Morgunblaðið - 16.09.1997, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 16.09.1997, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Asdís Halla kjörin formaður SUS fyrst kvenna „Vona að mitt framboð verði hvatning fyrir aðrar konur“ Morgunblaðið/Ámi Sæberg FRÁ vinstri: Hörn Hrafnsdóttir, einn af þingriturum, Ásdís Halla Bragadóttir formaður SUS og Jón Kristinn Snæhólm þingforseti. ÁSDÍS Halla Bragadóttir, aðstoðar- maður menntamálaráðherra, var kjörin í embætti formanns Sam- bands ungra sjálfstæðismanna, til næstu tveggja ára, á þingi sam- bandsins í Reykjanesbæ um helg- ina. Hún er þar með fyrsta konan til að gegna þessu embætti í 67 ára sögu SUS. Sjálfkjörið var í for- mannsembættið og það sama átti við um stjórn SUS. Hins vegar var gengið til kosninga í varastjórn. Um 120 ungir sjálfstæðismenn tóku þátt í þingstörfum og voru fjöl- margar ályktanir samþykktar í lok þingsins. I þeim kemur m.a. fram vilji ungra sjálfstæðismanna til að jafna atkvæðisrétt til dæmis með einmenningskjördæmum, að há- skólanemar greiði aukinn hluta af kostnaði við nám sitt, að Háskóli íslands verði gerður að sjálfseignar- stofnun og að fjárhæð barnabóta verði óháð tekjum framfærenda. I samtali við Morgunblaðið segist Ásdís Halla, aðspurð hvort kjör hennar í embætti formanns SUS komi tii með að þýða einhverjar breytingar á starfínu á næstunni, telja mikilvægt að Sjálfstæðisflokk- urinn og SUS leggi meiri áherslu á frjálslyndi heldur en íhaldssemina og vonast hún til að SUS geti beitt sér j þá veru á næstu tveimur árum. Ásdís Halla bendir ennfremur á að á næstu tveimur árum verði annars vegar sveitarstjórnarkosn- ingar og hins vegar alþingiskosn- ingar. „Ungir sjálfstæðismenn ætla sér að koma ferskir inn í þá um- ræðu sem verður fyrir sveitarstjóm- arkosningarnar næsta vor og gera sitt besta til þess að stjórnmálaum- ræðan verði spennandi og áhuga- verð, ekki síst fyrir ungt fólk,“ seg- ir hún. Ekki hlynnt kyiyakvóta Þegar Ásdís Halla er spurð að því hvort það hafi einhverja þýðingu að hún sé fyrsta konan sem sé kjör- in í formannsembætti SUS, segist hún fyrst og fremst hafa gefið kost á sér sem einstaklingur og fengið mjög góðan stuðning, sem sannist m.a. á því að ekki hafi komið mót- framboð. „Ég vona hins vegar að mitt kjör sé hvatning fyrir aðrar konur og sérstaklega fyrir yngri stelpur til að gefa sig meira að stjórnmálum bæði í Sjálfstæðis- flokknum og í öðrum flokkum," segir hún. Asdís Halla segir enn- fremur að ástæða þess að konur hafi ekki áður verið í formannsemb- ætti SUS endurspegli einfaldlega það að konur hafi ekki verið nægi- lega áberandi hvorki í Sjálfstæðis- flokknum né öðrum flokkum, í at- vinnulífmu eða annars staðar í sam- félaginu. Þá bendir Ásdís Halla á að hvorki hún né aðrir í SUS leggi áherslu á að konur komi inn á kynjakvóta, hvað þá að konum sé ýtt út í stjórnmál. Háskólinn verði sj álfseignar stofnun í ályktun þingsins um mennta- mál er m.a. lagt til að leggja beri áherslu á ríkari þátttöku einstak- lingsins við fjármögnun menntunar sinnar, eftir því sem ofar dregur í skólakerfinu. Telja ungir sjálfstæð- ismenn eðlilegt að nemendur greiði sjálfir aukinn hluta af kostnaði við nám sitt, miðað við það sem nú sé, þar sem nemandinn sjálfur fái ábat- ann af námi sínu. Þá leggja ungir sjálfstæðismenn til að Háskóli íslands verði gerður að sjálfseignarstofnun, en með því yrði stigið fyrsta skrefið í átt til markaðsvæðingar skólans. Þeir leggja ennfremur til að fækkað verði í háskólaráði, æðstu yfirstjórn Háskólans, og að deildarforsetar sitji ekki í ráðinu. Þannig verði hægt að tryggja sjálfstæða og skil- virka yfirstjórn Háskólans. Einnig er lagt til að breiðum hópi aðila úr þjóðlífinu verði falið að tilnefna fuljtrúa í háskólaráð. í skattamálum telja ungir sjálf- stæðismenn að huga þurfi að stuðn- ingi við barnafjölskyldur og þá sem séu að kaupa sér húsnæði í fyrsta sinn. „Lagt er til að í stað núver- andi barnabóta- og barnabótaauka- kerfís verði fjárhæð bóta látin nema fastri tölu fyrir hvert barn án tillits til tekna framfærandans.“ í ályktun um viðskipta- og neyt- endamál telja ungir sjálfstæðis- menn nauðsynlegt að draga úr umsvifum hins opinbera í atvinnu- lífínu, til dæmis með útboðum á einstökum verkefnum eða sölu opin- berra fyrirtækja. Lagt er til að selja hlutafé ríkisins í fyrirtækjum sem þegar hefur verið breytt í hlutafélög til dæmis Pósti og síma hf. og Við- skiptabanka ríkisins. Veðurstofan einkavædd Þá er talið mikilvægt að breyta hið fyrsta rekstrarformi ýmissa fyr- irtækja og stofnana ríkisins sem enn hefur ekki verið breytt í hlutafélög. Þannig eigi til dæmis að breyta Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins í hlutafélag og selja á almennum markaði. En ungir sjálfstæðismenn segja fulla ástæðu til að efast um að stofnun þessa sjóðs eigi rétt á sér. I umhverfismálum leggja ungir sjálfstæðismenn áherslu á ábyrgð einstaklingsins og fyrirtækja í um- gengni sinni við umhverfíð og telja að einkavæða beri Veðurstofu Is- lands, Landmælingar og Skógrækt ríkisins. Þá vilja þeir færa rekstur þjóðgarða til einkaaðila og afnema opinbera styrki til skógræktar. í samgöngu- og fjarskiptamálum leggja ungir sjálfstæðismenn áherslu á að frelsi verði aukið og setja sig upp á móti öllum aðgerðum stjórnvalda við hömlum á notkun alnetsins. Þá telja ungir sjálfstæðis- menn í ályktun um menningarmál að endurskoða beri útvarpslögin og að í nýjum lögum skuli kveðið á um sameiginlegt öryggishlutverk allra ljósvakamiðla. Aðalstjórn SUS næstu tvö árin Eftirfarandi fulltrúar voru kjörn- ir í stjórn Sambands ungra sjálf- stæðismanna til næstu tveggja ára: Frá Reykjanesi: Áslaug Hulda Jóns- dóttir, Bjarni Þór Eyvindsson, Böð- var Jónsson, Jónas Þór Guðmunds- son, Már Másson, Skarphéðinn Orri Björnsson og Þórður Ólafur Þórðar- son. Frá Reykjavík: Arnar Þór Ragnarsson, Auður Finnbogadóttir, Ásta Þórarinsdóttir, Hanna Birna Krisjánsdóttir, Haraldur Johannes- sen, Jóhanna María Eyjólfsdóttir, Sigurður Kári Kristjánsson, Sigur- jón Pálsson og Þorsteinn Davíðsson. Frá Vesturlandi: Halldór Skúlason. Frá Vestfjörðum: Björgvin Arnar Björgvinsson. Frá Norðurlandi vestra: Gunnlaugur Ragnarsson. Frá Norðurlandi eystra: Svanhildur Hólm Valsdóttir og Þórður Rafn Ragnarsson. Frá Austurlandi: Jens Garðar Helgason. Frá Suðurlandi: Einar Örn Arnarsson, Kristín Ólafs- dóttir og Sigmundur Sigurgeirsson. Nýr skóli vígður TÓNSKÓLI Sigursveins D. Kristinssonar er fluttur í nýtt húsnæði við Engjateig 1. Af því tilefni var haldin vígsluhátíð, þar sem komu saman nokkrir nemendur skólans, kennarar og gestir. Að sögn Guðrúnar Guð- mundsdóttur aðstoðarskóla- stjóra, sáu nemendur skólans um þau tónlistaratriði sem flutt voru við vígsluna. Skólinn nýtur stuðnings Reykjavíkurborgar og verða um 650 nemendur í honum í vetur en kennt er á fjórum stöð- um i borginni. Músíkleikfimi, i Austurbæjarskólanum Vetrarstarfsemin er hafin. Ennþá nolckur pláss laus. c- j Upplýsingar í síma 567 1386. Morgunblaðið/Golli Leiðbeinendur við kennslu án undanþágu Lögbrot ef rétt reynist SIGURÐUR Helgason, for- maður undanþágunefndar menntamálaráðuneytisins, segir það lögbrot ef rétt reyn- ist að skólar hafi ráðið til starfa leiðbeinendur sem und- anþágunefndin hafi hafnað. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, varaformaður Kennarasam- bands íslands, segist vita með vissu um þrjá skóla þar sem sú er raunin. Aðspurður um viðbrögð menntamálaráðuneytisins við þessum brotum segir Sigurður að þar sem þetta vandamál hafi aldrei komið upp áður sé ekki alveg Ijóst hver staða undanþágunefndarinnar sé í málinu og hvers það sé að gera athugasemdir. Hann tel- ur þó að ábyrgðin liggi hjá viðkomandi sveitarstjórnum þar sem þær ráði kennara samkvæmt lögum. Sigurður vill ekki tjá sig frekar um hver eigi að ganga í málið fyrr en það hefur verið rætt í mennta- málaráðuneytinu en til stendur að ræða það á fundi þar í dag. Plata Eltons Johns kemur í næstu viku PLATA Eltons Johns, með lag- inu Candle in the Wind, sem tileinkuð er minningu Díönu prinsessu, kemur í hljómplötu- verslanir á íslandi næstkom- andi mánudag. Platan hefur ekki verið framleidd enn sem komið er fyrir aðra markaði en Bretlandsmarkað. Halldór Baldvinsson, inn- kaupastjóri Skífunnar, segir að Skífan panti vel á annað þúsund plötur og segir hann að mikið sé spurt um plötuna. Verðið á henni hérlendis verð- ur 699 krónur. Söluhæsta plata allra tíma er White Christmas með Bing Crosby. Hún hefur selst í 150 milljónum eintaka. Lottó 5/38 6,8 milljónir til Vest- mannaeyja HEPPINN lottóspilari í Vest- mannaeyjum datt í lukkupott- inn og hreppti fyrsta vinning, alls 6.853.750 kr., í Lottói 5/38, sl. laugardag. Lottómið- inn var seldur í söluturninum Goðahrauni í Vestmannaeyj- um. Vinningshafínn hafði ekki gefíð sig fram í söluturninum síðdegis í gær. Þrír hlutu annan vinning og komu 173.120 kr. í hlut hvers. Lottómiðarnir voru seldir í versluninni Horninu á Selfossi, Blönduskálanum á Blönduósi og söluturninum Grundarstíg í Reykjavík. Sjötíu og fimm voru með fjóra rétta og hlutu 11.940 hver. Enn fleiri eða 3.164 voru með þijá rétta og hlutu 660 kr. hver. Heildarupphæð vinn- inga nam samtals 10.356.850 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.