Morgunblaðið - 11.12.1997, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997
UR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ
Mestu landað hjá
SR í Siglufírði
„Saga sóknar inn
á markaði um
allan heiminn“
SR-MJÖL í Siglufirði hefur tekið
við mestum loðnuafla á sumar- og
haustvertíðinni, 66.500 tonnum, en
allar fimm verksmiðjur fyrirtækis-
ins hafa tekið á móti um 165.000
tonnum. Ekkert hefur ræst úr með
síldveiðína og engin loðnuveiði var
í fyrrinótt. Kenndu menn um
björtu tunglskini.
Á hæla SR-Mjöls í Siglufirði
kemur Sfldarvinnslan í Neskaup-
stað með um 62.000 tonn á sumar-
og haustvertíðinni og í þriðja sæti
er Haraldur Böðvarsson á Akra-
nesi með 53.000 tonn. í fjórða sæti
er Hraðfrystihús Eskifjarðar með
rúmlega 44.000 tonn og Krossanes
á Akureyri í því fimmta með um
41.000 tonn. Hraðfrystistöð Þórs-
hafnar er síðan ekki langt undan
með um 38.000 tonn.
Forðast skipin í björtu
Saga Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna komin út í þremur bindum
Saga Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna er komin út. Ritið er á
annað þúsund síður, mikið mynd-
skreytt, í þremur bindum og er það
gefíð út af Sölumiðstöðinni og Hinu
Islenzka bókmenntafélagi. Höf-
undar verksins eru þeir Hjalti
Pálsson, Jón Hjaltason og Ólafur
Hannibalsson.
Saga innanlandsátaka
og milliríkjasamninga
„Saga Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna er saga sóknar inn á
markaði um allan heim, til Evr-
ópu, Bandaríkjanna og nú síðast
til Asíu,“ sagði Jón Ingvarsson,
formaður stjórnar SH, er útgáfa
bókarinnar var kynnt. „Hún er
jafnframt saga útgerðar og fisk-
vinnslu hér á landi og þeirrar
tæknilegu þróunar og framfara,
sem átt hafa sér stað í meira en
hálfa öld. Hún er jafnframt saga
þess efnahagslega umhverfis sem
þessum undirstöðuatvinnugrein-
um var búið hér heima, og réði af-
komu allrar þjóðarinnar. Hún er
saga innanlandsátaka og milli-
ríkjasamninga," sagði Jón Ingv-
arsson.
LACOSTE
Höfundum þakkað
gott verk
„Meginþungi ritverksins hefur
hvflt á herðum Ólafs Hannibalsson-
ar og á hann miklar þakkir skyldar
fyrir sitt framlag. Þá verður hlutur
þeirra Hjalta og Jóns seint ofmet-
inn og óska ég þeim öllum til ham-
ingju með þetta glæsilega verk,“
sagði Jón Ingvarsson ennfremur.
Hann færði einnig ritnefndar-
mönnunum Friðrik Pálssyni, Guð-
mundi H. garðarssyni og Jóni Páli
Halldórssyni þakkir fyrir ágætt
samstarf og Hinu íslenzka bók-
menntafélagi og Pretnsmiðjunni
Odda fyrir sott starf og vandaða
vinnu.
Tíðarandinn
leiddur fram
„SH hefur í áratugi verið í farar-
broddi þeirra íslensku fyrirtækja
sem lengst hafa náð í sölu á sjávar-
afurðum á alþjóðamarkaði," segir í
frétt um útkomu ritverksins. „I
sögunni er reynt að laða fram tíð-
aranda hvers tímabfls og inn í at-
burðarrásina fléttast saman pólitík
og efnahagsmál. Saga Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna hlýtur
að teljast mikilsyert framlag til út-
flutningssögu íslands. Höfundar
sögu SH, Ólafur Hannibalsson,
Hjalti Einarsson og Jón Hjaltason,
byggja mikið á frumheimildum er
þeir hafa meðal annars sótt í
skjalasafn SH, dagbækur og einka-
bréf. Þá hafa þeir rætt við fjöl-
marga einstaklinga er hafa á einn
eða annan hátt tengst SH Eins og
fyrr segir er sagan í þremur bind-
um.
Ríkuleg
myndskreyting
í fyrsta bindinu er greint frá öll-
um þeim frystihúsum sem hafa
starfað innan vébanda SH en alls
eru þau u.þ.b. 200. í öðru bindi er
saga SH á íslandi reifuð frá stofn-
un 1942 og fram til þess dags er
fyrirtækið var gert að hlutafélagi í
ársbyrjun 1997. Saga dótturfyrir-
tækja SH erlendis og forsaga
þeirra er svo rakin í þriðja og síð-
asta bindi sögunnar. Allar eru
bækumar ríkulega myndskreyttar.
Hið íslenska bókmenntafélag ann-
ast útgáfuna, segir í fréttinni.
Fremur lítil loðnuveiði hefur
verið síðustu daga, fyrst vegna
brælu en síðan vegna tunglskins-
bjartra nátta. Er loðnan vön að
þétta sig á nóttinni og er þá helst
veiðanleg en talið er, að í tungl-
skininu sjái hún skuggann af skip-
inu og líti á hann sem hval. Þá
stingur hún sér strax.
Á sfldinni er sami bamingur og
verið hefur og þótt sjór hafi nokkuð
kólnað fyrir austan þá heldur sfldin
sig niðri við botn eða það litla, sem
af henni finnst. Aðeins sex skip em
á sfld um þessar mundir og í gær
var Beitir NK á leið til Neskaup-
staðar með um 150 tonn.
FORSETA íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, var í gær afhent fyrsta eintakið af sögu Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna. Honum á hægri hönd eru tveir af höfimdum verksins, þeir Hjalti Einarsson og Jón Hjaltason
en á vinstri hönd forsetans eru þeir Friðrik Pálsson, forstjóri SH, Ólafur Hannibalsson, einn höfunda verks-
ins, og Jón Ingvarsson, formaður stjómar SH.
________
HÁSKÓLABÍÓ
iniimnn
SAMmt
ALFABAKKA
i iiiiiiiiiniii
íkvöld milli kl. 19.30 og 22.00
í síma 551 1012.
Orator, félag laganema