Morgunblaðið - 11.12.1997, Page 59

Morgunblaðið - 11.12.1997, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997 lagasetninguna til glöggvunar í s.b.v. meintan „gjafakvóta“: I. Um SÓKNARDAGAKERFI er að ræða og hafa Bjöm og Páll að- eins mátt gera skipin út 50 daga á ári. Hafa þeir að jafnaði fiskað 250 tonn á hvort skip á ári. Bjöm sem vill hætta auglýsir skipið til sölu eftir að hafa boðið það Jóni, kunn- ingja sínum, sem telur sig hafa mikið vit á útgerð þó svo hann hafí aldrei verið í útgerð en hann áræðir ekki að kaupa nú frekar en endra- nær. Jón þessi er þó ekki alveg úr sögunni því hann á eftir að gerast formaður samtaka um ÞJÓÐAR- EYMD. Svo fer að Páll kaupir skip Bjöms fyrir 100 milljónir og getur nú gert út tvö skip samtals í 100 daga á ári og fiskað um 500 tonn. Enginn fer fram á að söluandvirði skipsins renni að stærstum hluta til þjóðarinnar t.d. í formi hlutabréfa enda fráleitt. II. Um KVÓTAKERFI er að ræða og hefur útgerðarmönnum verið úthlutað framseljanlegri aflaheimild (kvóta) og tekið mið af aflareynslu þeirra undanfarin ár. Bimi og Páli hefur nú verið út- hlutað 250 tonnum á hvort skip. Björn sem vill hætta selur nú Páli „kvótann“ fyrir 90 milljónir og læt- ur úrelda skipið fyrir 15 milljónir því enginn vill kaupa það fyrir meira en 12 milljónir án aflaheimilda. Þannig fær hann samtals 105 millj- ónir eða ríflega þá upphæð sem hann hefði fengið í sóknardagakerf- inu. Þess má geta að Björn byijaði á því að bjóða kunningja sínum Jóni skipið ásamt aflaheimild á góðum kjörum en Jón þekktist ekki boðið frekar en fyrri daginn enda farinn að gæla við þá hugmynd að næla sér í bita af söluandvirðinu án þess að vinna fyrir því. Páll sem kaupir aflaheimild Bjöms má nú físka samtals 500 tonn á sitt skip og sér nú fram á mun minni tilkostnað en ef hann hefði neyðst til að kaupa skip Bjöms með og gera þau bæði út. Mun þetta kallast hagræðing. Jón, sem nú hefur stofnað samtök um ÞJÓÐAREYMD, kallar viðskipti Björns og Páls brask með þjóðareign og krefst þess í blaðagrein að ríkið geri allan „kvóta“ Páls upptækan og setji á uppboð og deili andvirðinu á landsmenn. Þannig eygir Jón möguleika á að hann geti farið tvær sólarlandaferðir á ári í stað einnar fram til þessa. Krafa Jóns jafngildir kröfu um að ríkið tæki stóran hlut í skipum Bjöms og Páls í sóknar- dagakerfi eignamámi. Þetta virðast sumir kalla „réttlæti"! Jón þessi er m.ö.o. að krefjast ígildi þjóðnýtingar. Með henni væri verið að svipta Pál fískveiðíheimild sem ekki hvarfl- aði að nokkmm þegar hann var í sóknardagakerfínu. Auk þess væri verið að gera upptæka þá fjármuni hans sem liggja í „kvótanum" sem hann keypti af Bimi. Skylt er að geta þess að „kvóti“ Páls (og ann- arra) rýrnaði um helming á nokkr- um ámm vegna minnkandi heildar- úthlutunar (sem kemur auðvitað fram í háu verði á „kvóta" nú) og hefur því nýst illa. Um þjóðnýtingaráformin er nú búið að stofna samtök sem nefnast Samtök um Þjóðareign. Þjóðnýting- artillögur þessa efnis hafa raunar verið að skjóta upp koliinum í öðr- um samtökum og stjórnmálaflokk- um. Tillögumar ganga í raun út á það að taka veiðiréttinn af íslenska fiski- skipaflotanum ogjafnvel leigja hann útlendingum. Hugmyndin að veiðigjaldi eða sértækum skatti er hvorki skyn- samleg né frumleg. Hún er eldgam- all uppvakningur sóttur í óréttlátt verðlagskerfi einokunarverslunar Dana á íslandi en þar fór hluti af útflutningsverðmæti fiskafurða í eins konar útflutningsuppbætur landbúnaðarafurða sem leiddi til þess að útgerð drabbaðist niður og eymd þjóðarinnar hélt áfram að vaxa. Sagan er ólygnust. ‘Hún kennir að þjóðin tapar á slíku kerfí. Þeir þingmenn sem reyna nú að telja sjómönnum trú um að tekjur þeirra myndu ekki skerðast við til- komu veiðileyfagjalds virðast hafa mglað saman trúgirni við hjátrú sem þekkt er meðal sjómanna. Áróðurinn er fráleitur og móðgun við sjómenn. Með pistli þessum er ekki verið að taka afstöðu til kvótakerfisins sem slíks. Vera má að sóknardaga- kerfið sé heppilegasta kerfíð eða jafnvel blanda af hvom tveggja. T.d. að eitt og sama skipið væri 8 mán. á ári í aflamarkskerfi en 4 máh. í sóknarmarkskerfi. Slíkt fyr- irkomulag myndi hafa í för með sér lækkun á verði „kvóta“ og mun auðveldara yrði að afnema leigu- kvótann sem mesti styrinn hefur staðið um. Sjávarútvegsráðherra hefur boð- að fjölgun sóknardaga smábáta í dagakerfínu sem er þróun í rétta átt ekki síst með tilliti til umhverfis- sjónarmiða. Losna þyrfti alveg við stórvirk skrapatól af gmnnslóð. Ef snúa ætti aftur til sóknardagakerfis yrði að úthluta sóknardögum í réttu hlutfalli við „kvóta“ skipanna, ann- að væri mjög ósanngjamt. Þannig fengi Hafþór sem á skip með 1.000 tonna „kvóta“ tvöfalt fleiri sóknar- daga en Ægir sem á skip með 500 tonna „kvóta“. Jóni í ÞJÓÐAR- EYMD ber ekki að fá neitt enda hefur hann aldrei lagt grænan Qjkt, í útgerð. Ef Jón vill reyna að fá beina hlut- deild í þeim óskaplega arði sem hann telur vera af útgerð í dag þá býðst honum að kaupa sér hlutabréf í útgerðarfélagi á hlutabréfamark- aði eins og þúsundir landsmanna hafa þegar gert. Jón þessi hefur sjálfur sagt að það sé ekkert rétt- læti í því að menn fái eitthvað fyrir ekki neitt. Höfundur er véltæknifræðingur ogkennari við Vélskóla íslands \lyjasta Verð er frá kr. 1.032.129,- án vsk. Einn vinsælasti fólksbíll allra tfma, VW Golf, nýtursifellt vaxandi hylli sem sendísveinn. Verð er frá kr. 951.807,- án vsk. ~ Nýi LT sendibíltinn er sá stærsti i stórri fjölskyldu atvinnutækja frá Volkswagen. Verð á lágþekju er frá kr. 2.309.478.- án vsk. - - - Þær eru margar góðar stundimar sem fólk hefur átt í Camvelle hópferðabilnum. Verð er frá kr. 2.420.000,- með vsk. Transporter Double Cab eru ódrepandi vinnuþjarkar sem aldrei gefast upp'. Verð er frá kr. 1.582.329.- án vsk. Volkswagen Polo er snöggur og lipur bíll sem kemur sífellt á óvart. Verð er frá kr. 793.574,- án vsk. 0 HEKLA Allargerðir Transporter fást tjórhjóladrifnar. Verð er frá kr. 1.775.100,- án vsk. þeim sem þurfa meira rými fyrír vöwr. Verð er frá kr. 1.734.137.- án vsk. Volkswagen Öruggur ó alla vegu!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.