Morgunblaðið - 08.08.1997, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 37
FRÉTTIR
Hvaleyrarvatn fyrir
ofan Hafnarfjörð
Skógar- og
útivistar-
dagurá
morgun
Á MORGUN, laugardaginn 9.
ágúst, verður haldinn Skógar-
og útivistardagur fjölskyldunnar
við Hvaleyrarvatn fyrir ofan
Hafnarfjörð. Verður þar boðið
upp á margt til skemmtunar og
fróðleiks en að dagskránni
standa Skógræktarfélag Hafn-
arfjarðar, St. Georgsgildið í
Hafnarfirði, Skátafélagið
Hraunbúar, Hestamannafélagið
Sörli, Ferðamálanefnd Hafnar-
fjarðar og Æskulýðs- og tóm-
stundaráð Hafnarfjarðar.
Dagskráin hefst kl. 14 með
því, að fáni verður dreginn að
húni í Höfða og að því búnu flyt-
ur Hólmfríður Finnbogadóttir,
formaður Skógræktarfélags
Hafnarfjarðar, ávarp. Klukkan
14.10 verður farið í gönguferð
um tijásýnislundinn í Höfða-
skógi í fylgd Steinars Björgvins-
sonar garðyrkjufræðings og á
sama tíma verður lagt upp í
skoðunarferð um skógræktar-
svæði Hafnarfjarðar með Axel
Knútssyni garðyrkjufræðingi.
Klukkan 14.30 mun Jón Jóns-
son jarðfræðingur miðla fólki
ýmsum fróðleik og kl. 15 verður
farið í sveppa- og grasaferð um
skóginn með Jóhanni Guðjóns-
syni líffræðingi. Frá klukkan
14.10 til 16 munu félagsmenn í
Sörla verða með hesta og teyma
undir börnum við Sörlastaði og
kl. 14.10 verður póstaleikur fyr-
ir alla fjölskylduna í umsjá skáta.
Verður lagt upp frá sandvíkinni
við vatnið og viðurkenningar-
skjöl veitt.
Frá kl. 15 til 16 munu skátar
vera með leiki við skátaskálann.
Skátastörf verða kynnt, brauð
bakað yfir eldi og fleira. Kl. 16
verður grill og söngur við vatnið
og er fólk hvatt til að koma með
eitthvað á grillið. Áhöld og
ávaxtasafi verða á staðnum.
Ferðamálaráð verður með
fjölskyldugetraun allan daginn
og verða verðlaun veitt fyrir rétt
svör og ókeypis veiði og báts-
ferðir verða á vatninu allan dag-
inn.
JÓHANN P. Jónsson, kortastjóri Olíufélagsins hf., afhendir
Herði A. Guðmundssyni og Konu hans, Kristínu Valdimars-
dóttur, nýja bilinn. Fulltrúi frá Ingvari Helgasyni fylgist með.
Dregið í Safnkortshappdrættinu
SAFNKORTSHAFAR fengu i
júníbyrjun sent nýtt Safnkort
frá Oliufélaginu hf. en eldra
kortið var þá útrunnið. Nýja
kortinu fylgdi miði í Safnkorts-
happdrætti en miðanum átti að
skila inn á næstu bensínstöð
ESSO fyrir 15. júlí.
25. júlí síðastliðinn var dreg-
ið úr innsendum miðum. Aðal-
vinningurinn var Subaru
Legacy frá Ingvari Helgasyni
og hreppti hann Hörður A.
Guðmundsson, Safamýri 52 í
Reykjavík. Tíu manns fengu
flugferð fyrir tvo innanlands
með íslandsflugi, tvö hundruð
fengu 5.000 kr. matarkörfur
frá verslunum 10-11 og eitt
hundrað fengu 3.000 kr. bensín-
úttekt frá Olíufélaginu hf.
ESSO.
Vinningshöfum hefur þegar
verið send tilkynning í pósti.
3200
nemendur
í Vinnu-
skólanum
SÍÐASTI starfsdagur Vinnuskóla
Reykjavíkur í sumar er í dag,
föstudaginn 8. ágúst. Þá ljúka síð-
ustu nemendurnir starfi sínu, en
í sumar sóttu ríflega 3.200 nem-
endur Vinnuskólann. Þeir hafa í
sumar m.a. aðstoðað um 800 elli-
lífeyrisþega, gróðursett um
400.000 trjáplöntur, skilað nærri
1.000 tonnum af garðúrgangi til
Sorpu, snyrt og hirt borgina. Auk
þess hafa þeir tekið þátt í marg-
breytilegu fræðslustarfi og lært
vinnusiðferði og vinnubrögð.
I frétt frá Vinnuskólanum segir
að í sumar hafi 14 ára nemendur
unnið í borginni við umhirðu og
snyrtingu opinna svæða, 15 ára
nemendur sinnt þjónustu við elli-
lífeyrisþega sem felst í að snyrta
garða þeirra í tvígang um sumar-
ið auk þess sem hópar störfuðu
við landgræðslu á Nesjavöllum.
16 ára nemendur unnu við skóg-
rækt í Heiðmörk og á Hólmsheiði
þar sem Vinnuskólinn hefur, í
samvinnu við fleiri aðila, unnið
áratugum saman að því að byggja
upp útivistarsvæði. 16 ára nem-
endur unnu einnig að verkefnum
í samvinnu við garðyrkju- og
gatnamáladeildir í borginni.
Meðal þess sem ungmennin
voru frædd um voru umhverfis-
vernd og vistvænir lifnaðarhættir
í Sorpu, þau kynntust söfnun og
stofnunum í borginni og sögu
borgarinnar, fóru í fijálsar íþrótt-
ir í Laugardal, fræddust um vímu-
efni og afleiðingar vímuefnanotk-
unar hjá Jafningjafræðslunni og
kynntust menningu og siðum
framandi þjóða í einskonar þjóða-
kynningu. Utan vinnutímans var
svo boðið upp á margskonar frí-
stundatilboð s.s. jóga, skartgripa-
gerð, klettaklifur, kvöldsund og
fjöldamargt fleira.
Hunang
á Kaffi
Reykjavík
Á VEITIN G AHÚ SINU Kaffi
Reykjavík leikur hljómsveitin
Hunang föstudags- og laug-
ardagskvöld.
Á sunnudeginum taka svo við
Sigrún Eva og hljómsveit.
Athugasemd frá þjóðleikhússtjóra
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Ste-
fáni Baldurssyni, þjóðleikhússtjóra,
vegna greinar Markúsar Arnar
Antonssonar:
„í grein eftir Markús Örn Ant-
onsson, fyrrverandi borgarstjóra
Reykjavíkur, sem birt var í
Morgunblaðinu í gær, kemur fram
einkennilegur misskilningur varð-
andi laun leikara við Þjóðleikhúsið,
hvort sem misskilninginn má rekja
til forráðamanna Leikfélags
Reykjavíkur eða beint til greinar-
höfundar. Eins og MÖA setur mál-
ið fram í grein sinni, sem í aðalat-
riðum fjallar um allt annað mál, er
í raun um aðdróttanir að ræða þess
efnis að einkennilega hafi verið
staðið að fjármálastjórn í Þjóðleik-
húsinu og því full ástæða að leið-
rétta þennan misskilning.
MÖA segir forráðamenn LR hafa
sótt það fast í borgarstjóratíð hans,
að fá meira fé úr borgarsjóði „til
að geta hækkað laun leikara í sam-
keppni við Þjóðleikhúsið". Þessa
setningu má skilja á þann veg að
LR hafi viljað hækka laun leikara
til þess að ná þeim frá Þjóðleikhús-
inu og væri þar með komið inn á
hála braut í kjaramálum lista-
manna. Markús talar um árið 1992
og segir: „Raunar leit það afar
sérkennilega út að Þjóðleikhúsið
sem var í verulegum fjárhagsvanda
á þessum tíma og upp á ríkisvaldið
komið með auknar fjárveitingar til
að mæta hallarekstri, væri sífellt
að yfirbjóða leikara frá Leikfélagi
Reykjavíkur. En það er svo margt
skrýtið í kýrhausum hinnar opin-
beru fjámálaumsýslu á landi hér.“
Eitthvað slær saman tíma-
viðmiðun í þessum ummælum, því
að „verulegur fjárhagsvandi" Þjóð-
leikhússins náði hámarki í lok síð-
asta áratugar en kjarni málsins er
þessi: Þjóðleikhúsið hefur aldrei
„yfirboðið" leikara frá Leikfélagi
Reykjavíkur, að minnsta kosti ekki
í minni leikhússtjóratíð og kemur
þar tvennt til:
I fyrsta lagi fara laun leikara
eftir kjarasamningum við stéttarfé-
lög þeirra, þar sem allar launa-
greiðslur fara eftir umsömdum
ákvæðum, sem gilda um alla leik-
ara jafnt. Kjarasamningar LR við
Fél. ísl. leikara hafa alla tíð verið
hliðstæðir samningunum við Þjóð-
leikhúsið. Það hefur því launalega
ekki verið óhagstæðara að starfa
hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Ekki
fyrr en síðustu misseri að sýningar
Þjóðleikhússins eru orðnar marg-
falt fleiri en LR. Leikarar fá greidd
sýningarlaun fyrir hveija sýningu
og samdráttur í starfsemi felur því
að sjálfsögðu í sér kjararýrnun.
í öðru lagi hefur Þjóðleikhúsið
haft yfir svo sterkum hópi fastráð-
inna leikara að ráða hin síðari ár,
að engin ástæða eða þörf hefur
verið fyrir að sækjast eftir leikurum
frá Leikfélagi Reykjavíkur, hvað
þá heldur að greiða þeim hærri
laun en öðrum. Enda það fyrir-
bæri, sem MÖA kallar „yfirborgan-
ir til leikara" ekki kunnugt okkur
í Þjóðleikhúsinu.
Hvort heldur misskilningurinn í
máli þessu er til orðinn meðal for-
ráðamanna LR, sem að sjálfsögðu
hefðu átt að vita betur, eða hjá
fyrrverandi borgarstjóra, er
ástæða til að benda á, að það sem
laðar leikara til starfa á ákveðnum
vinnustað er ekki endilega launum
háð.“
Skógardagur
Skógræktarfélaga
SKÓGRÆKTARFÉLÖGIN víðsveg-
ar um land efna á næstunni til ár-
legra skógræktardaga og vilja með
því vekja athygii íbúanna á starfi
félaganna, fallegum skógarsvæðum
og miklu ræktunar- og uppgræðslu-
starfi sem unnið er fyrir tilstilli fé-
laganna víðs vegar um land.
Að þessu sinni verða skógræktar-
dagarnir haldnir m.a. laugardaginn
9.-16. ágúst. Hér á eftir fer yfirlit
yfir samkomustaði skógardagana en
dagskrá hefst kl. 14.
Vesturland:
9. ágúst Sk.fél. Landv. u. Jökli,
við Ingjaldshól, 16. ágúst Sk.fél.
Akranes, Slaga við Akrafjall, 16.
ágúst Sk.fél. Heiðsynninga, Hof-
staðahólum og 23. ágúst Sk.fél.
Stykkishólms, Grensási v. Stykkis-
hólm.
Vestfirðir:
9. ágúst Sk.fél. Boiungarvíkur,
við Hólmsá í Bolungarvík, 9. ágúst
Sk.fél. Limgarður, Táknafirði.
Norðurland:
9. ágúst Sk.fél. A-Húnvetninga,
Gunnfríðarstöðum í Langadal, 16.
ágúst Sk.fél. Siglufjarðar, Skarð-
dalsskógi, 16. ágúst Sk.fél. Eyfirð-
inga, Kjarnaskógi og 16. ágúst
Sk.fél. S-Þingeyinga, Hjalla í
Reykjadal.
Austurland:
9. ágúst Sk.fél. Borgarfj. eystri,
við Álfaborg, 9. ágúst Sk.fél. Nes-
kaupstaðar, í Hjallaskógi, 9. ágúst
Sk.fél. Fáskrúðsfjarðar, við tjald-
svæðið á Fáskrúðsfirði, 9. ágúst.
Sk.fél. Djúpavogs, Skógarreit við
Djúpavog, 16. ágúst Sk.fél. Austur-
land, Eyjólfsstaðaskógi og 16. ágúst
Sk.fél. Seyðisfjarðar, Skógarhlíð á
Seyðisfirði.
Suðurland:
9. ágúst Sk.fél. Rangæinga, Múla-
koti í Fljótshlíð, 9. ágúst Sk.fél.
Mörk, Leiðavelli í Meðallandi.
Suðvesturland:
9. ágúst Sk.fél. Hafnarfjarðar,
Höfðaskógi við Hvaleyrarvatn, 9.
ágúst Sk.fél. Garðabæjar, Sandahlíð
við Kjóavelli, 9. ágúst Sk.fél. Kópa-
vogs, Fossá í Hvalfirði og 24. ágúst
Sk.fél. skáta við Úlfljótsvatn, Skáta-
skála v/Úlfljótsvatn.
Vinningaskrá
13. útdráttur 7. ágúst 1997.
íbúðavinningur
Kr. 2.000.000____________Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
29089
Kr. 100.000
37587
Ferðavinningur
52090
Kr. 200.000 (tvöfaldur)
69359
69392
Ferðavinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
1803 20158 26842 37673 56043 66436
14711 23951 29202 37764 57849 75494
Húsbúnaðarvinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
1170 17993 29770 42759 53209 58457 66815 74785
2772 18733 31186 43805 53256 59097 68057 75374
6388 19150 32355 43818 53580 59852 68186 76361
8055 19174 33383 43898 54036 60365 68859 76993
9133 19283 33730 44506 54356 61022 69036 77267
9797 21182 34107 44615 55244 61435 69129 77476
10116 21539 34186 47054 55296 61482 69408 78076
11955 24264 34869 47545 55406 62017 70615 79441
12130 24815 36436 47593 55512 63391 73073 79755
12499 25984 36464 50200 55829 63964 73216
13710 26199 37343 50606 56650 64291 73718
15122 26871 38265 50906 56696 64817 74300
15953 29338 41386 52624 58153 65609 74608
Húsbúnaðarvinningur
Kr. 5.000 Kr. 10.000 (tvöfaldur)
169 11201 21074 29904 40811 50930 62404 71218
1332 11270 21504 29961 41495 51197 62975 72173
1431 11501 21754 31584 41722 52228 63416 72437
1704 11854 22533 31664 42266 52803 63421 72485
2548 12035 22981 32129 42279 52931 63428 72669
2793 12427 23062 32175 42464 53184 63898 72763
2953 12561 23733 32572 43036 53312 64086 72788
3246 12897 23771 32670 43137 53383 64161 72935
3691 13960 24207 32718 43250 53432 64357 73590
3724 14081 24526 32759 43489 53773 64379 74496
4247 14541 24828 32855 43918 53787 65056 74578
4366 14608 25020 33327 44030 54284 65463 74814
4433 14963 25205 33501 44064 54812 66000 75138
4576 14972 25402 33707 44684 55503 66185 75192
5270 15149 25471 33712 44782 56198 66442 75405
5409 15153 25584 34086 44971 56271 66932 76020
5839 15393 26043 34104 45255 57278 67379 76113
5917 15854 26380 34144 45517 57835 67436 76383
5947 16743 26557 34199 46626 57985 67993 76480
6317 16756 26898 34262 46864 58501 68066 76593
6522 17187 26950 34374 47950 58691 68102 77510
6688 17550 26976 34863 48125 58980 68133 77940
6904 17707 27487 34970 48266 59108 68263 78538
7124 18178 27775 35078 48390 60172 68386 79027
8303 18527 27890 35135 48425 60264 68506 79604
8852 18681 27921 35793 49099 60511 68757 79679
9127 18697 28414 36349 49133 60690 69022
9238 18923 28710 36927 49190 60724 69031
9491 19102 28909 37236 49404 60905 70290
10075 19574 29005 37888 50155 61702 70586
10435 20040 29505 38513 50228 62232 70950
11024 21001 29657 40027 50876 62303 70975
Næsti útdráttur fer fram 14. ágúst 1997
HeimasiAa á Interneti: Http://www.itn.is/das/