Morgunblaðið - 16.09.1997, Síða 60
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN I, 103 REYKJAVlK, SÍMI 569 1100, SlMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, / AKUREYRl: KA UPVANGSSTRÆTI 1
ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Mikill reykur o g eldur í húsbruna við Grenimel
Fullorðmim karl-
manni vart hugað líf
FULLORÐNUM manni var vart hugað líf eftir
bruna á fyrstu hæð í fbúðarhúsi við Grenimel á
tíunda tímanum í gærkvöldi. Eiginkona hans
hlaut reykeitrun. Ekki voru aðrir í íbúðinni. Þrír
af efri hæð fengu áfallahjálp eftir brunann.
Þráinn Tryggvason, aðalvarðstjóri í slökkvilið-
inu í Reykjavík, sagði að íbúi í kjallara hússins
hefði fyrst orðið var við eldinn og beðið íbúa á
annarri hæð um að kalla eftir aðstoð. Tilkynning
barst lögreglunni kl. 21.48 í gærkvöldi. Slökkvi-
lið, ásamt lögreglu og sjúkraliði, kom að húsinu
skömmu síðar. Reykkafarar köfuðu eftir íbúun-
um og reyndist kona hafa fengið reykeitrun og
karlmaður hlotið mjög alvarleg brunasár. Konan
var flutt á slysadeild og karlinn á Landspítalann.
Mikill reykur var í íbúðinni, en mestur eldur á
ganginum, þegar slökkviliðið kom að. Greiðlega
gekk að slökkva eldinn og var slökkviliðsstarfinu
lokið um kl. 22. íbúðin er töluvert skemmd. Eng-
ar skemmdir urðu í öðrum íbúðum í húsinu. Þrír
af efri hæð fengu áfallahjálp eftir brunann. Á
miðnætti var ekki vitað um eldsupptök.
Á slysadeild fengust upplýsingar um að konan
væri enn í rannsókn. Líðan hennar var eftir atvik-
um góð rétt fyrir miðnætti. Samkvæmt upplýs-
ingum lækna á Landspítalanum var maðurinn
mjög illa brenndur og var honum vart hugað líf.
LÖGREGLA og slökkvilið voru með mikinn viðbúnað á slysstað og girtu svæðið af í gærkveldi.
Morgunblaðið/Kristinn
Landsbanki og
Búnaðarbanki
Rætt um að
auka hlutafé
um 5-10% í
upphafi
RÆTT hefur verið um að selja
nýtt hlutafé í Landsbankanum og
Búnaðarbankanum, sem nemi
5-10% af heildarhlutafé, strax á
^ fyrstu mánuðum næsta árs eða eft-
' ir að uppgjör vegna ársins 1997
liggur fyrir.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er gert ráð fyrir að selja
bréfín með áskriftaraðferð þannig
að allur almenningur geti skrifað
sig fyrir bréfum. Hluthafar muni
því strax í upphafí geta skipt hundr-
uðum eða þúsundum í hvorum
banka.
Eins og fram kom á stofnfund-
um hlutafélaganna um ríkisbank-
ana í síðustu viku er stefnt að
skráningu þeirra á Verðbréfaþingi
^* íslands. Gert er ráð fyrir að laga-
heimild til útboðs og sölu á nýju
hlutafé verði nýtt í þessu skyni.
Með þessu er ætlunin að tryggja
aðhald og aga í rekstri bankanna,
en um leið leggja grunn að mark-
aðsvirði bankanna til að auðvelda
ákvarðanir um frekari eiginfjáröfl-
un.
Ríkisbankarnir/30-31
Þyrla Þyrluþjónustunnar fórst við Hamarsfjörð
Hrapaði skyndi-
lega úr lítilli hæð
EINN maður lést þegar þyrla frá
Þyrluþjónustunni fórst inn af Ham-
arsfirði í S-Múlasýslu á sunnu-
dagskvöld. Björgunarmenn frá
Djúpavogi gengu við erfiðar að-
stæður upp bratta fjallshlíðina og
báru lík hins látna niður af fjall-
inu. Ekki er ljóst hvers vegna þyrl-
an fórst, en hún hrapaði úr lítilli
hæð.
Þyrlan var að aðstoða bóndann
á Bragðavöllum við að flytja hrein-
dýraskrokka ofan af
fjallinu niður í Hamars-
dal þegar slysið varð.
Bóndinn var nýstiginn
úr þyrlunni og sneri baki
í hana þegar hún hrapaði
skyndilega til jarðar.
Ekki er vitað um orsakir
slyssins, en þyrluspaðinn
losnaði af og lá 20-30
metra frá þyrlunni þegar
björgunarmenn komu á
staðinn.
Þrekvirki við björgun
Bóndinn hringdi eftir
hjálp úr síma sem var í
þyrlunni. Björgunarsveitarmenn
frá Höfn, Djúpavogi, Stöðvarfirði,
Breiðdalsvík og Fáskrúðsfirði
voru kallaðir út og björgunarþyrl-
an TF-SIF lagði af stað frá
Reykjavík.
Þyrlan neyddist til að snúa við
vegna ísingar og var TF-LIF þá
send á loft eftir að Loftferðaeftir-
litið gaf leyfi til að nota hana.
Þyrlan lenti á Höfn í Hornafirði
um miðnætti og var snúið við þar
Þyrluflug-
maðurinn
sem lést
FLUGMAÐUR þyrlunnar
hét Jón Freyr Snorrason
til heimilis í Skógarási 2 i
Reykjavík.
Jón Freyr var fæddur
19. janúar árið 1963. Hann
lætur eftir sig eiginkonu,
Svövu Huld Þórðardóttur,
og níu ára dóttur, Kol-
brúnu, frá fyrra sambandi.
Morgunblaðið/Kristinn
Karlamir
og tunglið
ENGU var líkara en karlarnir
í götuvitanum væru komnir
langleiðina til tunglsins í gær-
kvöldi þegar ljósmyndarinn
náði þessari skemmtilegu mynd
af fullu tungli sem bar við
umferðarljós á einum götuvita
borgarinnar.
þegar læknir hafði úrskurðað
flugmanninn látinn.
Aðstæður til björgunar voru
mjög erfiðar, en flakið var í tæp-
lega 800 metra hæð. Björgunar-
menn frá Djúpavogi fóru á slysstað
upp bratta ijallshlíð. Þeir þurftu
að fara yfir gil og klettabelti og
segir Guðmundur Björgvinsson,
læknir á Djúpavogi, að hann hafi
óttast að slys yrðu á fólki í björgun-
arleiðangrinum. Myrkur og snjó-
koma gerðu björgunar-
mönnum erfitt fyrir.
Björgunarmenn voru
rúmar sjö klukkustundir
í leiðangrinum og segir
Ólafur Ragnarsson,
sveitarstjóri á Djúpavogi,
að þeir hafi unnið þrek-
virki.
Vegna veðurs var ekki
unnt að fara upp að flak-
inu í gær. Flugslysanefnd
stefnir að því að fara á
slysstað í dag.
Gengu í/4
Aðstæður/6
Nýttal-
heims-
farsíma-
kerfi
UM SÍÐUSTU helgi var skot-
ið á loft eldflaug frá Kazak-
stan með sex gervitunglum
sem eiga að þjónusta fyrsta
alheimsfarsímakerfið, Irid-
ium. Kerfið verður að öllum
líkindum ræst í lok næsta
árs, að sögn Hrefnu Ingólfs-
dóttur, upplýsingafulltrúa
Pósts og síma. Notendur
verða með handsíma og verð-
ur hægt að hringja I og úr
símanum hvar sem hann er
á jörðinni.
Þegar komin 29 tungl á
braut um jörðu
Alls verður skotið á loft
66 gervitunglum en þegar
eru 29 tungl komin á braut
um jörðu. Nokkrar þjóðir
standa saman að Iridium-
samstarfinu, þar á meðal
Bandaríkjamenn, Rússar og
Kínverjar. Einn stærsti hlut-
hafinn í samstarfinu er fyrir-
tækið Motorola, sem er m.a.
stór framleiðandi farsíma.
Motorola setti upp eftirlits-
stöð í Snjóholti í Eiðaþinghá
og sér Póstur og sími um
rekstur hennar. Hlutverk
stöðvarinnar er að fylgjast
með brautum gervitunglanna
en símaumferð fer ekki í
gegnum hana.
Talið er líklegt að mínútan
í þessu nýja farsímakerfi kosti
um þijá dollara, eða um 213
ÍSK.