Morgunblaðið - 08.08.1997, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 23
Tríó Ola
Steph. á
Jómfrúnni
JÓMFRÚIN í Lækjargötu hef-
ur boðið gestum sínum upp á
djasstónlist á laugardögum í
sumar. Tónlistarmenn leika
djasstónlist frá kl. 16-19 síð-
degis á laugardögum, oft á
tíðum utandyra í garði Jómfrú-
arinnar ef veður leyfir, segir
í tilkynningu.
Ennfremur segir: „Á morg-
un, laugardag kl. 16, leikur
Tríó Olafs Stephensen á
Jómfrúnni. Þetta er sennilega
í síðasta sinn sem tríóið leikur
hérlendis nú í sumar. Þeir fé-
lagar eru á leiðinni til Argent-
inu og Chile þar sem þeir koma
til með að leika á vegum Út-
flutningsráðs og utanríkis-
ráðuneytisins.“
Tríóið skipa Guðmundur R.
Einarsson, trommu- og bás-
únuleikari, Tómas R. Einars-
son, bassaleikari og tónsmið-
ur, og Ólafur, sem leikur á
píanó.
Baski sýnir
í Kirkjuhvoli
BASKI (Bjarni Ketilsson) opn-
ar sýningu á verkum sínum í
Listasetrinu Kirkjuhvoli,
Akranesi, á morgun, laugar-
dag.
Þar sýnir Bjarni olíumál-
verk, vatnslitamyndir og blek-
teikningar og verk án þema.
Bjarni er fæddur á Akranesi
árið 1966 og hefur nýlokið
námi hjá Listaakademíunni
AKI, Akademi voor Belddeng
kunst í Hollandi.
Sýningin stendur yfir til 24.
ágúst og er Listasetrið opið
daglega frá kl. 15-18.
Sýningu
Kristins Más
framlengt
SÝNINGU Kristins Más
Pálmasonar í Galleríi Sævars
Karls, Bankastræti 9, hefur
verið framlengt til 17. ágúst.
Kristinn stundar nú nám við
Slade-listaháskólann í Lund-
únum.
Sýningin samanstendur af
teikningum unnum á striga
með kolum, grafít og akrílefn-
um. Um er að ræða myndmál
sem er jafn órætt og það er
augljóst. Verkin geru gerð á
þessu ári og síðar. Sýningin
er opin á verslunartíma.
Kristín Bryn-
dís sýnir
á Þórshöfn
KRISTÍN Bryndís Björnsdóttir
myndlista- og handverkskona
heldur sýningu á verkum sín-
um á Þórshöfn 10.-16. ágúst.
Bryndís er fædd á Skálum á
Langanesi 1924. Þetta er
þriðja einkasýning hennar.
Barnafatnaður úr flísefnum
íslensk framleiðsla
Laugaveg 48 B (upp i lóðinni),
sími 552 1220
LISTIR
Sögur sem ger-
ast á ystu nöf
Á YSTU nöf - nýjar
íslenskar smásögur er
yfirskrift á röð nýrra
smásagna sem sex
íslenskir rithöfundar
hafa skrifað fyrir Rás
1 í sumar. Sögurnar
eru lesnar á föstudög-
um og endurfluttar á
laugardagskvöldum.
Einn höfundanna, Ól-
afur Gunnarsson,
hefur þegar lesið sína
sögu og í dag les
Gerður Kristný sög-
una Sólarsystur. Hin-
ir höfundarnir eru
Bragi Ólafsson, Rún-
ar Helgi Vignisson,
Úlfhildur Dagsdóttir og Sjón.
Að sögn Jóns Halls Stefánsson-
ar, ritstjóra verkefnisins hjá út-
varpinu, var tilgangurinn að efna
til syrpu af sögum þar sem geng-
ið væri út frá ein-
hverri ákveðinni hug-
mynd. Val höfunda
byggðist á því að þeir
væru forvitnilegir og
gætu gert stefinu A
ystu nöf skil.
Nýskrifað
efni
Jón Hallur sagði
gaman að geta verið
með nýskrifað efni. I
fyrra var auglýst eftir
sögum og var viður-
kenningin fólgin í því
að fá flutt eftir sig
efni. Um 200 sögur
bárust og voru fáar
þeirra eftir kunna höfunda. Fluttar
voru um 20 sögur. „Nú var farin
öfug leið,“ sagði Jón Hallur, „eitt
stef valið og leitað til ákveðinna
höfunda."
Jón Hallur
Stefánsson.
„ON Iceland
1997“ að ljúka
ALÞJÓÐLEGRI gerninga- og
myndbandahátíð í Nýlistasafninu,
lýkur nú um helgina. Á hátíðinni
er tímatengd myndlist, þar sem ljós-
myndir, myndbönd, tölvur og gern-
ingar eru megin miðlarnir.
Um helgina verða myndbönd,
tölvuverk og innsetningar auk
heimildarmyndbands frá gerning-
um sem fluttir voru síðustu tvær
helgar. Á laugardaginn frá kl. 14
flytja Árni Ingólfsson, Hekla Dögg,
Halldór Ásgeirsson, Nína, Hannes
Lárusson, María Pétursdóttir,
Helga Þórsdóttir og Kurt Johannes-
sen gerninga.
Myndbönd, töluverk og innsetn-
ingar þessa helgi eiga Magnus
Engstedt, G.R. Lúðvíksson, Hlynur
Hallsson, Hildur Jónsdóttir, Shawn
King, Kit Ericson, Kristinn G. Harð-
arson, Julian Smith, Hafdís Helga-
dóttir, Hlynur Helgason, Helga
Óskarsdóttir, Kristrún Gunnars-
dóttir, Jessica Hutchins, Pernilla
Carlsson og Pétur Örn Friðriksson.
ON Iceland lýkur sunnudaginn
10. ágúst, aðgangur er ókeypis og
verður safnið opið laugardag frá
kl. 14 þar til gerningunum lýkur
um kl. 21, en á sunnudag verður
opið frá kl. 14-18.
Sýning um samsfæður
og andstæður Norðmanna
og íslendinga á miðöldum.
Þjóðminjasafn íslands
Dppskriflaleikur
fogabæjar og /\ ð alstöðv ar innar 90.9
Takið þátt f uppskriftaleiknum.
Mð gætuð unnið gjafabréf ffá Hótel Borg!
Þeir sem senda okkur uppskriftir sem innihalda E.Finnson sósur
og/eða Yogaídvfnr geta unnið gjafabréf frá Hótel Borg að upphæð
kr. 10.000,-
Vikulega verður valiu besta innsenda uppskriftin, hún lesin upp í
þætti Steinars Viktorssonar, Grjótnámumii á Aðalstöðinni og hringt
í vinningshafaim.
Leikurinn stendur í 5 vikur. Vinningar verða gefiiir á finuntudögum.
Fyrsti viimingurinn verður gefinn fimmtudaghui 14. ágúst og sá
síðasti finuntudagimi 11. september.
Hægt er að senda uppskriftirnar á faxi: 424 6725 eða bréfleiðis
með utanáskriftinni „Uppskriftaleikur“ Vogabær Vogagerði 8
190 Vogar. Uppskriftirnar skulu merktar með nafni, heimihsfangi
og síma þátttakenda.
Góða skemmtun!
VOGABÆR
190 Vogar Sími: 424 6525
AÐALSTÖÐIN