Morgunblaðið - 16.09.1997, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 1997 13
ö
O
VELKOMIN H
í HÓPINN
Við hjá Bifreiðaskoðun hf. viljum bjóða nýja hluthafa
velkomna í hópinn og um leið óska þeim til hamingju með
sinn hlut. Fyrirtækið, sem upphaflega var að helmingi í eigu
ríkisins, er nú orðið að almenningshlutafélagi í eigu um það
bil 700 stoltra hluthafa. Fyrir Bifreiðaskoðun hf., sem er í
örum vexti og einnig að hasla sér völl á breiðari starfsgrundvelli,
er þátttaka og afskipti hluthafa mjög hvetjandi og kemur
bæði starfsfólki og viðskiptavinum til góða.
Starfsfólk Bifreiðaskoðunar hf. um allt land horfir fram
á bjarta daga og vonast til að samstarfið við hina nýju hluthafa
verði farsælt og gefandi.
A
BIFREIÐASKOÐUN HF.
Jafnhlióa almennri skoðun ökutækja á 19 stöóum á landinu er boðió
upp á ástandsskoðun og tjónaskoóun. Ástandsskoöun nýtist öllum
bíleigendum auk þess sem hún eykur öryggi í bílavióskiptum, og nýtist
því ekki síst kaupendum og seljendum notaðra bíla.
Hagræði fyrir viðskiptavini
Það er stefna félagsins aö útvíkka starfsemina þannig aó viðskiptavinir
geti keypt alla þá skoóunar- og prófunarþjónustu sem þörf er á hjá
sama aðilanum. Rekstrarlegt hagræði sem skapast af slfkri samþættingu
mun síðan hafa bein sparnaðaráhrif til viðskiptavina félagsins. f því
skyni hafa verið sett á laggirnar ný starfssvið:
Lögmælisvio
sem sinnir löggildingum á vogum, rennslismælum og vínmælum.
Einnig er boðið upp á prófanir mælitækja fyrir þá viðskiptavini sem
óska eftir virku eftirlitskerfi í daglegum rekstri.
Rafmagnssvio
Skoðunarstofan hf. sem er í eigu Bifreiöaskoðunar hf. sinnir skoðun
á raforkuvirkjum og neysluveitum.
SjÁVARÚTVEGSSVIÐ
Nýja skoðunarstofan hf. sem er f eigu Bifreiðaskoðunar hf. sinnir
skoðun í sjávarútvegsfyrirtækjum. Þar er fylgst með því að ffamleiðendur
sjávarafúrða uppfylli kröfur íslenskra stjómvalda og erlendra kaupenda
varðandi hreinlæti, búnað og innra eftirlit.
1