Morgunblaðið - 16.09.1997, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 16.09.1997, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 25 Nordsee-Zeitung/Torsten Melchers FRÁ samkvæmi hjá íslensku sendiherrahjónunum í Bonn í til- efni af útkomu bókarinnar Býr íslendingur hér? Franz Gísla- son, Wolfgang Schiffer og höfundurinn, Garðar Sverrisson Islensk bókmennta- Dagskrá um dr. Sigurð Nordal SAMHENGI og samtíð var yfirskrift dagskrár um dr. Sigurð Nordal og verk hans sem haldin var í Þjóðar- bókhlöðunni síðastliðinn sunnudag. Var dagskráin vel sótt, að sögn Ein- ars Sigurðssonar landsbókavarðar, en um 130 manns munu hafa lagt leið sína í Þjóðarbókhlöðuna. Við þetta tækifæri afhentu synir Sigurðar Nordals, Jón og Jóhannes, handritadeild Landsbókasafnsins til varðveislu meginþorra þeirra hand- rita úr eigu Sigurðar sem enn voru í þeirra höndum. Er hér um að ræða eiginhandarrit Sigurðar af ýmsum útgáfum ritverka hans, svo og hand- rit, efnisdrög, minnisgreinar og ýmislegt annað óprentað efni, ýmis eiginhandarrit annarra höfunda, svo sem Jóhanns Sigutjónssonar, Þór- bergs Þórðarsonar og Theódórs Frið- rikssonar, bréf til Sigurðar frá ýms- um aðilum og allmikið af úrklippum og hliðstæðum gögnum. Á sunnudag flutti Gauti Sigþórs- Morgnnblaðið/Kristinn MEÐAL gesta á dagskránni voru dr. Páll Skúlason rektor, Björn Bjarnason menntamálaráðherra, kona hans Rut Ingólfsdóttir og Jóhanncs Nordal. son, nemi í menningarfræðum við háskólann í Minnesota í Bandaríkj- unum, einnig erindið „Andmæli ósk- ast: Af vettvangi Sigurðar Nordals" pg dr. Páll Skúlason, rektor Háskóla íslands, opnaði sýninguna Áfanga um verk Sigurðar Nordals. Mun hún standa út september. sókn í Þýskalandi FYRIR nokkru kom út í Þýskalandi bókin Wohnt hier ein Islander? (Býr íslendingur hér?), minningar Leifs Miillers sem Garðar Sverrisson skráði. Þeir Franz Gíslason og Wolfgang Schiffer þýddu bókina, en útgefandi er Edition die Horen í samvinnu við Wirtschafts Verlag. Útgáfustjóri forlagsins og ritstjóri tímaritsins Die Horen er Johann P. Tammen, en í ritinu hefur oft birst íslenskt efni. í tilefni af útgáfunni hélt Ingi- mundur Sigfússon, sendiherra í Bonn, nýlega boð til að minnast þessa áfanga. í samtali blaðamanns við Ingimund kom fram að mikil íslensk bókmenntasókn væri nú í Þýskalandi. Áhugi á íslenskum bók- menntum væri mikill og vaxandi og sama mætti reyndar segja um áhuga á norrænum bókmenntum yfirleitt. Ingimundur sagðist halda að um kyrrstöðu væri að ræða í þýskum bókmenntum. Þess vegna þýddu Þjóðveijar mikið af verkum eftir erlenda höfunda. Hann sagði að íslenskir rithöfundar væru oft á ferð í Þýskalandi og nefndi þá sér- staklega Einar Kárason sem væri þeirra kunnastur, Einar Má Guð- mundsson og Steinunni Sigurðar- dóttur, en Tímaþjófur hennar er nýkominn út í Þýskalandi. Meðal annarra höfunda væru Guðrún Helgadóttir og Iðunn Steinsdóttir. Bókmenntaár í Þýskalandi Bergdís Ellertsdóttir sendiráðs- ritari í Bonn sagði að árið í ár væri mikið bókmenntaár í Þýska- landi. Hún nefndi verkefnið Far- fuglana sem Norræna ráðherra- nefndin styrkti. Hún sagði að næst væri á döfinni bókmenntahátíð í Slésvík-Holstein með rithöfundum sem fengið hefðu Bókmenntaverð- laun Norðurlandaráðs síðastliðin tólf ár. Þangað væri Einar Már Guðmundsson væntanlegur. Matthías Johannessen kemur til Bonn í lok október og mun að öllum líkindum lesa upp í Háskólanum í Bonn og líka í Túbingen. Ljóðabók Matthíasar, Sálmar á atómöld í þýðingu Wilhelms Friese, er að koma út í Þýskalandi á vegum for- lagsins Seltmann & Hein. í Berlín munu norrænir höfundar kynna verk sín, íslenskir þeirra á meðal, og tengist sú dagskrá Far- fuglunum fyrrnefndu. Bergdís tók undir það með Ingimundi Sigfús- syni að áhugi færi vaxandi á ís- lenskum bókmenntum í Þýskalandi. Hún sagði að Þjóðverjar væru opn- ir fyrir öllu norrænu. Frábær fyrirtæki 1. Vélsmiðja til sölu sem er 30 ára gömul, alltaf sömu eigendur. Eingöngu unnið eftir útboðum. Góð aðstaða og öll tæki sem til þarf. Þekkt verksmiðja, miklir möguleikar. 2. Litil kökugerð (ekki bakarí) til sölu sem selur til 70 söluaðila nokkrar valdar tegundir. Mikið af vélum og tækjum fylgja með. Kannt þú köku að baka. Góð velta, Gott fyrirtæki fyrir tvær duglegar. 3. Lítið þjónustufyrirtæki í öryggisgeiranum. Tilvalið fyrir vakta- vinnumenn, t.d. lögregluþjóna eða aðra, með öðru. Góð hugmynd sem gefur mikla möguleika fyrir duglegt fólk. 4. Lítil fasteignasala með mörg hundruð fasteignir á skrá. Frábær aðbúnaður, tæki og hugbúnaður. Laus strax. Húsnæðið einnig til sölu. 5. Tréverkstæði í eigin húsnæði. Hefur verið í sérsmíði og innrétt- ingum. Tækjalisti og pallbíll. Góð aðstaða. 6. Ein þekktasta ritfangaverslun borgarinnar til sölu. Mikill annatími framundan. Selur einnig leikföng og aðrar vörur. Frábær staðsetning. 7. Stór og mikil gjafa- og blómaverslun til sölu á frábærum stað. Mikil og vaxandi viðskipti. Góð aðstaða og mikið um stöðuga viðskiptavini. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. F.YRIRTÆKIASALAIM SUDURVE R I SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. Morgunblaðið/Egill Egilsson Astarsaga í Grænagarði Flateyri. Morgunblaðið. MÖGULEIKHÚSIÐ hélt nýlega sýningu á verkinu “Ástarsaga úr fjöllunum" en verkið fjallar um ástir trölla í fjöllunum. Sýnt var í leikskólanum Grænagarði, og var haldin sameiginleg sýning fyrir börnin á Grænagarði og fyrir börnin úr 1-6 bekk Grunn- skóla Önundarfjarðar, ásamt kennurum, fóstrum og foreldr- um. Verkið vakti mikla kátínu og eftir á fengu börnin að heilsa uppá sögupersónurnar úr verk- inu. Sumir vildu knúsa en aðrir drógu í hlé í skauti móður. ^anttskal^®^ ^ 71 /r . fí- r tííessm^ a uverju homi "iHeiratjor rW)öTW í rósrauöyjjj bj-anna ry,t4ölaulíaoijf. 'ftiast í heimsreisu Hafið samband við söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn, ferðaskrifstofumar eða simsöludeild Hugleiða í síma SO SO100 (svarað mánud. - föstud. kl. 8 -19 og á laugard. kl. 8 ■ 16.) Vcfur Flugleiða á intemetinu: www.icelandair.is Netfang fyrir almcnnar upplýsingar: info@icclandair.is 'Innifalið: flug, gisting og morgunverður og flugvallarskattar. Giidirfrá 1. októbcr. FLUGLEIDIR Traustur íslenskur ferðafélagi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.