Morgunblaðið - 08.08.1997, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 08.08.1997, Blaðsíða 52
JtewU&L -setur brag á sérhvern dag! MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5091100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Jim Smart ÞAÐ sem eftir stendur af skipsskrokknum í fjöruborðinu og ekki verð- ur hreyft frekar við af mannahöndum mun brimið sjá um að sverfa og sandurinn gleypa. Niðurrifí Víkartinds lokið og hreinsun á strandstað á lokastigi Skipið breyttist í brotajárnshaug UPPI á fjörukambinum liggur draslið í stórum haugum og bíður þess að verða fjarlægt þegar haustar og jörð frýs. LOKIÐ er við að hluta sundur skrokk Víkartinds að svo miklu Ieyti sem mögulegt er og koma hlutunum upp á fjörukambinn. Þar er verið að taka þá sundur í smærri búta, sem síðan verða fluttir burt sem brotajárn þegar jörð frýs í haust en sem stendur er erfitt um vik fyrir þunga bíla að aka um sandinn. Ekki verður hreyft frekar við því sem eftir er af skipsskrokkn- um í fjöruborðinu en briminu og sandinum látið eftir að granda því smátt og smátt. Guðmundur Bjarnason um- hverfisráðherra fór í vettvangs- skoðun á strandstað Víkartinds í ffáfsfjöru í gær ásamt embættis- mönnum og skoðaði það sem þar var eftir af flakinu. Nú eru liðlega fimm mánuðir frá strandi Víkart- inds. Birgir Þórðarson, heilbrigðis- fulltrúi Suðurlands, kvaðst mjög ánægður með framgang hreinsun- arstarfsins. „Þetta hefur gengið mjög vel miðað við allar aðstæð- ur. Hér hefur verið unnið hratt og vel, enda fagmenn að verki. Eng- in slys hafa orðið á mönnum og það tókst vel að koma í veg fyrir mengun af völdum olíu og spilli- efna,“ sagði Birgir. Unnið er að skýrslu um málið, sem verður væntanlega iögð fyrir Alþingi í haust. „Ég held raunar ekki að það sé þörf á miklum lagabreytingum, en það þarf að skoða betur stjórnsýsluþáttinn, þ.e. hver ber ábyrgð á hverju," sagði umhverfísráðherra. Viðskipti með notaða bila í rannsókn EMBÆTTI skattrannsóknarstjóra ríkisins hefur hafíð umfangsmikla rannsókn á viðskiptum með notað- ar, innfluttar bifreiðar. Rannsóknin beinist að milliliðum í slíkum við- skiptum en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins leikur grunur á að rekstrartekjur af þessum viðskipt- um séu vantaldar. Embættið kannar sérstaklega endanlegt söluverð bifreiðanna og kostnaðarverð þeirra. Er talað um að þær upphæðir sem vantaldar eru geti hlaupið á tugum milljóna króna. Skúli Eggert Þórðarson, skattrannsóknarstjóri ríkisins, stað- festir að rannsóknin sé í gangi og nái til viðskipta með notaða bíla á síðasta ári. „Ég get staðfest það að þessi at- vinnugrein hefur verið til rannsókn- ar hjá embættinu. Rannsóknin bein- ist að aðilum sem hafa haft það að atvinnu að flytja inn notaða bíla til endursölu eða í umboðssýslu,“ segir Skúli Eggert. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er rökstuddur grunur um að notaðir bílar séu í mörgum tilfell- um seldir á hærra verði en söluaðil- ar kosta sjálfii- til. Grunsemdir eru um að af mismun á kostnaðarverði og söluverði séu ekki greidd lögboð- in opinber gjöld. Rannsóknin beinist ekki að kaup- endum innfluttra, notaðra bíla á Is- landi heldur þeim sem hafa haft at- vinnu af innflutningnum. Er þar um að ræða á annan tug aðila. Á síðasta ári voru fluttir inn 1.670 notaðir bíl- ar og 877 bílar fyrstu sex mánuði þessa árs. Talið er að vantaldar rekstrartekjur vegna þessara bíla nemi tugum milljóna króna. Fékk 280 E- pillur í pósti PÓSTSENDING með 280 E-pillum barst nýverið íbúa í Hafnarfirði og tilkynnti viðkomandi lögreglunni þegar um sendinguna sem hann kvaðst ekki hafa átt von á. Sendingin, sem var bók, barst frá óþekktum að- ila í Bretlandi. Málið er nú í rann- sókn hjá rannsóknadeild lögreglunn- ar í Reykjavík. Hraðsendingarþjónusta hafði fyrir verslunarmannahelgina reynt að koma pakkanum til viðtakanda en þar sem hann var að heiman skildi sendill eftir tilkynningu um að hann ‘ gæti vitjað pakkans á pósthúsinu sem eigandinn gerði og kom þá í ljós hvers kyns var. I E-pillunni eru fíkni- efni skyld amfetamíni sem haft geta meðal annars skaðleg áhrif á ákveðn- ar taugafrumur. Ómar Smári Ár- mannsson lögreglumaður segir að sleppi sendingar sem þessar gegnum tollaeftirlit, sem dæmi séu um á síð- r-* ustu árum, skuli viðtakendur þegar í stað hafa samband við lögreglu. Skrifað undir samninga vegna álvers Norðuráls á Grundartanga Hagnaður Landsvirkjunar 1100 milljónir á 20 árum Morgunblaðið/Arnaldur KENNETH Peterson, stjórnarformaður og forstjóri Columbia Ventures Corporation, aðaleiganda Norðuráls, og Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra takast í hendur eftir undírritun samninga í gær. GENGIÐ var frá samningum vegna álvers á Grundartanga milli íslenskra stjórnvalda og Lands- virkjunar og Norðuráls og Col- umbia Ventures Corporation í Reykjavík i gær. Allir nauðsynlegir samningar, sem íslenskir aðilar koma að vegna álversins, hafa því verið undirritaðir. Hagnaður Landsvirkjunar vegna samningsins er áætlaður 1100 milljónir á næstu 20 árum, á núvirði. Endanlegir samningar um fjár- mögnun álversins milli Columbia og hollenska bankans ING og franska bankans Banque Paris verða undirritaðir á föstudag í London og er undirritunin nánast formsatriði, þar sem öllum ágrein- ingsefnum samningsaðilanna hefur verið eytt, að sögn David Coles, fulltrúa Banque Parisbas. Kenneth Peterson, forstjóri Col- umbia og stjórnarformaður Norð- uráls, og Finnur Ingólfsson, við- skipta- og iðnaðarráðherra, undir- rituðu fjárfestingarsamning vegna álversins á Grundartanga í húsa- kynnum Landsvirkjunar í gær og þá voru einnig undirritaðir samn- ingar um hafnarframkvæmdir á Grundartanga, athafnasvæði ál- versins og raforkusölu frá Lands- virkjun, auk þess sem Landsvirkj- un og Reykjavíkurborg undirrituðu samning um sölu á rafmagni frá jarðvarmaveitu á Nesjavölium. Heildarkostnaður við byggingu álversins er um 180 milljónir doll- ara eða rúmlega 13 milljarðar ís- lenskra króna. í lok þessa mánaðar eru væntanleg 11 skip til landsins með margvíslegan búnað í verk- smiðjuna. 6,8 miHjarðar í efnahagslífið Að lokinni undirritun samninga í gær sagði Finnur Ingólfsson iðnað- arráðherra samninginn sérstaklega merkilegan því hann væri fyrsti fjárfestingarsamningur frá 1977 milli stjórnvalda og erlends aðila því aðrir samningar hafí verið gerð- ir við aðila sem fyrir hafi staðið að rekstri járnblendiverksmiðju á Grundartanga og álvers í Straums- vík um stækkun þeirra fyrirtækja. Ráðherra sagði að þegar samn- ingurinn, þar sem gert er ráð fyrir álveri sem geti framleitt 60 þúsund tonn af áli en unnt verði að stækka í allt að 180 þúsund tonna fram- leiðslugetu, komi í gagnið muni hann skila 6,8 milljörðum króna inn í efnahagslíf Islendinga í auknar út- flutningstekjur á ári. Kenneth Peterson, forstjóri og stjórnarformaður Columbia, eig- anda Norðuráls, sagði við Morgun- blaðið að ekki léki vafi á að ráðgert væri að stækka álverið í framtíð- inni, „en það verður ákveðið í sam- ráði við Landsvirkjun og veltur einnig á ástandinu á álmörkuðun- um. Það verður ákveðið á næstu ár- um. Núna einbeitum við okkur að því að koma þessum áfanga á skrið,“ sagði Peterson. ■ Samningagerð/26-27

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.