Morgunblaðið - 08.08.1997, Qupperneq 48
48 FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
H
MYNDBÖIMD/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
MYNDBÖND SÍÐUSTU VIKU
Eg mæli með
Matthildur
(Matilda)-k k ★
Sonur forsetans
(First Kid)k ★ ★ Vi
Leitin að lífshamingjunni
(Unhook the Stars)k ★ ★ 'h
í deiglunni
(The Crucible) ★ ★ ★ Vi
Tvö andlit spegils
(The Mirror Has Two Faces) kkk
Ógnarhraði
(Runaway Car)k k
Lífið eftir Jimmy
(AftcrJimmy)'k ★ ★
Bundnar
(Bound)k ★ ★
Ókyrrð
(TurbuIence)Vi
Hatrinu að bráð
(Divided by Hatc)k 'h
Gullbrá og birnirnir þrír
(Goldilocks and the Three Be-
ars)k'/i
Þruma
(Blow Out)k k k Vi
Tortímandinn
(Terminator)k k
Útsalan byrjar í dag,
föstudaginn óttunda áttunda, kl. 9.00
íþrótta- og sportvörur á alla
fjölskylduna á frábæru verði.
VERÐDÆMI SKÓR
Uppháir leðurskór nr. 25 til 36........kr. 990,-
Hlaupaskór með púða nr. 35 til 47......kr. 2.990,-
Innanhússskór nr. 28 til 46 frá........kr. 1.990,-
Barnaskór með riflás nr. 28 til 34 ......._.kr. 1.990,-
VERÐDÆMI FATNAÐUR
Glansgallar barna ........................kr. 2.990,-
íþróttagallar XS til XXL.........................kr. 2.990,-
Úlpur nr. 10,12 og 14............................kr. 3.990,-
Úlpur nr. XS til XXL.............................kr. 4.990,-
Bómullarfatnaður öll nr.
barna- og fullorðins: Buxur, háskólabolir,
heilar hettupeysur, renndar hettupeysur,
regnfatnaður, sundfatnaður, töskur, bolir,
stuttbuxur o.fl. o.fl.
VIÐ RÚLLUM BOLTANUM TIL ÞÍN!
NÚ ER TÆKIFÆRIÐ TIL AÐ GERA GÓÐ KAUP.
OPIÐ í KVÖLD TIL KL. 21.00 OG Á
MORGUN, LANGAN LAUGARDAG, FRÁ 10
TIL 17.
Póstsendum.
SPORTVÖRUVERSLUNIN
SPARTA
Laugavegi 49-101 Reykjavik • simi 551 2024
Kúlnahríð, of-
beldi og Singer
Andrés Magnússon netari
ANDRES fór mikið í
bíó á unglingsárum, en
hefur dregið verulega
úr því. „Eg fer helst
ekki í bíó nema sér-
staklega hafi verið
mælt með ræmunni við
mig eða þá að miklir
uppáhaldsmenn eigi í
hlut. Allt um það er ég
gefnastur fyrir hraðar
spennumyndir þar sem
konurnar eru með stór
bijóst og karlmennirnir
eru með stærri byss-
ur.“
Blade Runner
Blade Runner - 1982
Leikstjóri: Ridley Scott. Aðalleikar-
ar Harrison Ford, Sean Young og
Rutger Hauer. „Ég held mikið upp
á Ridley Scott, en í þessari mynd
er hann í raun og veru að gera leyni-
löggusögu í anda Dashiels Hamm-
etts undir því yfirskyni að hér sé
um vísindaskáldskap að ræða.
Myndin er reyndar lauslega byggð
á smásögu Philips K. Dick, Do
Androids Dream of Electric Sheep,
en Scott á svo sem meira í mynd-
inni en hann. Myndin fékk Óskars-
verðlaun fyrir tæknibrellur, sem
fyrst og fremst fólust í stórkost-
legri sviðsmynd Los Angeles á ofan-
verðri 21. öld, þar sem neonskiltin
ein skera í gegnum þykkan þoku-
mökkinn. Myndin ijallar um leit
leynilöggunnar Deckards að íjórum
gervimennum á flótta frá nýlendum
á öðrum hnöttum, en snýst kannski
frekar um hvað það er, sem gerir
okkur mennsk og hvað ekki. Harri-
son Ford stendur sig
mjög vel sem leyni-
löggan og er sögumað-
ur að auki.“
Leon
Leon -1994
Leikstjóri: Luc Besson.
Aðalleikarar: Jean
Réno, Gary Oldman,
Natalie Portman og
Danny Aiello. „Mér
finnst eiginlega allt
sem Besson gerir vera
brakandi snilld og
nægir að minnast á
Subway, Grand Bleu,
Nikita og Fimmtu höfuðskepnuna
í því samhengi. Þessi mynd varð
upphaflega til utan um aukahlut-
verk í Nikita, þar sem fyrir kom
„hreingerningamaður", þ.e.a.s. at-
vinnumorðingi. í upphafi myndar
lifir Leon, sem Frakkinn Jean Réno
leikur af stakri kostgæfni, fyrir
starf sitt, sem felst í að „hreinsa
til“ fyrir mafíufjölskyldu í New
York. Einn góðan veðurdag kemur
spilltur fíkniefnalögregluþjónn, sem
er gríðarvel leikinn af Gary Old-
man, i heimsókn í næstu íbúð, sak-
ar eigandann um svik við sig og
drepur alla fjölskylduna, nema 12
ára heimasætuna, sem var í búðar-
ferð. Það verður henni til lífs og
Leon skýtur yfir hana skjólshúsi.
Hún vill læra til sama starfa og
hann og gengur á ýmsu, en smátt
og smátt verða þau ástfangin hvort
af öðru í platónskum skilningi.
Myndin er í senn falleg, fyndin,
spennandi og stútfull af kúlnahríð
og sprengingum."
MYNDBÖNP____
Rúmstokks-
gamanmynd
Smokkaleit
(Booty Call)
Gamanmynd
k'/i
Framleiðandi: John Morrissey.
Leikstjóri: Jeff Pollack. Handrits-
höfundar: Takashi Bufford, Bootsie
Parker. Kvikmyndataka: Ron Orie-
ux. Tónlist: Robert Folk. Aðalhlut-
verk: Jamie Foxx.Tommy David-
son, Vivica A. Fox, Tamala Jones.
90 mín. Bandaríkin. Skífan 1997.
Útgáfudagur: 9. júlí. Myndin er
bönnuð börnum innan 12 ára.
FÉLAGARNIR Bunz og Rushon
eru á leiðinni á stefnumót með
kærustu Rushon og vinkonu henn-
ar. Bunz er dæ-
migert karl-
rembusvín og
hugsar bara um
það eitt hvernig
hún muni líta út.
Vinkonan er
dæmigerð kona á
uppleið og hugsar
um það eitt
hvernig hann er
stæður og viðhorf hans til lífsins.
Þegar þau hittast virðist allt á leið-
inni upp í háaloft, en eftir smá
byijunarörðugleika byijar kynhvöt-
in að gera vart við sig hjá báðum
pörunum. Konunar vilja öruggt
kynlíf og senda karlmennina til
þess að kaupa getnaðarvarnir og
þá má segja að ævintýrið byiji.
Þetta er dæmigerð neðanbeltis-
gamanmynd, sem er uppfull af klúr-
um bröndurum og kynferðislegum
athöfnum. Persónurnar eru horm-
ónadrifnir karlar og konur, sem
hugsa bara um kynlíf. Sumir brand-
ararnir eru svo lélegir að maður
hálfpartinn skammast sín fyrir að
vera að horfa á þessa vitleysu. En
til mótvægis við þessa lélegu brand-
ara eru nokkur virkilega fyndin
atriði. Jamie Foxx, sem leikur Bunz,
á flesta góðu brandarana í mynd-
inni á meðan hinir leikararnir eru
nokkurs konar stuðpúðar við fyndni
hans. Foxx er einn af mörgum, sem
byijuðu feril sinn sem leikarar í
þáttunum „Living Color“, en aðrir
frægir eru t.d. Jim Carrey og Way-
ans bræðurnir. Vivica A. Fox, sem
leikur Lysterine, er fín í hlutverki
glanspíunnar, en hún var fyrst
þekkt fyrir að leika konu Wills
Smith í „Independence Day“. Bestu
atriðin eru í byijun myndarinnar
og þá sérstaklega það sem gerist á
veitingahúsinu. Þrátt fyrir nokkra
góða brandara er myndin afskap-
lega léleg og varla þess virði að
horfa á.
--------------------------------------- I
Morðinginn 1
The Killer - 1989 (
Leikstjóri: John Woo. Aðalleikari:
Chow Yun-Fat. „John Woo er sá
Hong Kong-leikstjóranna, sem lengst
hefur náð, og er raunar kominn til
Hollywood þar sem hann hefur gert
vinsælar spennumyndir á borð við
Hard Target, Broken Arrow og Face
Off. Myndir hans eru í raun ofbeldis-
ballett og helst hægt að minnast á 1
afrek Sam Peckinpah til samanburð- |
ar. Samt finnast mér Hong Kong- i
myndimar hans yfírleitt betri, enda
hamslausari en Hollywood-pakkinn.
Söguþráðurinn er tiitölulega hefð-
bundin þriðjaheimsepík: Uppáhalds-
leikarinn minn, hann Chow Yun-
Fat, leikur leigumorðingja sem verð-
ur fúll út í yfírboðara sína, enda
fylgir hann eigin siðalögmálum. Inn
í þetta blandast vinátta og ástir og j
blablabla, en fyrst og síðast er það
ofbeldislistin, sem sigrar.“
Óvinir - ástarsaga I
Enemies, a Love Story - 1989
Leikstjóri: Paul Mazursky. Aðalleik-
arar: Ron Silver og Angelica Hus-
ton. „Myndin er gerð eftir sögu
Nóbelsverðlaunahafans Isaac Bas-
hevis Singer og fjallar um líf í gyð-
ingahverfinu á Coney Island í New
York. Silver leikur gyðing, sem lifði
Helförina af og flutti til Vestur-
heims til þess að vera ekki síminnt-
ur á eiginkonuna, sem hann týndi '
í dauðabúðum nasista. Hann er
kvæntur pólskri stúlku, sem bjarg-
aði honum frá Þjóðveijum, en held-
ur framhjá með gyðingastúlku.
Þegar hann barnar viðhaldið giftist
hann því líka á þeirri forsendu að
hjónabandið með þeirri pólsku hafi
aldrei verið viðurkennt í musterinu.
Þetta bjargast þó allt furðuvel þar
til Angelica Huston birtist á svæð- |
inu og hefur hreint ekki farist í
Helförinni eins og haldið var! Sögu-
þráðurinn hljómar kannski eins og
ólíkindaleg gamanmynd, en myndin
er ágætlega trúverðug saga af góðu
fólki, sem hefur lifað af Helvíti og
kannski ekki jafnað sig á því, en
reynir sitt besta til þess að komast
vandræðalaust af. Karakterarnir
eru frábærir, textinn sömuleiðis og
leikurinn eins og best gerist.“
„Lolita“
í vanda
PÓLITÍSK rétthugsun og um-
ræða vegna nýlegra barnaníð-
ingsmála virðast ætla að verða
„Lolitu" ^ötur um fót. Nýlega
var sagt frá því að Frakkar
hefðu frestað frumsýningu
myndarinnar í kjölfar barnaníð-
ingsmála þar í landi. Einnig
hefur gengið erfiðlega að selja
dreifingarréttinn að myndinni I
í Bandaríkjunum. Lokið var við
myndina á síðasta ári en hún
hefur ekki verið frumsýnd.
Jeremy Irons, sem lék Hum-
bert Humbert í þessari útgáfu
Adrian Lyne á sögu Vladimir
Nabokov, er óánægður með
stöðu mála og trúði blaðamanni
The Guardian nýverið fyrir því
að hann væri pirraður vegna
hræðslu bandarískra dreifing-
araðila við „Lolitu“. „Þeir eru
fastir í pólitískri rétthugsun."
Mynd Lyne kostaði að talið
er um 62 milljónir dollara svo
það er framleiðendum hennar
kappsmál að koma henni á
markaðinn. En saga um mið-
aldra mann sem á í ástarsam-
bandi við 12 ára stúlku er efni
sem er vægast sagt eldfimt og
vandmeðfarið og dreifingarað-
ilar óttast orðspor Lyne sem á
myndir eins og „9 Vi Weeks“
að baki. Einnig hafa myndir
sem hafa gengið langt í nekt
og umfjöllun um kynlíf ekki
selst vel í Bandaríkjunum und-
anfarið. „Striptease", „Showg-
irls“, og „Crash“ bombuðu all-
ar.
Ottó Geir Borg