Morgunblaðið - 22.10.1997, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 1997 15
LANDIÐ
Kosið um sameiningu
í Vestur-Húnavatnssýslu
Sameining í V-Húnavatnssýslu
| Fjöldi íbúa 1977-96! 1977 1986 1996
Þverárhreppur v ‘ 170 115 79
Kirkjuhvammshreppur 142 137 88
Hvammstangahreppur 484 674 649
Þorkelshólshreppur 203 194 145
Ytri-Torfustaðahreppur 236 249 222
Fremri-Torfustaðahreppur 114 85 56
Staðarhreppur 130 114 99
SAMTALS \ 1.479 1.723 1.444
Laugarbakkaskóli og Vesturhópsskóli
Kirkjuhvammshreppur _ LaugarbakkaskóN __
Hvammstangahrepptir Gmnnskóli Hvammstanga
Þorkelshólshreppur ___ Laugarbakkaskóli
Ytri-Torfustaðahreppur Laugarbakkaskóji
Fremri-Torfustaðahreppur Laugarbakkaskóli
Staðarhreppur
Laugarbakkaskóli og Barnaskóli Staðarhrepps
Skólaárið 1996-97
Nemendur Stöðugildi kennara
Gmnhskóli Hvamrtistanga 110 11,0
Laugarbakkaskóli 92 10,9
Barnáskóli Staðarhrepps 21 2,8
Vesturhópsskóli 10\ 2,0
Umtalsverðir kostir
virðast fylgja samein-
ingu sveitarfélaga í
V estur-Húnavatns-
sýslu. Karl Sigurgeirs-
son lýsir hér því starfi
sem unnið hefur verið í
tæp tvö ár, til undirbún-
ings sameiningar sveit-
arfélaga í héraðinu og
rekur þá kosti og galla
sem sameining hefði í
för með sér.
Hvammstanga - Frá ársbyijun
1996 hefur starfshópur unnið að
undirbúningi að sameiningu allra
sveitarfélaga í Vestur-Húnavatns-
sýslu, en þar eru nú sjö hreppar.
Nefndin hefur gefið út þijú frétta-
bréf til að upplýsa héraðsbúa um
gang mála og einnig til að miðla
upplýsingum um stöðu mála í hér-
aðinu og einstaka málaflokka.
Undimefndir hafa verið að störf-
um, fjárhagsnefnd, skólanefnd og
afréttarnefnd.
Starfsmaður var ráðinn tíma-
bundið, Haraldur Líndal Haralds-
son hjá Rekstri og ráðgjöf. Hans
hlutverk var að gera úttekt á
rekstri og stöðu einstakra sveitar-
félaga og skólum í héraðinu. Einn-
ig að setja fram tillögur um fyrir-
komulag einstakra málaflokka í
nýju sveitarféiagi.
Haldnir hafa verið margir kynn-
ingarfundir meðal sveitarstjórna,
bæði sameiginlegir og með ein-
stökum sveitarstjórnum. Ljóst er
að sum sveitarfélög standa illa
fjárhagslega og standa vart undir
skuldbindingum sínum. Einnig eru
sum sveitarfélög orðin fámenn og
almennt fækkar fólki í héraðinu. A
tímabili var Bæjarhreppur, innsti
hreppur í Strandasýslu, með í við-
ræðunum, en hann hefur nú dreg-
ið sig út úr þeim. Bæjarhreppur
er nú í samstarfi við sveitarfélög
í Vestur-Húnavatnssýslu um rekst-
ur heilsugæslu og sjúkrahúsið á
Hvammstanga.
Fram hefur komið að skipun
skólamála í sameinuðu sveitarfé-
lagi er fólki mjög huglæg. Reknir
eru nú tveir grunnskólar, frá
1,—10. bekk í héraðinu, á Hvamms-
-----------------------------
Rcropriimt®
STIMPILKLUKKUR
Sala og þjónusta
Otto B. Arnar ehf.
ÁRMÚLA 29 • 108 REYKJAVÍK
SÍMI 588 4699 • FAX 588 4696
tanga og á Laugarbakka. Einnig
eru tveir minni skólar fyrir yngri
nemendur, í Staðarhreppi, sem
tekur einnig við börnum úr Bæjar-
hreppi, og annar skóli í Þverár-
hreppi.
Gert er ráð fyrir í tillögum ráð-
gjafafyrirtækisins, að með sam-
rekstri skólanna mætti fækka
stöðugildum í 16 og ná þannig
fram umtalsverðum sparnaði.
Fram kemur að skólaakstur myndi
aukast og m.a. tekinn upp akstur
á nemendum frá Hvammstanga til
kennslu á Laugarbakka, en það
yrði nýbreytni. Núna er öllum
skólabörnum ekið til Laugarbakka-
skóla, nema nemendum búsettum
á Laugarbakka. íþróttakennsla í
héraðinu fer öll fram í nýlegu
íþróttahúsi á Laugarbakka, þar er
einnig lítil sundlaug, en á
Hvammstanga er 25 m sundlaug
með góðri aðstöðu. í Reykjaskóla
við Hrútafjörð er sundlaug og
íþróttasalur sem komin eru nokkuð
á aldur. Á Hvammstanga er rekinn
leikskóli. Talsvert samstarf hefur
verið innan héraðsins á vegum
Héraðsnefndar. Má þar nefna tón-
listarskóla, brunavarnir, heilsu-
gæslu og sjúkrahús, söfn o.fl. Hér-
aðsnefnd er skipuð níu mönnum
og þar af þremur frá Hvamms-
tanga. Heyrast raddir um að skip-
an mála hjá Héraðsnefnd sé ekki
réttmæt þar sem frá Hvamms-
tangahreppi komi yfir 50% af
framlagi hreppanna.
Vestur-Húnavatnssýsla er
greiðfært hérað og mestu vega-
lengdir út frá Hvammstanga eru
40-50 km. Héraðið er samstætt á
margan hátt hvað félagsuppbygg-
ingu varðar og héraðið er eitt at-
vinnusvæði. I tillögum um stjórn-
skipun í sveitarfélaginu er gert ráð
fyrir að fækka fólki í hinum ýmsu
nefndum úr 250 í 50. Ekki er gert
ráð fyrir verulegum sparnaði af
þessum völdum, þar sem mikið af
þessum störfum eru í sjálfboða-
vinnu. Stjórnsýsla sameinaðs sveit-
arfélags yrði á Hvammstanga.
Aðalrök sameiningarsinna eru
að stóraukið fjármagn frá Jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga fengist inn
í hið nýja sveitarfélag, 36,9 milljón-
ir kr. í stað 21,1 milljónar á árinu
1996, sem er hækkun um 15,7
millj. króna. Umtalsverður spamað-
ur gæti náðst í samrekstri skól-
anna, 8-10 milljónir króna, og
nokkur í stjómsýslu. Virðistþví ljóst
að verulegur fjárhagsávinningur er
af sameiningunni. Einnig er fullyrt
að öflugt sveitarfélag standi mun
betur að vígi í eflingu byggðar í
héraðinu, m.a. með aukinni atvinnu
og aukinni þjónustu sem sífellt er
að aukast af hálfu sveitarfélaga.
Um aukna skattheimtu á íbúa dreif-
býlisins við sameiningu er haldið
fram að hún muni hvort sem er
aukast án sameiningar, þar sem
mörg sveitarfélögin vanti nú þegar
tekjur til að standa undir lögbundn-
um gjöldum og gerðum skuldbind-
ingum.
Aðalrök mót sameiningu eru að
skattar og fasteignagjöld muni
hækka í dreifbýlinu, stjómsýslan
muni færast frá einstökum sveitum,
óvissa um skólamál og akstur skóla-
barna og óvissa um þjónustustig
til dreifðari byggða héraðsins. Á
Hvammstanga heyrast m.a. þær
raddir að sameining muni tefja fyr-
ir byggingu íþróttahúss sem margir
setja efst á óskalistann í næstu
framkvæmd sveitarfélagsins.
Kosning um sameiningu allra
hreppa í V-Hún. verður hinn 29.
nóvember nk. en kynningarfundir
verða í öllum hreppunum frá 20.
okt. til 13. nóvember. Ef íbúar
sumra sveitarfélaga samþykkja
sameiningu en önnur ekki, verður
boðað til kosningar að nýju um
sameiningu þeirra sem samþykktu
í fyrri umferð. Skal það gert innan
tveggja mánaða.
Morgunblaðið/Sig. Fannar
GRAHAM Bell, alþjóðleg-
ur kennari _ í vistmenn-
ingu, og Óðinn Helgi
Jónsson, framkvæmda-
stjóri Sólheima.
Yistmenn-
ingin
blómstrar
áSól-
heimum
Selfossi - Graham Bell, einn
af kunnustu alþjóðlegu kenn-
urum í vistmenningu og ráð-
gjafi um sjálfbæran búskap í
borg og sveit, hélt fyrirlestur
á Sólheimum í Grímsnesi.
Fyrirlesturinn fjallaði um
vistmenningu og hvernig ein-
staklingurinn getur tekið þátt
í að leysa umhverfisvandamál
samtímans og notið ávaxta
náttúrunnar um leið.
Graham er skoskur og
hann hefur ferðast um heim-
inn og leiðbeint fólki um
framkvæmd vistmenningar.
Graham segir að á íslandi séu
mikil tækifæri til þess að lifa
vistvænu lífi. íslendingar eru
í góðri snertingu við náttúr-
una og geta þess vegna til-
einkað sér hinar ýmsu leiðir
til þess að fella matvælarækt
og mannvist inn í hringrás
náttúrunnar. Graham telur
að með réttum aðferðum geti
einstaklingurinn gert sjálfan
sig ábyrgan fyrir lífi sínu og
í leiðinni aukið skilning sinn
á raunverulegum þörfum ein-
staklingsins.
Á vori komandi er fyrir-
hugað að Graham haldi fyrsta
námskeiðið í vistmenningu á
íslandi. Námskeiðið verður
haldið í væntanlegri fræðslu-
miðstöð Sólheima. Graham
hyggst nota þessa heimsókn
til landsins til þess að afla
sér upplýsinga um aðstæður
á íslandi, gróðurfar, landslag
og veðráttu. Hann mun síðan
nýta sér þessar upplýsingar
til gerðar námsgagna fyrir
væntanlegt námskeið.
Sterk kona er styrkurjlokksins!
r
• •
AJhemum R lista skattana.
HJúkrunarheimiliJyrir aldraða.
EJlum umferðarkerjið.
Aukum öryggi borgaranna.
Umhverjismál í öndvegi.
Kjósum öflugan málsvara
sjálfstæðisstefnunnar!
Styðjum Jónu Gröu í 3. sætið!
Komúitgmhifsíúfmi er á SuðuHandsbmut 22 * Símí 588 5230 Stuðningsmmm