Morgunblaðið - 11.12.1997, Page 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1997
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK
HMfskák
Helgi og
" Jóhann
áfram
BÆÐI Jóhaun Hjartarson og
Helgi Áss Grétarsson komust í
aðra umferð á heimsmeistara-
mótinu í skák,
sem nú er hald-
ið í Groningen í
Hollandi.
Helgi Áss
vann Spánverj-
ann Miguel II-
leseas í síðari
skák þeirra í
gær og vann
því samanlagt
með 1,5 vinn-
ingum gegn
0,5. Illescas féll
í gildru, sem
Helgi lagði fyr-
ir hann í byrjun
skákarinnar, og
Helgi náði að
vinna peð sem
dugði honum til
sigurs en II-
'~rescas var úr leik. Þetta voru
óvænt úrslit því Illescas hefur
mun fleiri skákstig en Helgi Áss.
í annarri umferð. sem hefst í
dag, teflir Helgi Áss við Rússann
Artur Jusupov sem er einn
þekktasti skákmaður heims.
Bráðabani
Jóhann vann Litháann
Sarunas Sulskis 2,5-1,5. Þeir
gerðu jafntefli í síðari kappskák-
inni í gær og þurftu því að tefla
bráðabana, stuttar skákir, þar til
úrslit fengust. Fyrstu skákinni
lauk með jafntefli en þá síðari
vann Jóhann örugglega. Hann
teflir við Hvítrússann Aleksej
- 4í«exandrov í annarri umferð
sem hefst í dag.
Margeir Pétursson gerði jafn-
tefli í seinni skákinni við Lembit
011 í gær, tapaði samanlagt
0,5-1,5 og er því úr leik í mót-
inu.
■ Öruggur/11
Hclgi Áss
Bygging tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar
Tvö erlend ráðgjafar-
fyrirtæki til aðstoðar
TVÖ erlend ráðgjafarfyrirtæki
hafa veitt sérfræðiráðgjöf í tengsl-
um við hagkvæmnisathuganir sem
farið hafa fram að undanfórnu á því
að reisa hér fullkomna ráðstefnu-
miðstöð ásamt tónlistarhúsi. Full-
trúar þessara fyrirtækja voru hér á
ferð í október sl. á vegum VSO
Ráðgjafar sem annast hefur verk-
efnisstjórnun.
Um er að ræða fyrirtækið Artec
Consultants í New York sem veitir
sérfræðiráðgjöf um hljómburð og
uppbyggingu tónlistarhúss. Danska
fyrirtækið Scanticon hefur annast
ráðgjöf vegna ráðstefnuaðstöðunn-
ar.
Þrír kostir eru til skoðunar, þ.e.
bygging tónlistarhúss í Laugardal,
undir Perlunni og við Hótel Sögu.
Tveir síðastnefndu kostimir gera
jafnframt ráð fyrir ráðstefnuað-
stöðu. Af hálfu erlendu ráðgjafanna
kom fram að veruleg vandkvæði
eru á að sameina í einum 1.200
manna sal ráðstefnuaðstöðu og tón-
listarflutning með hágæða hljóm-
burði. Þar að auki komu fram efa-
semdir um að markaðslegar for-
sendur væm fyrir svo stómm ráð-
stefnusal nú eða í næstu framtíð.
Það væri á hinn bóginn mjög
áhugavert að gera minni sal,
350-400 manna í senn að fullkomn-
um ráðstefnusal og tónleikasal.
Stóra salinn mætti nota til opnunar
og slita á ráðstefnum.
■ Ráðabrugg/B4-B5
Kristján
á æfingu
KRISTJÁN Jóhannsson tenór-
söngvari kom til landsins seinni
partinn í gær og var mættur á
æfíngu Mótettukórs Hallgríms-
kirkju skömmu síðar. Fyrstu
tónleikar Kristjáns og kórsins
verða í Hallgrímskirkju á laug-
ardag kl. 17 en uppselt er á alla
tónleikana, fímm að tölu.
Sala á miðum á síðustu tón-
leikana, sem haldnir verða í
Hallgrímskirkju 18. desember,
hófst í gærmorgun og voru þeir
á þrotum löngu fyrir hádegi,
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins. Alls hafa 3.350 manns
keypt miða á tónleikana fímm,
2.550 í Reykjavík og 800 á Akur-
eyri.
1
íxÆg ^ A Tvv'' < - ' U v , x- M
< 'v c
v: i:tm
11
k
íMl
Morgunblaðið/Þorkell
Stækkun Kringlunnar
Umferð eykst
um 20-30%
FRESTUR til að skila inn at-
hugasemdum vegna fyrirhugaðr-
ar stækkunar á verslunarmið-
stöðinni Kringlunni í Reykjavík
milli Norður- og Suður-Kringlu
er runninn út. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Borgarskipulagi
bárust athugasemdir frá húsfé-
lögunum við Ofanleiti og Hvassa-
leiti 56-58 og íbúum við Kringlu-
götu. Að sögn Stefáns Her-
^mannssonar borgarverkfræðings
eru þær aðallega vegna aukinnar
umferðar en komið hefur í ljós að
umferð um Listabraut mun
aukast um 20-30%.
Að sögn Stefáns hafa verið
haldnir fundir með íbúunum þar
sem meðal annars var gerð grein
fyrir þeim breytingum sem verða
rá umferð vegna stækkunarinnar.
Samkvæmt útreikningum mun
hávaði vegna umferðar aukast
um 1-2 desibel við íbúðarhús
sem standa við Ofanleiti og sagði
borgarverkfræðingur að það yrði
kannað nánar og gripið til viðun-
andi ráðstafana ef ástæða þætti
til. „Þetta er fyrir neðan þau
mörk sem við lítum alvarlegum
augum á öðrum stöðum í borg-
inni,“ sagði hann.
Sagði hann að jafnframt hefði
verið ákveðið að kanna áhrif
vegna loftmengunar vegna at-
hugasemda frá íbúunum. „Þetta
er spuming um umferð," sagði
Stefán. „Á Listabrautinni verður
um 20-30% aukning en það var
alltaf gert ráð fyrir að gatan yrði
umferðargata." Næstu daga
verður fjallað um athugasemdim-
ar og svörin lögð fyrir skipulags-
og umferðamefnd.
Fjárveitingar til Háskólans verði auknar um 250 milljónir
Tillaga um meistara-
nám í tölvunarfræðum
TILLAGA um skipulagt meistara-
nám í tölvunarfræðum verður borin
upp á fundi Háskólaráðs í dag. Há-
skólinn hefur skipulagt námið og er
þess vænst að það hefjist haustið
1998. Jafnframt hefur Háskólinn í
hyggju að bjóða stúdentum úr öll-
um deildum upp á 30 eininga auka-
grein í tölvunarfræðum haustið
1999. Háskólinn hefur lagt fram
fjáriagatillögur um að fjárveitingar
til skólans verði auknar um 250
milljónir kr., þar af verði launaliðir
hækkaðir um a.m.k. 6%.
Páll Skúlason háskólarektor seg-
ir að ljóst sé að það þurfi meira
fjármagn til Háskólans til að koma
náminu á.
„Fyrst og fremst þarf að tryggja
hæfa kennara og fjármagn til
þeirra. Við erum vongóðir um að
það takist. Við þurfum að halda
þeim kennurum sem jafnvel voru
að hugsa um að fara frá okkur. Það
stefndi í óefni í þeim málum og lið-
ur í því að hefja þetta nám er að
halda þeim,“ sagði Páll. Hann
segir að einnig þurfi að bæta við
tölvukost Háskólans
. Kostnaður ekki að fullu bættur
Gunnlaugur Jónsson háskólarit-
ari sagði að Háskólinn hefði óskað
eftir því við fjáriaganefnd Alþingis
að meira tillit yrði tekið til ný-
gerðra kjarasamninga við tjárveit-
ingar til Háskólans.
„Við teijum að kostnaður við
samningana sé ekki að fullu bættur
í fjárlagafrumvarpinu. Einnig
óskuðum við eftir fjármunum til að
kaupa tölvur og allt sem snýr að því
að reka tölvuver. I öðru lagi óskuð-
um við eftir auknum fjármunum til
framhaldsnáms og í þriðja lagi til
kaupa á bókum, tímaritum og
gagnagrunnum,“ sagði Gunnlaugur.