Morgunblaðið - 08.08.1997, Page 24

Morgunblaðið - 08.08.1997, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Fjölskyldusýning í Ráðhúsi Reykjavíkur Listin til sjálfsskilnings Morgunblaðið/Amaldur NORRÆNA farandsýningin kemur til Islands frá Færeyjum þar sem 2.500 marins sáu hana og segir Akhanda sýningarstjóri, að hún vitni meðal annars um góða samvinnu fullorðinna og barna á Norðurlöndunum. RÁÐHÚS Reykjavíkur breytist enn á ný í listsýningarsal skrýddan ljósmyndum, myndböndum og tón- list, þegar farandsýningin Norræn- ar nærmyndir verður opnuð þar í dag kl. 17 Sýningarstjórinn, Ak- handa frá Danmörku, kallaði til fjöldann allan af listafólki frá Norðurlöndum, jafnt böm og ungl- inga sem leika og lærða til að leggja sitt af mörkum með áherslu á ungt fólk, margmiðlun og fram- tíðina. Danski ljósmyndarinn Tor- ben Huss fylgdist með allri fram- vindunni og hanga ljósmyndir hans nú í Ráðhúsinu til vitnis um hvern- ig norræn sköpun og samvinna ólíkra hópa vatt áfram. Sýningin samanstendur af fimm ólíkum skúlptúrþáttum og segir Akhanda að sýningin höfði til allra aldurs- hópa og auðvelt sé að skilja hana því hún sé tiltölulega gegnsæ. „Sýningin er afar fjölbreytt og endurspeglar þá hugmynd að eitt- hvað spennandi hafi gerst á Norðu- löndum þann tíma sem verkin voru unnin,“ segir Akhanda. „Hún sýnir upptekið og einbeitt fólk sem fæst við sköpun úr norrænum efnivið, jafnt litum sem lögun.“ Leiklist og tónlist Á sýningunni eru auk ljósmynd- anna, sýnd leiklistar- og tónlistar- myndbönd og einnig er hægt að hlusta á upptökur frá tónleikum sem haldnir voru víða um Norður- löndin og gerðar voru sérstaklega fyrir þessa sýningu. Akhanda seg- ir að eitt af undrunum við þetta verkefni hafi verið það að þátttak- endur skyldu uppgötva hversu auð- velt væri að vinna saman. „Lykil- atriðið er tilfinningin fyrir sam- vinnu og fullorðnir listamenn geta lært af börnum og unglingum því þau eru mjög blátt áfram og krefj- ast hreinna og beinna samskipta. Á móti læra þau yngri af þeim fullorðnu því þeir hafa yfir að ráða tækni og þekkingu á ýmsum verk- færum sem notuð eru við tjáningu í listinni. Það er einfaldlega góð tilfinning sem hlýst af sköpun því menn verða öruggari og sjálfs- skilningur eykst, sem leiðir til hug- rekki til að skilja ólíka menningar- heima.“ Sýningin kemur hingað frá Fær- eyjum þar sem 2.500 manns sáu hana, en hugmyndin kemur upp- haflega frá danska menntamálráu- neytinu, sem fékk Akhöndu hlut- verk sýningarstjóra. Sýningin verður opin í Ráðhúsinu til 28. ágúst og heldur áfram för sinni um Norðurlöndin. Chef Penq er sérfrœðingur i austurtenskri mataraerð og hefur meðat starfao í Japan, Singapore, Kóreu, Thaitaneti, Honq Kong oq Ktna. Á Bamhoo framreiðir ftessi meistari austurtenskar mataraerðaríistar qómsœta rétti frá ötfum þessum töndum. Opmumrtil&oð7~~Z'~> Hottenskur bjór með höerri stjörnumáttíð. Gitdir attan ágústntánuð' ÞÖNGLABAKKA t> f MJÓOO • SÍMI 557 2700 • FAK $57 2705 ... AÐSENPAR GREINAR Fj ár málastj órn borgarinnar UNDANFARIN misseri hefur borgarstjóra tekist að telja mörgum trú um að hagur borgarsjóðs fari batnandi. Borgarstjóri hefur lagt sérstaka áherslu á að veruleg umskipti til batnaðar hafi átt sér stað á síð- ustu þremur árum eða frá því R-listinn náði meirihluta í Reykjavík. Ýmsum aðferðum hefur verið beitt til að fegra stöðu borgarsjóðs, m.a. ákveðið að selja leigu- íbúðir borgarinnar til hlutafélags sem er að fullu í eigu borgarinnar. Á þessu ári þarf hluta- félagið að greiða borg- arsjóði 800 m.kr. Hlutafélagið tekur að sjálfsögðu lán til að greiða borgarsjóði en borgin er síðan ábyrg fyrir því að lánið verði greitt. Þannig hækka skuldir borgarinnar á þessu ári eingöngu vegna þessa gjörnings um 800 m.kr. Einnig til að sýna stöðu borgarsjóðs betri á síðasta ári og draga athyglina frá eyðslu umfram samþykkta fjár- hagsáætlun voru skuldir borgarsjóðs að upphæð 730 m.kr. við Malbikun- Fjárhagsáætlun 1997 er sprungin, útgjöld vaxa og skuldir aukast, segir Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, ogtelur R-listann stunda sjónhverfíngu en ekki fjármálastjórn. arstöðina og Gijótnámið strikaðar úr þegar þessum fyrirtækjum var breytt í hlutafélag í des. s.l. Fullyrðingar borgarstjóra um að dregið hafí umtalsvert úr skulda- söfnun borgarsjóðs og að sjálfvirk hækkun rekstrarútgjalda hafi verið stöðvuð standast því miður alls ekki og eru víðs fjarri raunveruleikanum. Fjárhagsáætlun borgarinnar vegna ársins 1997 er þegar sprungin sem nemur hundruðum milljóna króna, útgjöld vaxa hröðum skrefum, skuldir aukast og peningaleg staða borgarsjóðs versnar stöðugt. Loforðin í maí 1994 í kosningabaráttunni fyrir síðustu borgarstjómarkosningar í maí 1994 gagnrýndu frambjóðendur R-listans sjálfstæðismenn fyrir að skuldir hefðu aukist frá 1992-1994. Skuldir jukust á þessu tímabili einkum vegna ýmissa aðgerða til að spoma við sífellt vaxandi atvinnuleysi. Enn- fremur minnkuðu útsvarstekjur vemlega á sama tíma. Frambjóðend- ur R-listans gáfu borgarbúum mjög skýrt kosningaloforð varðandi fjár- málastjóm borgarinnar sem hljóðaði þannig: „Gerð verði áætlun til langs tíma um að greiða upp skuldir borg- arinnar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur safnað. Sérstök úttekt verði gerð á fjármálum borgarsjóðs strax að afloknum kostning- um. Fjárhagsáætlun fyrir árið 1994 verði síðan endurskoðuð í ljósi þeirrar niður- stöðu.“ Úttekt var gerð á fjármálum borgarsjóðs en að öðra leyti era efndimar á þessu kosn- ingaloforði engar og borgarstjóri hefur lýst því yfír í borgarstjóm að R-listinn ætli sér ekki að efna þetta kosningaloforð. Þvert á móti var ákveðið að auka skuldirnar eins og fjárhagsáætlanir borg- arinnar vegna 1995 og 1996 gerðu ráð fyrir. Nýjar álögur R-listans á borgarbúa Frá því R-listinn tók við í júní 1994 hafa skuldir borgarsjóðs auk- ist um 2,6 milljarða króna og skuld- ir á sameiginlegum reikningi borg- arsjóðs og fyrirtækja borgarinnar hafa aukist um tæpa 4 milljarða króna. Þetta gerist á sama tíma og ný gjöld, sem R-listinn lagði á borg- arbúa þegar hann náði meirihluta, færa borgarsjóði 1,2 milljarða króna tekjur árlega. Hér er um að ræða holræsagjaldið víðfræga, sem hækkaði fasteignagjöld á einu bretti um tæplega 30% og kostar borgarbúa 560 millj. kr. árlega og viðbótar arðgreiðslur af veitufyrir- tækjum borgarinnar, 550-560 millj. kr., sem greiðast árlega í borgar- sjóð. Ennfremur má minna á nýtt heilbrigðiseftirlitsgjald, sem er lagt á öll fyrirtæki í borginni og færir borgarsjóði 30-40 millj. kr. Sjónhverfingar og pennastrik R-listinn telur það árangur í fjár- málastjóm að gefa borgarbúum til kynna allt aðra stöðu í ijármálum borgarinnar en staðreyndir segja til um með því að stunda sífelldar sjón- hverfíngar. Útstrikun skulda borg- arsjóðs við eigin fyrirtæki og sala á leiguíbúðum til hlutafélags í eigu borgarinnar í þeim tilgangi að fela aukna skuldasöfnun borgarsjóðs flokkast undir sjónhverfíngar en ekki markvissa og raunhæfa fjár- málastjóm. Þannig verða ekki til fjármunir sem koma til með að mæta vaxandi rekstrarútgjöldum borgarsjóðs. Ef fram heldur sem horfír munu rekstrarútgjöld og skuldir halda áfram að vaxa og það kemur að þvi að ekki verður hægt að fela vandann með því að strika út skuldir borgarsjóðs hjá borgarfyr- irtækjum eða að borgin selji sjálfri sér eigin eignir til að búa til gervi- peninga. Meiri tekjur en skuldir aukast Það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir borgarbúa að þrátt fyrir hag- stæð ytri skilyrði, aukinn hagvöxt, nýjar tekjur fyrir borgarsjóð frá 1994, sem nema árlega 1,2 millj- arði kr., og veralega auknar út- svarstekjur skuli enginn raunvera- legur árangur nást. Rekstrarútgjöld standast ekki áætlanir, peningaleg staða borgarsjóðs og fyrirtækja borgarinnar versnar og skuldir auk- ast. R-listinn hefur gert og ber ábyrgð á þremur fjárhagsáætlun- um, þ.e. fyrir árin 1995, 1996 og 1997. Allar sprangu þær og eyðslan er meiri. Það er í samræmi við þá ákvörðun R-listans að standa ekki við kosningaloforð sín frá því í maí 1994 um að minnka skuldir borgar- innar. Höfundur er borgarfulltríu Sjálfstæðisflokks. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson I > ► > I t > > l I ( í l í ! I I ■u

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.