Morgunblaðið - 11.12.1997, Page 33

Morgunblaðið - 11.12.1997, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997 33 ERLENT Reuters * I fyrsta sinn í kjólfötum DARIO Fo tók í gær á móti Nóbelsverðlaununum í bók- menntum úr hendi Svíakon- ungs. Einnig veittu níu verð- launahafar í vísindum Nóbels- verðlaunum viðtöku, auk þess sem friðarverðlaun Nóbels voru afhent samtímis í Ósló. Auk Fos voru það verðlauna- hafarnir í læknisfræði, efna- fræði, eðlisfræði, hagfræði og bókmenntum sem veittu hinum eftirsóttu verðlaunum móttöku við hátíðlega athöfn í tónleika- höllinni í Stokkhólmi. Hinir 1.800 prúðbúnu gestir klöpp- uðu langmest fyrir leikskáldinu ítalska Dario Fo er hann tók á móti verðlaununum í bók- menntum. Fo, sem ljómaði af ánægju, sagði þetta hafa verið í fyrsta sinn sem hann klæddist kjólfötum. verið svo einfaldir að gera sér ekki grein fyrir að þar væri á ferð einn kunnasti hægriöfgamaður Þýzka- lands. Skorti ábyrgð Riihe sagði að stjórnendur skólans hefðu sýnt „skort á varkárni og ábyrgðartilfinningu," en lagði áherzlu á að ekki lægju fyrir neinar vísbendingar sem gæfu tilefni til að þeim væri núið um nasir að vera laumunýnazistar. Sagði Rúhe hægriöfgar vera þjóð- félagslegt vandamál sem snerti her- inn líka. „Við munum beijast gegn þessu af meiri einurð og festu en nokkru sinni fyrr,“ sagði hann. „Ég mun ekki líða það að grunur falli á þýzka herinn sem slíkan.“ VOLKER Rúhe, varnarmálaráð- herra Þýzkalands, viðurkenndi í gær að í herafla landsins fyndust nýnaz- istar, en vísaði því á bug að þeir væru margir. í skýrslu sem Rúhe flutti varnar- málanefnd Sambandsþingsins í Bonn kvað við nýjan tón hjá varnar- málaráðherranum í þessu sambandi. Fram að þessu hefur hann staðið fast á því að uppákomur í hernum þar sem hægriöfgar koma við sögu séu einangruð fyrirbæri en í gær lagði hann til að efnt yrði til sjálf- stæðrar rannsóknar á atburðum af því tagi í því skyni að uppræta vandamálið, en fjölmiðlar hafa gert sér mat úr slíkum uppákomum að undanförnu og hefur herinn orðið fyrir álitshnekki af þeim völdum. Tilefnið að skýrslu Rúhes var síðasta hneykslismálið, sem snerist um að dæmdur nýnazisti, Manf- red Roeder að nafni, hefði feng- ið að fiytja ávarp Ruhe í liðsforingja- skóla hersins í Hamborg fyrir tveim- ur árum. Roeder hafði þá nýlega lokið afplánun dóms fyrir að hafa stýrt nýnazískum sprengjutilræðum. Þetta mál varð til þess að vekja raddir sem kröfðust afsagnar Rúhes og efasemdir um að stjórnendur liðs- foringjaskólans, sem báru ábyrgð á að hafa boðið Roeder þangað, hefðu Branson reynir aftur Marrakesh. Reuters. BRESKI auðkýfingurinn Ric- hard Branson sagðist í gær von- góður um að geta gert aðra til- raun til hnattflugs í loftbelg á næstu dögum, reynist loftbelg- urinn sem slitnaði upp í fyrra- dag óskemmdur. Tjóður belg- fars Bransons slitnaði er verið var að tappa helíumi á belginn í herstöð í Marokkó í fyrradag. Barst hann í austurátt til Atlas- fjalla og hvarf fljótt úr augsýn. I 18.000 feta hæð féll hann aftur til jarðar í Alsír, 50 km austan landamæra Marokkós. Branson sagði að alsírsk yf- irvöld hefðu sýnt honum lipurð og her landsins myndi sjá um að koma belgnum að landa- mærum Marokkós en þaðan yrði hann fluttur með herþyrlu til flugstöðvarinnar við Marra- kesh. „Við munum skoða belg- inn og reynist skemmdirnar litl- ar, eins og okkur skilst, vonum við að hann verði klár til brott- ferðar um eða upp úr helgi,“ sagði Branson. Hægriöfgar í þýzka hemum rannsakaðar Bonn. Reuters. Bretar sækja fast þátt- tökui Brussel. Reuters. BREZKA stjórnin hélt í gær áfram að reyna sitt ýtrasta til að telja stjórnir annarra ESB-ríkja á að full- trúar Bretlands fái að taka fullan þátt í „Evró-x“-ráðinu svokallaða, þar sem til stendur að taka ákvarð- anir um samræmingu efnahags- stjórnunar í aðildarríkjum Efnahags- og myntbandalags Evrópu, EMU, eftir að það verður orðið að veru- leika 1999. En þau lönd sem ekki ætla sér að taka þátt í EMU frá upphafi, þ.e. Bretland, Danmörk og Svíþjóð, hafa áhyggjur af því að mikilvægar efnahagspólitískar ákvarðanir verði teknar á fundum „Evró-x“-ráðsins en ekki á reglubundnum fundum fjármálaráðherra ESB-landanna allra eins og hingað til. „Evro-x Juncker heitir málamiðlun Sænska blaðið Dagens Nyheter greindi frá því í gær, að Jean-Claude Juncker, forsætisráðherra Lúxem- borgar sem nú er í forsæti fyrir ráð- herraráði ESB, hefði fullvissað hinn sænska starfsbróður sinn Göran Persson í skyndiheimsókn til Stokk- hólms í byrjun vikunnar að Svíþjóð fengi „á einn eða annan hátt“ að -raði taka þátt í „Evró-x“-ráðinu. Juncker er sagður hafa borið Persson þann boðskap að á leiðtogafundi ESB í Lúxemborg á morgun, föstudag, verði samið um málamiðlun sem all- ir hlutaðeigandi muni geta sætt sig við. „Við ættum að fá að taka þátt í öllum umræðum,“ sagði talsmaður Tonys Blairs forsætisráðherra. Blair átti símasamtal við Persson í fyrrakvöld um málið. Hann talaði einnig við Romano Prodi, forsætis- ráðherra Ítalíu og að sögn tals- mannsins stóð til að hann næði einn- ig tali af Helmut Kohl Þýzkalands- kanzlara og Lionel Jospin forsætis- ráðherra Frakklands áður en leiðtog- arnir koma saman í Lúxemborg á morgun. Lambakjöts- sala bönnuð? London. Reuters. BRESKIR bændur brugðust í gær ókvæða við nýjum tillögum Evr- ópusambandsins þess efnis að bann verði sett á sölu lambakjöts með beini. Tillagan á við um kjöt af eldri en ársgömlum lömbum og er sett fram í þvi skyni að reyna að hefta útbreiðslu kúariðu. „Eg er orðlaus yfir því að fram skuli komin enn ein tillagan sem fer langt fram úr því sem virðist nauðsynlegt," sagði Sir David Naish, formaður bresku bænda- samtakanna NFU. Ekki er þó talið að bann af þessu tagi muni hafa mikil áhrif á Bretlandi þar sem 88% iamba- kjöts sem selt er þar í landi er af lömbum innan við eins árs. Einungis vika er síðan sala á nautakjöti með beini var bönnuð í Bretlandi. Kasakstan Akmola gerð að höfuðborg Akmola. Reuters. AKMOLA, lítt þekkt borg á hijóstr- ugri steppu í norðurhluta Kasakst- ans, var í gær gerð að höfuðborg landsins í stað Almaty. „Við, fulltrúar æðstu stofnana rík- isins, lýsum því nú yfir að Akmola verður höfuðborg landsins frá og með deginum í dag,“ sagði Nursult- an Nazarbajev forseti á sameiginleg- um fundi stjórnar og þings landsins. Forsetinn spáði því Akmola ætti glæsta framtíð fyrir höndum. „Ak- mola er einn af landfræðilegum mið- punktum Evrasíu. Efnahags-, tækni- og upplýsingastraumar meg- inlands Evrasíu munu fara um þessa nýju höfuðborg okkar á 21. öldinni.“ Nazarbajev sagði þó að gamla höfuðborgin, Almaty, yrði áfram miðstöð fjármála, menningar og vís- inda í landinu. Forsetinn ákvað fyrir tveimui árum að gera Akmola að höfuðborg landsins þótt nafn hennar geti merkt „hvít gröf“ á máli Kasaka. Nafnið getur reyndar einnig þýtt „hvítui helgidómur" eða „hvít gnótt“. Akmola er 300.000 manna borg, um 1.200 km norðan við Almaty. var stofnuð árið 1832 og hét Tselino- grad á tímum Sovétríkjanna. Húr þykir mjög dæmigerð fyrir borgir sem þöndust út á sovéttímanum, og einkennast af sviplausum fjölbýlis- húsum frá sjötta og sjöunda ára- tugnum. Nær Rússlandi Embættismönnum ber ekki samar um hvers vegna Akmola var gerc að höfuðborg. Nokkrir þeirra sögði meginástæðuna þá að talið vær æskilegt að höfuðborgin yrði flæi landamærunum að Kína en Almaty Nokkrir embættismanna sögðu þc í trúnaði að ákveðið hefði verið ac flytja valdastofnanirnar til norð- urhlutans til að festa þær þar í sessi Slavar eru í meirihluta í þessurr landshluta -og margir þeirra viljc nánari tengsl við Rússland. Nazarbajev sagði að lokið hefð verið við að reisa opinberar bygging- ar í Akmola þótt framkvæmdirnai hefðu ekki hafist fyrr en á liðni ári. Mörgu er þó enn ólokið, skortui á íbúðum fyrir þingmenn auk þes; sem lítið er um símalínur í borginn og rafmagnsleysi er mjög algengt. TILBOÐ RR SKÓR VANDAÐIR HERRASKOR FRA ROQTSKR 3.990 Tegund: 214 Svartir og brúnir stærð 36-46 Kringlunni 12, sími 568 6062, Skemmuvegi 32L, sími 557 5777 LISTMUNAUPPBOÐ í KVÖLD KL. 20.30 Á HÓTEL SÖGU KOMDU OG SKOÐAÐU VERKIN I GALUERÍ FOLD RAUÐARÁRSTÍG í DAG KL. 10.00 - 18.00, SELD VERÐA UM ÍOO VERK, ÞAR Á MEÐAL FJÖLMÖRG VERK GÖMLU MEISTARANNA. Rauðarárstíg S551 0400

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.