Morgunblaðið - 16.09.1997, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Austur-Landeyjar
Blóðsöfnun úr fyl
fullum hryssum
Borgarhólsskóli
í stærra húsnæði
Holti - Blóðtaka úr fylfullum
hryssum er hafín hjá Magnúsi Finn-
bogasyni á Lágafelli í Landeyjum.
Þegar fréttaritara bar að garði sat
Magnús á mjólkurbrúsa og hélt í
hryssu í bás. Hryssan hafði komið
fúslega inn í básinn og hreyfði sig
ekki við að vera mýld. Síðan gekk
dýralæknirinn, Lars Hansen, að
hryssunni, deyfði hana og stakk
hana með nál og 4 til 5 mínútum
síðar hafði hryssan gefið af sér 5
lítra af blóði án þess að hafa hreyft
sig. Fyrir aftan hana beið önnur
hryssa sem Finnbogi Magnússon
hafði beint inn í básinn.
Magnús var spurður frétta um
þessa nýju búgrein hrossabænda.
Hann sagði að fyrir um 10 árum
hefði Einar Birnir hjá G. Ólafsson
hf. hafið þessa framkvæmd í sam-
vinnu við hrossabændur, fullunnið
PMSG-hormón úr blóðinu og selt á
erlenda markaði en örðugleikar
hefðu orðið með markaðssetningu
og starfseminni verið hætt. Fyrir
þremur árum hefði ísteka hf. hafið
blóðsöfnun að nýju úr fylfullum
hryssum í samvinnu við bændur,
unnið úr blóðinu og tryggt mark-
aðssetningu erlendis. Verðið til
bænda hefur hækkað um 15-50%
eftir flokkun síðan söfnunin hófst.
Við bestu aðstæður gefur hryssan
af sér allt að folaldsverð tii bænda.
„Ég tel mig t.d. ekki hafa hærra
kaup við nokkurt annað starf við
búið. Útlagður kostnaður er aðeins
að smíða þennan blóðbás sem kost-
ar 15-20 þúsund og safna síðan
hryssunum mínum saman einu sinni
í viku. Síðustu tvær vikur hef ég
verið með um 60 hryssur í blóðtöku
og lokið því á um 8 tímum. Það er
óvenjulegur hraði en þar kemur til
að dýralæknirinn er mjög fær og
hryssurnar eru orðnar vanar og
taka þessu mjög vel án mótþróa eða
stimpinga."
Hve oft er tekið blóð úr hverri
hryssu?
„Það fer eftir hormónafram-
leiðslu hryssunnar. Þær heíja hana
um 40 dögum eftir fyljun og geta
verið virkar eftir það í um 60 daga
þannig að bestu hryssurnar geta
gefið blóð allt að 7 sinnum en al-
gengast er að hver hryssa gefi blóð
5 sinnum."
Fær ekki á hryssuna að gefa svo
oft blóð?
„Þetta hefur verið rannsakað og
um leið og blóð er tekið hefst aukin
blóðframleiðsla í hryssunni og ef
nokkuð er fínnst mér þær styrkjast
og jafnvel gefa af sér betri folöld.“
Lars Hansen var spurður um
þessa vinnu og sagði hann að alltaf
væri erfiðast að byija hjá bændum
í fyrsta skipti en strax eftir nokkr-
ar blóðtökur vendust bændur þessu
og hryssurnar einnig og þá færi
þetta að ganga vel. Hér á Lága-
felli væri þetta orðið hvað best og
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
LARS Hansen dýralæknir við
blóðtöku.
í rauninni skemmtilegast að standa
að þessu. Slys heyrðu til undantekn-
inga og fæstar hryssurnar hefðu
ótta af þessu og væri í mjög góðu
ástandi.
Magnús var spurður um fram-
hald þessa verkefnis. Sagðist hann
vita að dr. Hörður Kristjánsson hjá
Lyíjaverslun íslands hf./ísteka,
sem sæi um söfnunina og úrvinnsl-
una, væri bjartsýnn um framhaldið
því markaðurinn væri tryggur og
salan ykist með hveiju ári. Hann
væri hins vegar áhyggjufullur
vegna þess að nú vantaði fleiri
hrossabændur í samvinnuna til að
anna aukinni eftirspurn. Bændur
mikluðu þetta fyrir sér. Víst væri
að bændur með 20-30 hryssur eðá
fleiri gætu ekki haft betur upp úr
stóðinu en að taka þátt í þessu og
eins gætu bændur með stóð sem
gengi saman unnið saman.
Húsavík - Borgarhólsskóli á Húsa-
vík var settur 2. september sl. Nem-
endur eru 430 í 20 bekkjardeildum,
kennarar 40 og aðrir starfsmenn
15. Skólinn er einsteinn.
Nú í haust var næstsíðasti hluti
nýrrar byggingar tekin í notkun. í
þeim hluta hefur Tónlistarskólinn
til afnota 4 kennslustofur auk þess
sem í honum eru sérkennslustofur,
nýtt anddyri, aðstaða fyrir skólaliða
og fleira.
Tónlistarskólaaðstaða er senni-
lega ein sú fyrsta sem teiknuð er
og hönnuð í grunnskólahúsi og er
aðstaðan öll hin glæsilegasta. Sam-
starf Tónlistarskóla Húsavíkur og
Borgarhólsskóla, áður Barnaskóla
Húsavíkur, á sér langa og farsæla
sögu.
Hinn 8. nóvember nk. verður
Tónlistarskólinn opinn almenningi
til sýnis og starfsemi hans kynnt.
Næsta haust á að ljúka uppbygg-
ingu Borgarhólsskóla að mestu með
því að raungreinastofur og fleiri
kennslustofur verða teknar til af-
nota. Búið er að hanna að nýju lóð-
ina við skólann sem verður íekin í
noktun á næstu árum. Ný aðkoma
og bílastæði voru malbikuð og frá-
gengin á liðnu sumri. Húsnæði það
sem Tónlistarskólinn hafði áður
hefur nú verið hannað og endur-
bætt fyrir grunnskólann.
Nú liggja lóðir Borgarhólsskóla,
Framhaldsskólans á Húsavík og
íþróttahallarinnar að mestu leyti
saman og í næsta nágrenni er
Safnahús Þingeyinga og skipa þess-
ar menningarstofnanir veglegan
sess í miðbæ Húsavíkur.
Morgunblaðið/Silli
BORGARHÓLSSKÓLI á Húsavík.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Bar í réttinni
Blönduósi - Réttir voru í A-Húnavatnssýslu um síð-
ustu helgi og fengu menn gott veður til réttar-
starfa.
Gangnamenn hrepptu ýmis veður í göngunum
en þegar á heildina er litið gekk allt vel. Kunnug-
ir telja að diikar komi rýrari af fjalli nú en í fyira
og gildir einu á hvaða afréttarlandi féð gekk. A
myndinni má sjá vaska sveina að störfum í Undir-
fellsrétt í Vatnsdal á föstudag.
Daginn eftir, laugardag, varð sá einstæði atburð-
ur í réttinni að ær frá bænum Hnjúki í Vatnsdal
bar einu lambi. Hefur fengitími hennar því verið
í apríl. í Undirfellsrétt muna menn ekki eftir því
að ær hafi borið við réttarstörf.
Uppskeru-
hátíð Hattara
á Egilsstöðum
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
ÞAÐ voru glaðbeittir drengir úr 3.,
4. og 5. flokki knattspyrnudeildar
Hattar á Egilsstöðum sem héldu
uppskeruhátíð sína á dögunum.
Eftir skemmtilegan dag á golfvell-
inum stormuðu drengirnir á næsta
pizzustað og tóku vel til matar síns.
Síðan hófst verðlaunaafhending.
Voru veitt verðlaun fyrir bestu
mætingu, mestar framfarir og einn-
ig fékk Höttur ársins viðurkenn-
ingu. Þá kvöddu drengimir þjálfara
sinn, Ellert Magnússon, sem hvarf
til annarra starfa. Hrósaði hann
Morgunblaðið/Ragnheiður Kristjánsdóttir
ÞJÁLFARINN Ellert Magnússon með hóp kraftmikilla fótbolta-
stráka I kringum sig að verðlaunaafhendingu lokinni.
drengjunum mjög fyrir góða þeim velfarnaðar í fótboltanum í
frammistöðu í sumar og óskaði framtíðinni.
Smábátaeigendur
funda á Vagninum
Flateyri - Yfir 50 smábátaeigend-
ur, sem stunda krókaveiðar á sumr-
in, ijölmenntu á Vagninum á Flat-
eyri, fimmtudaginn 11 september
sl. Fundarmenn komu víða að frá
Vestfjörðum. Það var Landssam-
band smábáteigenda sem boðaði til
fundarins og sat Örn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri þess, fundinn.
Tilefni fundarins var að fjalla um
nýlega tilskipun frá sjávarútvegs-
ráðherra sem eigendum smábát-
anna barst í hendur þann 10. sept-
ember en í tilskipuninni er gert ráð
fyrir skerðingu upp á 60 sóknar-
daga á handfærum eingöngu. Sókn-
ardagar voru 84 en eru komnir nið-
ur í 20-26 daga, í mismunandi
kerfum.
Mikil óánægja ríkir hjá smábáta-
eigendum með þessa ákvörðun.
Segja smábátaeigendur að þetta sé
í hróplegu ósamræmi við það sem
er gerast í lífríki sjávarins; verið sé
að auka aflaheimildir í þjóðfélaginu,
og þorskstofninn sé á mjög góðri
uppleið. Þar að auki sé smábátaveiði
mjög vistvæn því að allur fiskur sem
komi á færin sé lengdarmældur og
það sem nær ekki tilskilinni lengd
fer í sjóinn aftur lifandi, ólíkt því
sem gerist í veiðum togara þar sem
ómældur hluti aflans fari í súginn,
miðað við hvert tonn sem tekið er.
Á fundinum kom fram að menn
skilja ekki rökin sem fram eru sett
þar sem er verið að rífast um 3.000
tonn, sem á árum áður var talin
veiði eins togara. Einnig sé ljóst
að undan byggð sé að ijara á Vest-
fjörðum, því um leið sé vegið að
fiskverkunarfólki og afkomu sjáv-
arútvegsplássa á þessum stöðum
og víðar um land. Fundurinn sam-
þykkti einróma ályktun sem komið
verður á framfæri við ráðherra á
næstu dögum. Á meðan halda trillu-
sjómenn að sér höndum og bíða
átekta eftir svörum ráðherra.
Ályktun fundarins er svohljóð-
andi: „Fundurinn skorar á stjórn-
völd að taka nú þegar á þeim vanda
sem steðji að sóknardagabátum þar
sem þeim hafa verið skammtaðir
20-26 dagar á heilu ári. Fundurinn
bendir á að slík skerðing sem er
yfirvofandi hefur ófyrirsjáanlegar
afleiðingar á sjávarútvegspláss og
fiskverkunarfólk um alla lands-
•byggð. Það er því krafa fundarins
að Alþingi taki á vandanum strax
í upphafi þings og afgreiði fyrir
jól. Það er krafa allra krókakarla
um fijálsar krókaveiðar.“
Morgunblaðið/Egill Egilsson
FRÁ fundi smábátaeigenda sem haldinn var á Vagninum á Flateyri.