Morgunblaðið - 08.08.1997, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 13
LAIUDIÐ
Jóhannesar úr Kötlum
og Eiríks rauða minnst
Búðardal - Þeir voru báðir Dala-
menn, Eiríkur rauði og Jóhannes úr
Kötlum, þó að fátt annað hafi þeir
átt sameiginlegt. Á nýafstöðnum
Daladögum var þeirra beggja
minnst.
„Eiríksstaðagleði" var haldin að
Eiríksstöðum í Haukadal. Gestum
var boðið upp á leiðsögn frá Búðar-
dal í Haukadal og var Kristmundur
Jóhannesson bóndi á Giljalandi leið-
sögumaður. Guðmundur Ólafsson
fornleifafræðingur sagði frá og lýsti
húsakynnum og staðháttum. Séra
Óskar Ingi Ingason kom fram fyrir
hönd Eiríksstaðanefndar og sagði
frá fyrirhugaðri uppbyggingu og
undirbúningi fyrir 1000 ára afmæli
Vínlandsfundar.
Hápunkturinn var þegar Erik
rode, Bothiid kona hans og Thorvald
sonur þeirra stilltu sér upp á rústum
Eiríksstaða, öli klædd í víkingafatn-
að. Erik rode sem er þýsk-danskur
fornleifafræðingur sérhæfður í
handverki til forna, hélt fyrirlestur
um áhöld og klæðnað víkinga.
Jóhannesar úr Kötlum var minnst
á fæðingarstað hans, Ljárskógarseli.
Um leiðsögn sáu bræðurnir Ragnar
og Elís Þorsteinssynir en Ragnar
fæddist og ólst upp í selinu. Byijað
var á að fara niður í „Katlana" sem
er klettakvos í ánni Fáskrúð. Þar las
Ragnar upp ljóðið „Karl faðir minn“
eftir Jóhannes, og um leið kom sólin
fram úr skýjunum. Svanur Jóhann-
esson, sonur þjóðskáldsins, lagði til
fróðleik um skáldið.
Þaðan var haldið að bæjarrústun-
um að Ljárskógarseli. Fengu ferða-
menn raungóða lýsingu á húsakosti
þar sem tvær fjölskyldur bjuggu í
tveimur litlum samliggjandi baðstof-
um með þili á milli.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
VÍKINGURINN Eiríkur rauði og Bóthildur kona hans í rústum
skálans á Eiriksstöðum.
Borðeyri
150 ára
verslunar-
afmæli
ÞRJÁR sýningar verða opnaðar á
morgun, laugardag, í grunnskólan-
um á Borðeyri við Hrútafjörð í til-
efni af 150 ára verslunarafmæli
kauptúnsins. Um er að ræða ljós-
mynda- og munasýningu um menn-
ingu og mannlíf á Borðeyri, þar sem
verslunarsaga þorpsins er rakin í
máli og myndum.
Einnig hefur verið sett upp lista-
verkasýning á málverkum Þorvalds
Skúlasonar sem er fæddur á Borð-
eyri. Sýningarnar verða opnar
9.-17. ágúst frá kl. 13-19 alla daga.
Helgina 15.-17. ágúst verður af-
mælisins síðan minnst með hátíða-
höldum. Hátíðin verður sett föstu-
daginn 15. ágúst með söngtónleikum
í grunnskólanum kl. 21. Laugardag-
inn 16. ágúst verður afmælisveisla
á Borðeyri. Gönguferð með leiðsögn,
leikir og grín, útimarkaður, kaffi-
veitingar og óvæntar uppákomur
verða fyrir unga sem aldna. Um
kvöldið verður grillveisla og kvöld-
vaka með varðeldi, tónlist og leik-
atriði. Veislan hefst kl. 13. Afmælis-
hátíðinni lýkur á sunnudeginum með
guðsþjónustu í Prestbakkakirkju kl.
14.30. Tjaldstæði eru í næsta ná-
grenni.
Höfuðstaður
við Húnaflóa
Fornar heimildir benda til að
Borðeyri hafi verið í tölu meiriháttar
siglinga- og kauphafna allt frá
fyrstu tíð. Um miðja 19. öld varð
Borðeyri fullgildur verslunarstaður
og hófust þá siglingar lausakaup-
manna á staðinn, þær stóðu til árs-
ins 1879. Eftir það voru ýmsir stór-
kaupmenn með verslun á Borðeyri.
Verslunarsvæði Borðeyrar var á
þessum tíma afar stórt og mannlíf
auðugt og fjölskrúðugt. Þangað
sóttu bændur úr suðurhluta Stranda-
sýslu, úr Dalasýslu allt vestur í
Saurbæ, úr Norðurárdal og Þverár-
hlíð í Borgarfirði og úr Húnavatns-
sýslu austur að Vatnsdal.
Viðskiptavinir
athugið'!
B&L hefur fengið
nýtt símanúmer
575 1200
B&L, Suðurlandsbraut 14 & Ármúla 13,
Sími: 575 1200, Fax: 568 8675,
Email: bl@bl.is, Internet: www.bl.is
'fCTHAUST
Flu
GRANCANARY
Pr. mann:
3.DES.
Pr. mann:
Flugvallarskattar innifaldir. Verðið
miðast við tvofullorðna og tvö börn
2-11 ára, gistingu á Aloe á Ensku
ströndinni í 14 nœtur.
Tveir sanuin í íbúð á Aloe.
r. 48.700.-pr. rnann.
Flugvallarskattar innifaldir.
Verðið miðast við tvofull-
orðna og tvö börn 2-11 ára,
gistingu á Aloe í 28 nœtur.
Tveir sarnan í íbúð á Aloe.
kr. 67.900.-pr. mann.
SÉRTEBOÐ
fiv
30.SEPT
Pr. mann:
Flugvallarskattar innifaldir.
Verðið miðast við tvo fullorðna ,
gistingu í íbúð á Halley í 2 vikur.
'ÆM
3.SEPT
Pr. mann:
Flugvallarskattar innifaldir.
Verðið miðast við tvo fullorðna og
tvö börn 2-11 ára, gistingu
í íbúð á Pil Lari Playa í 1 viku.
SÉMWOÐ
Pr. mann:
IHEfiS 23.775.-
I
3.SEPT
/ Flugfargjald pr. mann:
PARIS/FRANKFURT
Miðað við tvo fullorðna og tvö
börn 2-11 ára. Heimkoma frá
Kaupmannahöfn í september.
Nánari upplýsingar
hjá sölumönnum.
3 SEPT Flugfargjald aðra leið
pr. mann
19.900.-
/ beinu flugi í sumar.
Innifalið flug og flugvallarskattar.
VISA
FERÐIR
Umboðsmetin Plúsferða:
Akranes:
Auglýsingablaðið Pésinn
Stillholti 18,
sími 431 42221431 2261.
Faxafeni 5 108 Reykjavík. S(mi: 568 2277 Fax: 568 2274
Sauðárkrókur:
Skagfirðingabraut 21, sími 453 6262.
Akureyri: Ráðhústorg 3, sírni 462 5000.
Vestmannaeyjar:
Eyjabúð Strandvegi 60,
sími 481 1450
Selfoss:Suðurgarður hf.
Austurvegi 22, sími 482 1666.
Keflavík:Hafnargötu 15, sími421 1353.
SJÓVÁ-ALMENNAR