Morgunblaðið - 16.09.1997, Side 8

Morgunblaðið - 16.09.1997, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HÉR þarf nú eitthvað að dóa til áður en við getum farið að syngja halelúja, englarnir mínir . . . 5352000 er talan sem fjárfestarþurfa að muna Stórt stökk fram á við í upplýsingagjöf á fjármálamarkaði í nútíma fjármálaumhverfi þurfa fjárfestar nýjar og áreiðanlegar upplýsingar fljótt og örugglega. Upplýsingaveita Landsbréfa er stórt stökk fram á við í upplýsingagjöf um verðbréf og verbréfamarkað. Aðeins eitt símanúmer gefúr upplýsingar um: ----------------------- —• Síðasta viðskiptagengi allra félaga á Verðbréfaþingi íslands og á Opna tilboðsmarkaðnum. —• Gengi verðbréfa- og hlutabréfasjóða Landsbréfa. —• Kaupverð Landsbréfaá húsbréfum á ákveðnu nafnverði í tilteknum flokkum. —• Gengi, ávöxtunarkröfu og affoO húsbréfa. -*—• Ahugaverð tilboð. Ennfremur er hægt að nota takkaborð símans til að fá sent fax með nýjustu upplýsingum um gengi bréfa. Upplýsingaveita Landsbréfa er opin allan sólarhringinn - hringdu! SUÐURLANDSBRAUT 24. ^ LANDSBREF HF. Löggilt verðbréfafyrirtœki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands. 108 REYKJAVÍK. SÍMI 535 2000. BRÉFSÍMI S 3 5 2 0 0 1 HUOgT.Ti'.l E Iþjóðlegur dagur til verndar ósonlaginu Flytjum enn inn ósoneyðandi efni IDAG, 16. september, er alþjóðlegur dagur til verndar ósonlaginu. „Þetta er í þriðja sinn sem alþjóðlegur dagur til verndar ósonlaginu er haldinn en að þessu sinni eru tíu ár frá því sam- þykkt Montreal-bókunar- innar við Vínarsáttmálann var gerð,“ segir Gunnlaug Einarsdóttir, efnafræðing- ur hjá Hollustuvernd rík- isins. Fundur aðildarríkja að Montreal bókuninni stend- ur yfir um þessar mundir og fyrir íslands hönd situr þann fund Sigurbjörg Gísladóttir, forstöðumaður eiturefnasviðs Hollustu- vemdar ríksins. - Um hvað fjallar Mon- treal bókunin? „Hún fjallar um takmörkun á notkun efna sem eyða ósonlag- inu. Þetta er tímamótabókun að því leyti að um er að ræða alþjóð- legan samning þar sem farið er í markvissar aðgerðir til að tak- marka framleiðslu ósoneyðandi efna.“ - Hverju hefur verið áorkað frá því bókunin var gerð fyrir tíu árum? „Bókunin hefur verið endur- skoðuð tvisvar, árið 1990 og árið 1992, og hefur því tekið töluverðum breytingum á þess- um tíma. Hvað varðar aðgerðir hefur t.d. framleiðslu á klórflúor- kolefnum og um hefur verið hætt í iðnríkjunum. Framleiðslu halona var hætt 1994 og fram- leiðslu klórflúorkolefna árið 1996. Þróunarrikin hafa lengri aðlögunartíma. Takmarkanir hafa verið settar á fleiri efni.“ - Hvernig standa íslendingar sig í þessum efnum? „Við höfum gengið lengra en bókunin segir fyrir um og hætt- um til dæmis innflutningi og sölu á klórflúorkolefnum ári fyrr en samþykkt var að gera. Efnin voru notuð hérlendis við hreins- un í efnalaugum, sem kælivökvi í kælikerfi stór og smá, og þar með talið ísskápa, og til þenslu á einangrun. Auk þess var það notað sem drifefni í úðabrúsa.“ - Var auðvelt að finna önnur efni í staðinn? „Það var ekki vandamál. Á hinn bóginn þurfti stundum að fjárfesta í nýjum tækjabúnaði og það kann að hafa reynst dýrt í einhveijum tilfellum.“ - Eru ósoneyðandi efni þá ekki lengur notuð í úðabrúsa og kæliskápa? „Nei. Að vísu fínnst klórflúor- kolefni í ísskápum sem ________ komnir eru til ára sinna. Menn voru hrifnir af efninu um og eftir miðja öld m.a. vegna stöðug- leika og lítilla eitrunar- áhrifa.“ Gunnlaug segir að einu óson- eyðandi efnin sem íslendingar flytja inn núna séu vetnisklórflú- orkolefni. „Þau hafa sömu upp- byggingu og klórflúorkolefni en innihalda líka vetnisatóm. Efna- fræðilega er um að ræða mjög lík efni sem eru með svipuð notk- unarsvið. Vetnisklórflúorkolefnin brotna fyrr niður og ósoneyðing- armáttur þeirra er miklu minni en hjá klórflúorkolefnum.“ Hún bætir við að samkvæmt alþjóð- legum samningum verði notkun þess að mestu hætt árið 2015. Gunnlaug Einarsdóttir ►Gunnlaug Einarsdóttir fæddist 16. mars árið 1960. Hún lauk BS;prófi í efnafræði frá Háskóla íslands árið 1983 og doktorsprófi í efnafræði frá University of Minnesota árið 1988. Gunnlaug vann á Iðntæknistofnun frá árunum 1989-90. Hún hóf störf á Holl- ustuvernd ríkisins árið 1990, fyrst á rannsóknarstofu og frá árinu 1993 á mengunarvarna- sviði. Gunnlaug er gift Helga Jó- hannessyni verkfræðingi og eiga þau tvö börn. — Mun það koma sér illa fyr- ir íslendinga að hætta notkun þessara efna? „Frystiskipaflotinn okkar not- ar vetnisklórflúorkolefni sem kælivökva. Við sjáum ekki fyrir okkur hvaða leið verður farin til að skipta þeim út. Ammoníak er einn möguleiki en þá þarf að kaupa alveg nýjan tækjabúnað í skipin. Auk þess er hægt að nota vetnisflúorkolefni. Þau eyða ekki ósonlaginu en stuðla að auknum gróðurhúsaáhrifum og það er eitt af þeim umhverfis- vandamálum sem verið er að leysa á alþjóðavettvangi.“ - Hvað liggur fyrir á þessum fundi aðildarríkjanna? „Það er aðallega verið að taka á ákvörðunum varðandi efni sem heitir metýlbrómíð og einnig vetnisklórflúorkolefnin. Fyrr- nefnt efni hefur aldrei verið not- að hér á landi en er notað erlend- is m.a. við sótthreinsun á jarð- vegi og svælingar á skipum og byggingum. Vetnisklórflúorkol- efni eru fyrrgreind efni sem ís- lenskir frystitogarar nota sem ___________ kælivökva.“ - Er ekki að koma út bæklingur á íslensku um ósonlag- ið? „Jú, á vegum nor- rænu ráðherranefnd- Hann verður með norræn viðhorf og er á öllum Norðurlanda- og ensku að auki. Frystiskipa- fiotinn þarf að skipta um kælivökva arinnar. áherslu á gefinn út málunum Þetta er ekki ósvipaður bækling- ur og gefinn var út árið 1994, Ósonlagið og gróðurhúsaáhrifin. Sá bæklingur kom út á vegum umhverfisráðuneytisins og Holl- ustuverndar.“ Gunnlaug segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvemig bæklingnum verður dreift en þeir sem hafa áhuga geta snúið sér til Hollustuverndar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.