Morgunblaðið - 08.08.1997, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. ÁGÚST 1997 49
MYNDBOND/KVIKMYIMDIR/UTVARP-SJONVARP
Stjörnustríð
á Italíu
FRÉTTIR frá Ítalíu herma að
George Lucas sé þar að filma fyr-
ir fyrsta kaflann í Stjörnustríðs-
bálknum. Kvikmyndaleikstjórinn
er staddur í Caserta
þar sem hann ætlar
að nýta konunglega
höll sem sviðs-
mynd. Höllin á
að vera heim-
ili ungrar
drottningar,
sem leikin er
af Nataliu
Portman.
Port-
man er
eini aðal-
leikarinn
sem sést hef-
ur á Ítalíu.
Liam Neeson,
Ewan McGregor,
Jake Lloyd, Ian
McDiarmid, og Samuel L.
Jackson eru víst ekki nauð-
synlegir fyrir tökur í kring-
um höllina og geta slapp-
að af heima og lært
línurnar sínar.
Þó að Portman sé ung að árum
þá er Lloyd enn yngri. Hann er
samt ekki reynslulaus leikari. Llo-
yd lékt.d. son Arnolds Schwarzen-
eggers í .jJingle AU the
Way“. I mynd Lucas
fær Lloyd að túlka
æsku Anakin
Sky-wal-
kers,
riddarans
sem verð-
ur síðar
Svart-
höfði.
Beavis og Butthead
öllum lokið
AÐDÁENDUR Beavis og Butthead
taka það örugglega nærri sér að
frétta að dagar félaganna eru tald-
ir. Skapari þeirra, Mike Judd, hefur
lýst því yfir að þáttaröðin um Bea-
vis og Butthead hafi runnið sitt
skeið. „Ég vil ekki þræla við að
koma þessum þáttum saman leng-
ur.“
Aðdáendur Beavis og Butthead
geta huggað sig við það að Judd
lét þess getið að hugsanlega yrði
gerð önnur kvikmynd um ævintýri
félaganna og einstaka þáttur um
þá („TV specials") yrði á dagskrá
hjá MTV. Einnig er mögulegt að
MTV endursýni eitthvað af þeim
200 þáttum sem til eru.
Judd ætlar ekki að sitja auðum
höndum þó hann hafi fengið nóg
af Beavis og Butthead í bili. Hann
hefur sett saman nýjan teikni-
myndagamanþátt sem heitir „King
of the Hill“. Þátturinn er um fjöl-
skyldu Hank Hills í Texas og ná-
granna hans í úthverfi Arlen. Þátta-
röðin hóf göngu sína sl. febrúar á
Fox-sjónvarpsstöðinni og verður
aftur á dagskrá þegar vetrardag-
skráin hefst 21. september.
Robert
Altman
gramur
ROBERT Altman er upp á
kant við Polygram Films
vegna nýjustu myndar sinnar,
„The Gingerbread Man“.
Myndin er skrifuð af John
Grisham og vildu yfirmenn
Polygram fá mynd sem auð-
velt væri að selja. (Hvers
vegna var Altman þá látinn
leikstýra?) Þeir voru óánægð-
ir með útgáfu Altmans og
hafa ráðið nýjan klippara,
Don Cambern, til þess að
gera myndina söluvænlegri.
Altman fær ekki að koma
nálægt lagfæringum Cam-
berns og er ekki sáttur við
fyrirkomulagið.
1
Músik
og Sport
Músik og Sport ehf. - Reykjavíkurvegi 60 - Símar 555-2887 og 555-4487
$£ Áfr
T ?■
Skógardagurínn
Skógræktarfélögin bjóða alla velkomna á skógardaga,
sem haldnir verða víðsvegar um land.
Jafnframt viija félögin þakka þeim fjölmörgu aðilum, sem
veitt hafa skógræktarstarfinu margháttaðan stuðning.
Mætum öil á skógarhátíð félaganna.
Skógræktarfélög og samkomustaðir. Dagskrá hefst kl. 14.00
Vesturland
9/8 Sk fél. Landsv. u. Jökli - Við Ingjaldshól
16/8 Sk fél. Akranes - Slaga við Akrafjall
16/8 Sk fél. Heiðsynninga - Hofstaðahólum
23/8 Sk fél. Stykkishólms - Grensás v. Stykkishólm.
Vestfirðir
9/8 Sk fél. Bolungarvíkur - Hölsá við tjaldstæði.
9/8 Sk fél. Limgarður - Tálknafirði
Austurland
9/8 Sk fél. Borgarfjarðar. eystri - Við Álfaborg *
9/8 Sk fél. Neskaupsstaðar - i Hjallaskógi
9/8 Sk fél. Fáskrúðsfjarðar - Við tjaldstæðið á Fáskrúðsfirði
9/8 Sk fél. Djúpavogs - Skógarreit við Djúpavog
16/8 Sk fél. Austurlands - Eyjólfsstaðaskógi
16/8 Sk fél. Seyðisfjarðar • Skógarhlíð á Seyðisfirði
Suðvesturland
9/8 Sk fél. Hafnarfjarðar - Höfðaskógi við Hvateyrarvatn
9/8 Sk fél. Garðabæjar - Sandahlið við Kjóavelli
9/8 Sk fél. Kópavogs - Fossá i Hvalfirði
24/8 Sk fél. skáta v. Úlfljótsvatn - Skátaskála ÚlfIjótsvatni
Suðurland
9/8 Sk fél. Rangæinga - Múlakoti í Fljótshlið
9/8 Sk fél. Mörk - Leiðvelli í Meðallandi Suðvesturland
Norðurland
9/8 Sk Fél. A-Húnvetninga - Gunnfríðarstöðum i Laugadal
16/8 Sk fél. Siglufjarðar - Skarðdalsskógi
16/8 Sk fél. Eyfirðinga - Kjarnaskógi
16/8 Sk fél. S-Þingeyinga - Hjalla í Reykjadal
j®fÍ3S3w " ‘vf
er samband 53 skógræktarfélaga
með yfir 7300 félagsmenn.