Morgunblaðið - 08.08.1997, Page 1
64 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
176. TBL. 85. ÁRG. FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
3.300 tonna kraftur
knúði Discovery á braut
BANDARÍSKU geimferjunni
Discovery með Islendinginn Bjarna
Tryggvason, geimfara kanadísku
geimferðastofnunarinnar (CSA),
innanborðs, var skotið á loft á Cana-
veralhöfða í gær. Klukkan 14.41 að
íslenskum tíma kviknaði á þremur
hreyflum ferjunnar og tveimur
hjálparflaugum, sem framleiða 3,3
milljóna kílóa lyftikraft, og skaust
Discovery samstundis af stað.
Hálfri níundu mínútu seinna var
hún komin á braut sína um jörðu í
296 kílómetra hæð.
Olafur Ragnar Grímsson, forseti
Islands, var viðstaddur geimskotið
á Canaveral og sagði það hafa verið
tilkomumikið og áhrifaríkt.
„Óneitanlega bærðust með manni
hugsanir sem tengdust íslandi og
sögu okkar þjóðar þegar Bjarni
Tryggvason var á þessu augnabliki
að feta í fótspor íslenskra landkönn-
uða á fyrri tíð; samhengið í sögu
okkar á örskotsstundu, allt frá
Ingólfi Amarsyni og Leifi Eiríks-
syni til Bjarna Tryggvasonar,"
sagði Ólafur Ragnar.
Hann kvað Bjarna hafa þegið boð
sitt um að koma í heimsókn til Is-
lands er þeir ræddust við í síma í
fyrrakvöld. Hefur Bjarni ekki kom-
ið til íslands frá því hann fiuttist
með fjölskyldu sinni til Kanada
1953. Hafði hann meðferðis íslensk-
an fána út í geiminn sem hann ætlar
að færa þjóðinni að gjöf er hann
kemur hingað til lands.
Ellefu daga í geimnum
Discovery verður 11 daga í
geimnum og er áætlað að hún lendi
aftur 18. ágúst eftir 176 ferðir um-
hverfis jörðina. Tekur hver ferð 90
mínútur og á þeim tíma sjá geimfar-
arnir sólina rísa tvisvar því á braut
Reuter
ÍSLENSKI geimfarinn Bjarni Tryggvason gengur frá skrúðhúsi geimfara út í bandarísku geimferjuna
Discovery í gær, rétt fyrir upphaf 11 daga geimferðar. Ferjunni var skotið á loft í Kennedy-geimferðamið-
stöðinni á Canaveralhöfða í Flórída klukkan 14.41 að íslenskum tíma í gær.
þeirra um jörðu er sólarhringurinn
45 mínútur. Áhöfnin á annasama
tíma framundan við 40 rannsóknar-
verkefni. Bjarni Tryggvason gerir
tilraunir með sérstakan titringsein-
angrara sem hann hefur sjálfur
hannað og notaður verður í væntan-
legri alþjóðlegri geimstöð til að eyða
titringi í rannsóknar- og tilrauna-
tækjum. Einnig gerir hann straum-
fræðitilraunir og athuganir á frumu-
byggingu og vefjamyndun í svo-
nefndum lífefnakljúfi.
■ Þáði boð um/6
Flugslysið á Guam
Flugritar
veita gagn-
legar upp-
lýsingar
Washington. Reuter.
FLUGRITAR suður-kóresku Bo-
eing 747-300 þotunnar, sem fórst á
Guam aðfaranótt miðvikudags, eru
heilir og hafa gefið gagnlegar upp-
lýsingar, að því er bandaríska sam-
gönguöryggisráðið (NTSB) greindi
frá í gær. Ekki hefur verið sagt frá
því hvaða upplýsingar fengust við at-
hugun á ritunum.
Þotan var í eigu suður-kóreska
flugfélagsins Korean Air Lines
(KAL) og var á leið frá Seoul til Gu-
am. Með henni voru 254 farþegar og
áhöfn. Þrír farþegar, sem komust lífs
af úr slysinu, létust á sjúkrahúsi í
gær og er þá tala þeirra sem lifðu af
komin í tuttugu og sjö.
Bandaríska fréttastofan Associ-
ated Press hafði í gær eftir suður-
kóreska dagblaðinu Sjosun Ilbo að
flugstjóri þotunnar, Park Yong-chul,
hefði ekki fengið nægan tíma til
hvíldar áður en hann lagði upp í flug-
ið til Guam. Auk þess hefði hann
ekki verið vel kunnugur aðstæðum
þai'. Blaðið nefndi ekki heimilda-
menn, en gi’eindi ennfremur frá því
að Park hafi haldið til Guam einungis
nokkrum klukkustundum efth- að
hann kom úr flugi frá Hong Kong.
Þar á undan hafi hann flogið til og
frá Ástralíu.
Fulltrúi flugfélagsins bar fregnina
til baka, en viðurkenndi að Park hafi
fyrst flogið á leiðinni Seoul-Guam í
byrjun júlí eftir þriggja ára hlé.
George Black, starfsmaður NTSB,
sagði í samtali við bandan'sku sjón-
varpsstöðina NBC í gærmorgun að
mannleg mistök ættu e.t.v. þátt í
slysinu, þar eð flest benti til að flug-
menn þotunnar hafi sjálfir verið við
stjórnvölinn þegar hún fórst.
■ Of snemmt/20
DC-8-flutningaflugvél fórst á Miami
Steyptist til jarðar
skömmu eftir
Miami. Reuter.
FLUTNINGAFLUGVEL af gerð-
inni Douglas DC-8 hrapaði til jarðar
skömmu eftir flugtak frá alþjóða-
flugvellinum í Miami í Bandaríkjun-
um í gær. Kom hún niður i vöru-
geymsluhverfi og dreifðist logandi
brakið úr henni um það og nær-
liggjandi hraðbraut.
Með vélinni voru fjórir menn, þrír
flugliðar og öryggisvörður, og voru
þeir taldir af. Tilkynnt var í gær, að
fundist hefðu lík þriggja manna en
ekki var ljóst hvort þar var um að
ræða menn úr áhöfninni eða menn,
sem orðið hefðu fyrir braki úr
flugvélinni.
Vélin, sem var á vegum flutninga-
flugfélagsins Fine Air, fór í loftið
skömmu eftir klukkan hálffimm að
íslenskum tíma og var ferðinni heit-
ið til Santo Domingo í Dómíníska
lýðveldinu. Aðeins nokkrum sek-
Fjögurra manna
áhöfn talin af -
óvíst um annað
manntjón
úndum síðar hrapaði hún til jarðar
fyrir vestan flugbrautina.
Vitni segjast hafa séð eld í einum
af fjórum hreyflum flugvélarinnar
en hún tók skyndilega mikla dýfu
og hafnaði eins og fyrr sagði í vöru-
húsakerfi þar sem brakið úr henni
dreifðist yfir stórt svæði. Var eldur-
inn svo mikill, að reykjarmökkurinn
frá honum sást vel frá miðborg Mi-
ami í 16 km fjarlægð. Læsti eldur-
inn sig í bfla á bflastæði og lokaði
nærliggjandi hraðbraut.
„Hún féll til jarðar eins og
flugtak
steinn," sagði George Foch, eitt
vitnanna að hrapi vélarinnar. „Hún
getur ekki hafa verið á lofti nema í
eina eða tvær mínútur. Þetta var
ótrúlegt. Það var eins og hún dytti
niðm-.“
Annað vitni að slysinu, Bill
Garcia, sagði að flugvélin hefði
skyndilega sveigt til hægri og síðan
til vinstri og þá hefði mátt sjá, að
eldur logaði í einum hreyflanna.
Síðan hefði hún steypst til jarðar
eins og eldflaug.
Þetta er fyrsta stóra flugslysið í
Suður-Flórída frá því í maí 1996 en
þá fórst DC-9-farþegaflugvél frá
flugfélaginu Valujet með 110 manns
um borð.
Tilkynnt var í gær, að svarti
kassinn eða flugriti vélarinnar hefði
fundist og var rannsókn hafin á
ástæðum slyssins.
Reuter
LOGANDI brakið úr DC-8-flutningaflugvélinni dreifðist yfir götur og
bflastæði inn á milli vörugeymslu- og skrifstofubygginga skammt frá
flugvellinum í Miami. Urðu tafir á flugumferð fyrst eftir slysið.