Morgunblaðið - 16.09.1997, Page 45

Morgunblaðið - 16.09.1997, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 45 FRÉTTIR Morgunblaðið/Egill Egilsson Afreksmenn víða Flateyri. Morgunblaðið. Haustlita- og fræðslu- ferð HA'USTLITA- og fræðsluferð í Bæj- arstaðar- og Núpsstaðarskóga verð- ur farin á vegum Skógræktarfélags íslands og Ferðafélags íslands helg- ina 19.-21. september nk. og er brottför frá Umferðarmiðstöðinni austanmegin kl. 19. Gist verður í góðri svefnpokagistingu að Hótel Freysnesi í Óræfasveit. Laugardaginn 20. september verður farið í þjóðgarðinn í Skafta- felli, gengið inn í Bæjarstaðarskóg og skoðaður einn fallegasti birki- skógur á landinu. Ræktaðir birki- skógar víðsvegar um land eiga margir hveijir uppruna sinn að rekja til Bæjarstaðarbirkisins en það hefur sýnt sig að geta vaxið mjög víða. Um kvöldið í Freysnesi verður fjallað um íslenska birkið, fræsöfnun og meðhöndlun fræs í máli og myndum. Á sunnudeginum, 21. september, verður haldið með Hannesi Jónssyni inn í Núpsstaðarskóga, vel varð- veitta náttúruperlu sem ekki liggur í alfaraleið og fáir hafa upplifað haustlitadýrðina á þeim fagra stað, segir í fréttatilkynningu. Fararstjór- ar verða frá Ferðafélaginu og þeir skógfræðingar Brynjólfur Jónsson og Jón Geir Pétursson. Almennt verð er 8.900 kr. en 7.900 kr. fyrir félagsmenn í Skógræktarfélaginu og Ferðafélaginu. Nánari upplýsingar eru á skrifstofu Ferðafélags íslands í Mörkinni 6. UNDANFARIN þrjú ár hefur verið unnið að framtíðarskipulagi miðhálendis íslands á vegum nefndar sem skipuð er fulltrúum þeirra byggða sem liggja að miðhá- lendinu. Nokkur hefur skort á al- menna umræðu um þetta mál en með skipulagi miðhálendisins er verið að taka afgerandi ákvarðanir um framtíðarnoktun rösklega 40% alls lands á Islandi. Félag skipulagsfræðinga og Verkfræðistofnun Háskóla íslands hafa því ákveðið að halda almenna ráðstefnu um framtíðarskipulag miðhálendisins í Háskólabíói, sal 2, laugardaginn 20. september frá NÁTTÚRUVERND ríkisins og Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands standa fyrir námskeiði í landvörslu og náttúruvernd frá 29. september til loka októbermánaðar. Markmið námskeiðsins er að vekja áhuga á náttúrufari landsins og náttúruvernd svo og að þjálfa ein- staklinga til starfa við landvörslu og fræðslu um náttúru landsins og náttúruvernd. „Mikilvægt er að fólk sem víðast af landinu sæki námskeið af þessu tagi því góð þekking á staðháttum kemur sér vel í starfi landvarðarins. Með aukinni ferðamennsku eykst þörfin fyrir landverði ekki eingöngu á friðlýstum svæðum heldur alls- staðar þar sem þörf er fyrir leiðsögn og fræðslu um náttúru íslands," segir í fréttatilkynningu. Námskeiðið verður haldið í Reykjavík og á Akureyri ef næg þátttaka fæst. Fyrirkomulag nám- VERKTAKAFYRIRTÆKIÐ Af- rek ehf. á Flateyri í samráði við Vegágerðina hefur að undan- förnu verið að hreinsa gamlar skriður ofan af vegskálunum í Óshlíðinni, sem er á milli ísafjarð- ar og Bolungarvíkur. Til að koma 7 tonna traktor- gröfunni upp á vegskálana var Magnúsar Jóhannessonar, ráðu- neytisstjóra umhverfisráðuneytis- ins. Síðan verður aðdragandi skipu- lagstillögunnar og megininntak kynnt og auk þess fjalla fyrirlesarar um ýmsa þætti sem tengjast skipu- lagi þessa svæðis, m.a. orkumál, samgöngur, náttúruvernd og ferða- mál. Einnig verður fjallað um stjórnsýslulega stöðu miðhálendis- ins; í lok ráðstefnunnar munu fulltrú- ar stjórnmálaflokkanna skýra frá afstöðu flokka sinna til þessa mikil- væga máls og taka að því loknu þátt í pallborðsumræðum. Umræðu- stjóri verður Kristófer Oliversson skipulagsfræðingur. Áðgangur að ráðstefnunni er skeiðsins í Reykjavík er með þeim hætti að kvöldfyrirlestrar verða haldnir dagana 29. september til 2. október og 13.-16. október. Fyr- irlestrar og skoðunarferðir verða dagana 4., 5., 11., 18. og 19. októ- ber frá kl. 9-17. Dagana 23.-26. október verður dvalið utan Reykja- víkur. Frestur til að skila inn umsóknum hefur verið framlengdur til 20. sept- ember og liggja umsóknareyðublöð frammi í afgreiðslu Náttúruvemdar ríkisins að Hlemmi 3, 2. hæð. Einn- ig er hægt að senda inn skriflegar umsóknir þar sem m.a. koma fram upplýsingar um menntun, starfs- svið, aldur og tungumálakunnáttu og annað það sem umsækjanda þykir skipta máli. Heimilisfang Náttúruverndar ríkisins er Hlemmur 3, Pósthólf 5324, 125 Reykavík. Námskeiðs- gjald er 42.000 kr. notaður geysiöflugur 22 tonna krani í eigu Afreksmanna, en krani þessi bættist nýlega við sí- vaxandi vinnutækjaflota Afreks ehf. Ofan á vegskálunum gat að líta stórgrýti sem fallið hefur undanfarin ár og því má búast við nægum verkefnum hjá þeim félögum í Afreki ehf. á næstunni. ókeypis og öllum heimill og er fólk sem lætur sig þetta mál varða hvatt til að mæta, segir í fréttatilkynn- ingu. HELGIN var fremur róleg hjá lögreglu. Talsvert margt var í miðbænum á föstudagskvöld og voru tæplega 30 unglingar færð- ir í athvarf sem Reykjavíkurborg starfrækir í samvinnu við lög- reglu. Þangað sækja síðan for- eldrar sín ungmenni. Umferðaróhöpp Árekstur varð á Sogavegi á föstudag er tvær bifreiðar skuliu saman. Flytja varð ökumann og farþega úr annarri bifreiðinni á slysadeild. Árekstur var á Bú- staðavegi við Suðurhlíð á laugar- dag er tvær bifreiðar skullu sam- an. Nauðsynlegt reyndist að flytja farþega úr báðum bifreið- um á slysadeild en meiðsl þeirra voru ekki talin alvarleg. Þá varð árekstur á sunnudagskvöld á Kringlumýrarbraut við Miklu- braut er tvær bifreiðar skullu saman. Annar bílstjóri og tveir farþegar voru fluttir á slysadeild. Ökuhraði Höfð voru afskipti af 18 öku- mönnum vegna hraðaksturs. Einn ökumaður var mældur á 124 km hraða á Miklubraut við Skeiðarvog á föstudagskvöld. Ökumaður var fluttur á lögreglu- stöð þar sem hann sá af ökurétt- indum sínum. Þá ók annar öku- Hafnagöngu- hópurinn 5 ára FIMM ár eru liðin í dag, þriðjudag- inn 16. september, frá því að Hafna- gönguhópurinn fór í sína fyrstu kvöldgöngu. Síðan hefur verið farið á hveiju miðvikudagskvöldi frá Hafnarhúsinu kl. 20 í gönguferðir og sjóferðir um höfuðborgarsvæðið og nokkur skipti í hafna- og strand- göngur í öðrum sveitarfélögum. í tilefni af þessu stendur Hafna- gönguhópurinn fyrir skemmtigöngu og siglingu miðvikudagskvöldið 17. september. Mæting er við Hafnar- húsið kl. 20. Ýmislegt verður sér til gamans gert á leiðinni, m.a. mun HGH-tríóið, félagar úr Hafnagöngu- hópnum, leika upi borð í skemmti- siglingaskipinu Árnesi. Allir eru velkomnir, sérstaklega gamlir göngufélagar og velunnarar Hafnagönguhópsins. maður á 115 km hraða á Bú- staðavegi. Þann ökumann reynd- ist einnig nauðsynlegt að flytja á lögreglustöð þar sem ökurétt- indin voru skilin eftir. Innbrot - þjófnaður Karlmaður var handtekinn í Pósthússtræti er hann var að reyna að komast inn í bifreið. Brunar Lögreglu var tilkynnt um 12 minniháttar bruna um helgina. Flestir þeirra voru þess eðlis að kveikt var í ruslatunnum. Lög- reglu barst tilkynning um að eld- ur væri laus í þakskeggi og klæðningu á Breiðholtsskóla. Slökkvilið kom á staðinn og slökkti eldinn. Lögregla og slökkvilið fóru að húsi í vestur- bænum að morgni sunnudags þar sem mikill reykur var í húsinu. Þar reyndist pottur með matvæl- um hafa gleymst á eldavél. Slökkvilið reykræsti húsnæðið. Þá fóru lögregla og slökkvilið að öðru húsi í Vesturbænum þar sem kviknað hafði eldur í þvottavél. Annað Lögreglan veitti tveimur kon- um með þijú börn aðstoð á Geld- inganesi en þau höfðu lokast inni á nesinu er flæddi að. Hj ólreiðaf er ðir fyrir almenning- ÍSLENSKI íjallahjólaklúbburinn og íþróttir fyrir alla standa fyrir hjól- ' reiðaferðum fyrir almenning í sept- ember og október. Að þessu sinni verður brottfarar- staður frá Mjódd austanvert við skiptistöð SVR og pósthús kl. 20 hvert þriðjudagskvöld. 16. september: Kvistir-Höfðar- Hálsar, 23. september: Fossvogsdal- ur-Öskjuhlíð, 30. september: Bú- staðavegur-Suðurlandsbraut, 7. október: Langholtsvegur-Mikla- braut, 14. október: Breiðholtshring- ur, 21. október: Árbær-Gullinbrú og 28. október: Miðbæjarferð. Síðasta kvöld- gangan í Viðey SÍÐASTA kvöldganga sumarsins í Viðey verður á Vestureyna. Farið verður kl. 19.30 í kvöld úr Sunda- höfn. Gengið verður frá kirkjunni vestur með Klausturhól, um Klifið niður á Eiðið með þess fallegu tjörn- um og þaðan yfir á Vesturey, þar sem Áfangar, súlnapörin 9, um- hverfislistaverkið sem R. Serra gaf á listahátíð 1990, verður skoðað og síðan gegninn góður hringur um eyna sunnanverða. Þar getur einnig að líta steina með áletrunum frá 1810-1842 og fleira er þar áhugaverðra fornra minja. Ferðin tekur rúma tvo tíma. Fólk er áminnt um að klæða sig eftir veðri. Sérstaklega skal minnt á að vera vel búinn til fótanna. Gjald er ekki annað en feijutoll- urinn sem er 400 kr. fyrir fullorðna og 200 kr. fyrir börn. Kynning á gjafavöru úr endurunnum pappír RANDALÍN Handverkshús á Egils- stöðum stendur fyrir kynningu á vörulínu sinni og þjónustu dagana 16.-30. september í sýningarsal Handverks og hönnunar að Amt- mannsstíg 1 í Reykjavík. Kynnt verður handunnin gjafa- vara úr endurunnum pappír sem fyrirtækið hefur sérhæft sig í að framleiða undanfarin 3 ár. Einnig verður kynnt sú þjónusta sem fyrir- tækið veitir í sérhönnun á ýmiskonar möppum. Miðvikudaginn 17. september frá kl. 13-20 mun fulltrúi fyrir- tækisins verða á staðnum og veita upplýsingar. Símaráðgjöf UMSJÓNARFÉLAG einhverfra vek- ur athygli á símaráðgjöf sem stend- ur aðstandendum einhverfra til boða á þriðjudagskvöldum í september og október milli kl. 20 og 22. í kvöld mun Páll Magnússon sál- fræðingur veita ráðgjöf, m.a. varð- andi greiningu á einhverfu ogAsperg- er heilkenni. Upplýsingar almennt um fötlunina, framvindu, horfur og tengda fötlun. Síminn er 562 1590. LEIÐRÉTTING Sýningar í Gerðarsafni til 21. september SÍÐASTI sýningardagur í Gerðar- safni, Listasafni Kópavogs, misritað- ist í myndlistardómi í blaðinu fimmtudaginn 11. september sl. Réttur er lokadagur sýningarinnar 21. september. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Hrafn í verkefnissljórn Óskað hefur verið leiðréttingar þar sem nafn féll niður í auglýsingablaði Vímuvarnanefndar Reykjavíkur sem fylgdi Morgunblaðinu á laugardag. í upptalningu á þeim sem skipa verk- efnisstjóm áætlunarinnar ísland án eiturlyfja 2002 féll niður nafn Hrafns Pálssonar, fulltrúa heilbrigðis- og ] tryggingamálaráðuneytisins. Ráðstefna um framtíðar- * skipulag- miðhálendis Islands kl. 9-16. Ráðstefnan hefst með ávarpi Námskeið í náttúruvernd og landvörslu Ur dagbók lögreglunnar 30 unglingar færðir í athvarf 12. til 15. september

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.