Morgunblaðið - 16.09.1997, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Asdís Halla kjörin formaður SUS fyrst kvenna
„Vona að mitt framboð verði
hvatning fyrir aðrar konur“
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
FRÁ vinstri: Hörn Hrafnsdóttir, einn af þingriturum, Ásdís Halla Bragadóttir formaður SUS og
Jón Kristinn Snæhólm þingforseti.
ÁSDÍS Halla Bragadóttir, aðstoðar-
maður menntamálaráðherra, var
kjörin í embætti formanns Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna, til
næstu tveggja ára, á þingi sam-
bandsins í Reykjanesbæ um helg-
ina. Hún er þar með fyrsta konan
til að gegna þessu embætti í 67 ára
sögu SUS. Sjálfkjörið var í for-
mannsembættið og það sama átti
við um stjórn SUS. Hins vegar var
gengið til kosninga í varastjórn.
Um 120 ungir sjálfstæðismenn tóku
þátt í þingstörfum og voru fjöl-
margar ályktanir samþykktar í lok
þingsins. I þeim kemur m.a. fram
vilji ungra sjálfstæðismanna til að
jafna atkvæðisrétt til dæmis með
einmenningskjördæmum, að há-
skólanemar greiði aukinn hluta af
kostnaði við nám sitt, að Háskóli
íslands verði gerður að sjálfseignar-
stofnun og að fjárhæð barnabóta
verði óháð tekjum framfærenda.
I samtali við Morgunblaðið segist
Ásdís Halla, aðspurð hvort kjör
hennar í embætti formanns SUS
komi tii með að þýða einhverjar
breytingar á starfínu á næstunni,
telja mikilvægt að Sjálfstæðisflokk-
urinn og SUS leggi meiri áherslu á
frjálslyndi heldur en íhaldssemina
og vonast hún til að SUS geti beitt
sér j þá veru á næstu tveimur árum.
Ásdís Halla bendir ennfremur á
að á næstu tveimur árum verði
annars vegar sveitarstjórnarkosn-
ingar og hins vegar alþingiskosn-
ingar. „Ungir sjálfstæðismenn ætla
sér að koma ferskir inn í þá um-
ræðu sem verður fyrir sveitarstjóm-
arkosningarnar næsta vor og gera
sitt besta til þess að stjórnmálaum-
ræðan verði spennandi og áhuga-
verð, ekki síst fyrir ungt fólk,“ seg-
ir hún.
Ekki hlynnt
kyiyakvóta
Þegar Ásdís Halla er spurð að
því hvort það hafi einhverja þýðingu
að hún sé fyrsta konan sem sé kjör-
in í formannsembætti SUS, segist
hún fyrst og fremst hafa gefið kost
á sér sem einstaklingur og fengið
mjög góðan stuðning, sem sannist
m.a. á því að ekki hafi komið mót-
framboð. „Ég vona hins vegar að
mitt kjör sé hvatning fyrir aðrar
konur og sérstaklega fyrir yngri
stelpur til að gefa sig meira að
stjórnmálum bæði í Sjálfstæðis-
flokknum og í öðrum flokkum,"
segir hún. Asdís Halla segir enn-
fremur að ástæða þess að konur
hafi ekki áður verið í formannsemb-
ætti SUS endurspegli einfaldlega
það að konur hafi ekki verið nægi-
lega áberandi hvorki í Sjálfstæðis-
flokknum né öðrum flokkum, í at-
vinnulífmu eða annars staðar í sam-
félaginu. Þá bendir Ásdís Halla á
að hvorki hún né aðrir í SUS leggi
áherslu á að konur komi inn á
kynjakvóta, hvað þá að konum sé
ýtt út í stjórnmál.
Háskólinn verði
sj álfseignar stofnun
í ályktun þingsins um mennta-
mál er m.a. lagt til að leggja beri
áherslu á ríkari þátttöku einstak-
lingsins við fjármögnun menntunar
sinnar, eftir því sem ofar dregur í
skólakerfinu. Telja ungir sjálfstæð-
ismenn eðlilegt að nemendur greiði
sjálfir aukinn hluta af kostnaði við
nám sitt, miðað við það sem nú sé,
þar sem nemandinn sjálfur fái ábat-
ann af námi sínu.
Þá leggja ungir sjálfstæðismenn
til að Háskóli íslands verði gerður
að sjálfseignarstofnun, en með því
yrði stigið fyrsta skrefið í átt til
markaðsvæðingar skólans. Þeir
leggja ennfremur til að fækkað
verði í háskólaráði, æðstu yfirstjórn
Háskólans, og að deildarforsetar
sitji ekki í ráðinu. Þannig verði
hægt að tryggja sjálfstæða og skil-
virka yfirstjórn Háskólans. Einnig
er lagt til að breiðum hópi aðila úr
þjóðlífinu verði falið að tilnefna
fuljtrúa í háskólaráð.
í skattamálum telja ungir sjálf-
stæðismenn að huga þurfi að stuðn-
ingi við barnafjölskyldur og þá sem
séu að kaupa sér húsnæði í fyrsta
sinn. „Lagt er til að í stað núver-
andi barnabóta- og barnabótaauka-
kerfís verði fjárhæð bóta látin nema
fastri tölu fyrir hvert barn án tillits
til tekna framfærandans.“
í ályktun um viðskipta- og neyt-
endamál telja ungir sjálfstæðis-
menn nauðsynlegt að draga úr
umsvifum hins opinbera í atvinnu-
lífínu, til dæmis með útboðum á
einstökum verkefnum eða sölu opin-
berra fyrirtækja. Lagt er til að selja
hlutafé ríkisins í fyrirtækjum sem
þegar hefur verið breytt í hlutafélög
til dæmis Pósti og síma hf. og Við-
skiptabanka ríkisins.
Veðurstofan
einkavædd
Þá er talið mikilvægt að breyta
hið fyrsta rekstrarformi ýmissa fyr-
irtækja og stofnana ríkisins sem enn
hefur ekki verið breytt í hlutafélög.
Þannig eigi til dæmis að breyta
Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins í
hlutafélag og selja á almennum
markaði. En ungir sjálfstæðismenn
segja fulla ástæðu til að efast um
að stofnun þessa sjóðs eigi rétt á sér.
I umhverfismálum leggja ungir
sjálfstæðismenn áherslu á ábyrgð
einstaklingsins og fyrirtækja í um-
gengni sinni við umhverfíð og telja
að einkavæða beri Veðurstofu Is-
lands, Landmælingar og Skógrækt
ríkisins. Þá vilja þeir færa rekstur
þjóðgarða til einkaaðila og afnema
opinbera styrki til skógræktar.
í samgöngu- og fjarskiptamálum
leggja ungir sjálfstæðismenn
áherslu á að frelsi verði aukið og
setja sig upp á móti öllum aðgerðum
stjórnvalda við hömlum á notkun
alnetsins. Þá telja ungir sjálfstæðis-
menn í ályktun um menningarmál
að endurskoða beri útvarpslögin og
að í nýjum lögum skuli kveðið á
um sameiginlegt öryggishlutverk
allra ljósvakamiðla.
Aðalstjórn SUS
næstu tvö árin
Eftirfarandi fulltrúar voru kjörn-
ir í stjórn Sambands ungra sjálf-
stæðismanna til næstu tveggja ára:
Frá Reykjanesi: Áslaug Hulda Jóns-
dóttir, Bjarni Þór Eyvindsson, Böð-
var Jónsson, Jónas Þór Guðmunds-
son, Már Másson, Skarphéðinn Orri
Björnsson og Þórður Ólafur Þórðar-
son. Frá Reykjavík: Arnar Þór
Ragnarsson, Auður Finnbogadóttir,
Ásta Þórarinsdóttir, Hanna Birna
Krisjánsdóttir, Haraldur Johannes-
sen, Jóhanna María Eyjólfsdóttir,
Sigurður Kári Kristjánsson, Sigur-
jón Pálsson og Þorsteinn Davíðsson.
Frá Vesturlandi: Halldór Skúlason.
Frá Vestfjörðum: Björgvin Arnar
Björgvinsson. Frá Norðurlandi
vestra: Gunnlaugur Ragnarsson.
Frá Norðurlandi eystra: Svanhildur
Hólm Valsdóttir og Þórður Rafn
Ragnarsson. Frá Austurlandi: Jens
Garðar Helgason. Frá Suðurlandi:
Einar Örn Arnarsson, Kristín Ólafs-
dóttir og Sigmundur Sigurgeirsson.
Nýr skóli vígður
TÓNSKÓLI Sigursveins D.
Kristinssonar er fluttur í nýtt
húsnæði við Engjateig 1. Af því
tilefni var haldin vígsluhátíð,
þar sem komu saman nokkrir
nemendur skólans, kennarar og
gestir. Að sögn Guðrúnar Guð-
mundsdóttur aðstoðarskóla-
stjóra, sáu nemendur skólans
um þau tónlistaratriði sem flutt
voru við vígsluna.
Skólinn nýtur stuðnings
Reykjavíkurborgar og verða
um 650 nemendur í honum í
vetur en kennt er á fjórum stöð-
um i borginni.
Músíkleikfimi,
i Austurbæjarskólanum
Vetrarstarfsemin er hafin.
Ennþá nolckur pláss laus.
c- j Upplýsingar í síma 567 1386.
Morgunblaðið/Golli
Leiðbeinendur
við kennslu
án undanþágu
Lögbrot
ef rétt
reynist
SIGURÐUR Helgason, for-
maður undanþágunefndar
menntamálaráðuneytisins,
segir það lögbrot ef rétt reyn-
ist að skólar hafi ráðið til
starfa leiðbeinendur sem und-
anþágunefndin hafi hafnað.
Guðrún Ebba Ólafsdóttir,
varaformaður Kennarasam-
bands íslands, segist vita með
vissu um þrjá skóla þar sem
sú er raunin.
Aðspurður um viðbrögð
menntamálaráðuneytisins við
þessum brotum segir Sigurður
að þar sem þetta vandamál
hafi aldrei komið upp áður sé
ekki alveg Ijóst hver staða
undanþágunefndarinnar sé í
málinu og hvers það sé að
gera athugasemdir. Hann tel-
ur þó að ábyrgðin liggi hjá
viðkomandi sveitarstjórnum
þar sem þær ráði kennara
samkvæmt lögum. Sigurður
vill ekki tjá sig frekar um hver
eigi að ganga í málið fyrr en
það hefur verið rætt í mennta-
málaráðuneytinu en til stendur
að ræða það á fundi þar í dag.
Plata Eltons
Johns kemur
í næstu viku
PLATA Eltons Johns, með lag-
inu Candle in the Wind, sem
tileinkuð er minningu Díönu
prinsessu, kemur í hljómplötu-
verslanir á íslandi næstkom-
andi mánudag. Platan hefur
ekki verið framleidd enn sem
komið er fyrir aðra markaði
en Bretlandsmarkað.
Halldór Baldvinsson, inn-
kaupastjóri Skífunnar, segir
að Skífan panti vel á annað
þúsund plötur og segir hann
að mikið sé spurt um plötuna.
Verðið á henni hérlendis verð-
ur 699 krónur.
Söluhæsta plata allra tíma
er White Christmas með Bing
Crosby. Hún hefur selst í 150
milljónum eintaka.
Lottó 5/38
6,8 milljónir
til Vest-
mannaeyja
HEPPINN lottóspilari í Vest-
mannaeyjum datt í lukkupott-
inn og hreppti fyrsta vinning,
alls 6.853.750 kr., í Lottói
5/38, sl. laugardag. Lottómið-
inn var seldur í söluturninum
Goðahrauni í Vestmannaeyj-
um. Vinningshafínn hafði ekki
gefíð sig fram í söluturninum
síðdegis í gær.
Þrír hlutu annan vinning og
komu 173.120 kr. í hlut hvers.
Lottómiðarnir voru seldir í
versluninni Horninu á Selfossi,
Blönduskálanum á Blönduósi
og söluturninum Grundarstíg
í Reykjavík.
Sjötíu og fimm voru með
fjóra rétta og hlutu 11.940
hver. Enn fleiri eða 3.164 voru
með þijá rétta og hlutu 660
kr. hver. Heildarupphæð vinn-
inga nam samtals 10.356.850
kr.