Morgunblaðið - 08.08.1997, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 15
VIÐSKIPTI
Apple og f jandvinurinn Microsoft í bandalag
\pple Computer og Microsoft Corp. komu tölvuheiminum í opna skjöldu á miðvikudag
með samkomulagi sín á milli um að grafa stríðsöxina og taka upp tæknisamstarf.
Steve Jobs /
Annar stofnaadi
Apple
Aðalatriði MÍCIOSOft
samkomulagsins Bj|| Gates
■ Apple mun láta vefvafra Aöalstjórnandi
Microsoft — Internet Microsoft
Explorer fylgja stýrikerfi sínu.
■ Microsoft mun kaupa
150 milljón dollara hlut
án atkvæðisréttar í Apple.
Microsoft mun gera
Makkaútgáfu af Office-
hugbúnaði sínum.
Lokaverð hlutabréfa í
Apple var 26,62 dalir
6. ágúst.
Lokaverð Microsoft var á
sama tíma 143,42 dalir.
HEIMILDIR: Frettaskeyti, Apple
Computer, Microsoft Corp.
Endurfl ármögnun ríkisverðbréfa hefst
óvenju snemma hjá Lánasýslu ríkisins
Kaupir ríkisverð-
bréf fyrir 800 millj.
LANASYSLA ríkisins hefur ákveð-
ið að kaupa hluta útistandandi ríkis-
verðbréfa þrátt fyrir að enn sé um
ár í gjalddaga þeirra. Er þetta gert
vegna góðs fjárhags ríkissjóðs um
þessar mundir, en ekki stendur til
að selja á nýjan leik þau bréf sem
keypt verða.
Að sögn Péturs Kristinssonar hjá
Lánasýslu ríkisins, eru bréfin sem
hér um ræðir í flokkunum
SPRÍK93/1D5 og RBRÍK1004/98.
Hann segir alls um 8 milljarða
króna útistandandi af bréfunum og
hyggist Lánasýslan kaupa bréf fyr-
ir allt að 800 milljónir króna, eða
um 10% af útistandandi bréfum.
„Þetta er ákveðin tilraun sem við
erum að fara út í með þessu, ann-
ars vegar vegna góðrar fjárhags-
stöðu ríkissjóðs, og hins vegar
vegna þess að viðskipti með þessa
flokka bréfa hafa verið lítil upp á
síðkastið og því viljum við sjá hvort
ekki er hægt að örva þau aðeins
með þessum hætti,“ segir Pétur.
Hann segir þetta ekki hafa verið
gert áður hjá Lánasýslunni, en sam-
bærilegar stofnanir erlendis stundi
hins vegar viðskipti af þessu tagi.
Að sögn Péturs mun eigendum
bréfa í þessum flokki síðan verða
boðið að skipta þeim út fyrir nýrri
flokka ríkisverðbréfa í október nk.
Á vöxtunarkrafa
spariskírteina hækkar
VIÐSKIPTI á Verðbréfaþingi voru
með líflegra móti í gær en þau
námu alls 1.102 milljónum króna.
Talsverð viðskipti voru með spari-
skírteini, húsbréf og húsnæðisbréf,
alls um 645 milljónir króna. At-
hygli vekur að ávöxtunarkrafa 30
mánaða spariskírteina hækkaði
um 6 punkta og ávöxtunarkrafa
ríkisvíxla til 38 mánaða hækkaði
um fimm punkta eftir lækkunar-
hrinu undanfarið.
Hlutabréfaviðskipti á Verð-
bréfaþingi íslands námu 113
milljónum króna, þar af voru
mest viðskipti með bréf íslands-
banka, rúmar 27 milljónir króna,
og SR-mjöls og Þormóðs ramma
- Sæbergs, rúmar 15 milljónir
króna með bréf hvors félags. Verð
hlutabréfa í Hampiðjunni lækkaði
um rúm 5% frá síðasta viðskipta-
degi. Lítil viðskipti voru með
hlutabréf á Opna tilboðsmarkaðn-
um en þau námu alls rúmum níu
milljónum króna.
Færrí ferðamenn
tíl landsins íjúlí
Morgunblaðið/Þorkell
KOMUM erlendra ferðamanna hingað til lands fækkaði lítillega
í júlí samanborið við sama mánuð í fyrra.
KOMUM erlendra ferðamanna
hingað til lands fækkaði lítillega í
júli samanborið við sama mánuð í
fyrra. Alls komu hingað tæplega
42 þúsund erlendir ferðamenn í júlí
en á sama tíma í fyrra komu liðlega
43 þúsund erlendir ferðalangar
hingað til lands. Þetta samsvarar
um 1,5% fækkun milli ára.
Þegar litið er á fyrstu sjö mánuði
ársins hafa hins vegar um 3% fleiri
ferðalangar lagt leið sína hingað til
lands miðað við sama tímabil í fyrra,
þegar tekið hefur verið tillit til svo-
nefndra „Bláa lóns farþega" sem
ekki eru íengur taldir með í tölum
um erlenda ferðamenn. Alls komu
hingað tæplega 124 þúsund erlendir
ferðamenn á þessu tímabili.
„Megum ekki sofna á
verðinum"
Magnús Oddsson ferðamálastjóri
segir að það hljóti að vekja menn
til umhugsunar að erlendum ferða-
mönnum hafi fækkað í júní og júlí
á þessu ári. „Það er orðið langt síð-
an fækkun hefur átt sér stað í júlí,
þessum mesta ferðamannamánuði
ársins.
Auðvitað hafa menn verið að
velta fyrir sér skýringum en fækk-
unin hefur fyrst og fremst verið á
ferðamönnum frá meginlandi Evr-
ópu og þá fyrst og fremst Þýska-
landi og Frakklandi og ég held að
það sé samdóma álit manna að það
stafi fyrst og fremst af efnahags-
ástandinu í þessum löndum. Það
sem styður þessa skoðun er það að
ýmis samkeppnislönd okkar eru að
upplifa svipaða þróun.
Við megum samt ekki sofna á
verðinum og afgreiða málið þannig
að skýringin sé einhver þáttur sem
sé utan þess sem við ráðum við.
Þó svo að við séum stöðugt að end-
urskoða okkar vinnubrögð og vöru-
framboð, ætti svona niðurstaða að
vera enn frekara tilefni til þess að
skoða hvar við getum stóreflt okkar
markaðsvinnu og skoða vörufram-
boðið á þessu markaðssvæðum, því
við verðum stöðugt að reyna að
bæta samkeppnishæfni okkar.“
Magnús segir það jafnframt vera
gríðarlega mikilvægt að hægt verði
að finna leiðir til þess að snúa þess-
ari þróun við, því allar fjárfestingar
og allir grunnþættir ferðaþjón-
ustunnar séu byggðir upp til þess
að þjóna meiri fjölda ferðamanna
en sé að skila sér nú á þessum
háannatíma.
„Það ánægjulega við tölur sum-
arsins það sem af er, er fjölgun
ferðamanna frá Norðurlöndunum,
Bretlandi og Bandaríkjunum sem
við hljótum að fagna,“ segir Magn-
ús.
íslendingar ferðaglaðari
íslendingar hafa heldur aukið
utanferðir sínar á þessu ári, ef
marka má tölur útlendingaeftirlits-
ins fyrir fyrstu sjö mánuði ársins.
Alls fóru tæplega 104 þúsund ís-
lendingar um Keflavíkurflugvöll á
þessu tímabili og er það um 8%
aukning milli ára.
Vextir hækka um
0,25% íBretiandi
London. Reuter.
PENINGASTEFNUNEFND breska
seðlabankans ákvað í gær að hækka
opinbera vexti úr 6,75% í 7% en
það er fjórða hækkunin á jafnmörg-
um mánuðum. Segir í tilkynningu
nefndarinnar að þetta sé gert vegna
spáa um aukna eftirspum á innan-
landsmarkaði og að hækkun sé tal-
in nauðsynleg til að ná takmarki
breskra stjórnvalda um 2,5% verð-
bólgu á næstu tveimur árum.
Þrátt fyrir að almennt hafí verið
búist við því að nefndin myndi
hækka vexti, varð ákvörðunin til
þess að koma róti á fjármálamark-
aði. Féll pundið um 5 pfennig gegn
þýska markinu um tíma og bresk
hlutabréf hækkuðu mjög í verði.
í tilkynningu sinni í gær viður-
kenndi peningastefnunefndin að
sterk staða pundsins yki mjög
þrýsting á útflytjendur en sagði að
ástæðunnar væri að leita annars
staðar en hjá þeim hefðu áhrif á
breska peningastefnu.
Hagfræðingar kváðust í gær telja
ólíklegt að vextir myndu hækka að
nýju í september. Hins vegar væri
viðbúið að þeir yrðu hækkaðir síðar
á árinu, vegna þess að tekjur færu
hækkandi, verð á fasteignamarkaði
sömuleiðis, atvinnuástand væri gott
og hlutabréfamarkaðurinn stæði
vel.
Verg landsframleiðsla jókst um
3,4% á öðrum ársfjórðungi en hag-
fræðingar telja ekki að sá vöxtur
haldist lengi án þess að verðbólgan
aukist að nýju. Hefur staða punds-
ins styrkst um 25% gagnvart öðrum
gjaldmiðlum, sem kemur sér vel
gagnvart breskum almenningi á
ferði í Evrópu, svo og innflytjend-
um, en útflytjendur kvarta hins
vegar sáran.
ÞA SEM VIUA
HAGSTÆÐ KAUP !
tímnlnlp
Aðeins 40 cm breið, tilvalin þar sem pláss er litið þvo*« Aöeins þvottak*t« ' 40 Cm SÍkhm breið, tilvalin þar 1 -sem pláss PmJrThvítur x Jirþvotta- kerfi Stiglaus hitastiliing. Stiglaus hraði. Litur: hvitur Aðeins 40 cm breið, tilvalin þar sem pláss \ er lítið
* wWi t 1
af þvotti
Veltir fram
og aftur
Sparnaðarkerfi
Tvöföld
hitaeinangrun
Litur: hvltur
Þvottavél + þurrkari
14 þvottakerfi, 700-
1200 sn. Tekur 5 kg.
Stiglaus hraði og
hitastilling.
Litur: hvítur
Þvottavél til
innbyggingar
18 þvottakerfi, 1000
sn. Tekur 5 kg.
Stiglaus hitastilling.
Litur: hvitur
- íryggi"
Við Fellsmúla
Sími 588 7332
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14