Morgunblaðið - 16.09.1997, Side 17

Morgunblaðið - 16.09.1997, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 17 VIÐSKIPTI Hætt við breytingar á lögum um fjölmiðla Stækkun Murdochs og Packers afstýrt íAstralíu Canberra. Reuter. STJÓRN Ástralíu hefur hætt við fyrirætlanir um að breyta lögum um fjölmiðla og þar með afstýrt áformum fjölmiðlabarónanna Kerrys Packers og Ruperts Murdochs um að auka umsvif sín. Packer, sem er ríkasti maður Ástralíu, og Murdoch, sem er fæddur í Ástralíu, höfðu lagt fast að John Howard forsætisráðherra að breyta reglum um eignnaraðild útlendinga og rétt til að eiga í fleiri en einum fjölmiðli. Formaður þingnefndar, sem fjallar um breytingar á fjölmiðla- lögunum, Gary Hardgrave, sagði að ríkisstjórnin hefði ákveðið að fresta breytingunum til þess að geta einbeitt sér að málum, sem væru meira aðkallandi. Beinustu afleiðingarnar verða þær að komið verður í veg fyrir gömul áform Packers um að taka við stjórn John Fairfax Holdings Ltd, sem á á þijú virt blöð -- Sydn- ey Morning Herald, Melbourne Age og viðskiptablaðið Australian Financial Review. Fyrirtæki Packers, Publishing & Broadcasting Ltd, á 15% í Fairfax og Packer hefur opinberlega látið í ljós áhuga á samruna fyrirtækj- anna. Áfall fyrir Murdoch Ákvörðun hægri stjórnar How- ards um að fresta breytingunum fram yfir næstu kosningar — sem fara munu fram seint á næsta ári í fyrsta lagi — eru einnig áfall fyr- ir vonir fjölmiðlajöfursins Murdochs um að auka hlut sinn í næststærsta sjónvarpsfyrirtækinu, Seven Network Ltd. Verkalýðsfélög og félagasamtök hafa barizt gegn breytingum á reglunum, þar sem örfáir aðilar séu alls ráðandi í ástralska fjölmiðla- geiranum. Murdoch er bandarískur ríkis- borgari og er ástralskur fjölmiðla- armur hans, News Ltd, formlega talinn erlent fyrirtæki. Sjö af hveij- um tíu blöðuni; sem seld eru í helztu borgum Ástralíu, eru í eigu Murdochs. Packer ræður yfir vin- sælasta sjónvarpsneti Ástraliu, Nine Network. : Stafrænt sjónvarp í Þýzkalandi í október Búist við 200 þús- und nýjum við- > skiptavinum I Berlín. Reuter. ÞÝZKI símarisinn Deutsche Tele- kom AG hyggst standa við áætlan- ir um að taka upp stafrænt áskrift- arsjónvarp í næsta mánuði þótt samningur fyrirtækisins við Bert- elsmann og bæverska auðmanninn Leo Kirch hafi verið gagnrýndur. Áskriftarsjónvarpsfyrirtækin Premiere og DFl, sem ætla að | sameinast á næsta ári, hafa dregið I til sín áskrifendur með því að sýna sýnishorn úr kvikmyndum eins og Independence Day, Twister ■ og Apollo 13. Talsmenn Kirch Group kváðust búast við að fá 200.000 nýja við- skiptavini þegar stafrænar send- ingar DFl hæfust á kaplarásum í næsta mánuði. 6-7 milljónir á 10 árum Yfirmaður DFl, Gottfried Zmeck, segir að fyrirtækið muni eignast 6-7 milljónir áskrifenda á næstu 10 árum. Telekom, Bertelsmann og Kirch hafa gert með sér bandalag um tæknisamvinnu til að hleypa af stað stafrænu sjónvarpi og náð samkomulagi um sameiginlegt af- ruglarakerfi. Kirch hefur samþykkt að leggja niður DFl stafræna áskriftarsjón- varpið og sameina dagskrá sína Premiere, áskriftarsjónvarpi því sem er í eigu Kirch og CLT/Ufa, sjónvarpsfyrirtækis undir forystu Bertelsmanns. Miðlurum í Wall Street komið á óvart ; Discovery fær Tra- vel Channel á 20 milljónir dollara New York. Rcuter. | BUD PAXSON, hinn kunni fjöl- miðlaverktaki, hefur komið sér- fræðingum í Wall Street á óvart | með því að selja Discovery Com- munications umráð yfír Travel Channel á 20 milljónir dollara — tæpum þremur mánuðum eftir að hann keypti rásina á 75 milljónir dollara. Discovery er undir stjóm dag- skrárgerðarfyrirtækisins Liberty Media, sem er í eignartengslum við | kaplarisann Tele-Communications, og samþykkti að kaupa 70% í Tra- vel Channel. Fyrirtækið á nú þegar " Discovery Channel, Leaming Channel og Animal Planet. Kerfíð er metið á 28,5 milljónir dollara. Þessi óvæntu viðskipti eru mikið áfall fyrir Paxson, sem taldi sig hafa gert góð kaup þegar hann keypti netkerfíð í júní. I staðinn hefur Paxson Communications Inc. tapað 51,5 milljónum dollara á söl- unni. Hlutabréf í Paxson lækkuðu um 37 sent í 11,62 dollara, en bréf í Liberty Media lækkuðu um 6 sent í 26,75 dollara. Salan sýnir hve erfítt er fyrir fýrirtæki eins og Paxson, sem átti ekkert annað kaplakerfí, að halda velli í grein, þar sem kaplarisar ráða lögum og lofum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.