Morgunblaðið - 11.12.1997, Page 52

Morgunblaðið - 11.12.1997, Page 52
52 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ EINAR MARÍAS KJARTANSSON + Einar Marías Kjartansson fæddist í Efri-Miðvík í Aðalvík (Sléttu- hreppi) 29. nóvem- ber 1915. Hann lést á heimili sínu, Dvalar- heimilinu Höfða, Akranesi, 4. desem- ber síðastliðinn. For- eldrar hans voru Kjartan Finnboga- son, sjómaður og bóndi, og Magdalena Sólveig Brynjólfs- dóttir. Systkini: Guð- laug, Guðrún, Sigríð- ur, Jensey, Finney og Brynjólfur. Þau eru nú öll látin. Eftirlifaudi eiginkonu sinni, Þórdísi Baldvins- dóttur (fædd í Öxnadal, Eyjafirði 8. ágúst 1919) kvæntist Einar 22. september 1939. Áður hafði Einar eignast dótt- ur sína, Sonju Huldu, sjúkraliða, fædd 17. maí 1933, maki: Gísli Bjarnason, múrari. Þeirra börn eru Steinar, Börkur og Hilmar. Börn Einars og Þórdísar: 1) Drengur (óskírður), fæddur 16. júní 1941, dáinn 26. júní 1941. 2) Sigríður Brynja, hjúkrunar- fræðingur, fædd 12. september 1942. Maki: Örnólfur Grétar Þor- leifsson, útibússtjóri. Börn: Þor- leifur Rúnar, Þórdís Árný og Þórunn María. 3) Fanney Lára, verslunarmaður fædd 28. júlí 1946. Börn: Málfríður, Þórdís, og Birna Sigurðardætur. 4) Sólveig Elsku afi minn, ég ætla að kveðja þig með því að minnast einnar skemmtilegustu utanlandsferðar sem ég hef farið. Það var þegar ég fór í sumarhús á Spáni með þér, ömmu, mömmu, pabba og Þórunni. Þú varst alltaf svo ánægður að þú vaknaðir syngjandi á morgnana, ég vaknaði því hvern morgun við vis- urnar um Dísu sem endaði með há- um tónum, „Ó, Dísa kysstu mig!“, sem var auðvitað beint til ömmu. Svo fórum við í vatnsrennibrauta- garðinn og þú varst eins og einn af unglingunum, 75 ára, fórst í hverja einustu rennibraut. I einni ferðinni vorum við búin að plata þig til að vera eftir niðri hjá fullorðna fólkinu, en þegar við vorum komin efst í tröppurnar komst þú hlaupandi á eftir okkur, ætlaðir sko ekki að missa af þessari bunu. Afi minn, ég veit að nú þegar þú ert farinn, þá ert þú í öðrum heimi hlaupandi og trú- lega í vatnsrennibrautum með hinum unglingunum. Við hjálpumst að við að passa ömmu Dísu fyrir þig. Þín Árný. Elsku afi Einar. Núna ertu farinn úr þessum heimi í annan og betri heim, þar sem þú ert laus við sandinn í höndunum og kuld- ann á fótunum. Ég sé þig fyrir mér hlaupa um í himnaríki á móti fólkinu þínu þar og skreppa svo niðjur til okk- ar og knúsa okkur líka. Ég er svo þakklát fyrir tímann sem ég hef átt með þér og ég sakna þín sárt en veit samt að þér líður vel núna. Mér finnst gott hjá þér að skilja hjólastól- inn eftir, því að nú þarftu hann ekki, vegna þess að höfðingjar eins og þú eiga sér hásæti í himnaríki og geta setið þar þegar þeim dettur í hug. En elsku afi minn, við sem búum hérna ætlum að passa hana ömmu Dísu og hvort annað og geyma og halda minningum um þig í hjörtum okkar. En afi minn, ég ætla að halda áfram að tala við þig, þó svo að ég sjái þig ekki af því að ég veit að við verðum alltaf vinir og hlustum hvort á annað. Ég elska þig afi Einar! Ástarkveðja, þín Þórunn María. Fallinn er í valinn sómadrengurinn Einar Kjartansson, skipstjóri og stýrimaður, á Akranesi. Einar var fæddur í Miðvík í Aðalvík á Vest- fjörðum og ólst þar upp ásamt systk- Magdalena, snyrti- fræðingur, fædd 19. apríl 1952. Maki: Kjartan Rafnsson, tæknifræðingur. Börn: Einar Mar Þórðarson, Kristján Örn Kjartansson og Maren Kjartansdótt- ir. 5) Jakob Þór, leik- ari, fæddur 14. janú- ar 1957. Maki: Val- gerður Janusdóttir, sérkennari. Börn: Janus Bragi, Þórunn og Arnaldur Bragi. Einar byrjaði sjó- mennsku 14 ára gamall og stund- aði sjóinn mestalla sína starfsævi, eða í rúm 40 ár. Hann stundaði nám við Sjómannaskólann og lauk þaðan skipstjóraprófi árið 1947. Fyrstu búskaparár sín bjuggu Einar og Þórdís á Isafirði, en árið 1948 fluttu þau til Siglufjarðar og bjuggu þar til ársins 1952 að þau fluttu til Akraness. Þar var Einar stýrimaður og skipstjóri á ýmsum skipum og bátum, en lengst af stýrimaður hjá Haraldi Böðvarssyni á Höfrungi II og III. Einar hætti sjómennsku að mestu leyti 1972 og hóf þá störf í Sem- entsverksmiðju ríkisins og vann þar til ársins 1987 er hann lét af störfum, þá 72 ára. títför Einars fer fram frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. inum sínum sem voru sjö talsins. Hann var yngstur þeirra og kveður nú síðastur þennan heim. Þegar Einar var 9 ára að aldri missti hann föður sinn og skömmu síðar er heimilið leyst upp og móðir hans fer í vinnumennsku. Hún hafði þó Einar ætíð með sér þar sem hann var yngstur systkina sinna. Þegar Einar var 14-15 ára 1930 réðst hann á togarann Egil Skallagiímsson sem gerður var út frá Reykjavík. Hann var þar samfellt í skipsrúmi í þrjú ár. Árið 1933 flyst hann aftur á Vestfirð- ina og sest að á ísafirði. Þá réð hann sig hjá svokölluðum Samvinnubátum og var á þeirra bátum samfellt í 14 ár að undanskildu árinu 1946 þegar hann sat í Stýrimannaskólanum. Fyrstu árin hjá Samvinnubátum var hann háseti en síðar bæði stýrimað- ur og skipstjóri. Á þessum árum kynnist hann eft- irlifandi eiginkonu sinni, Þórdísi Baldvinsdóttur, sem einnig er ættuð að vestan og giftu þau sig 22. sept- ember 1939. Þau eignuðust fjögur mannvænleg börn en áður hafði Ein- ar eignast eina dóttur. Árið 1948 fluttu þau til Siglufjarð- ar þar sem þau áttu heima í fjögur ár. Mestallan þann tíma var Einar stýrimaður á togaranum Elliða. Þai’ um borð lenti hann í þeim sjávar- háska að hann tók út af togaranum í aftakaveðri á Halamiðum um hávet- ur. Hann bjargaðist giftusamlega aftur um borð og var þar Guðs hönd að verki. Árið 1952 flyst fjölskyldan til Akraness og hefur átt hér heima síð- an. Á Akranesi réðst hann í skips- rúm hjá ýmsum útgerðum en lengst af var hann stýrimaður hjá Garðari Finnssyni, sem á þeim tíma var einn mesti aflamaður landsins. Með Garð- ari var hann allt til þess að Garðar flutti frá Akranesi í ki'ingum 1970. Einar var ávallt stýrimaður hjá út- gerðum á Akranesi. Hann þótti frá- bær stýrimaður og umgengni og snyrtimennska á þeim bátum sem hann var á þótti slík að ekki varð á betra kosið. Næstu tvö árin starfaði Einar á Akraborginni en fer þá í land og hefur störf hjá Sementsverk- smiðju ríkisins þar sem hann staif- aði til 72 ára aldurs þegar hann lét af störfum. Góðh' og tryggir vinir þeirra Ein- ars og Dísu voru hjónin Kristján Kristjánsson, skipstjóri, og Elín Frímannsdóttir en Kristján lést fyrr á þessu ári. Þau voru búin að þekkj- ast um langt árabil og höfðu þau byggt sér saman tveggja hæða íbúð- arhús við Háholt hér á Akranesi, þar sem þau áttu lengstum heima. Aldrei féll skuggi á vináttu þeirra og svo sagði Kristján mér að aldrei hefði kastast í kekki á milli þeirra. Fyrii’ nokkrum árum veiktist Ein- ar mjög hastarlega þannig að hann var bundinn við hjólastól síðustu' ár- in. Þau hjónin höfðu fengið vistun á Dvalai'heimilinu Höfða á Akranesi og hefur þeim liðið vel þar. Einar gekk í Oddfellow-regluna 1963 og var alla tíð sérstaklega traustur og góður félagi og sótti vel fundi. Um nokkurra ái'a skeið var hann húsvörður í Oddfellow-húsinu á Akranesi og það verk leysti hann frábærlega vel af hendi. Góð um- gengni og snyrtimennska var honum í blóð borin. Við bræðurnir í Agli söknum hans trausta og góða hand- taks og brosins sem bar svo mikla hlýju og birtu hvar sem hann kom. Elsku Dísa mín. Við bræðurnir í Agli vottum þér okkar dýpstu sam- úð, börnum, barnabörnum, öðrum ættingjum og vinum og biðjum góð- an Guð að styrkja ykkur öll. Hörður Pálsson. „Það syrtir að er sumir kveðja.“ Þessi hending úr ljóði flaug mér í hug þegar ég horfði á tengdafóður minn látinn. Minningar hrönnuðust upp frá kynnum okkar síðastliðin 36 ár, en það eru nákvæmlega 36 ár síð- an við sáumst fyrst, nú á nýrsdag nk. Ég sem óharnaður ungur maður, ný- trúlofaður dóttur hans Brynju. Eg gleymi aldrei þessum degi og þakka ég honum ævinlega fyrir hvesu vel hann skildi mig og tilfinningar mínar þegar ég kom fyrir auglit fjölskyld- unnar í fyrsta skipti. Ég titrandi feiminn, verandi að taka stelpuna frá þeim hjónum Einari og Dísu. Mér var boðið til stofu og hafði ég á til- fínningunni að ég væri eitthvert númer og til að bjarga þessum feimna strák að vestan bauð Einar mér uppá gin og tonic enda nýárs- dagur og hátíð í bæ. Það var ekki ginið sem var það besta, heldur það að mér var tekið sem fullorðnum manni og mér treyst fyrir dótturinni sem ég met alltaf og mun alltaf meta. Hann var mannþekkjari og mjög næmur á hvernig fólki leið sem í kringum hann vai' hverju sinni. Við kynntumst svo ekki náið fyrr en við fluttum búferlum til Akraness árið 1966 og þá tóku þau okkur inná heimilið til að byrja með í 4 mánuði. Það var oft komið saman á báðum hæðum í Háholti 32 hjá Ellu og Stjána, haft ljóðakvöld þai' sem Kri- stján las upp ljóð eftir Davíð með sinni einstöku röddu og við hlustandi á og frá þeim tíma heillaðist ég af Davíð. Einar var einstakur fjölskyldu- maður og fylgdist vel með sínum, í leik og starfi. Enda sagð hann oft í gríni og alvöru „ég er höfuð fjöl- skyldunnar“, enda dáðum við hann öll. Einar var einstakt snyi'timenni. Bæði með sjálfan sig og sitt um- hverfi. Hann var ávallt, meðan heils- an leyfði, að þrífa í kringum sig. Við kölluðum hann gjarnan „snyrtipinn- ann“ innan fjölskyldunnar og var það í jákvæðri merkingu. Það var al- veg sama hvort um var að ræða heima fyrir eða á vinnustað. Sóða- skap þoldi hann ekki. Vinnufélagar hans bæði til sjós og í landi hafa vitn- að um það. Það hefur verið, ekki síst, þess vegna sem félagar hans í Odd- fellow völdu hann til þess að sjá um félagsheimili þeirra í mörg ár og voru þeh' ekki sviknir af þeirri vinnu. Til sjós var hann mjög gætinn sjó- maður og skipsfélagar hans hafa tjáð mér að hann hafi bjargað skipi og skiphöfn þegar hann skipaði þeim að skálka lúgur þrátt fyrir logn og fínt veður. En það var brjálað veður í Reykjanesröstinni og skipið drekk- hlaðið af síld úr Meðallandsbugtinni á leið til Akraness. Þannig var Ein- ar, hann sá stundum fyi-ir hvað verða vildi og fór efth' því. Ég gefc ekki skrifað minningarbrot um tengdaföður minn án þess að minnast á söng. Söngur var honum hjartfólginn. Hann hafði fallega söngrödd, háan tenór. Þeir hefðu sko mátt passa sig þeir Kristján Jó- hannsson og fleiri ef Einar hefði lært söng. Hann var hafsjór af lögum frá fyrri tíð. Hann söng oft á stíminu um borð á Höfrungi II og Höfrungi III og minnast þeir enn í dag, þeir sem voru með honum til sjós á þeim tíma, hve gaman það var þegar Einar hóf upp rödd sína og söng. Þá var ekki sjónvarp eða vídeo. Við fjölskyldan höfum notið þess hve söngelskur Einar vai'. Enda hefur oft verið sungið og spilað og ungir og aldnir haft gaman af. Ekki er hægt að minnast á fjöl- skylduna öðruvísi en að hugsa um samband þeirra Einars og Dísu. Ég á ekki heitari ósk til nokkurra hjóna en að þehTa samband væri í svipuð- um dúr og Einars og Dísu. Virðing og væntumþykja eru þau orð sem best lýsa þeirra sambandi og höfum við bömin þeirra lært mikið af því. Hann bar alltaf í brjósti umhyggju fyrir Dísu sinni og var stoltur af sinni. Nú síðast þegar ég hitti hann á lífi og hún nýkomin af Oddfell- owfundi, hefði mátt halda að þar væri ekki 82 ára unglingur að tala, heldur 28 ára ástfanginn ungur mað- ur. Slík var virðing og stoltið hans af Dísu. Enda var gaman að upplifa þegar sunginn var Dalakofinn efth' Davíð. Sérstaklega erindið „ég elska þig, elska þig og dalinn þinn Dísa“, þá fór minn á flug. Einar var ættrækinn og vildi halda minningu foreldra sinna á lofti sem sýndi sig best í því þegar hann lagði á sig ferð norður á Strandir. Nánar tiltekið í Aðalvík til að setja ki-oss á leiði föður síns. Einar var þá orðinn 78 ára gamall og tók hann sig til að labba og hlaupa til þess eins að ná upp þreki til að geta labbað á æskustöðvunum með reisn. Enda ekki um farartæki nútímans að ræða á þeim slóðum. Vai' sonur hans Jak- ob Þór með honum í för og mátti hann hafa sig allan við að halda í við föður sinn. Þá var það ekki síður minningin um móðurina. Á hvei'jum aðfangadegi fór hann að leiði móður sinnar og setti á það kross eða ljós. Jólin gengu ekki í garð fyrr en að því loknu. Einar vai' heilsuhraustur allt þar til hann varð fýrir áfalli fyrir tveimur og hálfu ári. Þegar hann veiktist af sjúkdómi sem varð til þess að hann varð lamaður uppað geirvörtum. Þá sýndi hann þann „karakter" sem hann hafði að geyma og gerði hann alla spádóma lækna að engu. Þvílík ákveðni „ég skal, sagði hann“ og ekki var síðri stuðningurinn frá börnum og eiginkonu. Enda sýndi hann árangur. Honum tókst að kom- ast úr hjólastólnum og ganga um óstuddur. Það var stoltur einstak- lingur sem labbaði um og sýndi hvað hann gæti. Þannig var hann. Hlífði sér í engu, þótt þægilegra hefði verið að láta hafa fyrir sér og láta þjóna sér í einu og öllu. Nei, það var ekki hans „mottó“. Hann var höfðingi sem ekki var tilbúinn að gefast upp. Svona að leiðarlokum vil ég þakka þér, Einar, fyrir samfylgdina. Hún er í minningunni björt og góð. Eigin- kona og niðjar ásamt tengdabörnum eru stolt af þér og vildu gjarnan eiga eitthvað af þínum eiginleikum. Ég vona niðjanna vegna, að þau hafi fengið eitthvað af þeim. Ég kveð þig ekki eingöngu sem tengdasonur heldur líka sem vinur og ég er stolt- ur af þér. Ég bið þér guðs blessunar á ókunnum slóðum um leið og ég bið guð að styrkja Dísu og aðra fjöl- skyldumeðlimi á erfiðum dögum. Höfum hugfast, stöndum saman og tíminn læknar öll sár. Fyrir hönd fjölskyldunnar vil ég þakka starfsfólki Sjúki'ahúss Akra- ness og Dvalarheimilisins Höfða fyi'- ir frábæra aðstoð og ekki síður heim- ilisfólki á Höfða fyrir samfylgdina. Ornólfur Þorleifsson. Vor hinsti dagur er hniginn afhimniísaltanmar. Sú stund kemur aldrei aftur, semeinusinnivar. (Halldór Laxness) Elsku Einai- afi, okkur langai' að kveðja þig með þessum orðum. Nú þegar þú hefur kvatt þennan heim koma í hugann ótal margar góðar minningar frá þeim stundum sem við áttum saman. Þegar við komum á Akranes vorum við heilu og hálfu dagana á Háholtinu hjá ykkur ömmu. Þá var oft glatt á hjalla hvort sem tekin voru upp spil eða málin rædd. Þú varst alltaf tilbúinn að reyna að svara áleitnum spurningum barnssálarinnar sem þó getur oft verið svo erfitt að fá svai' við. Á þess- um stundum lærðum við margt sem komið hefur okkur til góða í lífinu. Þó var það kannski hin síðustu ár sem þú kenndir okkur og sýndir í verki að gefast aldrei upp þó á móti blási - það er veganestið frá þér sem við munum fara með út í lífið. Elsku afi, við skulum í sameiningu faðma hana ömmu og vernda. Einar Mar, Kristján Orn, Janus Bragi og Maren. Þökkum þér fyrir lífið, viskuna, umhyggjuna, heiðai'leikann, sam- kenndina og ástina sem við nutum ætíð hjá þér og mömmu. Börnin þín, Brynja, Fanney Lára, Sól- veig og Jakob Þór. Elsku afi Einar er dáinn og okkur systurnar langar til að minnast hans með nokkrum orðum. Alltaf var tekið vel á móti okkur þegar við komum á Háholtið til afa og ömmu og eftir að afi veiktist og þau fluttu á Dvalarheimilið Höfða voru móttökurnar ekki síðri. Það fyrsta sem kemur upp í hug- ann þegar við horfum til baka eru jóladagsboðin á Háholtinu þegar við vorum litlar. Þá var afi alltaf tilbúinn að fara með okkur í leiki og syngja með sinni fallegu rödd með okkur krökkunum. Eftir að við fluttum frá Akranesi söknuðum við þess sárt að komast ekki til afa og ömmu um jól- in. Oft fannst okkur afí hafa ákveðnar skoðanii' á hlutunum þegar við vor- um börn, en eftir að við urðum full- orðnar sáum við að hann var rétt- sýnn og tillitsamur maður og alltaf var hægt að komast að samkomulagi við hann. Elsku afi, við eigum eftir að sakna þín sárt en við vitum að þér líður vel þar sem þú ert. Nú er þér ekki kalt á fótunum og ekki með sand i höndun- um. Elsku amma Dísa, við vitum að missir þinn er mikill og megi góður guð styrkja þig og okkur öll í þessari miklu sorg. Málfríður, Þórdís, Birna og fjölskyldur. Einar tengdafaðir minn, sem nú er látinn, hafði mjög afgerandi og sterk áhrif á sína nánustu. Vegna hans stei'ku nærveru var aldrei hægt að ganga fram hjá persónuleika hans eða ígrunduðum skoðunum. Gjarnan er vitnað til gerða hans og orða og oft fylgja þeim upprifjunum, skoð- anaskipti og gjarnan bros. Hann hafði nefnilega sérstakt lag á að setja fram alvarlegar vangaveltur, persónulega gagnrýni eða þjóðfé- lagsgagnrýni á þann hátt að allir skildu aðalatriðin, en jafnframt á svo einfaldan og fyndinn hátt. Hann hafði svo mikinn húmor fyrir sjálfum sér. Margar eru hans athafnir og orð orðin fleyg, meira að segja langt út fyrir nánustu fjölskyldu hans. Einar fæddist á Hornströndum og ólst þar upp, í umhverfi sem ein- kenndist af miklum andstæðum. Margt svo stórt og ögrandi, annað svo smátt og undurfagurt. Þannig var persónuleiki Einars einnig. Hann kynntist sárum missi á upp- vaxtarárum sínum en einnig sterkri móðurlegri hlýju. Öll lífsreynsla hans á uppvaxtarárum og síðan í sjó- mennskunni mótaði þann mann sem hafði mikla réttlætiskennd og djúpa jafnaðarmannahugsun. Hann skildi svo vel mikilvægi þess að börn fengju að alast upp við hlýju og ör- yggi. Hann skildi vel muninn á réttu og röngu, yfirborðsmennsku og djúpri hugsun. Eg hef átt því láni að fagna að meira en helming af ævi minni hef ég notið náinna samvista við þau ágætu hjón, Einar og Dísu. Á þau samskipti hefur aldrei borið skugga. Börnum okkar hafa þau verið afar náin og borið velferð okkar allra fyi'h' brjósti. Einar tengdaföður minn, þann heiðm'smann, kveð ég með þökk fyr- ir tryggð og nána vináttu. Valgerður Jamisdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.