Morgunblaðið - 08.08.1997, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tveir vistmenn á Grund halda upp á 100 og 102 ára afmæli sitt
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
VILBORG Hafberg (t.v.) og Sigríður Jónsdóttir héldu upp á afmæli sitt í gær.
Fjölskylda Vilborgar bauð upp á kaffiveitingar.
„Hundrað
ár eru hár
aldur“
„Æ, HUNDRAÐ ár eru hár ald-
ur,“ sagði Vilborg Hafberg, vist-
maður á Elliheimilinu Grund,
þegar dóttir hennar færði hana í
upphlutinn í tilefni af 100 ára af-
mæli hennar í gær.
Vilborg vildi hins vegar lítið
ræða um tilstandið í kringum af-
mælið. Dætur hennar Ágústa og
Ingibjörg segja að hún hafi
meira yndi af því að rifja upp
gamla tíð. Vilborg er fædd í Víf-
ilsmýri í Onundarfirði og eign-
aðist fjögur börn. Eitt barnanna
er látið. Óll systkini Vilborgar
eru látin en ein systir hennar
náði háum aldri. Faðir Vilborg-
ar varð 97 ára.
Vilborg var ekki eina afmælis-
barnið á Grund því að Sigríður
Jónsdóttir frá Efri-Mörk í Síðu í
Vestur-Skaftafellssýslu hélt upp
á 102 ára afmæli sitt sama dag.
Eins og Vilborgu fannst Sigríði
hreint með ólfkindum að hún
hefði náð jafn háum aldri þegar
henni var sagt frá afmælinu.
Sigríður eignaðist einn son en
giftist aldrei. Hún var ráðskona
á Grímsstöðum á Mýrum í 40 ár.
Sigríður tekur engin lyf og er
klædd á hveijum degi. Hins veg-
ar er hún farin að sjá og heyra
illa.
Beina þurfti umferð af Vesturlandsvegi um Grafarvogshverfí
Mikíl óánægja vegna tafa
VEGNA malbikunarframkvæmda
á Vesturlandsvegi milli Víkurvegar
og Suðurlandsvegar í gær þurfti að
beina allri umferð sem kom austur
Vesturlandsveg inn á Víkurveg,
Gagnveg, Fjallkonuveg og Gullin-
brú í Grafarvogshverfi. Af þessu
hlaust mikið umferðaröngþveiti í
Grafarvogi og þurftu lögreglumenn
að stjóma umferð á hringtorginu á
Gullinbrú lengi dags í gær. Hlé var
gert á framkvæmdum kl. 17.45 og
umferð hleypt á Vesturlandsveg í
báðar áttir á meðan en kl. 18.30 var
aftur hafist handa og umferð beint
sömu leið og áður. Gert var ráð fyr-
ir að framkvæmdum lyki seint í
gærkvöldi.
Ekkert merkt inni í hverfinu
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu voru íbúar í Grafarvogi og
aðrir vegfarendur mjög óánægðir
með óþægindin sem af þessu hlut-
ust. Sem dæmi má nefna að sumir
vissu ekki hvert skyldi halda þegar
komið var inn á Víkurveg vegna
skorts á merkingum og aðrir
þurftu að taka á sig krók vegna
þess að ekki var leyfður akstur um
hringtorgið nema að hluta í einu.
Morgunblaðið/Kristinn
KRISTINN Hjálmarsson var einn þeirra lögreglumanna sem stjórnuðu
umferð á hringtorgi við Gullinbrú í Grafarvogi í gær. Um tíma stóðu
þeir þrfr á torginu en meira og minna allur mannskapur umferðar-
deildar lögreglunnar í Reykjavík vann við umferðarstjórn og eftirlit
vegna framkvæmdanna á Vesturlandsvegi í gær.
Þannig var þeim sem komu norður
Gullinbrú og ætluðu út í Hamra-
hverfi eða norður Strandveg beint
inn á Fjallkonuveg og þurftu ýmist
að snúa við og fara aftur í biðröð
við hringtorgið eða taka á sig lang-
an krók til að komast leiðar sinnar.
Skammur
aðdragandi
Ragnar Árnason, varðstjóri hjá
umferðardeild lögreglunnar í
Reykjavík, sagði að lögreglunni
hefði ekki verið tilkynnt um fram-
kvæmdirnar fyrr en um kl. 18 í
fyrrakvöld og þess vegna hefði ver-
ið skammur tími til að gera ráð-
stafanir. Lögeglunni hefði verið
tjáð að ekki hefði verið hægt að
gera þetta á öðrum degi, m.a.
vegna þess að til verksins var not-
uð vél frá Svíþjóð sem er hér í
skamman tíma
Ragnar sagði að margir hefðu
hringt til lögreglunnar í gær og
kvartað undan ástandinu en ekki
hefði verið hægt að leysa þetta á
annan hátt en þann að beina umferð
um íbúðahverfið í Grafarvogi. Hann
segii’ að í gær hafi sannast enn einu
sinni að akstursleiðir til og frá Graf-
arvogi séu allt of fáar. „Við höfum
áður bent á að það megi aldrei
verða nein röskun á leið í Grafar-
vog, hvorki um Gullinbrú né Víkur-
veg, þá skapast mjög slæmt ástand.
Þetta verk hefði átt að vinna að
nóttu tíl. Þá hefði það ekki valdið
neinni truflun, þar sem það er
fjarri íbúðabyggð, og þannig hefði
orðið lágmarksröskun á umferð."
Ragnar sagði að umferðin hefði
gengið svo til óhappalaust þrátt
fyrir teppuna. Aðeins eitt óhapp
hefði orðið sem rekja mætti til
hennar.
Kærumál Hollustuverndar
Ekki hægt að
sanna ásetning
Kona á reið-
hjóli fyrir bíl
KONA á reiðhjóli varð fyrir bíl á
gatnamótum Rauðarárstígs og
Miklubrautar síðdegis á miðvikudag.
Konan skarst á höfði og grunur lék á
að hún hefði viðbeinsbrotnað eða axl-
arbrotnað. Hún var flutt á slysa-
deild.
Um svipað leyti varð árekstur
tveggja bíla á gatnamótum Hring-
brautar og Njarðargötu. Ökumaður
annars bílsins kvartaði undan eymsl-
um í hálsi og fór hann sjálfur á slysa-
deild.
Flyfja þurfti ökumann, sem féll af
bifhjóli í fyrrakvöld, með sjúkrabíl á
slysadeild. Hann var talinn vera með
minniháttar meiðsl.
Þriggja bíla árekstur varð á
Hringbraut í fyrrakvöld. Einn öku-
manna var fluttur á slysadeild með
eymsl f hnjám, baki og á höfði.
Skemmdir urðu á lakki þriggja
bifreiða þegar málningarleysiefni
gusaðist á þær þar sem verið var að
vinna við hús við Hallveigarstíg.
í FLESTUM þeirra mála sem Holl-
ustuvemd hefur vísað til ríkissak-
sóknara hefur ekki verið hægt að
sanna ásetning, samkvæmt upplýs-
ingum frá Birni Helgasyni saksókn-
ara. Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær hafa flest mál sem
Hollustuvemd hefur sent ríkissak-
sóknara verið felld niður hjá embætt-
inu. Nú hafa hins vegar borist frekari
upplýsingar frá embættinu.
„Astæða þess að málin voru felld
niður hjá embættinu var sú að í
flestum tilfellum var talið að um slys
eða klaufaskap hefði verið að ræða
en ekki ásetning.“
Björn sagði þó að eitt málið, hið
svokallaða tbt-mál, hefði fyrnst hjá
embættinu. „Það er tveggja ára
fyrningarfrestur á þessum málum
og tafðist þetta mál á ýmsum stig-
um. Hið meinta ólögmæta atferli fór
fram í október 1993, það var gert að
opinberu máli 1994 og það kom svo
til okkar 22. janúar 1995 frá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins. Þegar það
var svo tekið til afgreiðslu hér einu
og hálfu ári síðar var það fymt,“
sagði Björn Helgason.
Að sögn Björns eru að auki nokk-
ur vafaatriði varðandi bann á notkun
tbt-málningar. „I reglugerð nr. 33
frá 1990 eru skip lengri en 25 metr-
ar undanþegin frá banninu. Það má
því nota málninguna á stór skip en
ekki litla báta. Þetta sýnir að lögin
era langt frá því að vera skýr í þessu
efni.“
Kirkjurústir
kannaðar
KANNAÐAR verða á næstunni
fornleifar á tveimur stöðum á land-
inu, annars vegar í Hálsasveit á veg-
um bandarískra aðila og hins vegar á
bænum Neðra-Ási í Hjaltadal á veg-
um Þjóðminjasafnsins. Þór Magnús-
son þjóðminjavörður segir að í fram-
haldinu verði metið hvort ástæða sé
til frekari rannsókna.
Þjóðminjavörður segir að talið sé
að á Neðra-Ási í Hjaltadal hafi Þor-
valdur spak Böðvarsson reist kirkju
16 vetrum fyrir kristnitöku. Ekki
væra til heimildir um kirkjuna og
myndi Sigurður Bergsteinsson
kanna á næstunni hvort hugsanlegt
væri að finna kirkjurústir. í
Hálsasveit verða könnuð forn býli á
hálsi nokkru ofan við Reykholt og
verða m.a. kannaðir járnvinnslustað-
ir. Munu bandarískir fomleifafræð-
ingar annast það en Guðmundur
Ólafsson fornleifafræðingur mun
fylgjast með verkinu fyrir hönd þjóð-
minjavarðar.
Þrumur og eldingar í
Árnes- og Rangár-
vallasýslu
Skemmdir
á spennum
ollu raf-
magnsleysi
Gaulverjabæ. Morgunblaöiö.
MIKIÐ þramuveður var að-
faranótt fimmtudags 7. ágúst
og varð þess vel vart víða um
sveitir Suðurlands. Spennar
Rafmagnsveitna ríkisins
skemmdust og fór rafmagn
um tíma af víða í Árnes- og
Rangárvallasýslu.
Laust fyrir klukkan eitt eft-
ir miðnætti byi’jaði
þramugnýr og ljósagangur
mikill. Var greinilegt að loftið
var hlaðið rafmagni því smell-
ir heyrðust úr rafmagnstengl-
um í öflugustu þrumum. Raf-
magnslaust varð í öllum Fló-
anum í rúmlega eina og hálfa
klukkustund. Tveir spennar
eyðilögðust á bæjunum Tóft-
um í Stokkseyrarhreppi og
Kolsholti í Villingaholtshreppi
og var þar straumlaust til kl.
8 í gærmorgun meðan unnið
var að viðgerð. Áttu starfs-
menn RARIK því annríka
nótt en línur slógu út víðar í
héraðinu, m.a. í Biskupstung-
um, eingöngu vegna þramu-
veðurs því vindur var ekki
mjög mikill.
f einu tilviki byrjuðu hljóm-
flutningstæki að hljóma með
látum um miðja nótt, heimil-
isfólki til mikillar undrunar.
Var þá straumur á geislaspil-
ara og virðist sem ein
skruggan hafi sett hann af
stað og æðri máttarvöld vilj-
að tónlist.
Ki’istján Jónsson forstjóri
RARIK sagði tjón ekki mikið
og viðgerðum hefði öllum lok-
ið snemma í gærmorgun.
Ljósmyndari Playboy
staddur hér á landi
Ljósmynd-
ar 15-20
íslenskar
stúlkur
LJÓSMYNDARI bandaríska
tímaritsins Playboy er stadd-
ur hér á landi og hefur mynd-
að 15-20 íslenskar stúlkur.
Ljósmyndarinn heitir Arny
og segir Kolbrún Aðalsteins-
dóttir, milligöngumaður tíma-
ritsins hér á landi, að hann sé
með færastu tísku- og nektar-
ljósmynduram í heiminum.
Arny hefur tekið ljósmynd-
ir fyrir Playboy í yfir 20 ár.
Kolbrún segir að birst hafi
grein fyrir nokkru í Men’s Jo-
urnal um að fallegustu kon-
umar væri að finna á íslandi.
í framhaldi af því hefði Trist-
ar kvikmyndafyrirtækið
ákveðið að taka upp kvikmynd
á íslandi. „Núna er Playboy
komið hingað vegna þess að
talið er að fallegustu konur í
heimi séu á íslandi," sagði
Kolbrún.
Greinin um íslensku stúlk-
urnar verður væntanlega birt
í febrúarhefti blaðsins að sögn
Kolbrúnar og birtast þá
myndir af þeim öllum. Stúlk-
uraar era ekki vanar fyrir-
sætur heldur er markmið
tímaritsins fremur að gera al-
menna grein sem fjallar um
kvenlega íslenska fegurð.
b
&
I |
I
c
c
1
i
i
i
s
I
c
«
A
I
I
í
f4
i
í
i