Morgunblaðið - 15.06.1997, Side 56

Morgunblaðið - 15.06.1997, Side 56
m <Q> AS/400 er... ...mest selda fjölnotenda viðskiptatölvan í dag MORG UNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMIB691100, SÍMBRÉF5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Flugleiðir ganga frá rammaáætlun um kaup á 12 þotum og fjölgun áfangastaða Ákveða kaup á íjómm nýjum þotum fyrir 14-15 milljarða FLUGLEIÐIR hafa ákveðið að kaupa fjórar nýjar þotur af Boeing verksmiðjunum bandarísku á næstu fimm árum sem kosta munu milli 14 og 15 milljarða króna. Jafnframt hefur verið gengið frá rammasamn- ingi um kauprétt á allt að átta þot- um til viðbótar og hefur fyrirtækið 'þannig markað stefnu um þotukaup til ársins 2006. Nýju þoturnar verða af gerðunum 757-200 og nýrri gerð, 757-300, sem tekur fleiri farþega og kemur á markað árið 1999. Þá verður leigð ein 737-þota í haust sem sinna á sér- staklega fraktflutningum en henni má breyta á skömmum tíma til far- þegaflugs. Tveimur nýjum áfanga- stöðum verður bætt í leiðakerfið næsta vor, Helsinki í Finnlandi og Minneapolis í Bandaríkjunum, og Keflavík verður áfram aðalskipti- stöðin fyrir áfangastaði fyrirtæíds- ins austan hafs og vestan. Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, tjáði Morgunblaðinu að lagðar hefðu verið fram áætlanir fyrir næstu þrjú ár og vinnurammi fyrir næstu 10 ár þar sem gert væri meðal annars ráð fyrir 9% árlegri aukningu í flutningum og stefnt að því að ná 5,5% rekstrarhagnaði. Undanfarin ár hefur hagnaður verið um 2% að viðbættum söluhagnaði flugvéla. Allt að 50 milljarða fjárfesting Kaupverð þeirra fjögurra 757- þotna, sem þegar hefur verið afráðið að kaupa, er 14-15 milljarðar króna. "Má út frá því gera ráð fyrir að heild- arfjárfestingin vegna kaupa á þot- unum 12 verði nærri 50 milljarðar króna. Þegar hefur verið samið við tvo erlenda banka um lán vegna fyrstu tveggja vélanna. Lánsupp- hæðin er um 6,9 milljarðar króna og er lánið veitt til 12 ára. Segir for- stjórinn að náðst hafi samningar um hagstæð kjör þar sem bankarnir hafi tiltrú á rekstraráætlunum Flug- leiða og vali þeirra á flugvélategund. Pétur J. Eiríksson, framkvæmda- stjóri markaðssviðs, segir að ástæð- an fyrir vali á Helsinki og Minnea- polis sem nýjum áfangastöðum sé sú að þaðan séu góðir möguleikar á flutningum yfir Norður-Atlantshafið þar sem fá flugfélög fljúgi frá hvor- um stað. Um frekari fjölgun áfanga- staða segir hann að í Evrópu komi borgir eins og Edinborg og Brussel til greina og í Bandaríkjunum til dæmis Philadelphia. Fleiri farþegar og meiri frakt Leifur Magnússon, framkvæmda- stjóri þróunarsviðs, segir að góð reynsla Flugleiða af notkun 757- þotna ráði því að þær verði meiri- hluti flugflotans. Segir hann þær henta sérstaklega vel til Amer- íkuflugsins en 737-þoturnar henti vel á ákveðnum Evrópuleiðum. Um nýju gerðina, 757-300, segir Leifur að hún sé sjö metrum lengri og taki 228 farþega, um 40 fleiri en 200- gerðin og hafi meira fraktrými. Með henni sé hentugt að mæta aukinni flutningaþörf á ákveðnum leiðum. Flugleiðir eru fyrsta áætlunarfélag- ið sem ákveður kaup á þessari nýju gerð. ■ Inn í næstu öld/10-13 NÝJA 757-300- þotan verður tekin í notkun hjá Flugleiðum árið 2001. Hún er 7 metrum lengri en 200-gerðin og rekstrarkostnaður á hvert sæti er um 9% lægri. Morgunblaðið/Sverrir Frumherjar í fluginu TVEIR frumherjar í fluginu, Bergur G. Gíslason Iijá Flugfélagi íslands og Kristinn Olsen hjá Loftleiðum voru viðstaddir opnun sögusýningar Flugleiða í Perlunni í gær. Þeir áttu báðir sæti í stjórnum félaga sinna í áraraðir og í sljórn Flugleiða eftir stofnun félagsins. Þeir eru hér í hópi flugfreyja sem eru í búningum frá ýmsum tímum í sögu félaganna, Bergur til vinstri og Kristinn til hægri. í tilefni 60 ára afmælisins er kynnt 60 ára saga flugs félaganna en sýningin verður opin milli klukkan 14 og 17 til 17. júní. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Framkvæmdalok í Austurstræti Fjármálaráðherra segir fjárlagaund- irbúning ganga samkvæmt áætlun Fjárlögum skil- að með afgangi Kransæða- sjúkdómar án einkenna algengir RANNSÓKNIR hérlendis sýna að briðjungur allra sem fá hjartadrep fá það sem kallað er þögult hjartadrep en það er hjartaáfall án einkenna. Af niðurstöðum þessara rannsókna má ráða að læknar þurfi að fylgjast mun betur með sjúklingum með háþrýst- ing, þar sem háþrýstingur er ein að- alvísbendingin um kransæðasjúk- dóm án einkenna. Niðurstaða íslenskrar rannsóknar á tíðni þöguls hjartadreps, sem unn- in var af Emil L. Sigurðssyni, heimil- islækni, var kynnt í Bandaríkjunum fyrir 2 árum og vakti hún mikla at- hygli. Á norrænu þingi heimilis- Jækna, se'm nú stendur yfir, kynnti Emil framhaldsrannsókn. Emil segir það nýja í niðurstöðu rannsóknanna nú vera það að fleiri einstaklingar séu greindir með þögul form kransæðasjúkdóma. Hjartaá- fall án einkenna greinist hjá sjúk- lingum við læknisskoðun síðar en engu að síður eru þögul hjartadrep jafn hættuleg og þau tilfelli þar sem sjúklingur hefur sáran verk og leita þarf læknisaðstoðar. FRAMKVÆMDUM við gagngerar endurbætur á Austurstræti milli Pósthússtrætis og Lælgartorgs er nú að mestu lokið og að sögn Sig- urðar I. Skarphéðinssonar gatna- málastjóra næst það markmið að Ijúka gatnagerðarframkvæmdunum fyrir þjóðhátíðardaginn eins og að var stefnt. Iiann sagði að allar framkvæmdirnar hefðu gengið vel og ákaflega fáar kvartanir hefðu borist vegna truflunar af völdum þeirra. Lokið er við allt sem lýtur að gatnagerðinni sjálfri en uppsetn- ing listaverka og drykkjarfonts mun hins vegar dragast eitthvað. RÍKISSTJÓRNIN hefur fjaUað um útgjaldaramma fyrir einstök ráðuneyti vegna undirbúnings við gerð fjárlaga næsta árs og vinna ráðuneytin þessa dagana að út- gjaldatillögum sínum innan þeirra ramma sem ríkisstjómin hefur samþykkt. Má gera ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki í næsta mánuði og að endanleg ákvörðun verði tek- in um upphæðir fjárlagafrum- varpsins í ágúst eins og venja er, að sögn Friðriks Sophussonar, íj ármálaráðherra. Nauðsynlegt að greiða skuldir og koma í veg fyrir þenslu Friðrik segir íjárlagaundirbún- inginn ganga samkvæmt áætlun. „I upphaflegri áætlun ríkisstjórnar- innar var gert ráð fyrir nokkrum afgangi á næsta ári en það verður ekki hægt að segja endanlega til um hver afgangurinn verður fyrr en í ágústmánuði. Það er hins veg- ar skýlaus skylda ríkisstjórnarinn- ar að skila fjárlagafrumvarpi með afgangi fyrir árið 1998 til þess að hægt sé að greiða niður skuldir rík- issjóðs. Slíkt er mikilvægt til að hamla gegn þenslu í efnahagslíf- inu,“ segir Friðrik. Vildi ráðherr- ann ekki nefna neinar tölur í því sambandi á þessu stigi. Tekjur munu aukast í ár um- fram það sem áætlað var „Það er ekkert sem bendir til annars en markmiðið um hallalaus fjárlög standist í ár eins og gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu. Þó er augljóst að tekjur munu vaxa nokkuð frá því sem gert var ráð fyrir vegna veltubreytinga og launahækkana umfram forsendur fjárlaga en útgjöldin munu að sama skapi hækka vegna launahækkana ríkisstarfsmanna,“ segir Friðrik aðspurður um stöðu ríkissjóðs um þessar mundir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.