Morgunblaðið - 08.08.1997, Page 33

Morgunblaðið - 08.08.1997, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 33 MINIMINGAR + Hallgerður Jón- asdóttir talsíma- vörður fæddist 27. nóvember árið 1927 í Bandagerði við Akureyri. Hún lést 2. ágúst 1997 á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri. Foreldrar hennar voru Ingibjörg Hall- grímsdóttir, hús- freyja, frá Úlfs- staðakoti, Blöndu- hlíð í Skagafirði, f. 9. maí 1888, d. 26. apríl 1984, og Jónas Sveinsson, kennari, bóndi o.fl., frá Litla Dal í Húnavatnssýslu, f. 4. desember 1873, d. 29. mars 1954. Systkini Hallgerðar eru: 1) Sverrir Jónasson, sjómaður, f. 24. maí 1922, lést af slysförum 25. september 1947, 2) Sveinn Jónasson, bifreiðasfjóri, f. 16. maí 1924, 3) Áslaug Jónasdóttir, húsmóðir, f. 14. apríl 1929. Hallgerður ólst upp í Banda- gerði og varð gagnfræðingur 1944. Hún starfaði í mörg ár lyá Skóverksmiðju Iðunnar og síðan í yfir tuttugu ár sem tal- símavörður ly'á Pósti og síma á Akureyri. Hinn 25. apríl 1948 giftist Hallgerður Steingrími Guð- mundssyni, leigubifreiðar- stjóra og síðar skrifstofumanni á bæjarskrifstofum Akureyrar, f. 11. júlí 1916, d. 1. janúar 1987. Foreldrar hans voru lyón- in Unnur Guðmundsdóttir, hús- freyja frá Þúfnavöllum í Hörg- árdal, f. 5. júlí 1887, d. 22 apríl 1963, og Guðmundur Bene- diktsson, bóndi og kennari, frá Árbakka á Árskógsströnd, f. 3. október 1885, d. 13. ágúst 1919. Mig langar til að minnast Hall- gerðar Jónasdóttur, ömmu og nöfnu eiginkonu minnar, með nokkrum orðum. Ég kynntist Öbbu ömmu, eins og Hallgerður var nefnd í dag- legu tali, fyrir rúmum tíu árum. Þá hafði ég oft heyrt hana nefnda, enda var kona mín mikið hjá henni sem barn og héldu þær góðu sam- bandi alla tíð. Með okkur Öbbu tókust strax góð kynni og heimsótt- um við hana iðulega er við fórum til Akureyrar og einnig heimsótti hún okkur til Reykjavíkur og til Gautaborgar þar sem við bjuggum um tíma. Abba var ákveðin, dugleg og yfir henni var reisn og lagði hún mikið upp úr því að vera vel til fara og að hafa snyrtilegt í kringum sig. Á köflum var lífið erfitt fyrir Öbbu og var m.a. eiginmaður henn- ar, Steingímur Guðmundsson, heilsuveill lengi áður en hann lést 1987. Hún hafði gaman af ferðalög- um og ferðaðist víða um heiminn með Steingrími og hélt því áfram eftir andlát hans á meðan hún hafði heilsu til. Abba var líka mikill ætt- fræðigrúskari og gat rakið ættir flestra þeirra sem nefndir voru í okkar samræðum. Eitt var henni Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í greinunum sjálf- um. Börn Hallgerðar og Steingríms eru: 1) Inga Jóna, hús- móðir, f. 28. desem- ber 1946. Fyrri eig- inmaður Ingu var Gunnar Kristinsson járniðnaðarmaður, f. 9 nóvember 1940, lést af slysförum 26. ágúst 1973. Börn Ingu Jónu og Gunn- ars eru: Steingrím- ur, rafmagnsverk- fræðingur, f. 18. júni 1964, maki Sig- rún Sigurðardóttir meinatæknir, f. 13. maí 1962. Dætur Steingríms og Sigrúnar eru Sif, f. 29. apríl 1987, og Saga, f. 4. september 1991; Hallgerður, þroskaþjálfi og hársnyrtir, f. 15. mars 1968, maki Þorsteinn Gunnarsson, læknir, f. 7. maí 1967. Synir Hallgerðar og Þorsteins eru Gunnar, f. 21. febrúar 1993 og Steingrímur, f. 2. febrúar 1995. Seinni maður Ingu Jónu er Steingrímur Einarsson, sjó- maður, f. 25. aprí 1941. Sonur Ingu Jónu og Steingríms er Gunnar Einar, guðfræðinemi, f. 18. desember 1974, maki Erla Valdís Jónsdóttir, sjúkraþjálf- aranemi, f. 27. júlí 1974. 2) Þorgeir, bifreiðasmiður, f. 15. desember 1948, maki Dómhild- ur Karlsdóttir, húsmóðir, f. 7. júlí 1949. Synir Þorgeirs og Dómhildar eru: Sigurbjörn, stýrimaður, f. 16. febrúar 1971, unnusta hans er Rósa Jónsdótt- ir, nuddari, f. 20 júlí 1973. Steingímur, sjúkraþjálfari, f. 2. janúar 1973. Útför Hallgerðar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, og hefst athöfnin kl. 13.30. þó sérlega hugleikið og það var velferð bamabama sinna og fjöl- skyldna þeirra og hefur hún í gegn- um tíðina veitt okkur ómetanlegan stuðning á ýmsan hátt. Síðustu árin voru Öbbu mjög erfið vegna veikinda sem að lokum gerðu líf hennar óbærilegt. Ég hitti Öbbu síðast fyrir tæpum tveimur vikum og þá læddist að mér sá gmnur að þetta yrði í síðasta sinn er við hittumst í þessu jarðlífi. Það var því með söknuði en nokkrum létti sem við hjónin brugðumst við andláti Öbbu þann 2. ágúst sl. Éftir lifir minningin um góða konu sem ávallt mun skipa fastan sess í hugum okkar. Blessuð sé minning hennar. Þorsteinn Gunnarsson. Nú ertu dáin, elsku amma mín. Þín verður alltaf minnst sem dug- legrar og einstaklega góðrar konu. Þú hefur átt við mikil veik- indi að stríða en nú ertu frjáls, amma mín. Þín er svo sannarlega sárt saknað, en í gegnum sorgart- árin er ljós og þar ert þú nú. Ég er fullviss um að nú líður þér vel í faðmi frelsarans sem hefur tekið þig í ástarfaðm sinn. Innst inni ríkti fögnuður í hjarta mínu þegar mamma hringdi í mig og sagði mér að þú værir dáin, þá vissi ég að þjáningar þínar voru á enda og baráttunni lokið, þú værir frjáls. Allir sem þekktu þig vita hve góða og duglega konu þú hafðir að geyma. Þú hefur markað djúp spor í hjörtum okkar allra, spor sem verða aldrei fyllt. Þú varst alltaf svo dugleg að hvetja mann áfram, hvort sem það var í vinnu eða námi. Og þú samgladdist manni alltaf svo innilega þegar vel gekk og þegar á móti blés hvattir þú mann sem aldrei fyrr, orðið uppgjöf var ekki til hjá þér. Elsku amma mín, ég minnist þeirra mörgu góðu stunda sem við áttum saman þegar mamma og pabbi voru úti á sjó og þú hugsað- ir um mig á meðan. Þau voru ófá skiptin sem við hlógum eins og vitleysingar, eða röbbuðum saman um heima og geima. Sérstaklega er mér eitt atvik minnisstætt, þeg- ar kötturinn kom með músina inn til okkar og uppi varð fótur og fit. Þú hljópst og læstir þig inni í her- bergi og ég stökk upp á stól. Seinna hlógum við oft að þessum atburði. Takk fyrir allan stuðninginn, elsku amma mín, sem þú hefur veitt mér og Erlu, konunni minni. Ég gleymi ekki brosinu þínu þann 13. júlí í fyrra þegar við brúðhjón- in örkuðum upp á Hlíð þar sem þú dvaldir og þú óskaðir okkur til hamingju með daginn. Elsku amma, ég minnist þín fyrst og fremst með þakklæti, gleði og fögnuði. Megi góður Guð geyma sálu þína og styrkja okkur öll í sorg okkar, þú býrð í hjörtum okk- ar allra. Þinn Gunnar Einar Steingrímsson. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN HALLDÓRA ÁGÚSTSDÓTTIR, Blöndubakka 8, Reykjavík, áður Hringbraut 90, lést á heimili sínu að kvöldi þriðjudagsins 5. ágúst síðastliðinn. Skúli Óskarsson, Birna Ólafsdóttir, Sigmar H. Óskarsson, Elísabet G. Snorradóttír, Sigrún Ragna Skúladóttir, Ragnhildur Skúladóttir, Anna Marfa Skúladóttir, Óiafur Skúlason, Óskar Dan Skúlason, Edda Björg Sigmarsdóttir, Snorri Rafn Sigmarsson og barnabarnabörn. t Faðir okkar, FINNUR H. GUÐMUNDSSON frá Ástúni, ingjaldssandi, lést á heimili sínu miðvikudaginn 6. ágúst síöastliðinn. Hildur, Gunnar og Eirfkur Finnsbörn. HALLGERÐ UR JÓNASDÓTTIR t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, MAGNÚS GUNNAR JÖRUNDSSON, Jökulgrunni 6 áður til heimilis ( Efstasundi 4, Reykjavfk, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur sunnudaginn 3. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Kristján H. Magnússon, Elsa Stefánsdóttir, Anna G. Magnúsdóttir, Aðaiheiður K. Magnúsdóttir, Ingimundur R. Magnússon, Helga M. Jónsdóttir, Gunnar Þór Magnússon, Sjöfn Sóley Þórmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GUÐJÓN HUGBERG BJÖRNSSON garðyrkjumaður, Hveragerði, lést á Sjúkrahúsi Suðuriands, Selfossi, 1. ágúst síðastliðinn. Jarðsett verður frá Hveragerðiskirkju laugar- daginn 9. ágúst kl. 13.30. Marfa Konráðsdóttir, Björn Guðjónsson, Ingibjörg S. Guðjónsdóttir, Sigurður Guðjónsson, Margrét Guðjónsdóttir, Guðný J. Kjartansdóttir, Ásta Gunnlaugsdóttir, Óskar Elfasson, Ólöf Geirmundsdóttir, Ómar Halldórsson, Ólafur H. Kornelíusson, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir mín, systir, amma og langamma, SIGNÝ GÍSLADÓTTIR frá Þórisdal í Lóni, Vfkurbraut 26, Höfn, Hornafirði, sem lést á Skjólgarði fimmtudaginn 31. júlí sl., verður jarðsungin frá Hafnarkirkju laugar- daginn 9. ágúst kl. 14.00. Sigrún Guðmundsdóttir, Sigurlaug Gísladóttir, Guðmundur Knútsson, Signý Knútsdóttir, Hannes Ingi Jónsson, Kristfn Knútsdóttir, Guðmundur Atlason og barnabarnabörn. t STEINGRÍMUR FRIÐRIKSSON, Freyjugötu 32, Sauðárkróki, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laug- ardaginn 9. ágúst og hefst athöfnin kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Anna Friðriksdóttir, Ólafur Grétar Guðmundsson. Eiginmaður minn, t JÓHANN JÓNASSON frá Hrísey, er látinn. Emelía Stefánsdóttir. t Faðir minn, ÞORKELLJÓNSSON frá Hólmavík, lést á dvalarheimilinu Grund miðvikudaginn 6. ágúst síðastliðinn. Guðbjörg Þorkelsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.