Morgunblaðið - 11.12.1997, Síða 56

Morgunblaðið - 11.12.1997, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ 56 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997 Hlustadu eftir svarinu á FM 957, klipptu auglýsinguna út og geymdu á vísum stað. Alla virka útgáfudaga Morgunblaðsins fram til 24. desember birtist ný spurning. Með síðustu spurningunni 24. desember birtist svarseðill sem þú fyllir út. heftir hin svörin þín við og sendir inn. jálfsvíg! ...hvað svo? Sálgæsla eftir sjálfsvíg. „Þessi bók mætir áreiðanlega þörfum margra. Hún fjallar um sálgæslu eftir sjálfsvíg og höfðar þannig sérstaklega til þeirra sem eiga um sárt að binda vegna þeirrar bitru reynslu. Um leið er þetta holl lesning fyrir alla. Brugðið er ljósi á líðan syrgjenda og hvað það er, sem helst getur mætt þörfum þeirra. Þekk- ing, nærfæmi og skilningur eru orð, sem koma í hugann við lestur þessarar bókar. Að mínu mati er hér um að ræða dýrmætt framlag til máleínis, sem snertir alla." Úr formála sr. Sigfinns Þorleifssonar sjúkrahúsprests á Sjúkrahúsi Reykjavíkur og kennara í sálgæslu við guðfræði- deild Háskóla íslands. /Y% íslendingasagnaútgáfan Raftækin frá okkur eru góðar jólagjafir fyrir heimilisvænt fólk á öllum aldri. SMITH& NORLAND Nóatúni 4 • Sími 5113000 AÐSENDAR GREINAR Otrúleg svör Y átryggínga- eftirlitsins Á UNDANFÖRNUM dögum hafa fyrir þakk- arverðan tilverknað Hjálmars Jónssonar al- þingismanns komið fram opinberlega upp- lýsingar Um furðulegt háttemi samtaka vá- tryggingafélaga (SÍT) og það sem verra er, Vátryggingaeftirlitsins, gagnvart þnggja manna nefnd sem vinn- ur að endurskoðun skaðabótaíaganna frá 1993. Hafa þessir aðilar báðir neitað nefndinni um tilteknar upplýsing- ar um tjónakostnað vá- tryggingafélaganna í líkamstjóns- málum, sem nefndin hefur óskað eftir. Rétt er að rifja upp aðdrag- anda málsins. Haustið 1995 komu fram á Al- þingi tillögur um úrbætur á skaða- bótalögunum. Fólu þær í sér veru- lega hækkun á skaðabótum fyrir h'kamstjón, enda deginum ljósara að reglur laganna frá 1993 (gildistaka 1/7 1993) voru fjarri því að mæla fullnægjandi bætur. Samband ís- lenskra vátryggingafélaga gaf alls- herjamefnd Alþingis umsögn um tillögurnar. Með umsögninni fylgdi könnun sem sambandið kvaðst hafa látið gera á tjónakostnaði í öllum „tilkynntum" slysum (921 talsins) fyrsta hálfa árið í gildistíð laganna, þ.e. síðari hluta árs 1993. Þar sem svo stutt var um liðið frá þessu tjónatímabili og mörgum málum var ólokið, byggðist útreikningurinn að langmestu leyti á áætlunum félag- anna á tjónakostnaði en ekki á raunverulegum kostnaði. SÍT byggði síðan umsögn sína til alls- herjamefndar á niðurstöðum þess- arar könnunar og taldi að hækka þyrfti iðgjöld í bílatryggingum stór- lega ef tillögurnar yrðu lögfestar. Vom tillöguhöfundar m.a. sakaðir um að hafa ekki kynnt sér „fjár- hagsleg áhrif ‘ tillagnanna. Of háar áætlanir Allmiklar umræður urðu á þess- um tíma á opinberum vettvangi um þessa könnun SÍT á tjónakostnaði. Komu fram rökstudd sjónarmið um að áætlanirnar væru alltof háar, lík- lega einkum vegna þess að áætlaður væri tjónakostnaður í öllum málum, þó að reynslan segði að innan við helmingur þeirra leiddi til einhverra bótagreiðslna að heitið gæti (líklega ea. 40% skv. upplýsingum sem félögin höfðu birt opin- berlega skömmu áður). SÍT neitaði öllum frek- ari upplýsingum og skýringum á forsendum sínum. Svo var að sjá sem al- þingismenn hefðu áhyggjur af hækkun vá- tryggingaiðgjaldanna. Varð niðurstaða máls- ins að því sinni sú að gerð var til bráðabirgða vorið 1996 lítils háttar lagfæring á tveimur ranglátustu ákvæðum laganna, en skipuð þriggja manna nefnd til að vinna að heildarendurskoðun þeirra. Nefndinni neitað um upplýsingar Við blasir, að nefnd þessi hlýtur nú að vilja afla nýrra upplýsinga um tjónin 921 frá síðari hluta árs 1993, í því skyni að kanna réttmæti þeirra áætlana á tjónakostnaði sem þar birtust og hversu hald- bærar þessar áætlanir félaganna almennt eru. Nú er liðinn svo lang- ur tími frá þessu tjónatímabili að miklum meiri hluta málanna ætti að vera lokið og því miklu trúverð- ugri upplýsingar að liggja fyrir. Þá víkur svo við, að SIT neitar nefnd- inni um upplýsingarnar! Hér skulu menn hafa í huga að þetta eru upp- lýsingar um atriði, sem sambandið taldi öllu máli skipta, þegar það reyndi að hindra réttarbæturnar á þinginu 1995-1996. Og það voru einmitt þessar upplýsingar félag- anna um tjónakostnaðinn sem urðu þess valdandi að réttarbætur til handa tjónþolum náðu ekki fram að ganga þá og nefndin var skipuð. Eftir synjun SÍT mun nefndin hafa snúið sér til Vátryggingaeftir- litsins og óskað eftir atbeina þess við að afla þessara upplýsinga. Eft- irlitið neitaði! í frétt í DV 8. desem- ber er birt orðrétt úr athugasemd sem Erlendur Lárusson forstöðu- maður Vátryggingaeftirlitsins er sagður hafa sent frá sér vegna Jón Steinar Gunnlaugsson SKEIFUNNI 3E-F SÍMI 581 2333 ■ FAX 568 0215 ■ ■ VERKFÆRA TOSKUR margar stærðir málsins: „Vátryggingaeftirlitinu er það hulin ráðgáta hvernig nefnd sem hefur með höndum endurskoð- un skaðabótalaga getur talið það skipta meginmáli um fyrirkomulag þeirra laga í landinu hvernig tiltek- inn fjöldi mála var áætlaður í upp- hafí og hvernig þau hafa verið gerð upp af þeim sérfræðingum trygg- ingafélaganna sem hafa með hönd- um mat þeirra á hverjum tíma. Ekki verður séð hvaða gildi spór í lok 1995 um þessi tilteknu mál hafí.“ Þá segir forstöðumaðurinn enn- fremur, að stofnun hans sjái enga ástæðu til að láta þá vinnu fara fram sem þurfí til að svara erindi nefnd- arinnar, auk þess sem eftirlitið skilji ekki tilganginn með þeirri vinnu! Hroki og yfirlæti Þessi svör eru ótrúleg. Forstjór- inn telur sig þess umkominn að af- greiða hina stjórnskipuðu nefnd með hroka og yfírlæti. í reynd er hann að segja, að nefndin hafi ekk- ert vit á því verkefni sem henni hef- ur verið falið. Hún biðji um upplýs- ingar sem engu máli skipti. Hann viti þetta allt miklu betur. Ekki er á því nokkur vafi, að það heyrir undir starfskyldur Vátryggingaeftirlitsins Forstjórinn telur sig þess umkominn, segir Jón Steinar Gunn- laugsson, að afgreiða hina stjórnskipuðu nefnd með hroka og yfirlæti. að kanna hvernig gjaldfærðar tjónaáætlanir vátryggingafélaga standast raunveruleikann. Þannig segir m.a. orðrétt í 2. mgr. 55. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 60/1994: „Vátryggingaeftirlitið skal einnig fylgjast með iðgjaldagrund- velli vátrygginga með það fyrir aug- um að iðgjöld, sem í boði eru hér á landi, séu sanngjörn í garð vátrygg- ingataka og í samræmi við þá áhættu sem í vátryggingum felst og eðlilegan rekstrarkostnað." Af hrokafullu svari eftirlitsfor- stjórans til hinnar stjórnskipuðu nefndar verður auk annars ráðið, að eftirlitið hefur engan áhuga á að sinna því verkefni sem lýst er með framangreindum hætti í lögunum. Eftirlitið lætur sem sagt nægja að taka við tjónaáætlunum félaganna, sem á þessu sviði hafa ljóslega verið allt of háar undanfarin ár, og telur sér ekki koma við hvernig þær eru unnar. Það er vægast sagt furðulegt að opinber stofnun skuli á opinberum vettvangi láta frá sér fara afstöðu sem þessa. Með því rýrir hún trú- verðugleika sinn verulega. Hvers vegna? Spyr sá sem ekki veit. Viðkomandi ráðherrar hljóta að veita skaðabótalaganefndinni at- beina við að afla þeirra upplýsinga sem hún óskar eftir. Til aðstoðar við nefndina verður að fá hlutlausan að- ila. Vátryggingaeftirlitið er ekki trúverðugur aðili til að afla þessara upplýsinga eftir það framferði sem að ofan greinir. Þýðingarmest er að nefndin fái umbeðnar upplýsingar og réttmæti þeirra sé hafið yfir all- an vafa. Höfundur er hæstaréttnrlögmaður. LATREÐ áw efwv Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígrcen eðaltré, í hæsta gœðaflokki og prýða pau nú mörg hundruð íslensk heimili. i* 10 ára ábyrgð t* Eldtraust t*. 10 stærðir, 90 - 370 cm nt Þarf ekki að vökva tA. Stálfótur fylgir t*. íslenskar leiðbeiningar >*• Ekkert barr að ryksuga t*. Traustur söluaðili t*. Truflar ekki stofublómin >*■ Skynsamleg fjárfesting > íSLENSKRA SKÁTA
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.