Morgunblaðið - 08.08.1997, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 25
AÐSENDAR GREINAR
Um synjun Hæstaréttar á endurupptöku
Guðmundar- o g Geirfinnsmála
HINN 15. júlí sl. tók
Hæstiréttur Islands svo
sem kunnugt er afstöðu
til erindis Sævars Mar-
inós Ciesielskis um end-
urupptöku hæstarétt-
armáls nr. 214/1978,
sem betur er þekkt und-
ir nafninu Guðmundar-
og Geirfinnsmál. Rétt-
urinn synjaði erindinu.
Mál þetta hefur skiljan-
lega verið mikið til
umræðu í þjóðfélaginu.
Mér fínnst ástæða til
að Jeggja orð í belg.
Úrlausn réttarins er
bæði ítarleg og vönduð
að allri gerð. í henni
er m.a. ástæðum fyrir
endurupptökubeiðninni raðað upp
með skipulegum hætti en á það hafði
skort í erindi talsmanns Sævars
Marinós til réttarins. Um ástæðurn-
ar er svo fjallað hveija af annarri
og þær afgreiddar með rökstuðn-
ingi. Þessi vinnubrögð réttarins eru
mjög að skapi starfandi lögmanns,
enda ber úrlausnin með sér, að þær
röksemdir sem fram var teflt í mál-
inu hiutu skoðun og voru afgreiddar.
Dómarnir uppfylltu ekki
sönnunarkröfur
Ég hef lengi talið að áfellisdómar
Hæstaréttar 22. febrúar 1980 í
þessu fræga dómsmáli hafi ekki
uppfyllt þær kröfur sem gera verði
til sönnunarfærslu í opinberum mál-
um. Dómarnir voru byggðir á játn-
ingum sakborninga sem fengnar
voru við afar „frumstæðar" aðstæð-
ur. Að mínum dómi fela játningar
einar ekki í sér fullnægjandi sönnun-
arfærslu í sakamálum. Þær hljóta
að þurfa að styðjast við
önnur „áþreifanlegri"
sönnunargögn til að
verða lagðar til grund-
vallar dómi. Margt var
athugavert við þessar
játningar. Sumt af því
skal nefnt:
1. Um var að ræða
ungmenni sem stundað
höfðu afbrot og neyslu
vímuefna. Slíkt fólk er
líklegra en ýmsir aðrir
til að „kaupa sér frið“
við lögreglumenn með
því að játa á sig þær
sakir, sem það finnur
að óskað er eftir. í
málinu kemur fram að
sakborningarnir hafa,
meðan þeir voru í einangrun, leitað
eftir samneyti við lögreglumennina.
Þetta ber vott um það hugarástand,
sem slík einangrun getur skapað og
bendir til þess að tii hafi orðið við-
leitni til að þóknast lögreglumönn-
um.
2. í samhengi við þetta er nauð-
synlegt að hafa hugfast að sakborn-
ingarnir voru í einangrun og þannig
ofurseldir rannsóknarvaldi, þar sem
dómstóll og lögregla var á þessum
tíma undir sama hatti.
3. Af málinu öllu er ljóst að rann-
sóknin gekk fyrst og fremst út á
að fá fram játningar. Við sakborn-
ingana var oft rætt án þess að gerð-
ar væru lögregluskýrslur. Ljóst er
að lögregla sem svona starfar gerir
frekar skýrslu, þegar eitthvað kemur
fram, sem henni er að skapi. Lög-
reglumenn báru upplýsingar á milli
sakborninga, líklega fyrst og fremst
með því að „bera undir“ einn það
sem annar hafði sagt. í raun og
veru er afar erfitt að greina hvaða
hlutar af framburðarskýrslum sak-
borninga eru frá þeim sjálfum komn-
ar og hvaða hlutar frá lögreglu-
mönnum.
4. Hafa verður í huga að langur
tími leið frá meintum afbrotum, þar
til tekið var að yfirheyra sakborn-
inga, nær tvö ár í „Guðmundarmáli"
og um hálft annað ár í „Geirfinns-
máli“. Eftir þann tíma var tekið að
spytja sakbominga um tímasetning-
ar og atburði á tímaskeiði vímuefna-
neyslu svo löngu fyrr. Við þessar
aðstæður er svörum lítt treystandi.
Fjöldi fólks hefur horfið
á undanförnum áratug-
um án þess að skýringar
hafi fundist, segir Jón
Steinar Gunnlaugsson,
og fínnst eins standa á
um þessa tvo menn.
5. Bent hefur verið á, að lögregl-
an hafi látið undir höfuð leggjast
að rannsaka strax atriði sem sjálf-
sagt var að rannsaka, m.a. atriði sem
hefðu getað horft til hagsbóta fyrir
sakbominga. Nokkuð virðist vera til
í þessu. T.d. hefði þurft að kanna
miklu betur en gert var upplýsingar
um ferð Sævars Marinós austur fyr-
ir fjall um sama leyti og Guðmundur
Einarsson hvarf.
6. í framburðarskýrslum sakborn-
inga komu fram ýmis atriði sem síð-
ar kom í ljós að ekki fengu staðist.
Þetta var vitaskuld til þess fallið að
rýra gildi þessara skýrslna fyrir
dómi. Dæmi um þetta er framburður
Alberts Klahns Skaftasonar, þar sem
hann lýsti af nákvæmni aðstæðum
við Hamarsbraut í Hafnarfirði, þeg-
ar hann var fenginn til að koma á
Toyota-bifreið föður síns til að flytja
lík Guðmundar Einarssonar. Sú ná-
kvæma lýsing hrundi til grunna þeg-
ar í ljós kom að faðir hans hafði
ekki átt Toyota heldur Volkswagen
á þessum tíma.
7. Hafi játningarnar verið sann-
leikanum samkvæmar, hvernig stóð
þá á því að enginn sakborninga gat
bent á hvar a.m.k. annað líkið væri
að finna? Málið ber með sér að
ýmsar frásagnir hafi komið fram um
þetta hjá sakborningunum en engin
þeirra hafi reynst rétt, þegar líkanna
var leitað. Voru játningarnar trú-
verðugri en þessar frásagnir af stað-
setningu líkanna? í raun og veru
hefur aldrei verið sannað með óyggj-
andi hætti að nein glæpaverk hafi
verið unnin við hvarf þessara tveggja
manna. Fjöldi fólks hefur horfið á
undanförnum áratugum á íslandi án
þess að skýringar hafi fundist. Mér
finnst eins standa á um þessa tvo
menn.
8. Mikill þrýstingur var á rann-
sóknarmönnum og raunar dómskerf-
inu sem slíku um að upplýsa þessi
mannshvörf. Málið var mikið fjölm-
iðlamál og furðuleg pólitísk upp-
hlaup urðu sem gerðu alla þjóðina
upptekna af því um langan tíma.
Enginn vafi er á að þessar kringum-
stæður höfðu veruleg áhrif á rann-
sakendur og síðar dómara.
Annmarkar lágu fyrir
Við meðferð beiðninnar um end-
urupptöku fjallar Hæstiréttur um
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Qölda atriða sem telja verður til
annmarka á rannsókn og málsmeð-
ferð á sínum tíma. Langflestu af
þessu er hafnað sem tilefnum til
endurupptöku á þeirri forsendu að
upplýsingar um þessa annmarka
hafi legið fyrir í málinu, þegar það
var dæmt á sínum tíma. I þessu
felst sú kaldhæðnislega niðurstaða,
að ekki er unnt að fá mál endurupp-
tekið ef dómarar í málinu hafa vitað
eða mátt vita um aðstæður sem leiða
hefðu átt til sýknu, án þess að hafa
látið þær aftra sér frá að sakfella!
Ástæða þess að í lög eru settar
heimildir til að endurupptaka opin-
ber mál er sú, að við viljum ekki að
menn þurfi að sitja uppi með ranga
dóma. Það má vel vera að sú lögskýr-
ing Hæstaréttar nú sé rétt, að ekki
sé unnt að endurskoða ranga dóma
hafi það verið dómarar sem beittu
rangindum. Það er hins vegar alveg
sama ástæða til að heimila endur-
skoðun, þó að það séu menn með
dómsvald sem brotið hafa rétt á
sökuðum mönnum. Þess vegna verð-
ur að breyta lagaákvæðunum um
endurupptöku og rýmka heimildir
að þessU leyti. Það verður þó að
gera af mikilli varfæmi því megin-
reglan er vitaskuld sú að dómar séu
endanlegir.
Viðfangsefni dómara
í sakamálum
Ég sé að lokum ástæðu til að
minna á, að viðfangsefni dómara i
sakamálum er ekki að svara spurn-
ingu um hvað raunverulega hafi
gerst. Viðfangsefnið er að ákveða,
hvort lögfull sönnun hafi verið færð
fram fyrir dómi um sekt þess manns
sem fyrir sökum er hafður. Sé slík
sönnun ekki færð fram, kann það
að leiða til þess að sekur maður
sleppi. Það er gjald sem réttarríki
greiðir fyrir að geta talist réttarríki.
Höfundur er hæsta-
réttarlögmaður.
W w - w®' WW - w-w w-w-w --
undanurslit
tftirtaldir leikir lara
fram í undanúrslitum
Coca-Cola bikars karla
Laugardaginn 9. ágúst: ÍBV ■ KR Hásteinsvöllur kl. 16:00
Sunnudaginn 10. ágúst: Keflavík ■ Leiftur Keflavikurvöllur kl. 17:00