Morgunblaðið - 16.09.1997, Side 6

Morgunblaðið - 16.09.1997, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 20 manns hafa farist í þyrluslys- um hér frá 1965 20 MANNS, þar af sex varnarliðs- menn, hafa farist í þyrluslysum hér við land frá árinu 1965. Þyrlan sem fórst í Hvammsfirði í fyrrakvöld var ein fimm þyrlna sem nú eru skráðar hér á landi. Auk þriggja þyrlna Landhelgisgæslunnar var hún og önnur til í rekstri hjá Þyrluþjónust- unni. 3. maí 1955 brotlenti Bell þyrla í mælingaflugi við Straum á Vatns- leysuströnd. Einn slasaðist. 1. maí 1965 fórst þyrla frá varnar- liðinu, sunnan Kúagerðis upp af Landakoti á Vatnsleysuströnd. Hún var að koma úr flugi til Hvalfjarðar. Fimm varnarliðsmenn voru um borð og fórust allir. 10. júlí 1969 hrapaði þyrla frá varnarliðinu við bæinn Hvamm undir Eyjafjöllum. Þyrlan hafði verið send til aðstoðar annarri varnarliðsvél. Hermaður beið bana og flugmaður- inn slasaðist mikið en þriðji maður- inn í áhöfn vélarinnar slapp lítið meiddur. 17. janúar 1975 fórst Sikorsky þyrla, TF-LKH, við Hjarðames í Hvalfirði á leið frá Reykjavík til Vegamóta. Sjö fórust. 25. apríl 1977 flaug Hughes þyrla, TF-AGN, í jörðu á Mælifellssandi norðan Mýrdalsjökuls og eyðilagðist. Vélin hafði verið í sjónflugi í vondu veðri frá Reykjavík austur í Meðal- land. Flugmaður og farþegi urðu úti. 31. júlí 1978 brotlenti Brantly þyrla, TF-DEV, eftir að stélskrúfa hennar brotnaði af þegar hún var í mælingaflugi á Amarvatnsheiði. Einn maður slasaðist. 18. desember 1979 brotlenti Sikorsky þyrla frá varnarliðinu í björgunarleiðangri á Mosfellsheiði. Auk áhafnar og tveggja íslenskra lækna vom um borð sjúklingar sem bjargað hafði verið úr flaki flugvélar sem fórst á heiðinni. 11 manns slös- uðust í þessum tveimur slysum. 25. nóvember 1982 flaug Hughes þyrla, TF-ATH, á loftnetsvír milli húsa við sjónvarpshúsið á Láugavegi. Þrír menn um borð sluppu lítið meiddir. 8. nóvember 1983 fórst Sikorsky þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- RAN, í æfingarflugi frá varðskipi í Jökulfjörðum eftir að rennihurð losn- aði af ókunnum orsökum og lenti í aðalþyrli vélarinnar. í áhöfn þyrlunn- ar vom fjórir menn og fómst allir. 21. september 1992 brotlenti lítil tveggja sæta þyrla, TF-HHO, við Nesjavallaveg. Flugmaður og farþegi sluppu lítið meiddir. 31. júlí 1990 brotlenti Hughes þyrla við Hafursfell, skammt norðan við Snæfell. Þrír menn vora um borð og sluppu lítið meiddir. Ótalin era 8 tilvik þar sem íslensk- ar þyrlur hafa skemmst eða eyðilagst án þess að slys hafi hlotist af. í árbók flugslysanefndar kemur fram að samkvæmt niðurstöðum rannsóknar- skýrslna hafi orsakir slysanna, þar sem þyrlur vora í eigu Islendinga, verið margþættar en oftast tengdar bilunum ýmiss konar eða veðurfari. TF-LÍF flaug' austur í 12 vind- stigum og ísingu LANDHE LGISGÆSLAN fékk til- kynningu um slysið í Hamarsfirði þar sem þyrla Þyrluþjónustunnar, TF- HHD, brotlenti eftir flugtak á sunnu- dagskvöld, klukkan 19.38. Tilkynn- ingin kom frá lögreglunni á Fá- skrúðsfirði, en farþegi þyrlunnar náði sambandi þangað með því að hringja í númer Neyðarlínunnar. Samkvæmt upplýsingum Land- helgisgæslunnar var minni þyrlan, TF-SIF, tilbúin til brottfarar og fór hún í loftið klukkan 20.14. Tæpri klukkustund síðar lenti þyrlan hins vegar í mikilli ísingu og snörpum vindi við Reynisdranga og var ákveð- ið klukkan 21.07 að snúa henni aftur til Reykjavíkur. Um leið og ljóst var að SIF kæmist ekki austur hafði Landhelgisgæslan samband við varnarliðið og óskaði að- stoðar þyrlusveitarinnar. Skömmu síðar var hins vegar ákveðið að aflétta flugbanni á TF-LÍF, Super Puma-þyrlu Landhelgisgæslunnar sem var kyiTsett eftir þyrluslysið í Noregi í fyrri viku. Þar með var að- stoð vamarliðsins afþökkuð. TF-LÍF fór í loftið kl. 22.02. Ferð- in austur sóttist seint vegna mjög slæms flugveðurs. Vindur fór í 50-60 hnúta, eða um 12 vindstig og hélst sá vindstyrkur alla leið. LÍF er hins vegar búin mjög fullkomnum afísing- arbúnaði, svo ísing kom ekki í veg fyrir að förinni væri haldið áfram. Þyrlan lenti á Höfn í Hornafirði til að taka eldsneyti klukkan 23 mínútur jdír miðnætti. Þá var staðfest að flug- maðurinn væri látinn og var þyrlunni snúið til Reykjavíkur, þar sem hún lenti klukkan 2.21. D^5JGARD tístum apótekum landsins Nýi BabyGard hitamælirinn - bylting í heilsueftirliti barnsins! Baby Gard er töivustýrður hitamælir - nákvæmur, öruggur og einfaldur f notkun. Barnið ber hann á sér, nött sem dag, án þess að hann valdi því nokkrum óþægindum í svefni eða leik. Baby Gard mælir líkamshita bamsins f eitt skipti eða skráir og safnar í minni upplýsingum um hítann í allt að 10 klst. Baby Gard er jafnfraint með innbyggðan „vekjara" sem gerir viðvart fari líkams- hitinn yfir fyrirfram ákveðið mark. Baby Gard er prófaður af Löggildingarstofunni á íslandi. Morgunblaðið/Golli ÞESSI mynd var í gær tekin upp eftir fjallinu í suðurhlfðum Iíamarsdals og sýnir hversu hrikalega erfiða leið björgunarmennirnir þurftu að fara. Slysið varð á Moldflagahjalla í um 800 metra hæð í Hamarsdal inn af Hamarsfirði Þrándar- jökull\ Álftafjöröur svæði Aðstæð- ur til leit- ar voru mjög erfíðar „AÐSTÆÐUR við leitina voru mjög erfiðar og fyrstu menn voru ekki komnir á vettvang fyrr en Qórum tímum eftir slys- ið. Björgunarmenn þurftu að fara upp snarbratta fjallshlíðina til að komast að Moldflagar- hjalla, þar sem þyrlan var,“ sagði Jónas M. Vilhelmsson, full- trúi sýslumannsins á Eskifirði, í samtali við Morgunblaðið í gær. Lögreglan á Eskifirði stjórnaði leit og björgunarstarfi í Hamars- firði á sunnudagskvöld. Jónas sagði að fjórtán heima- menn hefðu verið fyrstir á vett- vang. „Það tók fjóra tíma að komast á slysstað, enda ekki hægt að komast nema fótgang- andi upp fjallshlíðina. Aðstæður voru mjög erfíðar í fjallinu, kol- dimmt og snjókoma. Það var þó ekkert að veðri þegar slysið varð.“ Björgunarmenn báru lík flug- mannsins niður af fjallinu í fyrri- nótt. Nóg pláss á hjallanum Rúmlega fimmtíu björgunar- sveitarmenn héldu á vettvang og fengu leiðsögn staðkunnugra heimamanna til að finna þyrl- una. Jónas sagði að þrátt fyrir mikinn bratta í fjallinu væri ekki hægt að rekja slysið til þess að þyrlan hefði ekki haft nóg pláss til að athafna sig. „Þar sem þyrlan fórst í fjallinu er stór hjalli, Moldflagarhjalli, og þar er nóg pláss til að athafna sig, enda hafa þyrlur oft flogið þangað," sagði Jónas. Lögreglan á Eskifirði vann í gær við að afla gagna og fá heildarmynd af því sem gerðist og sagði Jónas ekki hægt að skýra nánar frá málinu fyrr en sú mynd færi að skýrast. Dómur í máli fyrrverandi sveitarstjóra Dæmdur fyrir brot í opinberu starfi FYRRVERANDI sveitarstjóri Reykhólahrepps, Bjarni P. Magn- ússon, hefur verið dæmdur fyrir umboðssvik í opinberu starfi, fjár- drátt og brot á lögum um stað- greiðslu opinberra gjalda. Refs- ingin, átta mánaða fangelsi, er skilorðsbundin og fellur niður að þremur árum liðnum, haldi hann almennt skilorð. Bjarni var sýkn- aður af hluta ákæruatriða. Málið var höfðað með ákæru ríkissaksóknara í maí sl. I dómi Héraðsdóms Reykjavíkur er Bjami sakfelldur fyrir umboðssvik í opinberu starfi með því að veð- setja fasteign Reykhólahrepps, Tilraunastöðina á Reykhólum, án samþykkis hreppsnefndarinnar. Veðið var sett til tryggingar tveggja milljóna kr. láns sem Breiðfirðingur hf., félag undir stjóm og í eigu Bjama og fleiri, tók hjá Byggðastofnun. Þá viðurkenndi Bjarni að hafa dregið sér tæpar 5,8 milljónir af fjármunum hreppsins með því að taka til eigin nota andvirði tveggja lána Byggingarsjóðs verkamanna til sveitarsjóðs. Hann gaf út veð- skuldabréf í nafni hreppsins og vom fjárhæðir bréfanna tryggðar með 1. veðrétti í fasteign Reyk- hólahrepps. Af þessum peningum lagði hann rúmlega 1,4 milljónir inn á tékkareikning hreppsins og bókfærði á viðskiptareikning sinn hjá hreppnum sem framlag sitt til lækkunar viðskiptaskuldar, 4 milljónir greiddi hann til ríkissjóðs inn á skuld við Rannsóknarstofnun landbúnaðarins, sem Breiðfirðing- ur hf. hafði yfirtekið við kaup á Álftalandi, hluta úr fasteigninni Tilraunastöðinni á Reykhólum. 350 þúsund hagnýtti hann sér á annan hátt, en af þeirri fjárhæð lagði hann 250 þúsund inn á eigin tékka- reikning. Hélt eftir iðgjöldum Þá var sveitarstjóranum fyrr- verandi gefið að sök að hafa dregið sér lífeyrissjóðsiðgjöld af launum sínum og eiginkonu sinnar, sam- tals rúma eina milljón. Héraðs- dómur féllst ekki á að hægt væri að sakfella hann fyrir fjárdrátt að öðra leyti en sem næmi iðgjaldi launagreiðandans, eða um 600 þús- und kr. Þá var hann sakfelldur fyr- ir að hafa ekki haldið eftir af laun- um sínum staðgreiðslu opinberra gjalda, samtals rúmar 600 þúsund kr. og að hafa hvorki staðið inn- heimtumanni ríkissjóðs lögboðin skil á þeim gjöldum né skilagrein- um um þau. í niðurstöðu héraðs- dóms kemur fram, að ákærði hafi að öllu leyti reynst samvinnufús við meðferð málsins og gert sér far um að bæta fyrir brot sín. Þá sé þess sérstaklega að gæta að ekki hafi verið sýnt fram á að hann hafi beinlínis ætlað sér að hagnast á kostnað Reykhólahrepps. Pétur Guðgeirsson héraðsdóm- ari kvað upp dóminn. > I i ' i í i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.