Morgunblaðið - 16.09.1997, Page 46

Morgunblaðið - 16.09.1997, Page 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Grettir Tommi og Jenni 7-5 Ferdinand Ljóska Þjóðarátak Frá Guðrúnu Marteinsdóttur: SJÓNVARPSMYNDIN Fikt sem sýnd var 3. september og umræðu- þátturinn í kjölfar hennar voru orð í tíma töluð. Þættimir vora vandað- ir og fræðandi en þótt þar kæmu fram ógnvekjandi upplýsingar var það aðeins brot af þeirri sorg og upplausn, niðurlægingu og uppgjöf sem eiturlyf valda ungu fólki, for- eldram, systkinum, ömmum og öf- um og þjóðfélaginu í heild sinni. Það gladdi mig mjög mikið þegar alþingi og borgarstjórn lýstu yfir átaki gegn eiturlyfjum og skaðleg- um afleiðingum þeirra. Og nú er þjóðin að gera sér grein fyrir því að henni ber að standa vörð um velferð ungviðisins í landinu - dýr- mætustu eign þjóðarinnar, hina komandi kynslóð, framtíð íslands. Eins og fram kom í umræðuþættin- um Hvað um ísland? er augljóst að þörf er á miklu átaki í þessum efn- um og brýnt að allir íslendingar geri sér grein fyrir hættunni. Nú eigum við öll að snúa bökum saman eins og svo oft áður þegar mikið liggur við. Það verður að leysa kennaradeiluna, fóstradeiluna og læknadeiluna og greiða þessu vel menntaða dugnaðarfólki mannsæm- andi laun nú þegar. Allir þessir aðil- ar eru þjóðinni ómissandi og okkur afar nauðsynlegir til að styðja okkur í átakinu gegn fíkniefnum. Þá eigum við að fá í lið með okkur í þessu 5 ára átaki allar kirkjur landsins, presta og söfnuði. Öll góðgerðarfé- lög landsins, Lions, Oddfellow- félögin, Frímúrarar, Barnaspítali Hringsins, Rauði krossinn og Carit- as, svo nokkur séu nefnd, ættu að taka höndum saman næstu 3 árin og leggja málinu lið. Allir ættu að geta lagt fé sem nýta mætti til að byggja upp aðstöðu með sérþjáifuðu starfsliði og þá ekki aðeins á höfuð- borgarsvæðinu heldur víða um land. Eg var mjög ánægð að heyra í umræðuþættinum að þátttakendum þótti það miður að Tindar störfuðu ekki lengur. Ég kynntist starfsem- inni þegar hún fór af stað og þar vora gerðir stórir hlutir fyrstu árin. Þar starfaði sérmenntað ungt fólk sem vissi hvað þurfti að gera í þeirri meðferð sem þar fór fram - hafði sérþekkingu á þörfum unglinganna. Það kunni að beita langtímameðferð á eiturlyfjaneytendur sem höfðu brostnar vonir, sumir einungis 13 til 14 ára gamlir en niðurbrotnir á sál og líkama. Það gat gefið foreldr- um og öðram aðstandendum fræðslu og sálfræðilega hjálp. Það krefst mikillar þolinmæði að vinna traust unglinganna, byggja upp brostnar sálir sem hafa glatað öllu, eiga enga vini, stunda ekki nám, eru án vinnu og þurfa iðulega að afplána fangelsisdóma vegna þjófn- aða eða annars verra. Þessir ungl- ingar búa við óendanlega eymd og það gera einnig foreldrar þeirra sem oft era gjörsamlega ráðþrota og í mörgum tilfellum skelfíngu lostnir. Það væri ekki úr vegi að biðja þá starfsmenn sem störfuðu á Tind- um um aðstoð við að byija upp á nýtt til að hafa betri skilning á því sem þarf að gera. Krísuvíkursam- tökin gætu ef til vill komið að þessu verkefni og þeir fagmenn sem hafa sérmenntun á þessu sviði. SÁÁ hef- ur sannarlega reynt að rétta hjálpar- hönd í þessum efnum og ber síst að draga úr því, en þetta er eins og með hvern annan sjúkdóm, með- ferðir eru mismunandi eftir grein- ingu sjúkdómsins. Þá þarf að koma á stofn sameig- inlegum nefndum en ekki dreifa starfskröftunum því þá er betur hægt að gera sér grein fyrir þörf- inni. Ef til vill væri hægt að fá eina deild á sjúkrahúsum á landsbyggð- inni fyrir bráðameðferð og annað húsnæði fyrir framhaldsmeðferð. Það þyrfti að vera heimilislegt þar sem auðvelt yrði að veita góða að- hlynningu, stunda andlega og lík- amlega uppbyggingu, stundum til langs tíma. Þá þarf að sinna fjöl- skyldunni með heimsóknum og námskeiðum til dæmis um helgar. Vistmenn þurfa á afþreyingu að halda og skólanámi því þeir verða að komast aftur í skólana og stunda þar nám með félögum sínum. Það er að mörgu að hyggja en þegar íslenska þjóðin leggst á eitt, lætur árangurinn ekki á sér standa. Það sannar reynslan. Í þessari upptalningu má ekki gleyma mikilvægu starfí fíkniefna- lögreglunnar og tollvarða. Það starf þarf að efla og fá fleiri þar til starfa ekki síst á landsbyggðinni og þá yrði betra ef við hefðum fleiri hunda. Þjóðin verður kannski að bíða í 3 ár eftir göngum á Vestfjörðum eða sleppa því að kaupa eitt skip eða flugvél til að mæta þessu þjóð- arböli. En við megum ekki láta neitt tækifæri ónotað í viðleitni okkar að bjarga unglingunum - framtíð ís- lands - og grípa hvert tækifæri sem til þess gefst. Ef allir leggja sig fram veit ég að þetta tekst með Guðs hjálp. GUÐRÚN MARTEINSDÓTTIR, fv. hjúkrunarforstjóri, Meistaravöllum 15, Reykjavík. Sæla sálin Frá Aðalheiði Sigurbjörnsdóttur: RÁS 2 gafst upp á þætti sínum - Þjóðarsálinni - enda var hún á mis- skilningi byggð. Þeir sem hringdu (styrktu Póst og síma) voru aðeins og yfírleitt þeir sem höfðu eitt og annað á homum sér og hefði þessi þáttur vel staðið undir nafninu - Meinhomið. Þetta var ekki góð mynd af þverskurði þjóðar en sýndi samt þá hina sem utangarðs og hornreka vora. Hvernig væri að snúa dæminu við og fá gott fólk til að hringja heim til hlustenda og biðja þá að segja álit sitt á hinu og þessu - Orðið laust - og hringja þá helst ekki bara í þá sem alltaf eru í sviðsljósinu, heldur ýmsa aðra. Skemmtilegra er að koma fólki á óvart með svona upphringingu, bjóða því að tjá sig um tiltekið málefni í fullri kurteisi án þess að vera með leiðindavæl og gera jafn- framt ráð fyrir að það vilji ekki neitt um málið segja eða jafnvel lumi á gullkornum án þess að hafa flíkað því. Nöldrarar í útvarpi hafa minnst að segja. AÐALHEIÐUR SIGURBJ ÖRN SDÓTTIR, Skúlagötu 70, Reykjavík. Tvöfaldur jarðarbolti! Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunbiaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.