Morgunblaðið - 08.08.1997, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Höfuðpaurar frumsýna gamanleikinn Hár og Hitt í Borgarleikhúsinu
Morðgáta leyst með
þátttöku áhorfenda
Hár og Hitt er eitt vin-
sælasta leikritið sem
sett hefur verið á svið í
Bandaríkjunum og hef-
urhvarvetna hlotiðmet-
aðsókn. Ahorfendur eru
virkjaðir til þátttöku í
sýningunni og vitna þeir
um ferðir og gjörðir
persónanna. Hulda
Stefánsdóttir fylgdist
með fyrstu æfingu með
áhorfendum og ræddi
við nokkra leikaranna.
ARNMUNDUR (Þórhallur Gunnarsson) lætur sér fátt um finnast
þó fram komi ýmsar ásakanir í hans garð.
Morgunblaðið/Jim Smart
BONNI (Ellert A. Ingimundarson) setur Gullveigu (Edda Björg-
vinsdóttir) inn í nýjasta slúðrið í bænum.
LEIKHÓPURINN Höfuðpaurar
frumsýnir í Borgarleikhúsinu í
kvöld gamanleikinn Hár og Hitt
eftir svissneska leikritaskáldið Paul
Portner í þýðingu Gísla Rúnars
Jónssonar. Leikritaform sem bygg-
ist á gagnvirkum samskiptum leik-
ara og áhorfanda hefur aldrei verið
reynt áður hérlendis en er mjög
vinsælt og algengt form á leiksýn-
ingum vestanhafs um þessar mund-
ir.
Höfuðpaurar eru leikaramir Ell-
ert A. Ingimundason og Þórhallur
Gunnarsson. Þeir hrifust af verkinu
þegar þeir sáu það í Bandaríkjunum
og afréðu að kaupa sýningarréttinn
á því hingað til lands. Leikhópurinn
leigir sýningaraðstöðu í Borgarleik-
húsinu og réð til sín leikstjórann
Þórhildi Þorleifsdóttur, sem verið
hefur í sumarleyfi frá störfum leik-
hússtjóra Borgarleikhússins.
Leikritið gerist á hárgreiðslustof-
unni Hár og Hitt. Bonni hár-
greiðslumeistari, leikinn af Ellerti
A. Ingimundarsyni, og Hófí aðstoð-
arstúlka hans, leikin af Guðlaugu
Elísabetu Ólafsdóttur, hafa hendur
í hári viðskiptavinanna með dágóð-
um skammti af slúðri. Skömmu
eftir að leikritið hefst er framið
morð í íbúð á næstu hæð fyrir ofan
hárgreiðslustofuna. Gmnur beinist
að þeim Bonna og Hófí og viðskipta-
vinum stofunnar leiknum af Þór-
halli Gunnarssyni, Eddu Björgvins-
dóttur, Kjartani Bjargmundssyni og
Jóhanni G. Jóhannssyni. Veltur nú
á athyglisgáfu áhorfenda hvort
tekst að afhjúpa morðingja Karól-
ínu Hjálmtýsdóttur píanóleikara.
Hinir gmnuðu em yfirheyrðir undir
stjórn rannsóknarlögreglunnar en
samkvæmt ábendingum og fyrir-
spumum áhorfenda sem grípa fram
í fyrir persónum leikritsins ef þeim
þykir þær ekki fara með rétt mál.
Persónur leikritsins eiga nánast
jafna möguleika á að reynast sekar
um morð og því er allsendis óvíst
hvemig leikritið endar.
Frá sálfræðiprófi til
metsöluleikrits
Leikritið er upphaflega skrifað
sem sálfræðipróf og minnisæfíng
þar sem athyglisgáfa áhorfenda er
reynd. Bandarísku leikaramir
Bmce Jordan og Merlin Abrams sáu
verkið í fyrstu uppsetningu þess í
Sviss árið 1965. Þau tryggðu sér
sýningarrétt á verkinu og gerðu á
því nokkrar breytingar fyrir fmm-
sýningu þess í Boston árið 1978.
Allar götur síðan hefur leikritið
verið sýnt fyrir fullu húsi átta sinn-
um 1 viku og slegið aðsóknarmet
víðar í Bandaríkjunum.
Þórhallur Gunnarsson, leikari og
Höfuðpaur, segir að áskomnin fyrir
leikarana felist í frumkvæði áhorf-
enda. Það em áhorfendur sem
stjórna ferðinni og því hafa æfíngar
á verkinu verið nokkuð flóknar.
„Við höfum þurft að gera okkur í
hugarlund þær spumingar sem
hugsanlega eiga eftir að vakna hjá
áhorfendum auk þess að æfa ólík
endalok leikritsins allt eftir því
hvaða persónu áhorfendur kjósa að
útnefna morðingja,“ segir Þórhall-
ur. „Okkur vom sett þau skilyrði
fyrir uppsetningunni að hún yrði
löguð að íslenskum veruleika og
fyrir hveija sýningu verður farið í
gegnum það sem hæst ber í þjóð-
málum þann daginn og því skotið
inn í samræður í leikritinu." Á
fyrstu æfíngu með áhorfendum í
vikunni bar á góma rigninguna
sunnanlands, morðið á tískukóngn-
um Versace og vesturför forseta-
hjónanna ásamt fleiri dægurmálum
og eins og Gróu á Leiti er einni
lagið höfðu flestar staðreyndir tekið
vemlegum breytingum í meðfömm
persónanna.
Þátttaka áhorfenda
er spennandi áskorun
Edda Björgvinsdóttir er ein ást-
sælasta gamanleikkona þjóðarinnar
og hefur hún nú skemmt lands-
mönnum með leik sínum í 18 ár.
„Ekki það að ég sé orðin svona
gömul, ég hef bara verið svo lengi
að,“ tekur Edda skýrt fram. Edda
fer með hlutverk Gullveigar Lovísu
Sjöbeck. Gullveig er fulltrúi íslensks
aðals og vert að taka fram að það
er af einskærri hógværð sem hún
kýs að nota ekki ættamafn sitt
Scheving Thorsteinson Möller held-
ur kenna sig eingöngu við mann
sinn Adolf Sjöbeck. Hlutverk sitt
nú fullyrðir Edda að sé sitt erfíðasta
til þessa. Það felist mikil áskomn í
því að opna fyrir viðbrögð áhorf-
enda. „Eg hef auðvitað margoft
skemmt gestum síðla kvölds þar sem
áhorfendur hafa verið ofvirkir án
þess að vera boðið upp á það,“ seg-
ir Edda. „Það er hins vegar tilhlökk-
unarefni að upplifa hvemig áhorf-
endur bregðast við þegar þeim er
boðin þátttaka í leiksýningu." Hún
segir forréttindi að fá að leika undir
stjóm Þórhildar Þorleifsdóttur. „Hún
er óvenjulegur leikstjóri og ég vona
bara að stjómun Borgarleikhússins
eigi ekki eftir að taka allan hennar
tíma svo hæfni hennar sem leik-
stjóra fái notið sín,“ segir Edda.
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir
leikkona, sem fer með hlutverk
Hófíar hárgreiðsludömu, viður-
kennir að hafa verið talsvert óstyrk
á fyrsta rennsli með áhorfendur í
salnum en viðbrögð áhorfenda þá
bendi til að þeir séu viljugir til að
taka þátt í sýningunni. „Æfinga-
ferlið hefur verið talsvert frábragð-
ið því sem ég hef átt að venjast.
Það er erfítt að æfa sýningu sem
byggist á áhorfendum sem ekki era
til staðar," segir Guðlaug. Áhorf-
andinn gerir kröfu til þess að leikar-
inn svari fyrir sína persónu á full-
nægjandi hátt og Guðlaug segir
álagið á leikarann af þeim sökum
mikið en áskomnin sé jafnframt
spennandi. „Það er aldrei að vita
hvert áhorfendur fara með rnann,"
segir Guðlaug.
Sýningar á
óhefðbundnum tímum
Leikritið er sýnt á baksviði Borg-
arleikhússins sem rúmar 240 áhorf-
endur. Þar verður opinn bar fyrir
sýninguna og í stuttu hléi, þar sem
áhorfendum gefst ráðrúm til að
velta vöngum yfír morðgátunni og
bera hugmyndir sínar undir rann-
sóknarlögreglumanninn Hans Ma-
ack. Hægt er að sitja við borð ná-
lægt leiksviðinu en einnig er boðið
upp á venjuleg áhorfendasæti. Sýn-
ingin ætti því að henta stærri hóp-
um jafnt sem einstaklingum og
Þórhallur segir að ef allt gangi að
óskum þá sé stefnt að því að sýna
verkið á miðnætursýningum og á
síðdegissýningum líkt og tíðkast
erlendis en þá fer fólk gjarnan út
að borða að sýningu lokinni. Leikur-
unum er ekkert að vanbúnaði og
þeir bíða þess spenntir að áhorfend-
ur streymi í salinn.
Djass í Stykkishólmskirkju
Stykkishólmi. Morgunblaðið.
DJASSTÓNLEIKAR verða í
Stykkishólmskirkju í dag, sunnu-
dag, kl. 21. Þar leikur Tríó Tómas-
ar R. Einarssonar ásamt söngkon-
unni Kristjönu Stefánsdóttur.
Þetta em jafnframt næstsíðustu
tónleikar sumartónleikaraðarinnar
þetta árið í Stykkishólmi.
Á efnisskránni em ný og eldri
lög kontrabassaleikarans Tómasar
R. Einarssonar. Flest þeirra em
samin með kontrabassann í huga
og þótt söngkona sé með í för
verður söngur hennar að mestu
án orða. Þar gefur að heyra blús,
ballöður, suður-ameríska rytma og
swing.
Auk Tómasar og Kristjönu mun
Hilmar Jensson leika á gítar og
Einar Valur Scheving á trommur.
Tómas hefur verið virkur í ís-
lensku djasslífi í einn og hálfan
áratug, bæði sem lagasmiður og
kontrabassaleikari. Hann hefur
spilað með ótalmörgum íslenskum
og erlendum djassleikumm og
leikið víða um Evrópu, ýmist með
eigin hljómsveit eða Jasskvartett
Reykjavíkur. Plötur hans em:
Þessi ófétis jass (1985), Hinsegin
blús (ásamt Eyþóri Gunnarssyni
og Gunnlaugi Briem, 1987), Nýr
tónn (1989), íslandsför (1991),
Landsýn (1994) og Koss (ásamt
Ólafíu Hrönn Jónsdóttur, 1995).
Hilmar hefur um árabil verið í
hópi bestu djassgítarleikara lands-
ins og starfað jöfnum höndum með
bandarískum og íslenskum djass-
leikumm. Hann hefur vakið at-
hygli fyrir framlega tónhugsun og
sérstæðan gítarleik. Árið 1995 gaf
hann út geislaplötuna Dofinn.
Einar Valur hefur, þrátt fyrir
ungan aldur, verið einhver eftir-
sóttasti djasstrommuleikari lands-
ins í mörg ár. Hann hefur verið
meðlimur í Jasskvartett Reykja-
víkur frá upphafi og ferðast með
honum víða um Evrópu auk þess
að hljóðrita með honum geislaplöt-
una Hot House - RJQ live at
Ronnie Scott’s, sem út kom 1994.
Kristjana Stefánsdóttir er einn-
ig ung að ámm, en hefur þrátt
fyrir það náð að koma víða við í
tónlistinni og er í hópi efnilegustu
söngvara landsins; hún hefur
sungið með danshljómsveitum og
starfað með tónlistarfólki í djassi
og klassík. Hún lauk prófi frá
Söngskólanum í Reykjavík 1996
en stundaði einnig nám í djass-
deild Tónlistarskóla FÍH. Um þess-
ar mundir er hún í framhaldsnámi
í djassdeild Tónlistarháskólans í
Hilversum í Hollandi.
Eins og sjá má getur djass-
áhugafólk átt von á góðu sunnu-
dagskvöldi í Stykkishólmi með
Tómasi R. og félögum. Aðgangs-
eyrir er kr. 500, frítt fyrir börn.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
DJASSÁHUGAFÓLK á von á góðri skemmtun með Tómasi R.
Einarssyni og félögum.