Morgunblaðið - 11.12.1997, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bömum dæmdar bætur
vegna ofbeldis föður
Sviðaskúr
Sölufélags-
ins brann á
Blönduósi
STEFNENDUR bjuggu um langt ái’abil við andlegt og líkamlegt of-
beldi af hálfu stefnda á sameiginlegu heimili þeirra og stefndi hefur
vanrækt þau bæði hvað varðar framfærslu og umönnun. Stefndi er
dæmdur til að greiða hverju þeirra tvær milljónir króna í miskabæt-
ur, segir m.a. í niðurstöðum Héraðsdóms Reykjavíkur í máli þriggja
systkina gegn fóður þeirra en dómur var kveðinn upp í fyrradag.
VERIÐ er að skoða hvort hægt verður að setja hér saman 50 Subaru
Libero rafbfla sem seldir yrðu hérlendis.
Fimmtíu rafbílar
settir saman
hér á landi?
EVRÓPSKT fyrirtæki hefur
haft samband við nefnd um nýt-
ingu innlendra orkugjafa með
tilboð um að hér verði settir
saman bflar sem knúnir verða
vetni eða rafmagni. Hjálmar
Árnason, alþingismaður og for-
maður nefndarinnar, segir að
hér sé tækifæri fyrir íslendinga
til að stíga mikilvægt skref f
því að minnka útblástur gréð-
urhúsalofttegunda.
Fyrirtækið, sem Hjálmar vill
ekki nafngreina að svo stöddu,
býður íslendingum samstarf
um að setja saman 50 bfla frá
Subaru, litla sendibfla eða bita-
box sem nefnast Libero og geta
tekið sex manns í sæti. Yrðu
það rafbflar eða knúnir vetni
framleiddu úr raforku.
80 km hámarkshraði
Með þannig búnaði geta þeir
ekið um 80 km á hleðslu og náð
um 80 km hraða og segir
Hjálmar að verð þeirra verði
undir tveimur milljónum króna.
Er þar ekki gert ráð fyrir
breytingu á aðflutningsgjöldum
fyrir rafbíla.
Hugmyndin er að kaupa bfl-
hlutina, setja þá saman hér og
bjóða til sölu hérlendis, bæði
opinberum aðilum og á almenn-
um markaði. Ekki sé búist við
að um mikla fjárfestingu sé að
ræða. Takist samstarf um verk-
efnið og gangi framleiðslan vel
segir Hjálmar að búast megi
við að Islendingum verði fadin
samsetning til sölu í öðrum
löndum.
Tækifæri til nýsköpunar í
atvinnulffinu
Hjálmar segir að með því að
ýta undir notkun vetnis- eða
rafknúinna bfla megi stíga mik-
ilvæg skref til að draga úr út-
blæstri gróðurhúsalofttegunda
en um þriðjungur hans hérlend-
is kemur frá bflum. Hér sé
einnig tækifæri til nýsköpunar í
atvinnulffi og uppbyggingu
dreifikerfis fyrir vetni og ann-
ars er lýtur að þjónustu rafknú-
inna bfla.
Málið hefúr þegar verið
kynnt iðnaðarráðherra og verð-
ur rætt f nefndinni á næstunni
en til þess hefur ekki unnist
tími ennþá þar sem erindið hef-
ur nýlega borist nefndinni.
Gangi þessar hugmyndir eftir
er hugsanlegt að fyrstu bflarnir
komist á götuna á miðju næsta
ári.
1018:30
Surrr fyrrr tækí eru opín fengur.
KRINGMN
Málið var höfðað á hendur mann-
inum vegna andlegs og líkamlegs
ofbeldis sem þau töldi hann hafa
beitt þau og móður sína. Hann er
Asíumaður en með íslenskan ríkis-
borgararétt. Bömin eru fjögur, elst-
ur er drengur og síðan þrjár systur
en sú yngsta átti ekki aðild að mál-
inu. Ríkissaksóknari gaf út kæru
vegna málsins en móðir stefnenda
dó áður en málinu var lokið eftir
langvarandi krabbameinsveikindi.
I endurriti úr dómabók Héraðs-
dóms lýsa stefnendur málsástæðum
sínum svo: „Allt frá unga aldri og
fram til vormánaða 1991, er stefndi
hvarf af sameiginlegu heimili hans
og stefnenda, máttu stefnendur búa
við líkamlegt harðræði, barsmíðar
og spörk, og andlega kúgun af gróf-
asta tagi af hálfu stefnda. Þessar
misþyrmingar stefnda gagnvart
bömum sínum áttu sér stað nánast
á hverjum degi um árabil eða í allt
að einn og hálfan áratug og ætíð af
litlu sem engu tilefni. Bömin máttu
auk þess, ýmist hvert og eitt eða öll
saman, horfa upp á alvarlegar and-
legar og líkamlegar misþyrmingar
föður þeirra gagnvart móður þeirra
og systkinum. Þá kom það ennfrem-
ur oft fyrir að stefndi hélt mat vís-
vitandi frá fjölskyldu sinni eða ein-
stökum meðlimum hennar, gagn-
gert í þeim tilgangi að refsa þeim
fyrir einhver atvik eða hegðun sem
honum mislíkaði. Hafði bamavemd-
arnefnd Reykjavíkur meðal annars
afskipti af heimilinu vegna ábend-
inga frá ... skóla og gruns um of-
beldi stefnda gagnvart börnum sín-
um.“
Fjarri öllum sanni
Stefndi mótmælti þessum lýsing-
um og taldi fjarri öllum sanni að
hann hefði vanrækt uppeldis- og
framfærsluskyldur sínar gagnvart
stefnendum. Sagði hann að hér væri
um að ræða fullyrðingar af hálfu
stefnenda sem hann ætti erfitt með
að1 verjast og benti á að ekki lægju
fyrir læknisfræðileg gögn til stuðn-
ings fullyrðingum þeirra.
Niðurstaða Héraðsdóms Reykja-
víkur er sú að sannað þyki að stefn-
endur hafi búið við andlegt og lík-
amlegt ofbeldi, stefndi hafi vanrækt
framfærslu þeirra og umönnun og
að þetta muni setja mark sitt á líf
stefnenda hér eftir. Taka beri
miskabótakröfu þeirra til greina og
er niðurstaða dómsins að henni sé
stillt í hóf. Stefndi er dæmur til að
greiða systkinunum þremur tvær
milljónir króna hverju með dráttar-
vöxtum frá dómsuppsögudegi til
greiðsludags. Þá er hann dæmdur
til að greiða stefnendum 1.250 þús-
und krónur í málskostnað. Dóminn
kváðu upp héraðsdómaramir Am-
grímur Isberg og Guðjón St. Mar-
teinsson og Siguijón Björnsson sál-
fræðingur.
Blönduósi. Morgunblaðið.
ELDUR kom upp í svíðinga-
skúr Sölufélags Austur-Hún-
vetninga á Blönduósi í fyrra-
dag þegar verið var að svíða
kindahausa.
Slökkviliðinu tókst á skömm-
um tíma að ráða niðurlögum
eldsins en töluverðar skemmdir
urðu á skúrnum og er hann að
öllum líkindum ónýtur.
Sex mínútna viðbragðstími
slökkviliðsins
Slökkviliðið á Blönudósi þarf
sem betur fer ekki að fást við
bruna á hveijum degi þannig
að góð mynd fékkst á það
hversu vel þjálfað slökkviliðið
er og að sögn Braga Árnason-
ar, slökkviliðsstjóra, tók það
um sex mrnútur frá því að boð
bárust um eld þar til slökkvilið-
ið var mætt á staðinn.
Sem dæmi um hversu vel
kerfið virkaði þá þurfti einn
starfsmaður SAH, sem jafn-
framt er slökkviliðsmaður og
vinnur í húsinu við hliðina á
skúrnum sem brann, að hverfa
af vettvangi vegna skilaboða
boðtækis sem hann ber á sér og
mæta á slökkvistöðina og koma
svo með slökkvibflnum til baka
á brunastað.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
SVIÐAHAUSUM var komið lít úr skúrnum sem brann á Blönduósi.
Kannað hvort stöðva beri
sölu á Sálumessu
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA
ákvað í gær að biðja lögregluyfir-
völd í Reykjavík að rannsaka hvort
Esra S. Pétursson geðlæknir hefði
gerst sekur um brot á læknalögum
eða lögum um réttindi sjúklinga í
æviminningum sínum, Sálumessu
syndara. Einnig vill ráðherra að
rannsakað verði hvort höfundur og
útgefandi hafi gerst brotlegur við
lög og hvort efhi séu til að stöðva
dreifingu bókarinnar. í henni
greinir Esra m.a. frá sjúkrasögu
fyrrverandi sjúklings sem nú er
látinn.
„Það er ekki vitað til þess að
slflct mál hafi fyrr komið upp í heil-
brigðisráðuneytinu," sagði Þórir
Haraldsson, aðstoðarmaður Ingi-
bjargar Pálmadóttur heilbrigðis-
ráðherra. Þórir sagði að Esra hefði
fengið frest til 15. desember til að
andmæla þeim ásökunum sem
fram hafa verið bomar á hann.
Esra skilaði fyrir helgi inn lækn-
ingaleyfi sínu. Ólafur Ólafsson
landlæknir fór fram á að Esra yrði
formlega sviptur leyfinu og sagði
jafnframt að álitamál gæti verið
hvort Esra gæti einhvem tímann
farið fram á að fá leyfið útgefið aft-
ur eftir að hafa skilað því inn.
Ráðuneytið tæki á hinn bóginn
ekki ákvörðun um leyfissviptingu
fyrr en niðurstaða lögreglustjóra
lægi fyrir.
Lögreglan myndi einnig ákveða
hvort ástæða væri til frekari að-
syndara
gerða vegna annarra atriða í til-
mælum ráðuneytisins.
í tilmælum landlæknis til ráðu-
neytisins segir að nauðsynlegt sé
að kanna hvort læknirinn hafí
gerst sekur um alvarleg brot.
Sagði Þórir að Ijóst hefði verið að
ráðuneytið yrði að bregðast við
ummælum landlæknis, hvort nóg
væri að gert ef Esra skilaði lækn-
ingaleyfi sínu. Læknafélag íslands
samþykkti tilmæli í sömu veru á
fundi sínum á þriðjudag en Esra
sagði sig úr Læknafélaginu fyrir
helgi.
Aður hafði Siðanefnd félagsins
úrskurðað að Esra hefði brotið
siðareglur lækna með ummælum í
bókinni og væri brotið alvarlegt.