Morgunblaðið - 16.09.1997, Síða 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Ofur-
mennið
trúlofað
LEIKARINN Dean Cain sem
leikur Ofurmennið í samnefnd-
um sjónvarpsþáttum hefur
beðið unnustu sinnar, kántrý-
söngkonunnar Mindy McCrea-
dy, og hefur hún játast honum.
Hann mun því væntanlega
leggja sokkabuxunum og
herðaslánni fyrir sparifótin ef
að líkum lætur og hjúin ná upp
að altarinu. „Ég er mjög
formlegur og íhaldssamur
strákur," sagði Cain. „Ég veit
alveg hvemig hring ég ætla að
gefa henni en ég vildi ekki bíða
með bónorðið þótt hann vant-
aði.“ Hann ku hafa rennt ein-
hvers konar brauðhring á hönd
sinnar heittelskuðu sem er lík-
lega fegin að laukhringir voru
ekki á boðstólum þetta kvöld.
Hún sagðist ætla að geyma
hringinn til að sýna börnum
þeirra hvers konar kjáni pabbi
þein-a væri.
Það var móðir hins 31 árs
gamla Cain sem kynnti hann
fyrir McCready, sem er 21
árs, á verðlaunahátíð kán-
trýtónlistar fyrir nokkrum
mánuðum. Nákvæm tímasetn-
ing brúðkaupsins hefur ekki
verið ákveðin en það verður á
næsta ári.
WtEMSÉSTEMk.
Hil ukerf
Bolta- og skrufufritt kerfi
Hillukerfi fyrir lagerinn,
bílskúrinn og geymsluna
Auðvelt í uppsetningu
Fagleg radgjof
Hagstætt verd
Isoldehf.
Faxafeni 10 • 108 Reykjavik
Sími5811091 • Fax 553 0170
Tískusýning í Ráðhúsinu
Föt fyrir
íslenskar aðstæður
FÓLK í FRÉTTUM
BLÓMARÓSIN
Berglind
Ólafsdóttjr.
FYRIRSÆTUR úr Eskimo Models. Lengst t.v. sýnir Sóley
dragt, en hún er jafnframt dóttir Önnu Gullu.
YLVA Marín, Sóley Kristjánsdóttir, Anna Gulla,
Valur Kristjánsson og Ellý í Q4U.
LITLU stúlkurnar Arna Margrét og Ylva Marín
ganga með Berglindi Ólafsdóttur fram á sviðið.
á
Þriðjud. 16. sept.
Kl. 17.00 Síðdegisdjass á
Jómfrúnni: Jassklúbbur
RúRek: Tríó Grétu
Þórisdóttur.
Kl. 21:00 Briem, Hubbard,
Smith og Lockett í Súlnasal
Hótel Sögu.
Kl. 22:00 RúRek á
miðnætti: Spuni í tali og
tónum á Jómfrúnni við
Lækjargötu.
Miðasala
i Japis Brautarholti
Miðapantanir
í síma 551 0100.
Námufélagar landsbankans fá afslátt.
►ANNA Gulla útskrifaðist sem
fatahönnuður úr Columbine-skól-
anum í Kaupmannahöfn árið 1985.
Hún hélt tískusýningu í Ráðhúsi
Reykjavíkur síðastliðið fimmtu-
dagskvöld og mættu um 300 boðs-
gestir til að fylgjast með.
„Þetta var haust- og vetrarfatn-
aður fyrir veturinn sem fer í hönd
og miðast hann við íslenskar að-
stæður," segir Anna Gulla. „Satt
best að segja eru fótin sem sýnd
voru á fimmtudag uppseld, en ég
er á fullu að láta framleiða fyrir
verslunina Flex í Bankastræti, sem
mun sjá um að selja fötin.“
Sýningarstúlkurnar voru frá
Eskimo Models og auk þess kom
Berglind Ólafsdóttir fram. Ellý í
Q4U sá um að hanna og smíða
sviðsmyndina, Edda Sverrisdóttir í
Flex var kynnir og Dísa í World
Class var sýningarstýra.
„Mér fannst þetta ganga ævin-
týralega vel upp og þær viðtökur
sem ég hef fengið frá fjölmiðlafólki
eru langt framar öllum vonum,"
segir Anna Gulla. „Svo á maður
eftir að sjá hvernig annað fólk tek-
ur við sér,“ bætir hún við og hlær.
M E í 4 N I N 1 í :W * o A R||L E G A R
EIN með öllu er kölluð heitur
hundur („Hot dog“) í Bandarílq-
unum. Þessi merkilegi matur var
fyrst kynntur þar í landi á Heims-
sýningunni í St. Louis árið 1904 en
það var ekki fyrr en árið 1916 sem
maður að nafni Nathan Handwerker
kom á fót fyrsta pylsustandinum.
Hann fékk lán frá þeim Eddie Cantor
og Jimmy Durante og byrjaði að selja
á Coney Island. Þessar upplýsingar
og fleiri verða aðaluppistaðan í heim-
ildarmynd sem tveir ungir menn í
New Jersey eru að gera um fyrirbær-
ið pylsu í brauði.
Gerry Beyer og Chris Patak telja
pylsuna sérstakan hluta af menn-
ingarsögu lands síns og vilja heiðra
hana með heimildarmyndinni
„Footlong". Þeir benda t.d. á að ár-
ið 1995 keyptu Bandaríkjamenn
P Y L S u R
næstum 400 milljón kíló af pylsum
svo þær eru greinilega vinsæl fæða.
I heimildarmyndinni munu Beyer
og Patak m.a. heimsækja pylsu-
vagna víðs vegar um Bandaríkin.
Þeir hafa þegar smakkað pylsurnar
hjá Oscar Meyer WienerMobile
sem hefur ekið um götur Chicago
síðan árið 1936 og selt íbúum eina
með öllu. Bíllinn er að sjálfsögðu
eins og pylsa í brauði í laginu.
Einnig hafa Beyer og Patak lagt
leið sína til Los Angeles og skoðað
Pink’s Chilidog en þangað fara
Hollywoodstjörnurnar þegar þær
þrá heitan hund.
Þeir félagar Beyer og Patak taka
vinnuna við heimildarmyndina
mjög alvarlega. Beyer lagði
meira að segja á sig að taka þátt
í pylsukappáti sem hefur verið
haldið 82 sinnum á Coney Island til
heiðurs Nathan Handwerker. Beyer
lenti nánast í síðasta sæti. Hann
borðaði 10 pylsur á 12 mínútum en
sigurvegarinn, Hirofumi Nakajima
frá Japan, torgaði 24 og hálfri á
sama tíma.
Ein með öllu var reyndar ekki
kölluð „hot dog“ til að byrja með.
Það nafn er rakið til teiknarans Tad
Dorgan. Árið 1906 var hann á hafna-
boltaleik og sá sölumenn sem buðu
fólki heitar greifingjahundssamlok-
ur. Dorgan sem teiknaði skissu af
berlegheitunum kunni ekki að staf-
setja „dachshund" svo hann skrifaði í
staðinn „hot dog“ á myndina.