Morgunblaðið - 16.09.1997, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 39
MINNINGAR
Blessuð sé minning Rafns Júlíus-
sonar.
Þorgeir K. Þorgeirsson.
Fallið er frá eitt mesta ^göfug-
menni sem ég hef kynnst. I starfí
mínu í samgönguráðuneytinu átti
ég því láni að fagna að vinna mikið
rheð Rafni Júlíussyni, þar sem ég
fékk í upphafi starfs míns það verk-
efni að fara með póstmál.
Margs er að minnast á þeim ald-
arfjórðungi sem leiðir okkar Rafns
lágu saman. Ég held ég megi segja
að varla hafí sú vika liðið án þess
að annar hvor okkar hefði samband
við hinn um ýmis úrlausnarefni
varðandi póstmál. Fróðari maður
um þau mál er vandfundinn. Þekk-
ing hans á póstmálum þjóðarinnar
var með ólíkindum.
Við sátum saman í nefndum og
starfshópum um samningu frum-
varpa til laga og reglugerða um
póstmál. Fyrir fáum vikum lauk
vinnu við reglugerð um grunnpóst-
þjónustu. Við þá vinnu nýttist þekk-
ing Rafns vel. Þrátt fyrir að augljós-
lega væri verulega af honum dregið
af völdum þess skelfílega sjúkdóms
sem hafði heltekið hann, var ekki
slegið slöku við. Þetta reyndist vera
síðasta verkefni Rafns Júlíussonar
í þágu samgönguráðuneytisins.
Rafn tók þátt í viðamiklu erlendu
samstarfi á sviði póstmála fýrir
hönd íslensku þjóðarinnar. Hann sat
mörg þing Alþjóðapóstsambands-
ins. Ég tel víst að vinnufélagar
hans hjá Pósti og síma geri þeim
þætti góð skil.
Ég átti þess kost að fylgjast með
einu slíku þingi, það var í Seoul
haustið 1994. Að ganga um sali
þinghaldsins í fylgd Rafns Júlíus-
sonar var mér, óreyndum, mikil
reynsla. Engum duldist að þar fór
maður sem naut virðingar i heimi
alþjóðapóstmála.
Eg minnist einnig með þakklæti
starfa hans að málefnum landpósta
og í stjórn Frímerkja- og póstsögu-
sjóðs um árabil.
Rafn var óvenjulega vel gerður
maður, ljúfur og með afbrigðum
kurteis. Góðmennskan geislaði af
honum. Mér leið ætíð vel í návist
hans.
Nú stendur yfír ritun póstsögu
íslands. Ég er þess fullviss að sá
sagnfræðingur sem hana ritar gerir
þætti Rafns Júlíussonar viðhlítandi
skil, þar sem hann með störfum
sínum mótaði póstþjónustuna í
marga áratugi.
Á þessum leiðarlokum vil ég
þakka Rafni Júlíussyni gott og
þægilegt samstarf í rúman aldar-
fjórðung.
Við Kristín vottum eiginkonu
hans, Kristínu Guðmundsdóttur, og
börnum einlæga samúð okkar.
Blessuð sé minning Rafns Júlíus-
sonar.
Halldór S. Kristjánsson.
Það er oft erfitt að sætta sig við
hið óumflýjanlega. Harðri baráttu
við erfiðan sjúkdóm er lokið. Minn
góði vinur og samstarfsmaður um
áratugi, Rafn Júlíusson, lést 7. sept-
ember sl. á 66. aldursári.
Þegar ég tók við starfí hjá Pósti
og síma í ársbyijun 1961 var Rafn
í stöðu póstmálafulltrúa, sem var
bæði umfangsmikið starf og krafð-
ist nákvæmni í vinnubrögðum. Rafn
þurfti m.a. að undirbúa og sækja
fundi um póstmál erlendis, bæði
svæðisbundna fundi og alþjóðaráð-
stefnur. Þótt fleiri þyrftu að mæta
á slíkum fundum var hann sá sem
yfir mestri þekkingu bjó á póst-
málasviðinu. Hann var mjög far-
sæll í störfum sínum og gætti vel
hagsmuna íslands í póstmálum.
Hann þekkti alla póstsamninga og
póstreglur mjög vel og væru ein-
hver atriði ekki í minni hans vissi
hann nákvæmlega hvar þurfti að
leita og það tók stuttan tíma að
finna þau fram. Rafn naut mikils
trausts í þessum störfum sem öðr-
um og ekki er vafi á að hann átti
oft dijúgan þátt í mörgum samning-
um sem gerðir voru við erlendar
þjóðir og bættu póstþjónustuna og
voru fjárhagslega hagkvæmir fyrir
Póst og síma. í ársbyijun 1992 tók
Rafn við stöðu framkvæmdastjóra
póstmálasviðs, og gegndi því starfí
til ársloka 1996 er Pósti og síma
var breytt í hlutafélag en þá varð
hann yfírmaður alþjóða- og sam-
starfsdeildar póstsviðs.
Rafn var hógvær og barst ekki
á. Hann hafði mikilhæfan mann að
geyma. Hann vann störf sín af
stakri prýði. Hann var mjög vel lið-
inn af starfsfólki og aldrei heyrði
ég honum hallmælt. Hann gerði sér
ekki mannamun heldur lagði sig
fram um að leysa úr þeim málum
sem að bárust, hver sem í hlut átti.
Hann var hinn trausti og góði
starfsmaður.
En hann var okkur samstarfs-
fólkinu miklu meira. Það var gott
að leita til hans. Hann var gjörhug-
ull og honum var lagið að fínna
leiðir út úr hveijum vanda.
Rafn var góður og sannur vinur.
Honum þótti vænt um fólk. Og
okkur sem með honum unnum þótti
vænt um hann. Hann átti svo mikla
góðmennsku, hjálpsemi og hlýju.
Hann hafði alltaf stjórn á skapi
sínu. Hann var réttsýnn og skoðaði
mál frá ýmsum mismunandi hliðum.
Það var mikið áfall þegar hinn harði
sjúkdómur uppgötvaðist. Hann
barðist hetjulegri baráttu en varð
undan að láta. Hann vissi hvert
stefndi en hann æðraðist ekki. Hann
ræddi lítið um sjúkdóm sinn. Hans
ágæta eiginkona, Kristín Guð-
mundsdóttir og íjölskyldan öll stóð
fast við hlið hans í veikindunum.
Góður drengur er genginn. Spor-
in hans voru farsæl. Bænir okkar
fylgja Rafni með þökkum fyrir góða
samleið og við getum aðeins verið
betra fólk fyrir að hafa átt slíkan
mann að ferðafélaga. Blessuð sé
minning góðs drengs og innilegar
samúðarkveðjur eru fluttar eigin-
konu hans og fjölskyldu.
Páll V. Danielsson.
Kær vinur er horfinn sjónum
okkar, blíður maður og rólegur í
allri umgengni og samskiptum.
Rafn var yfírmaður póstsviðs Pósts
og síma og starfaði jafnt að innan-
landsþjónustunni sem og við al-
þjóðasamskipti.
Það munu margir sakna Rafns
Júlíussonar, hans sem best kunni
öll póstlög og reglur og bjó yfír
þekkingu til að leysa úr nýjum
vandamálum.
Hvar sem hann fór, innanlands
sem utan, á fámennum fundum eða
stærri alþjóðlegum ráðstefnum, bar
hann fram mál sitt skýrt og af
kunnáttu, en með mikilli hæversku.
Naut hann alls staðar mikillar virð-
ingar samstarfsmanna sinna.
Rafn kunni einnig vel að meta
samveru þeirra utan starfstíma og
njóta með þeim þess, er hver stund
og staður bauð upp á.
Rafn var mér góður leiðbeinandi
er ég hóf störf við póstþjónustuna.
Ég minnist alls samstarfs okkar og
vináttu hans og kveð góðan dreng
með virðingu og þakklæti. Öllum
þeim er Rafni voru kærastir votta
ég samúð mína.
Ólafur Tómasson,
fv. póst- og símamálastjóri.
Hálf öld er liðin frá því ég kynnt-
ist Rafni Júlíussyni. Við vorum þá
nemendur í Gagnfræðaskóla Reyk-
víkinga við Öldugötu. Síðan fylgd-
umst við að til stúdentsprófs í MR
vorið 1952, tengdir vináttuböndum
sem treystust enn þau ár sem fóru
í hönd. Vináttubönd af þeim toga
^ixrixixTrfl
H Erfidiykkjur
H
H
H
H
H
H
H
H
H
L A N
H
H
H
H
H
H
H
H
H
M
Sími 562 0200 ^
nniiiiixmö
þekkir margur af eigin raun. Þau
verða til við nána samfylgd í skóla
á æskuárum, eru sérstök og svo
traust að þau slitna ekki, hvert sem
ævibrautir vinanna liggja. Og jafn-
vel þótt langar stundir líði milli
samfunda er ávallt eins og slíkir
vinir hafí talazt við daginn áður.
Tíminn vinnur ekki á sálufélagi
þeirra.
Algengt er í skólum að vissir
nemendur laðist svo mjög hver að
öðrum að úr verður klíka. Ég var
í klíku með Rafni og nokkrum öðr-
um bekkjarbræðrum. Þá ósýnilegu
stofnun lögðum við félagarnir ekki
niður við burtfararpróf úr MR, hefð-
um þó ef til vill getað rækt hana
betur en við gerðum þegar fram í
sótti. En lífíð kallar úr ýmsum átt-
um eins og gengur.
Klíkan okkar var réttnefnt
bræðralag. Þar var tilgerð fyrirlitin,
en spaugsemi, bersögli og alls kyns
fjarstæður haft í hávegum. Við
uppnefndum hver annan, og engum
okkar var hlíft við skopi og gletting-
um. Um hópinn lék hollur og hreinn
gustur glaðrar æsku. Allt þetta
leiddi svo af sér orðafar sem við
bjuggum sjálfír til, oft furðulegustu
hluti, og notuðum okkar í milli.
Dijúgan skerf lagði Rafn til
þessa orðafars, því hann bjó yfír
ósvikinni kímnigáfu. Hann fór sjald-
an með skrýtlur sem bárust staðlað-
ar hús úr húsi, ísmeygileg fýndnin,
laus við meinfýsi, spratt af hug-
kvæmni hans sjálfs, eftirtektar-
semi, næmi fyrir mæltu máli og var
glitofin undirtónum.
Rafn Júlíusson var vinur og fé-
lagsbróðir eins og þeir geta beztir
orðið; grandvar maður til orðs og
æðis, hjálpfús, prúður í dagfari og
hlýr í lund, aldrei mikillátur eða
aðgangsfrekur. Dulur var hann að
því leyti að hann ræddi ógjaman
einkahagi sína.
Rafn var prýðilegur tungumála-
maður og hygg ég að franska og
latína hafí verið eftirlætisnáms-
greinar hans í skóla. Eina skáldsögu
þýddi hann úr frönsku (1959),
Skriftamál eftir Mauriac sem hlotið
hafði Nóbelsverðlaun 1952. Harma
ég að Rafn skyldi ekki sinna bók-
menntaþýðingum meira en raun
varð á; í samtölum okkar fannst
mér hann vanmeta hæfni sína til
slíkra ritstarfa.
Nú við hin miklu vegaskil kveð
ég fornvin minn og bekkjarbróður,
Rafn Júlíusson, með sárum sökn-
uði. Hann féll frá of snemma, eftir
harða sjúkdómsraun, fékk ekki að
njóta í náðum efri ára með ástríkri
fjölskyldu sinni eftir langan og far-
sælan starfsferil. Ég þakka honum
órofa tryggð og góðhug frá fyrstu
kynnum. Mynd hans verður í huga
mér allar stundir umvafín sams
konar sólbirtu og lék um hann ung-
an mann á námsárunum í París,
er ég heimsótti hann þangað eitt
vorið og við fórum alsælir dag eftir
dag í skoðunarferðir um borgina
fögru sem var honum mjög kær.
Hannes Pétursson.
í dag verður jarðsettur góður
vinur og náinn samstarfsmaður til
margra ára, Rafn Júlíusson. Er
mikill missir að slíkum manni sem
hann var. Rafn var Reykvíkingur
og stundaði nám við Menntaskólann
í Reykjavík en hélt að loknu stúd-
entsprófi til Parísar þar sem hann
aflaði sér víðtækrar menntunar.
Fljótlega eftir heimkomuna, eða
árið 1957, réðst hann til starfa hjá
Pósti og síma. Þar kynntist Rafn
Kristínu, hinni ágætustu konu og í
henni fann hann sér góðan lífsföru-
naut.
Mannkostir Rafns og frábær
tungumálakunnátta gerðu hann
fljótt að einum af lykilmönnum
póstþjónustunnar. Rafn vann náið
með þremur póst- og símamála-
stjórum auk mín, bæði sem póst-
málafulltrúi og síðar sem fram-
kvæmdastjóri Póstmálasviðs. Hann
vann að innanlandsmálum póstsins
sem og alþjóðamálum með miklum
ágætum. Lýsandi dæmi um vand-
virkni Rafns er íslensk frímerkjaút-
gáfa en Rafn stjórnaði henni í tæpa
fjóra áratugi.
Rafn var vel kynntur í alþjóða-
samstarfí þar sem samviskusemi
hans og yfírburðaþekking á póst-
málum reyndist ómetanleg. Hann
eignaðist marga vini, jafnt innan-
lands sem utan. Var ávallt gaman
að sjá hve mikla virðingu þeir báru
fyrir honum vegna þekkingar hans
og þeirrar ljúfmennsku og kurteisi
sem einkenndi alla framkomu hans.
Fyrir mig var það ómetanlegt að
geta leitað til Rafns vegna hinna
ýmsu mála jafnt í upphafi starfa
minna hjá Pósti og síma sem hin
síðari ár enda var hann ávallt tilbú-
inn að veita þá aðstoð sem þurfti.
Því miður get ég ekki fylgt vini
mínum til grafar en þakka honum
samfýlgdina. Rafni og fjölskyldu
hans bið ég guðs blessunar.
Guðmundur Björnsson.
í dag fer fram útför Rafns Júlíus-
sonar fv. framkvæmdastjóra póst-
málasviðs Póst-og símamálastofn-
Minningarkort
Styrktarsjóðs
hjartasjúklinga
LANDSSAMTÖK
HJARTASJÚKLINGA
Sími 552 5744
Innheimt með gíróseðli
SNYRTISTOFAN
GUERLAIN
REYKIAVIK
unarinnar. Við, samstarfsmenn
hans til margra ára, kveðjum í dag
einstakan heiðursmann. Yfírgrips-
mikil þekking hans á öllum sviðum
póstmála, hvort sem um var að 4t
ræða alþjóðleg eða innlend, ásamt
fágætum mannkostum gerði það
að sérstökum forréttindum að fá
að kynnast og starfa með Rafni.
Rafn kom til starfa hjá Póst- og
símamálastofnun árið 1959 og var
hann póstmálafulltrúi frá árinu
1960 þar til hann tók við starfí
framkvæmdastjóra póstmálasviðs
árið 1992. Gegndi hann þeirri stöðu
næstu fímm ár en varð þá forstöðu-
maður alþjóða- og samstarfsdeildar
póstsviðs hjá Pósti og síma hf. Ein-
stæð þekking Rafns og fagmennska ^
var samstarfsfólki hans ómetanleg
og við andlát hans er skarð fýrir
skildi sem seint verður fyllt. Frá
því Rafn hóf störf hjá Póst- og síma-
málastofnun var hann fulltrúi ís-
lands á þingum Alþjóðapóstsam-
bandsins. Hann var sérfræðingur
sem leitað var til bæði erlendis og
innanlands, meðal annars hvað við-
kom vinnu við alþjóðasamninga,
póstlög og reglugerðir. Reynsla
Rafns kom sér einkum vel er hann
hvatti til að ýmsar nýjungar væru
kynntar í póstrekstri hér á landi.
Var hann einnig frumkvöðull að
stofnun Póst- og símaskólans og lét
sig ætíð menntun starfsmanna
miklu varða. ^
Umfram allt minnumst við þó
Rafns sem einstaks manns er um-
gekkst alla af sömu virðingu, hóg-
værð og hlýhug og var fús að greiða
götu allra. Æðrulaus og heiðvirð
framkoma Rafns hafði mikil áhrif
á samstarfsfólk hans og erum við
þakklát að hafa fengið að kynnast
og starfa með honum. Við erum
sannfærð um að kynni okkar af
þessum einstaka heiðursmanni hafí
mótað okkur á jákvæðan hátt og
verður hans sárt saknað.
Fjölskyldu Rafns sendum við
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Samstarfsfólk á póstsviði.