Morgunblaðið - 16.09.1997, Page 48

Morgunblaðið - 16.09.1997, Page 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 IDAG MORGUNBLAÐIÐ KÓR ÍSLENSKU ÓPERUNNAR auglýsir prufusöng sunnudaginn 21. september kl. 15.00 -17.00. Skráning og upplýsingar í síma 552 7033. ÍSLENSKA ÓPERAN __iiiii HINN HEIMSFRÆGI FÖRÐUNARMEISTARI Sandra Burghardt Ziiutakt tœkihærí til að ijá það ALLKA NýjASTA iem er að gerait í tjöráun í dag og kynnait itörfum Söndru iem er SJÁLFSTÆTT STARFANDÍ í tjörðun hyrir tímarit og iýningar og því óháð öílum SNyRTLVÖRUMCRKJUM. Námikeiðið er OPIÐ ÖLLUM og herþram laugardaginn 20. iept. kl. g-17 í Húii venlunarinnar, 14. hœð. SKRÁNINO OG UPPlýSINGAR CRU í SÍMA 561 6525. HEILÐVERSLUH Skrifstofutækni Markmiö námsins er að þjálfa nemendur til starfa á skrifstofum og er áhersla lögð á tölvugreinar og bókfærslu. Námið er mjög hagnýtt og byggist að verulegu leyti á verklegum æfingum. Námið eykur samkeppnishæfni nemenda og býr þá undir krefjandi störf á vinnumarkaði. Helstu námsgreinar eru: ■ Handfært bókhald ■ Tölvugrunnur ■ Ritvinnsla ■ Töflureiknir ■ Verslunarreikningur ■ Glærugerð ■ Mannleg samskipti ■ Tölvubókhald ■ Internet ■ Lokaverkefni STARFSMENNTUN fjárfesting til framtíðar I Mig langaði að vera vel samkeppnisfær f öllum almennum skrifstofustörfum og eftir vandlega umhugsun valdi ég Tölvuskóla íslands. Par bætti ég kunnáttuna I Word- rítvinnslu og Exceltöflureikni og lærði hand- og tölvufært bókhald, glærugerð, verslunarreikning ásamt undirstöðuatriðum í mannlegum samskiptum og Interneti. Námið er var vel skipulagt og kennsla frábær. Kennt var 3 kvöld í viku 14 mánuði og enginn heimalærdómur. Nú finnst mér ég vera fær í flestan sjól Guðrún Skúladóttir, deildarstjóri, iönaðar- og viðskiptaráöuneyti. Qí Öll námsgögn innifalin Tölvuskóli íslands Bíldshöfða 18 Sími 567-1466 SKÁK Umsjón Margcir Pétursson Hvítur leikur og vinnur STAÐAN kom upp á opnu móti í Algarve í Portúgal. Kanadíski stórmeistarinn Kevin Spraggett (2.575) var með hvítt og átti leik, en heimamaðurinn L. Ga- lego (2.440) hafði svart. 46. Hxg7+! og svartur BBIDS Umsjðn Ouðmundur Páll Arnarson ÞAÐ ER almennt slags virði þegar vörnin neyðist til að spila út í tvöfalda eyðu. Ávinningurinn felst í því að geta trompað öðr- um megin og hent tapspili hinum megin. En hitt er líka tii, þótt ekki sé það algengt, að eina vinnings- von sagnhafa felist í því að trompa á báðum hönd- um!! Svisslendingurinn Jean Besse var sá fyrsti sem vakti athygli á þess- ari spilamennsku á prenti: Norður ♦ KG102 ? DG8 ♦ K643 ♦ K3 Austur ♦ 765 ■ :t * D9865 Suður ♦ 943 ¥ Á93 ♦ D9852 + G2 Suður spilar þijá tígla og fær út smátt hjarta. Átta blinds kostar kóng- inn, sem suður tekur og spilar trompi á kóng. Sagnhafi tekur næst litlu hjónin í hjarta áður en hann spilar aftur trompi. Vestur tekur sína tvo slagi á ÁG í tígli, en reynir síð- gafst upp, því eftir 46. — Kxg7 47. Dc7+ verður svartur mát eða tapar drottningunni. Spraggett er búsettur í Portúgal og er kvæntur þar- lendri konu, sem teflir reyndar líka. Hann og Campos frá Chile sigruðu á mótinu með 6'/2 v. af 8 mögulegum. 85 skákmenn tefldu á mótinu, sem var sérstakt að því leyti að keppt var undir berum himni! Það þýðir lítið fyrir keppendurna í lands- liðsflokki á Skákþingi ís- lands að reyna slíkar kúnstir á Akureyri, þar sem þeir sitja að tafli þessa dagana. Þeir tefla innan- húss, nánar tiltekið í Al- þýðuhúsinu við Skipagötu. Virka daga hefst taflið kl. 17, en síðasta umferðin á laugardaginn kl. 14. an lítið lauf. Sagnhafi hitt- ir á að stinga upp kóng og spilar aftur laufi, sem vestur drepur með ás. Staðan er þá þessi: Norður ♦ KG102 V - ♦ 6 ♦ - Vestur Austur ♦ ÁD8 ♦ 765 V - ♦ - 111 + - ♦ - ♦ 107 * D9 Suður ♦ 943 V - ♦ D9 ♦ ~ Besta vörn vesturs er nú að spila laufi út í tvö- falda eyðu. Og eina svar sagnhafa er að trompa í borði og yfirtrompa heima til að spila svo spaðaníu!! Ef vestur drepur og spilar aftur laufi, trompar suður og svínar síðan fyrir spaðadrottningu. En hvers vegna má sagnhafi ekki henda spað- atvistinum úr borði og trompa heima? Þá gefur vestur þegar spaða er spil- að á tíuna og eina leið sagnhafa heim er á tromp. Sem þýðir að vestur fær laufslag til viðbótar við spaðaásinn. Ennfremur gengur ekki að henda spaðatíu eða gosa úr borði, því það veikir litinn of mikið. Sannarlega óvenjuleg staða. Vestur ♦ ÁD8 ¥ 1042 ♦ ÁGIO ♦ Á1074 VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Lög um klám VELVAKANDA barst eftirfarandi: „Nú er bannað að ganga ber að ofan úti þótt það sé sumarveður og finnst mér óréttlátt að sýna megi fyrirsætur á forsíðum klámblaða um allt en venjuleg kona yrði handtekin af hún sýndi sig svoleiðis á almanna- færi. Mér finnst að það ætti annaðhvort að fram- fylgja lögum um klám eða þá að sýna jafnrétti og allir megi ganga nakt- ir. Mér finnst óréttlátt að sjá myndir fyrir utan Vegas og þess háttar staði en svo má ég ekki klæða mig úr að ofan inni á bensínstöð. Fyrst nekt er orðin svona eðli- leg eins og virðist vera í dag, hver er þá munur á mynd og að sýna sig beran? Ég er búin að lesa lög um klám en það er ekki farið eftir þeim lög- um - hvers vegna? Hvers vegna eru þessi lög þá ekki felld niður? Ég er búin að tala við lögreglu- stjóra og lögfræðinga en enginn getur svarað þessu. Er einhver sem getur svarað þessu?“ Kona á íslandi. Frábær þjónusta Flugleiða á sorgarstundu GJARNAN viljum við koma á framfæri ánægju okkar vegna góðrar þjón- ustu starfsmanna Flug- leiða. Þannig var að tveir Hollendingar, 17 ára gamlir, fengu því miður þá frétt eftir 2ja vikna dvöl hér á Islandi að 16 ára bróðir annars hefði látist af slysförum. Þessi hörmulegu tíðindi bárust skömmu fyrir brottför til Hollands. Fyrir tilstilli starfsmanna Flugleiða var þessi flugferð þeim auðvelduð á allan þann hátt sem mögulegur var. Tekið var tillit til þess að veita þeim næði í sorgum sínum og einnig var hugað að því að dreifa athygli þeirra á meðan á þessu þriggja tíma flugi stóð til Hol- lands. Eins og þið getið ímyndað ykkur, mun sú umhyggja og hlýja sem starfsmenn Flugleiða sýndu þeim á þessari erf- iðu ferð lifa lengi í minn- ingu þessara tveggja unglinga. Fyrir hönd þeirra og foreldra send- um við okkar bestu þakk- ir til Flugleiða. Ágústa A. Þórðardóttir og Leó van Beek. Tapað/fundið Barnaflísúlpa í óskilum BARNAFLÍSÚLPA fannst í Hlíðunum. Uppl. í síma 588 9250. Dýrahald Hringur er týndur HRINGUR hefur ekki komið heim til sín að Markarflöt 26 í Garðabæ síðan 26. ágúst. Hann er grábröndóttur og hvít- ur, 11 mánaða, ómerktur en svarar nafninu sínu. Hans er sárt saknað og bið ég þá sem vita um Hring að hafa samband við mig, Auði Eddu, í síma 565 7466. MORGUNBLAÐIÐ birt- ir tiikynningar um af- mæli, brúðkaup, ættar- mót o.fl. lesendum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að ber- ast með tveggja daga fyr- irvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælis- barns þarf að fylgja af- mælistilkynningum og eða nafn ábyrgðar- manns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329. Einnig er hægt að skrifa: Dagbók Morgunblaðsins, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Víkverji skrifar... BLAÐAMENN reka sig oft á að það er ekki alltaf sama hvaða orð þeir nota. Eitt orð getur stund- um valdið misskilningi eða pirrað lesendur. Þetta varð Víkveiji var við þegar Morgunblaðið fjallaði um boðað verkfall leikskólakennara. í fyrirsögn um kjaradeiluna var talað um að yfir 14 þúsund börn ættu á hættu að missa „gæslu“. Leikskóla- kennari hafði samband við blaðið 0g kvartaði undan þessu orði og benti á að leikskóli væri skóli og því fæli starf leikskólakennara í sér kennslu. Að lýsa starfi leikskóla- kennara sem „gæslu“ væri móðg- andi við stéttina. xxx VÍKVERJI getur tekið undir að heppilegra hefði verið að nota annað orð til að lýsa starfi leikskóla- kennara. Óhætt er að hvetja alla fjölmiðlamenn til að hafa þetta í huga og nota ekki orðið „gæsla“ um störf leikskólakennara í þeim fréttum sem þeir eiga eftir að flytja af kjaradeilunni á næstu dögum og vikum. Ef í leikskólum fer fram kennsla, sem Víkveiji efast ekki um að sé tilfellið, vaknar sú spurning hvort öll börn hafi jafnan aðgang að þessari menntun. Ríkir jafnrétti til náms á leikskólastiginu? Mörg börn fara á mis við þessa menntun og foreldrar greiða mishá gjöld fyr- ir menntun leikskólabarna. Þessar spurningar hljóta að skipta máli nú þegar lögð er áhersla á að bæta menntun leikskólakennara og fá leikskólann viðurkenndan sem menntastofnun. XXX VÍKVERJI kom fyrir skömmu við á Þingvöllum og naut þar náttúrufegurðarinnar í góðu veðri. Öxará er tvímælalaust ein af perl- um þjóðgarðsins, en það verður að segjast að mikið vantar á að um- gengni um hana sé nægilega góð. Brúin við Þingvallabæinn er ein- staklega lúin og löngu tímabært að gera á henni endurbætur. Hún er raunar stórhættuleg því að yfír hana fara bílar og gangandi fólk án þess að það sé pláss fyrir báða aðila samtímis. Víkveiji varð hins vegar afar undrandi að sjá að skólp er enn leitt í Öxará. Rétt fyrir neð- an Þingvallabæinn er stór og áber- andi skólpleiðsla og frá henni renn- ur skólp sem litar ána. Það er í sjálfu sér ekkert undarlegt að menn hafi á sínum tíma freistast til að láta skólpið renna í ána, en að það skuli ekki vera búið að laga þetta árið 1997 er stórfurðulegt. Það hlýtur að vanta eitthvað upp á for- gangsröðun hjá Þingvallanefnd og þjóðgarðsverði að láta þetta við- gangast.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.