Morgunblaðið - 16.09.1997, Side 14

Morgunblaðið - 16.09.1997, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Atvinnumálanefnd Akureyrar Hákon formaður HÁKON Hákonarson, formað- ur Félags málmiðnaðarmanna á Akureyri og formaður Hús- næðisstjórnar ríkisins, hefur tekið sæti í atvinnumálanefnd Akureyrar í stað Guðmundar Stefánssonar, sem fluttur er til Reykjavíkur. Guðmundur var formaður atvinnumálanefndar og á fundi nefndarinnar í síðustu viku var Hákon kjörinn for- maður í hans stað. Hákon er auk þess formaður bygginga- nefndar bæjarins. Oddur í bæjarstjórn Guðmundur Stefánsson hef- ur verið í forystusveit Fram- sóknarflokksins yfirstandandi kjörtímabil og átt sæti í bæjar- stjórn og bæjarráði. Sæti hans sem aðalmaður í bæjarstjóm hefur tekið Oddur Halldórsson, framkvæmdastjóri Biikkrásar, en hann hefur verið varamaður til þessa. Ásta Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi og formaður skólanefndar, hefur tekið sæti Guðmundar í bæjarráði. Sofnaði inni á salerni MAÐUR hringdi af einu af öld- urhúsum bæjarins á lögreglu- stöðina á Akureyri á laugar- dagsmorgun og sagði sínar farir ekki sléttar. Hafði hann vaknað þá skömmu áður inni á einni af snyrtingum staðarins hvar hann hafði einhvem tíma um nóttina sofnað ódáinssvefni og var hann í þeim sporum að komast ekki út úr húsinu. Haft var samband við eiganda húss- ins sem leysti hinn óheppna gest úr prísundinni. Handteknir með hass TVEIR menn vom handteknir grunaðir um neyslu fíkniefna, annar á skemmtistað og hinn í opinberri byggingu. Um tvö aðskild mál er að ræða, en báðir voru mennirnir með lít- ilsháttar hass í fórum sínum auk tóla og tækja til fíkniefna- neyslu. Ferðamálamiðstöð Eyjafjarðar, Akureyri Gefur út kynnmgar- myndband um fjörðinn FERÐAMALAMIÐSTOÐ Eyja- fjarðar, Akureyri, hefur gefið út kynningarmyndband um Eyjafjarð- arsvæðið, sem unnið var af Erni Inga Gíslasyni, myndlistarmanni. Guðmundur Birgir Heiðarsson, for- stöðumaður ferðamálamiðstöðvar- innar segir að frá því að fyrirtækið var stofnað hafi verið stöðugt unn- ið að því að útbúa ýmiss konar kynningarefni fyrir Eyjafjörð. Myndbandið verður kynnt á Vest Norden ferðakaupstefnunni sem hefst í Nuuk á Grænlandi á morg- un, miðvikudag, og stendur fram á föstudag. Einnig verður mynd- bandið til sýnis á næstunni á ferða- skrifstofum sem ferðamálamið- stöðin hefur samskipti við. Guð- mundur Birgir vonast jafnframt til að sveitarfélögin við Eyjafjörð noti myndbandið til kynningar á hérað- inu. Guðmundur Birgir segir að ferða- þjónustuaðilar á Eyjafjarðarsvæð- inu, séu nokkuð ánægðir með sumarið, bæði þeir sem bjóða upp á gistingu og afþreyingu. Erlendum ferðamönnum sem gistu tjaldsvæðið á Akureyri og í Húsabrekku í sumar fækkaði þó milli ára og segir Guð- mundur Birgir það fyrst og fremst helgast af breyttu ferðamynstri. Útlitið fyrir haustið gott „Þá er útlitið fyrir haustið mjög gott og töluvert hefur verið bókað hjá hótelum og gistiheimilum. Auk þess er töluvert spurt um ferðir til Akureyrar um áramótin og það er greinilegt að áhugi útlendinga á ferðum til íslands yfir vetrartímann er að aukast. Um síðustu áramót voru hér tveir erlendir hópar, frá Japan og Danmörku, og í febrúar kom annar hópur frá Japan. Við höfum einnig verið að vinna á öðr- um markaðssvæðum, Þýskalandi og Frakklandi sérstaklega. Þar hafa söluaðilar sýnt mikinn áhuga en við höfum þó ekki enn fengið neinar staðfestingar. En það er mjög mikil- vægt að koma þessum verkefnum vel af stað.“ Þá er unnið að útgáfu uppiýs- ingarits um ráðstefnur í Eyjafirði, þar sem verður að finna gagnlegar upplýsingar um þá möguleika sem í boði eru á svæðinu. „Þetta mun vera í fyrsta skipti sem reynt er að kynna í einu riti alla þá mögu- leika sem eru í boði varðandi ráð- stefnuhald í firðinum.“ Morgunblaðið/Kristján SNORRI Ásmundsson, galleríeigandi á Akureyri, blés lofti í hval- inn áður en honum var sleppt út á Pollinn. Slepptu „hval“ á Pollinn FJÖLDI fólks mætti við Torfu- nefsbryggju á Akureyri sl. laug- ardag eftir að fréttist að þar ætti að sleppa hval í sjóinn. Þegar til kom var hvalurinn aðeins upp- blásin vindsæng. Snorri Ásmundsson hjá Inter- national Gallery of Snorri Ás- mundsson, sem stóð fyrir þessari uppákomu, sagði að margir þeirra sem komu til að fylgjast með hafi orðið fyrir vonbrigðum þegar í Ijós kom að ekki var um lifandi hval að ræða. Hann sagði þetta hafa átt að vera skemmti- lega uppákomu sem tengdist sýn- ingu 20 listamanna víðs vegar úr heiminum í galleríi sínu. Á meðal sýnenda er Magnús Sigurðarson, sem býr og starfar í New York, eins og flestir lista- mennirnir sem þátt taka í sýning- unni. Uppákoman með „hvalinn" var einmitt forleikur að verki sem Magnús er með á sýningunni, að sögn Snorra. Þessi athöfn átti m.a. að túlka heimþrá Magnúsar og las Eyvindur Erlendsson ljóðið Til íslands, eftir Stefán G. Stef- ánsson. Hvalurinn var í eigu Magnúsar og hefur hann m.a. notað hann við listsköpun sína. „Nú er hvalurinn horfinn og von- andi hefur hann fundið sína heimahaga," sagði Snorri. Skrifstofustarf Akureyri Hafnasamlag Norðurlands annast rekstur og þjónustu hafnanna á Akureyri Svalbarðseyri, Hjalteyri og Grenivík. Óskað er eftir að ráða fulltrúa á hafnarskrifstofu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í október. Starfssvið • Almenn skrifstofustörf, móttaka og símavarsla, • Skráning og færsla bókhalds. • Reikningagerð o.fl. Menntunar- og hæfniskröfúr • Reynsla af skrifstofustörfum. • Vera töluglöggur og með góða þjónustulund. • Reynsla af hafnlægri starfsemi æskileg. Nánari upplýsingar veitir hajnarstjóri Guðmundur Sigurbjömsson í síma 462 6699. Skriflegar umsóknir sendist til Guðmundar Sigurbjörnssonar, Hafnarskrifstofu, Oddeyrarskála, Strandgötu, 600 Akureyri fyrir 23. september nk. HAFIMA5AMLAG MDRÐURLAIMD5 HAFNIRNAH A AKUREYRI. BRENIVÍK. HJALTEYRI DB SVALBAROSEYRI Morgunblaðið/Kristján STARFSMENN Garðverks taka út línuna á nýju stöllunum. Framkvæmdir á Akureyrarvelli FRAMKVÆMDIR standa nú yfir við Akureyrarvöll, en búið er að fylla upp í klappir norðan við áhorfendastúkuna, útbúa stalla og á næstunni verður hafist handa við að þekja þá. Aðalsteinn Sigurgeirsson for- stöðumaður sagði að svæðið hefði ekki verið boðlegt eins og það var og klappirnar verið hættulegar áhorfendum. „Ástæðan fyrir því að við förum út í þessar fram- kvæmdir er fyrst og fremst sú að svæðið var beinlínis ljótt og af því stafaði slysahætta," sagði Aðalsteinn. Eftir að búið verður að gera stallana, sem væntanlega rúma allt að 2.000 manns, verður reist blaðamannastúka þar og aðstaða fyrir blaðamenn verður þar með bætt til mikilla muna á vellinum. Þá liggur einnig fyrir að ljúka við girðinguna umhverfis völlinn, en enn á eftir að klára það verk- efni. Kostnaður við þær fram- kvæmdir sem nú er unnið að er tæplega tvær milljónir króna. Verktakar eru Garðverk og G. Hjálmarsson. Rafveita Akureyrar Skógrækt við Glerá VEITUSTJÓRN Akureyrar hefur samþykkt að Rafveita Akureyrar muni árlega á næstu 5 árum leggja 250 þús- und krónur til Yrkjusjóðs en peningunum á að veija til skógræktar við Glerá. Þessi samþykkt er gerð í tilefni af 75 ára afmæli Raf- veitu Akureyrar sem verður 30._ september næstkomandi. Á sama fundi veitustjórnar, sem var sá 200. í röðinni, var einnig samþykkt, af því tilefni sem og 20 ára afmæli Hita- veitu Akureyrar í nóvember næstkomandi, að veita einni milljón króna til frekari skóg- ræktar á Vöglum, Laugalandi og að Reykjum. Rúmar 5 milljónir í fjárhagsað- stoð YFIRLIT yfir veitta fjárhags- aðstoð á vegum Akureyrar- bæjar í sumar hefur verið lagt fram í félagsmálaráði. Alls bárust rífiega 200 umsóknir um styrki og lán og nam upp- hæðin sem veitt var rúmlega 5,4 milljónum króna. Flestar umsóknir bárust í júní, alls 93. Veittir voru styrk- ir að upphæð rúmlega 2 millj- ónir og lán upp á um 680 þúsund krónur. I júlí voru af- greiddar 65 umsóknir og var samþykkt að veita 53 styrki að upphæð tæplega 1,6 millj- ónir króna. Samtals bárust 45 umsóknir í ágústmánuði og voru veittir 34 styrkir að upp- hæð tæplega ein milljón króna. í júlí og ágúst voru alls veitt 5 lán að upphæð rúmlega 130 þúsund krónur. Alls voru því veittir styrkir til 150 umsækjenda í sumar að upphæð um 4,6 milljónir króna og 29 lán að upphæð ríflega 800 þúsund krónur. Óká 102 km hraða Þing- vallastræti ÖKUMAÐUR var sviptur öku- leyfi síðastliðið laugardags- kvöld en hann ók á 102 kíló- metra hraða eftir Þingvalla- stræti á móts við Dalsbraut þar sem hámarkshraði er 50 kílómetrar. Alls voru 32 kærðir í liðinni' viku fyrir of hraðan akstur, þá voru 6 kærðir fyrir meinta ölvun við akstur, skráningar- númer voru tekin af 15 bifreið- um vegna vanrækslu við að færa bifreiðar sínar til skoðun- ar og 5 voru staðnir að því að virða ekki stöðvunarskyldu. Stálu ljósum PILTAR voru staðnir að því að stela ljósum af bifreið við athafnasvæði Skautafélags Akureyrar en lögreglu hafði verið tilkynnt um ferðir þeirra. Þeir voru stöðvaðir í bifreið skömmu síðar og fundust ljós- in í bílnum. Maður var handtekinn í Sjallanum þar sem hann hafði sparkað upp hurð á karlasal- erni. Var hann ölvaður og gisti fangageymslur Iögreglu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.