Morgunblaðið - 16.09.1997, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 43
Sigurgangan
stöðvuð
skák
Alþýöuhúsiö á Akur-
'cyri, 9. — 20. scpt.
SKÁKÞING ÍSLANDS,
LANDSLIÐSFLOKKUR
Þeir Jóhann Hjai-tarson og Hannes
Hlífar Stefánsson urðu báðir að
sætta sig við jafntefli í sjöttu umferð
Skákþings íslands.
ÞEIR eru ennþá langefstir og
jafnir með fimm og hálfan vinning
af sex mögulegum. Þeir Jén Viktor
Gunnarsson, 17 ára og Arnar Þor-
steinsson frá Akureyri koma næstir
með fjóra vinninga. Arnar er sá sem
mest hefur komið á óvart á mótinu
og haldið uppi heiðri gestgjafanna
með glæsibrag. Bragi Þorfinnsson
er yngsti keppandinn á mótinu.
Hann er 16 ára og teflir í fyrsta
skipti í landsliðsflokki. Hann hefur
tekið stórstígum framförum undan-
farna mánuði og eftir jafnteflið við
stigahæsta keppandann stefnir í
mjög vel heppnaða frumraun.
Það lítur enn þá út fyrir að skák
Jóhanns og Hannesar í níundu um-
ferð á fimmtudaginn verði hrein
úrslitaskák á mótinu. Staðan sést
af meðfylgjandi töflu og þar sem frí
var á mótinu í gærkvöldi, mánudags-
kvöld, sýnir hún stöðuna eins og hún
er fyrir sjöundu umferðina í kvöld.
Þá tefla Jóhann og Hannes við Akur-
eyringana Gylfa Þórhallsson og Rún-
ar Sigurpálsson.
Þröstur úr leik?
Þriðji stórmeistarinn á mótinu,
Þröstur Þórhallsson, missti endan-
lega af lestinni þegar hann tapaði
fyrir Hannesi Hlífari á laugardaginn
var. Þröstur var svo óheppinn að
verða þremur stundarfjórðungum of
seinn í skákina. Eitthvað af þeim
tíma hefði komið sér vel í þessari
skemmtilegu og tvísýnu stöðu þar
sem báðir eru með slæma
kóngsstöðu í miðtafli:
Svart: Þröstur Þórhallsson
Hvítt: Hannes Hlífar Stefánsson
38. - Hg7+? (Hótunin að skáka er
sterkari en leikurinn. Best var 38. -
Bd5! og svartur vinnur skiptamun
fýrir litlar eða engar bætur, því eftir
39. Hf2? - Hg7+ verður hvítur mát.
Nú á Hannes hins vegar létt með að
víkja kóngnum undan og hefur þá
jafnframt komið honum úr skálínu
svörtu drottningarinnar á d6) 39.
Kf2 - Db6+ Önnur slæm skák sem
gefur hvíti færi á að bæta stöðuna,
en staðan var einnig afar erfið eftir
39. - Hd8 40. g4!) 40. Rc5! - Hhg8
41. Hxf5! (Hannes brennir ekki af,
heldur tryggir sér sigur með laglegri
hróksfórn) 41. - exf5 42. Dxf5+ -
Ke7 43. Dd7 mát.
SKÁKÞING ÍSLANDS Stig 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 Vinn. Röð:
1 Rúnar Sigurpálsson 2.275 I o 0 0 1/2 1 0 11/2 9.-11.
2 Jón Viktor Gunnarsson 2.315 1 0 1/2 1 1/2 1 4 3.-4.
3 Jóhann Hjartarson 2.605 1 1 1/2 1 1 1 5'A 1.-2.
4 Bragi Þorfinnsson 2.215 1 1/2 1 0 0 3 7.
5 Gylfi Þórhallsson 2.330 1/2 0 1/2 0 1/2 0 11/2 9.-11.
6 Áskell Örn Kárason 2.305 0 0 0 0 0 0 0 12.
7 Hannes Hlífar Stefánss. 2.545 1 1 1 1 1/2 1 51/2 1.-2.
8 Jón Garðar Viðarsson 2.380 1/2 1 0 1 0 1 31/2 5.-6.
9 Þorsteinn Þorsteinsson 2.305 0 1 1 0 0 1/2 21/2 8.
10 Þröstur Þórhallsson 2.510 0 1 1/2 1 0 1 3'A 5.-6.
11 Arnar Þorsteinsson 2.285 1/2 0 1 1 1 1/2 4 3.-4.
12 Sævar Bjarnason 2.265 1 0 0 0 0 1/2 11/2 9.-11.
Bréftil
skákþáttarins:
Selfossi 6.9. 1997.
Ég er nú ekki vanur
að skrifa í fjölmiðla út
af misfellum eða undar-
legu fréttamati, en mér
fmnst nú full ástæða
til að gera athugasemd
við ummæli í skáksíðu
Mbl. 5. september sl. -
þar sem umsjónarmenn
síðunnar, Margeir Pét-
ursson og Daði Örn
Jónsson, (annar hvor
eða báðir) lýsa undrun
á að Ríkisútvarpið skuli
hafa sagt frá fyrirhug-
uðu heimsmeistaraeinvígi milli
Karpovs og Kasparovs sem sagt var
að færi fram í nágrenni Parísar í
næsta mánuði en léti um leið ósagt
frá árangri Hannesar Hlífars Stef-
ánssonar á Víkingaleikunum á
Álandseyjum. Síðan er fléttað saman
við þetta skoðunum greinarhöfundar
á einokunarfjölmiðlinum RÚV. -
Það kann að vera að útvarpinu hafí
láðst að segja frá árangri Hannesar
í þessum sama fréttatíma og finnst
mér það í sjálfu sér ekki stórmál
hvort að frétt af árangri Hannesar
komi í sama fréttatíma
eða öðrum. Það er hins
vegar athyglisvert að
Morgunblaðið, blaðið
sem Margeir og Daði
skrifa í sagði einnig frá
þessu „Plateinvígi" á
forsíðu 3. september.
Fréttin er enda komin
frá Reuter-fréttastof-
unni og væntanlega
hafa hvorki Morgun-
blaðið né Ríkisútvarpið
séð áistæðu til að draga
áreiðanleika fréttarinn-
ar f efa þó svo að annað
hafi komið í ljós síðar,
en það er jú alltaf auð-
velt að vera vitur eftir
á. Ég sé heldur ekki að frétt RÚV
tengist á neinn hátt rekstrarformi
fyrirtækisins enda birtir „hið fijálsa
Morgunblað" sömu frétt. - Svo má
auðvitað alltaf deila um ímyndaða
eða raunverulega einokun Ríkisút-
varpsins en ég sé ekki að það komi
umræddum fréttum neitt við.
Heiðar Ragnarsson.
Svar frá Margeiri Péturssyni:
Ég samdi klausuna sem Heiðar
gerir athugasemd við. Morgunblaðið
birti „ruglfréttina" á forsíðu, en með
spurningamerki í fyrirsögn. RÚV
birti hana alveg athugasemdalaust.
Þess má geta að sama dag hringdi
fréttamaður frá annarri (fijálsri)
útvarpsstöð í mig til að leita skýr-
inga frá sérfræðingi. RÚV hafði
greinilega ekki fyrir neinu slíku. Við
Islendingar erum það góðir í skák
að fréttamenn okkar eiga ekki að
láta plata sig þótt það hendi Reuter.
Ég veit ekki til þess að RÚV hafi
enn þann dag í dag sagt frá glæsileg-
um árangri Hannesar Hlífars á Vík-
ingaleikunum. Hins vegar hefur ver-
ið skýrt frá óteljandi erlendum úrslit-
um í keppnum þar sem enginn ís-
lendingur er með.
Við Heiðar getum þó glatt okkur
við það að RÚV hefur sagt mjög
samviskusamlega frá Skákþingi ís-
lands frá Akureyri og við getum
stólað á að úrslit birtist í kvöldfrétt-
um kl. 22. Einnig má fletta upp í
textavarpinu á síðu 241. Ég verð
því heldur léttari í spori næst þegar
ég fer í bankann og borga afnota-
gjaldið. En ef Morgunblaðið slakar
á í skákfréttunum er Ijóst hvaða
úrræði ég, Heiðar og þúsundir
áhugamanna um allt land hafa. Við
getum sagt áskriftinni upp!
Margeir Pétursson
Bragi Þorfinnsson
stöðvaði Jóhann.
Frá Söngsveitinni
Fílharmóníu
Langar þig að syngja í kór sem flytur bæði stór
og smá kórverk? Laus pláss í öllum röddum,
sérstaklega karlaröddum.
Upplýsingar veita: Benni s. 553 4834, Lilja
s. 553 9263 og Jóhanna s. 553 9119.
HÚSNÆQI í BOQI
Ert þú á leið til New York?
Fullbúin íbúðtil leigu frá 26. sept. til 1. nóv.
Vikuleiga eða allurtíminn kemurtil greina.
Sanngjarnt verð.
Upplýsingar í síma 568 3610.
ÝMISLEGT
VINALÍNAN ~~~
+
Sjálfboðaliðar
óskast
Reykjavíku/deild Rauða kross íslands leitar að
sjálfboðaliðum sem vilja starfa með Vinalínunni.
Vinalínan er símaþjónusta ætluð öllum 18 ára og
eldri sem eiga í vanda eða hafa engan að leita til í
sorg og gleði. Sjálfboðaliðar svara í síma öll kvöld
kl. 20.00-23.00.
Kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn
17. september kl. 20.00 í Fákafeni 11, 2. hæð.
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 551 8800 og 561 6464.
Viðtalstímar
Ásta R. Jóhannesdóttir, alþing-
ismaður, verður til viðtals á
skrifstofu sinni, Austurstræti 14,
17., 18. og 19. sept. nk., og í
næstu viku.
Tímapantanir í síma 563 0700.
TILKYIMIMIIMGAR
Kísilgúrsjóður
Styrkir — Lán — Hlutafé
Tilgangur sjóðsins er að kosta undirbúning
aðgerða til þess að efla atvinnulíf í þeim sveit-
arfélögum sem nú eiga verulegra hagsmuna
að gæta vegna starfsemi Kísiliðjunnar hf.
Til að ná fram markmiðum sjóðsins er stjórn
hans heimilt að veita áhættulán, styrki og að
kaupa hluti í nýjum og starfandi félögum. Um
stuðning geta sótt fyrirtæki, félagssamtök og
einstaklingar.
Styrkir:
Kostnaðarliðir sem notið geta stuðnings:
• Undirbúningskostnaður verkefna
• Vöruþróun
• Átaktil markaðsöflunar
• Nám eða starfsnámskeið, samkvæmt sér-
stakri ákvörðun stjórnar.
Lánakjör og hlutafjárkaup:
• Kjör á lánum sjóðsins taka mið af kjörum
hliðstæðra lána hjá fjárfestingalánasjóðum.
• Sjóðurinn tilnefnir að jafnaði ekki stjórn
þeirra hlutafélaga sem hann á hlutdeild í
nema hlutur sjóðsins sé umtalsverður (þriðj-
ungur eða meira) og að stjórnaraðild sé talin
æskileg til að efla stjórnun hlutafélagsins.
Sjóðurinn veitir ekki rekstrarstyrki svo sem til
að niðurgreiða framleiðslukostnað. Styrkur
verður aldrei hærri en sem nemur helmingi
af styrkhæfum kostnaði.
Umsóknarfrestur vegna haustúthlutunar
1997 er 1. október.
Umsóknareyðublöð, úthlutunarreglur og frek-
ari upplýsingarfást hjá Atvinnuþróunarfélagi
Þingeyinga. Sími 464 2070, fax 464 2151.
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
Suðurgata 22
í samræmi við 17. og 18. gr. skipulagslaga
er auglýst kynning á breyttu deiliskipulagi
að Suðurgötu 22.
Kynningin fer fram í sal Borgarskipulags og
Byggingarfulltrúa að Borgartúni 3,1. hæð,
kl. 9 -16 virka daga og stendur til 29. okt. '97.
Ábendingum og athugasemdum skal skila til
Boigarskipulags Reykjavíkur eigi síðar en
miðvikudaginn 12. nóv. '97.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillöguna.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.0.0.F Rb. 4 = 1469168 —
I.O.O.F. Ob.1 = 178091619:00=
HÁTI'ÐARF.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Fjölbreyttar haustferðir
1. 19.—21. sept. Haustlita- og
fræðsluferð í Skaftafell og
Núpsstaðarskóga.
Gist í Freysnesi. Samvinna við
Skógræktarfélagið.
2. 20.—21. sept. Emstrur—
Almenningur—Þórsmörk.
Ekið inn á Emstrur og gengin síð-
asti áfangi „Laugavegarins". Fal-
leg leið. Gist í Skagfjörðsskála.
3. 20.—21. sept. Þórsmörk,
haustlitaferð. Gönguferðir. Gist
í Skagfjörðsskála. Tilvalin fjöl-
skylduferð. Upplýsingar og far-
miðar á skrifst. Mörkinni 6.
ÝMISLEGT
Námskeiðið Reyklaus að
eilffu:
— Jákvætt,
— tekur tvö kvöld,
— eykur meðvitundina,
— endurforritar hugann,
— allir fá vinnubók, staðfestingar
og stuðningsaðila,
— kostar jafn mikið og að reykja
í 15 daga (góð fjárfesting),
— þú mátt ekki hætta fyrr en að
loknu námskeiðinu.
Næstu námskeið: 16. og 18.
sept., 23. og 25. sept., 30. sept.
og 2. okt., 21. og 23. okt., 28. og
30. okt., 4. og 6. nóv.
GEYMDU AUGLÝSINGUNA.
Upplýsingar í síma 561 3240, fax
561 3241, töivupóstfang:
leidar@centrum.is
F>að er ekkert mál að hættal
KENNSLA
Þýskunðmskeið Germanfu
hófust 15. september. Boðið er
upp á byrjendahóp, fimm
framhaldshópa og talhóp.
Upplýsingar í sima 551 0705
kl. 16.30 - 17.45.