Morgunblaðið - 11.12.1997, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Siv Friðleifsdóttir Framsóknarflokki um sveitarfélagafrumvarpið
Samþykkir
ekki hug-
myndafræðina
„ÉG samþykki
ekki hugmynda-
fræðina sem
felst í sveitarfé-
lagafrumvarpinu
þar sem segir að
framlengja eigi
mörk sveitarfé-
laga inn til
innsta punkts
miðhálendisins,“
segir Siv Frið-
leifsdóttir, þing-
maður Framsóknarflokksins. Siv
segist telja rangt og óskynsamlegt
að skipta miðhálendinu upp í 40
einingar á milli sveitarfélaganna.
Aðspurð hvort hún hygðist
greiða atkvæði gegn frumvarpinu
svaraði Siv að frumvarpið ætti eftir
að fara í gegnum nákvæma um-
fjöllun og skoðun í þingnefnd og fá
þyrfti umsagnir ýmissa aðila um
málið.
Rangt að skipta
miðhálendinu
„Ég vil horfa til framtíðar og þá
finnst mér eðlilegt að miðhálendið
sé eitt heilt og samfellt skipulags-
og byggingarsvæði. Það hafa kom-
ið fram mörg sjónarmið í þessu
máli en það er alrangt, sem sumir
hafa viljað núa okkur um nasir,
sem viljum ekki
skipta þessu
upp á milli sveit-
arfélaga, að við
séum að van-
treysta sveitar-
félögunum. Svo
er ekki, enda
hef ég verið
sveitarstjórnar-
maður sjálf í sjö
ár. Þó um væri
að ræða mun
færri sveitarfélög, til dæmis þrjú
eða fimm, sem skiptu miðhálend-
inu á milli sín, þá fyndist mér jafn-
rangt að skipta því upp. Þarna er
um að ræða eitt samfellt lands-
lagssvæði," segir hún.
Siv segir suma hafa gagnrýnt að
í umræddum 40 sveitarfélögum
byggju einungis 4% þjóðarinnar.
Hún segir að auðvitað væri æski-
legast að allur almenningur hefði
svipað vægi varðandi skipulag
miðhálendisins en það væri ekki
aðalatriðið um hversu stóran hlut
þjóðarinnar væri að ræða heldur
skipti meginmáli að rangt væri að
skipta hálendinu upp með þessum
hætti. Siv kveðst telja eðlilegt að
skipulags- og byggingarmál há-
lendisins heyri undir einn aðila,
t.d. umhverfismálaráðuneytið.
/ :&EɱSÍ-..., Á
jil i m ISÉIiltS 1 lj§§ - V ■ £ £i r■_
ALÞINGI
Morgunblaðið/Kristinn
Siv Friðleifsdóttir segist telja rangt og óskynsamlegt að skipta miðhá-
lendinu upp í 40 einingar á milli sveitarfélaganna.
Frumvarp
um auka-
tekjur rík-
issjóðs
FRÁ 1. janúar nk. munu ýmsar
aukatekjur ríkissjóðs vaxa talsvert
ef lagabreytingar skv. stjómar-
frumvarpi sem nú er til umræðu
verða samþykktar.
Lagðar eru til breytingar á
mörgum greinum laganna. Ymsar
greiðslur hækka, í fyi-sta lagi
dómsmálagjöld, í öðru lagi leyfi
fyrir verðbréfafyrirtæki og áfeng-
isveitingastaði og loks bætist við
kafli, nr. XI, um gjöld fyrir stað-
festingu skipulagsskráa og birt-
ingu reglugerða lífeyrissjóða.
Leyfi fyrir áfengisveitingastað
til eins árs mun kosta 100.000
krónur en 200.000 krónur fyrir
leyfi lengri tíma. Þessi gjöld eru nú
20 til 100 þúsund krónur eftir tíma-
lengd.
Nefnd hefur lagt til að víneftirlit
verði lagt niður, það falið lögreglu.
Segir í athugasemdunum við frum-
varpið að sérstakt víneftirlitsgjald
sem innheimt hefur verið í Reykja-
vík hljóti þá að falla niður, ekki sé
venja að taka gjöld fyrir störf lög-
reglu. Því sé eðlilegt að hækka
leyfisgjöldin og mæta þannig aukn-
um kostnaði lögreglunnar vegna
eftirlitsins.
Dómsmálagjöld eiga að hækka
um 15%. I athugasemdunum segir
að engin hækkun hafi orðið á þess-
um gjöldum frá 1991. Á sama tíma-
bili hafi neysluverðsvísitala hækk-
að um 13,5% og launavísitala um
24,2%.
Spilliefnagjald hækkað
fyrir einstaka vöruflokka
UMHVERFISRÁÐHERRA,
Guðmundur Bjamason, hefur
mælt fyrir frumvarpi til laga um
breytingu á lögum um spilliefna-
gjald. I frumvai-pinu er lagt til að
breytt verði ákvæðum um hámark
spilliefnagjalds og það hækkað
fyrir tiltekna vöruflokka. Til dæm-
is er lagt til að hámark spilliefna-
gjalds sem heimilt er að leggja á
olíuvörur, þ.e. aðra olíu en
brennsluolíu, verði ailt að 20 krón-
ur á hvert kíló.
Lagt er til að á lífræn leysiefni
verði heimilt að leggja allt að 3
krónur á hvert kíló og á ísósyanöt
allt að 10 krónur á hvert kfló. Þá er
gerð tiliaga um að hámark vegna
málningar og litarefna verði hækk-
að í allt að 16 krónur á hvert kfló.
Nýir vöruflokkar með
spilliefnagjaldi
Einnig er iagt til að bætt verði
inn nýjum vöruflokkum sem leggja
skal spilliefnagjald á og í þeim
flokki er m.a. lagt til að
á plöntu- og dýrafeiti
og matarolíu verði
lagðar allt að 30 krón-
ur á hvert kfló.
I frumvarpinu er
jafnframt lagt til að
spilliefnanefnd verði
heimilt að greiða fyrir
meðhöndlun og fórgun
úrgangs sem krefst
sérstakrar meðhöndl-
unar og tengist við-
komandi spilliefnum
enda dragi það úr
kostnaði við meðhöndl-
un og förgun spilliefna.
Alvarlegasti meng-
unarvaldurinn
I greinargerð segir að spilliefni
séu alvarlegasti mengunarvaldur-
inn í landinu nú um stundir en
þeim sé því miður fargað á óviðun-
andi hátt. Þeim sé til dæmis hent
með almennu sorpi eða niður um
niðurföll.
í núgildandi lögum
er heimilt að leggja á
sérstakt gjald, spilli-
efnagjald, á vörur sem
geta orðið að spilliefn-
um, til þess að standa
straum af kostnaði við
söfnun, móttöku, með-
höndlun, endurnýt-
ingu eða eyðingu
spilliefna.
Gjald fyrir tiltekna
vöruflokka hækkað
Við framkvæmd lag-
Guðmundur anna hefur hins vegar
Bjarnason komið í ljós að hámark
gjaldsins sem kveðið
er á um sé ekki í öllum tilvikum
nægjanlegt, þannig að þeir sem
skila þessum efnum bera enn bein-
an kostnað af því að skila þeim til
móttökustöðvar. Því er lagt til að
gjald fyrir tiltekna vöruflokka
verði hækkað.
Stjórnarfrumvarp um
sjálfstæðan rétt feðra
til fæðingarorlofs
LAGT hefúr verið fram á Alþingi
stjómarfrumvarp þess efnis að feð-
ur fái sjálfstæðan rétt tfl fæðingar-
orlofs í samtals tvær vikur sem taka
má hvenær sem er fyrstu átta vik-
umar eftir fæðingu eða heimkomu
bams. Greiðslur til feðra þessar
tvær vikur verða þær sömu og til
mæðra, hlutfallslega. Notfæri faðir
sér hins vegar ekki réttinn fellur
hann niður. Er í frumvarpinu lagt til
að lögin öðlist gildi 1. janúar 1998.
í athugasemdum fmmvaipsins
segir að þar sem erfitt sé að
tryggja að faðir, sem ekki sé í hjú-
skap eða sambúð með móðurinni,
geti nýtt sér eða nýti sér fæðingar-
orlofstímann til samvista við bam-
ið, sé gert ráð fyrir að þessi réttur
sé háður því skilyrði að faðirinn sé í
hjúskap eða skráðri sambúð með
móður bamsins við upphaf töku
fæðingarorlofs.
Alþingi
9,5 milljónir króna til flug-
mlnjasafns að Hnjóti
MEIRIHLUTI íjárlaganefndar Alþingis leggur til í breytingartil-
lögum sínum við fjáraukalagafrumvarp fyrir árið 1997 að varið
verði fímm milljónum kr. til flugminjasafns að Hnjóti sem komi
til viðbótar 4,5 millj. kr. fjárhæð sem er að fínna í fjárlagafrum-
varpi næsta árs vegna þessa verkefnis. Er ætlunin að ljúka upp-
setningu á grind og klæðningu svonefnds Vatnagarðaflugskýlis,
sem unnið hefur verið að á undanförnum árum.
7 mllljónlr tll bygglngar krufnlngarstofu
ð Keldum
MEIRIHLUTI nefndarinnar leggur til að sjö milljónum kr.
verði varið til byggingar krufningarstofu við Tilraunastöðina
að Kcldum, en stofan er ætluð fyrir dýralækna vegna búfjár-
sjúkdómavarna.
Gerð er tillaga um átta millj. kr. hækkun fjárveitingar til
Rannsóknarnámssjóðs en ríkisstjórnin tók ákvörðun um það
framlag til rannsóknartengds framhaldsnáms árið 1993. Fjár-
veitingin hefur hins vegar ekki verið afgreidd með heimild í
fjárlögum eða fjáraukalögum til þessa.
5,3 mílljónlr vegna sJávarútvegsfyHrtækls
f Vladlvostok
LAGT er til að veitt verði 5,3 millj. kr. auka-
framlag til Tækniaðstoðarsjóðs íslands við
Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu. í máli
Jóns Kristjánssonar, formanns fjárlaganefndar,
kom fram við aðra umræðu um frumvarpið, að
bankinn hefði gert samning við tvo íslenska
rekstrarráðgjafa um gerð frainkvæmdaáætlun-
ar við endurskipulagningu öflugs sjávarútvegs-
fyrirtækis í Vladivostok í Rússlandi og mun
sjóðurinn nota þessa fjármuni til að styrkja það
starf.
3 milljónlr vegna strands Eriks Boye
ÞRJÁR millj. kr. á að veita vegna kostnaðar af aðgerðum til að
koma í veg fyrir umhverfísskaða vegna strands saltflutninga-
skipsins Eriks Boye árið 1992. Kostnaður féll á heimamenn en
hluti hans fékkst greiddur af útgerð skipsins.
Lögð er til 1,5 millj. kr. aukafjárveiting til veiðistjóra vegna
refaveiða og sótt er um 1,5 miHj. kr. viðbótarheimild á þessu ári
vegna greiðslu Náttúrufræðistofnunar íslands fyrir hugbúnað-
arleyfí á landupplýsingakerfí en heildarkostnaður er áætlaður
5,2 millj. kr.
Jón Kristjánsson