr. Magnúsi Guð-
mundssyni, Ólafsvík.
(rrkÁRA afmæli.
tl\/Þriðjudaginn 17. júní
verður fimmtug Guðrún
Fanney Óskarsdóttir,
kennari, Hléskógum 5,
Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Þráinn Sigur-
björnsson, framkvæmda-
syóri. í tilefni dagsins
bjóða þau ættingjum, vin-
um og starfsfélögum til
morgunkaffis í Rauðagerði
27, sal Félags íslenskra
hljómlistarmanna frá kl. 11
til 14 þann dag.
H' fTÁRA afmæli.
I Í/Þriðjudaginn 17. júní
verður Anna Tryggva-
dóttir, Hamraborg 32,
Kópavogi sjötíu og fímm
ára. Hún tekur á móti gest-
um í Félagsmiðstöðinni
Gjábakka, Kópavogi, á af-
mælisdaginn frá kl. 10-12.
Þar mun boðið uppá þjóð-
legan morgunverð og kaffi.
O/AÁRA afmæli. í dag, sunnudaginn 15. júní, er áttræð-
ö V/ ur Halldór Þ. Ásmundsson, múrari, Hamraborg
16, Kópavogi. Hann og kona hans Sigrún P. Guðmunds-
dóttir, áttu gullbrúðkaupsafmæli 31. maí sl. Þau verða
að heiman á afmælisdaginn.
HÖGNIHREKKVÍSI
* Siigðu nú á. t/ipt/na., hcLÍUnn^! "
SKÁK
Umsjón Margcir
l’ctursson
Svartur leikur
og vinnur
STAÐAN kom upp í
kvennaflokki á Evrópu-
meistaramótinu í
Pula í Króatíu um
daginn. Eliska
Riclitrova
(2.295), Tékk-
landi, var með
bvítt, en Anna-
Maria Botsari—
Miladinovic hafði
svart og átti leik.
Hvítur var að
drepa biskup á e7,
lék 17. Bg5xe7?
17. — Rg3+! og
hvítur gafst upp.
Drottningin fellur,
því 18. hxg3 — hxg3+ 19.
Kgl - Hhl+! 20. Kxhl -
Dh6+ 21. Kgl - Dh2 er
mát.
Georgía sigraði mjög ör-
ugglega í kvennakeppninni
með 13 vinninga af 18
mögulegum. 2. Rúmenía 12
v., 3. England 12 v., 4.
Rússland ll’/s v., 5. Arm-
enía 11 v. o.s.frv.
Minningarmót um Guð-
mund Arnlaugsson
Mánudaginn 16. júní kl.
18 fer fram hraðskákmót í
Menntaskólanum við
Hamrahlíð til minningar um
Guðmund Amlaugsson,
rektor skólans, sem lést í
vetur. Þess er vænst að allir
sterkustu skákmenn ís-
lands, þ.á m. átta stór-
meistarar, verði á meðal
keppenda. Þátttakendur
verða 16 talsins og tekur
mótið á að giska tvær og
hálfa til þrjár klukkustundir.
Áhorfendur eru velkomnir.
að njóta augnabliksins
og skynja að það er
hið eina sem er
raunverulegt.
TM Reg U.S. Pat. Otl. — all nghts reserved
(c) 1997 Los Angelos Times Syndicate
ÉG á við áfengisvanda
að stríða... ég hef
ekki efni á...
STJÖRNUSPA
cftir Franccs Drake
TVIBURAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert sjálfstæður ogferð
þínar eigin leiðir. Þú færð
snjallar hugmyndir, en
farsælla væri að þú létir
aðra sjá um að koma þeim
í framkvæmd.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú færð óvænta gesti í heim-
sókn og þarft að breyta út af
fyrirætlun þinni af þeim sök-
um. Pjölskyldan ætti að gera
sér glaðan dag úti í náttúr-
unni.
Naut
(20. apríl - 20. mal)
Láttu það ekki slá þig út af
laginu þó einhver setji út á
þig í dag. Ef þú skoðar málið
muntu sjá að réttlát gagnrýni
er af hinu góða.
Tvíburar
(21. maí - 20.júní) 5»
Einhver gerir kröfur til þin í
dag, sem þú þarft að sinna.
Gleymdu þó ekki sjálfum þér
og heilsufari þínu.
Krabbi
(21. júní — 22. júlf)
Enn og aftur þarftu að sýna
aðgæslu í fjármálum. Passaðu
þig líka á að misnota ekki
aðstöðu þína gagnvart mönn-
um og málefnum.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Einhver segir eitthvað sem
setur þig úr jafnvægi. Láttu
það ekki trufla það sem þú
hafðir fyrirfram ákveðið, en
sýndu aðgæslu í fjármálum.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) á*
Þú getur ekki reitt þig á aðra
en sjálfan þig, ef upp kemur
óvænt atvik í dag, sem setur
allt úr skorðum. Farðu
snemma í rúmið og hvíldu þig
vel.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Láttu ekki smámunasemi setja
allt úr skorðum. Þú þarft að
læra það að taka hlutunum
eins og þeir eru og sætta þig
við það sem þú getur ekki
breytt.
Sporðdreki
(23. okt. -21. nóvember) ®Kj0
Eitthvað kemur þér á óvart i
félagslífinu. Láttu það ekki
trufla þig þó einhver gefi þér
hýrt auga. Sýndu barni um-
hyggju, sem er með mótþróa.
HUGVEKJA
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Sýndu aðgæslu i framkomu
við nákominn ættingja sem á
erfitt með skap sitt. Láttu það
sem hann segir sem vind um
eyru þjóta.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar)
Hvfldu huga þinn og hættu
að velta þér upp úr vandamál-
um. Manneskja sem er sí-
malandi, reynir á taugarnar.
Vertu á verði gegn fagurgala.
Vatnsberi
(20.janúar- 18. febrúar) tfh
Þeir vatnsberar sem hafa
hugsað sér að fara í ferðalög
ættu að fara að drífa sig í því
hvað úr hveiju. Góður tími
framundan.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) tSí
Sýndu sveigjanleika ef áætlun
þín breytist eitthvað. Það kem-
ur eitthvað nýtt og skemmti-
legt í staðinn. Einhver stendur
ekki við orð sín gagnvart þér.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
„Því að afnáð
eruð þér hólpnir
orðnir fyrir trú “
Hér hefur hinn
trúaði fundið full-
komna hvíld.
í DAG er þriðji sunnudagur eftir
þrenningarhátíð. Guðspjall dags-
ins eftir fyrstu textaröð eru dæmi-
sögur Jesú um týnda sauðinn og
týndu drökmuna (Lúkas.
15:1-10). Aðrirtextar dagsins
eru mjög af sama toga spunnir.
Guðspjall dagsins eftir annarri
textaröð er þannig dæmisagan
um týnda soninn (Lúkas
15:11-32). Síðari ritningarlestur
dagsins eftir annarri textaröð er
frásögn Postulasögunnar af aft-
urhvarfí Páls postula (Post.
9:1-18). Síðari ritningarlesturinn
eftir þriðju textaröð er að finna
í Efesusbréfinu (2:4-10), en það-
an er hún tekin málsgreinin, sem
höfð er að yfírskrift þessarar hug-
leiðingar.
Markúsar guðspjall hefst með
orðunum „Upphaf fagnaðarerind-
isins um Jesúm Krist“. Þetta orð,
fagnaðarerindi eða „gleðilegur
boðskapur", ágrísku „evangelí-
on“, skírskotartil kjarna alls þess,
sem Heilög ritning og kirkjan
hafa við oss að segja. Það á alveg
sérstaklega við um vora kirkju-
deild, sem einmitt nefnir sig
„evangelisk-lútherska" eða hina
lúthersku kirkju fagnaðarerindis-
ins. Það er óumræðilegt þakkar-
efni, að kirkjufaðir vor, Marteinn
Lúther, skyldi verða svo snortinn
af fagnaðarerindinu, hjartarótum
kristins dóms, sem raun bar vitni.
Þar með er ekkert misjafnt sagt
um aðrar kirkjudeildir, einungis
þakkað fyrir þá gjöf, sem vér
höfðum þegið.
Fagnaðarerindið um Jesúm
Krist felur það í sér, að vér erum
hólpin af náð fyrir trúna eina
saman. Eilíf afdrif vor eru á eng-
an hátt undir því komin, hvernig
oss vegnar við að snúa góðum
hlutum áleiðis í þessum heimi.
Kristinn maður er eins og týndur
sauður, sem Jesús hefur fundið.
Syndarar erum vér frá fæðingu.
Einu gildu viðbrögð vor andspæn-
is Guði eru iðrun, miskunnarbæn
og trú. Yfir þeim viðbröðgum
vorum verður meiri fögnuður á
himni en yfir fjölda syndlausra
manna - ef til væru, sem ekki er
- er ekki hafa iðrunar þörf.
Frásögnin um týnda soninn
segir sömu sögu. Lokaorð föður-
ins í sögunni eru lykill að leyndar-
dómi: „En nú varð að halda hátíð
og fagna, því hann bróðir þinn,
sem var dauður, er lifnaður aftur,
hann var týndur og er fundinn."
II
Ókunnum áhorfanda kynni að
þykja sú lausn, sem fagnaðarer-
indið boðar, vera ódýr og auðfeng-
in. Ekkert er þó fjær lagi: „Því
að svo elskaði Guð heiminn, að
hann gaf son sinn eingetinn, til
þess að hver sem á hann trúir,
glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“
Svo mælir Jesús við Nikódemus
(Jóh,3:16). Jesús Kristur, sonur
Guðs, lét lífið á krossi oss til sálu-
hjálpar. Með blóði sínu hefur hann
keypt oss laus úr fjötrum syndar,
sektar og dauða. Þar var látið í
té dýrasta gjald sem hugsazt get-
ur og nokkurs staðar greinir frá.
Guð hefur sjálfur í Kristi komið
á sáttargjörð milli sín og mann-
anna. Þessi er sú gjöf, sem vér
þiggjum í trúnni. Svo dýrkeyptur
var hann sá heilagi hlutur, sem
vérnefnum „náð“.
Séra Hallgrímur Pétursson hef-
ur öðrum íslendingum betur gert
grein fyrir því einstæða ferli, sem
hér er á dagskrá. Fertugasti og
þriðji Passíusálmur er að mínu
mati máttugasta framsetning
fagnaðarerindisins, sem nokkurn
tíma hefur litið dagsins ljós á ís-
landi og reyndar nokkurs staðar
þar sem ég þekki til. Þar segir
m.a. á þessa leið:
Jesús eymd vora alla sá
ofan kom til vor jörðu á,
hæðum himna upprunninn af
undir lögmálið sig hann gaf.
Viljuglega í vom stað gekk,
var sú framkvæmdin Guði þekk,
fóðumum hlýðni fyrir oss galt
fullkomnaði svo lögmál allt.
Fullkomnað lögmál fyrir þig er,
fullkomnað gjald til lausnar þér,
fullkomnað allt, hvað fyrir var spáð,
fullkomna skaltu eignast náð.
III
Nærlokum sama sálms ávarp-
ar skáldið frelsara sinn og segir:
Hjálpa þú mér, svo hjartað mitt
hugsi jafnan um dæmið þitt
og haldist hér í heimi nú
við hreina samvizku og rétta trú.
Það er hið síðast greinda erind-
ið, sem m.a. veldur því, að ég tek
jafn stórt upp í mig varðandi
þennan sálm og að framan segir.
Hér hefur hinn trúaði fundið full-
komna hvíld. Einskis er af honum
krafizt annars en þess, að hann
„hugsi jafnan um dæmið“ frelsar-
ans. Sú íhugun felur í sér „rétta
trú“, ogafréttri trú sprettur hrein
samvizka.
Hvaðþá um „helgunina“ hlýtur
sá að spyrja, sem nýlega íhugaði
heilagan anda og áhrif hans á
hvítasunnu? Spurningin er meira
en réttmæt. En svarið við henni
er eitthvað á þá lund, að „helgur"
verði enginn af góðum verkum,
heldur einungis fyrir þá náð, sem
fólgin er í því að hugsa jafnan
um dæmi hins krossfesta og upp-
risna Jesú Krists.
Heimir Steinsson, Þingvöllum.
Til ungmenna á aldrinum 14-18 ára
sem vilja upplifa eitthvað nýtt!
Komið í eitt ár í Roskilde Efterskole í Danmörku
Upplifið heiminn, lærið tungumál og eignist nýja félaga
frá mörgum löndum.
8. til 11. bekkur, dönsk lokapróf, nútíma kennsluaðferðir.
Mikið um að vera, íþróttir, tónlist, listir, útivera, ferðalög.
Nemendur og kennarar búa í skólanum.
Byrjað 4. ágúst.
Hringið eða skrifið og fáið sendan bækling.
Roskilde Efterskole,
Ths Bredsdorffs Allé 25, DK-4000 Roskilde,
sími 00 45 46 32 17 57, fax 00 45 42 37 00 57.