Morgunblaðið - 08.08.1997, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Bretar hafa veitt
lítið við Rockall
Aflinn þar árið 1995 aðeins 0,2%
heildar fiskafla Breta það ár
Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson
LOÐNUSKIPIÐ Bjarni Ólafsson frá Akranesi á loðnumiðunum.
Þokkaleg loðnuveiði
LOÐNUSKIPIN tínast nú á miðin
eftir stutt frí en í gær voru 29 skip
að veiðum um 60 mílur norður af
Melrakkasléttu, samkvæmt upplýs-
ingum Tilkynningaskyldunnar.
Veiði hefur verið þokkaleg nú í
upphafi mánaðar en búast má við
að nokkuð dragi úr veiði þegar skip-
um fjölgar.
„Það hefur gengið þokkalega í
þessum tveimur túrum sem við erum
búnir að fara í ágúst. Hins vegar
virðist ekki vera mikið af loðnu á
svæðinu austur af Kolbeinsey og
verður enn síður til skiptanna þegar
fleiri skip bætast í hópinn," sagði
Arnbjörn Gunnarsson, skipstjóri á
Hábergi GK, í samtali við Morgun-
blaðið, en auk íslensku skipanna
voru 4 norsk loðnuskip að veiðum á
miðunum í gær.
Hábergið var á leið til Grindavíkur
með fullfermi í gær og sagðist Arn-
björn hafa fengið aflann í 6 köstum.
„Við náðum einu 500 tonna kasti
en vorum annars að fá þetta í smá
skömmtum. Það eru alltaf nokkur
skip að hitta á góð köst en yfir höf-
uð eru þetta lítil köst. Loðnan er í
mjög góðu standi og allt annað hrá-
efni þegar hún kemur í land, miðað
við það sem var fyrr á vertíðinni."
Óvenju snemma á ferðinni
Arnbjörn sagði loðnuna vera
komna óvenju vestarlega miðað við
árstíma en reyndar hafi hún hagað
sé öðruvísi í allt sumar en oft áður.
„Hún virðist vera á vesturleið og
stefnir á Kolbeinseyjarhrygginn. Það
er hefðbundin gönguleið, nema
venjulega er hún nokkuð utar og
seinna á ferðinni. Það kæmi mér
ekki á óvart þótt loðnan færi alveg
upp á grunnin norður af landinu.
Það hefur gerst áður og eitt haustið
var hún komin það langt upp í fjöru
við Melrakkasléttuna að menn þorðu
ekki að kasta á hana,“ sagði Arn-
björn.
Heildarveiði íslenskra loðnuskipa á
sumarvertíð nemur nú alls 291.500
tonnum og er 569.465 tonna upp-
hafskvóti þá ríflega hálfnaður. Sam-
tals hefur verið landað um 36.800
tonnum úr erlendum loðnuskipum á
vertíðinni.
MIKLAR umræður hafa verið meðal
sjómanna Bretlandseyja vegna stað-
festingar Breta á alþjóða hafréttar-
sáttmálanum. Samkvæmt honum
miða þeir ekki lengur 200 mílna fisk-
veiðilögsögu sína við klettaeyjuna
Rockall. Fulltrúar sjómanna telja að
stjórnvöld hafi hlaupið á sig, þau
hafi ekki leitað álits þeirra og fyrir
vikið tapist yfirráðin yfir mikilvæg-
um fískimiðum, einkum mið fyrir
ýmiss konar djúpsjávarfíska.
Samkvæmt fyrirliggjandi upplýs-
ingum munu fiskimiðin vestur af
Skotlandi áfram verða innan 200
mílna fiskveiðilögsögu, sem miðast
við eyjuna Sánkti Kildu. Þar með
verður Rockall og Rockall-banki
innan lögsögunnar, en auk þess
munu Bretar halda 12 mílna lög-
BANN við rækjuveiðum nálægt
strandstað olíuskipsins Braer við
Hjaltlandseyjar hefur enn verið
framlengt fimm árum eftir að skip-
ið strandaði.
Yfirvöld hafa tjáð samtökum
skozkra útvegsmanna að olíuinni-
hald í rækjunni á Burra Haaf-mið-
unum suðvestur af eyjunum sé enn
of mikið, þó það fari minnkandi.
sögu umhverfis Rockall. Bretar
munu hins vegar missa lögsögu
ákveðinna hafsvæða til íra og hugs-
anlega lenda lítil svæði undir lög-
sögu Færeyinga eða íslendinga. Þá
verði einnig töluverður hluti fyrri
lögsögu alþjóðlegt hafsvæði. Brezk
skip munu ekki þurfa sérstök veiði-
leyfi til að stunda veiðar á því svæði.
Veiðar brezkra skipa hafa verið
mjög takmarkaðar á svæðinu um-
hverfís Rockall. Árið 1995 var afli
þeirra, einkum Skota, aðeins 831
tonn á svæðinu, en það svarar til
um 0,2% heildarafla Breta. Þess
vegna telja brezk stjórnvöld að það
muni í engu hafa áhrif á möguleika
brezkra útgerða til að stunda veiðar
að horfið sé frá því að miða lögsög-
una við Rockall.
Ennfremur hafa fundizt merki olíu-
mengunar í humri og krabba, en
sýni þess efnis eru enn of fá til að
hægt sé að slá því föstu. Frekari
rannsóknir eru fyrirhugaðar á
svæðinu.
Mikillar mengunar er enn vart
og hafa sjómenn á Hjaltlandi farið
í skaðabótamál i einhveijum tilfell-
um vegna þess.
Olía finnst enn í
rækju við Hjaltland
Langur laugardagur í miðborginni °/>><)frrí ki. 10-17
TILBOÐSDACAR
5.-9. ágúst
20-50%
afsláttur af ölLum vörum
LEÐURIÐJAN ehf.
Laugavegur 15, sími 561 3060 -^"»1
cdtsonc'l
Ódýra hornið:
Kápur 4.900
Jakkar 1.999
Pils 1.499
Buxur 999
Stórútsalan
er hafin
Mikið úrval af faliegum
kápum, jökkum,
buxum og pilsum.
20-70%
afsláttur
Verðdæmi:
Stuttfrakki á mynd úr Micro-efni
kr. 9.900, áður 16.900
Síður frakki á mynd úr Micro-efni
kr. 14.900 áður 22.000
Ókeypis póstkröfur.
S^ápusalan
ímorrabraut 56, sími 562 4362.
r
Fjölnota
verkfæri
Verð kr. 1.650.
Lougavegi 29. S. 552 4320
Lancjur laugardagur
15% afsláttur af ölllum vörum langan laugardag
Sendum trúlofunarhrinaami
Langur laugardagur
ÚTRÚLEG
verðlaekkun á skom
Verð frá 1900
Derhúfur 990
Buxur frá 2900
Jakkar frá 2900
Ath. mikið úrval
af nýjum vörum