Morgunblaðið - 24.12.1997, Side 2

Morgunblaðið - 24.12.1997, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 140 kr. mínútan til Grænlands Dýr símtöl vegna gervihnatta „SKÝRINGIN á háu verði á sím- tölum til Grænlands er sú, að ekki er beint samband við Grænland, heldur þurfa símtöl að fara um gervihnött eða Cantat-sæstreng- inn til Danmerkur, þaðan um gervihnött til Nuuk í Grænlandi og ef símtalið á að fara annað inn- an Grænlands þarf það enn að fara um gervihnött,“ sagði Hrefna Ingólfsdóttir, blaðafulltrúi Pósts og síma í samtali við Morgunblað- ið. Gjald á hverja mínútu í símtali til Grænlands er 140 krónur, en næsti gjaldflokkur hjá Pósti og síma er 84 krónur. „Kostnaður við síma er mjög hár í Grænlandi. Þangað er ekki hægt að leggja sæ- streng vegna jöklanna sem ganga í sjó fram og innanlands er ekki hægt að leggja kapla í strjálbýlu landinu. Uppbygging kerfisins er dýr og greiðist ekki upp á einni nóttu. Fámennið og strjálbýlið er afar kostnaðarsamt." Færri krónur á hvert símtal Hrefna sagði að Póstur og sími fengi miklu færri krónur fyrir hvert símtal til Grænlands en ann- arra landa og hefði fyrir ári lækk- að verð á mínútu úr 150 krónum í 140. „Þetta háa verð er ekki vegna verðlagningar Pósts og síma. Núna er hins vegar verið að breyta fjarskiptalögum í Grænlandi og stendur til að Grænlendingar taki málin í sínar hendur. Þá mun Póst- ur og sími reyna að semja beint við þá og ná fram lækkun. Hins vegar er ljóst að símasamband við Græn- land verður alltaf dýrt. Þar er engu okri Dana um að kenna, ekki heldur okri Grænlendinga og sannarlega ekki okri Pósts og síma.“ Morgunblaðið/RAX JULIUS sveiflar kylfunni og Hannes fylgist með álengdar. I golfi á Þorláksmessu Geðdeild Landspítalans 13% samdráttur á fímm árum FJÁRFRAMLAG til geðdeildar Landspítalans hefur dregist saman um 13% á síðustu sex árum, en það samsvarar 140 milljóna króna sam- drætti. Tómas Zoega yfirlæknir segir að ekki verði lengra gengið og deildin verði að fá aukna fjármuni á næsta ári m.a. vegna þess að inn- lagnir á deildina hafi aukist um 10-12% á þessu ári og vaktir hafi verið fluttar frá geðdeildum Sjúkra- húss Reykjavíkur til Landspítala. Geðhjálp hefur gagnrýnt harð- lega lokanir á geðdeildum um jól og áramót. Tómas sagði að lokanimar væru neyðarúrræði. Sjúklingar færu hins vegar annaðhvort heim til ættingja eða á aðrar deildir. Ekki væri verið að senda sjúklinga á göt- una. Einn sjúklingur hefði reyndar kosið að eyða aðfangadegi hjá Hjálpræðishernum frekar en að borða á geðdeild Landspítalans eins og hann hefði átt kost á að gera. Tómas sagði að óverulegur spamaður fælist í þessum lokunum. Starfsfólk tæki út uppsöfnuð frí á þessum tíma. Hann sagði að lokanir á geðdeildum um jól og á sumrin væm neyðarúrræði stjómenda spít- alans sem gripið væri til svo að deildimar héldu sig innan fjárhags- rammans. Tómas sagði að miklar spamað- arkröfur hefðu verið gerðar til geð- deildar Landspítalans á síðustu ár- um. Bmgðist hefði verið við með því að stytta legutíma sjúklinga og loka deildum. Á þessu ári hefði innlögn- um á geðdeild Landspítalns fjölgað um 10-12%. Þá hefði verið ákveðið að færa hluta af bráðavöktum af geðdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur til Landspítalans um næstu áramót, sem hefði í fór með sér aukinn kostnað. „Það er Ijóst að það verður að koma til aukning á fjárframlagi til rekstrar geðdeilda Landspítalans strax á næsta ári. Stjómvöld og stjórn spítalans verður að gera sér grein fyrir að lengra verður ekki gengið í niðurskurði. Það verður að koma til aukið rekstrarframlag ef það á að vera hægt að halda uppi sömu þjónustu og veitt hefur verið,“ sagði Tómas. BRÆÐURNIR Hannes og Júlíus Ingibergssynir brugðu ekki út af vananum í gær þegar þeir léku niu holur á golfvellinum á Korpúlfsstöðum. Þeir sögðu golfiþróttina allra meina bót og spila þeir allan ársins hring nema ef veður hamlar. Veðrið í gær var eins og síðsumars eða snemma að vori, talsverð gola og um sex gráða hiti, flatimar sléttar og þurrar og Esjan fag- urblá og nánast snjólaus. Hannes, sem er 75 ára, sagði að golfíð væri tímafrekt en af tímanum hefði hann nóg. „Ég er hættur að vinna. Ég var kennari í Menntaskóianum við Sund en golfið hef ég stundað frá 1965 og hef spilað mikið síð- ustu árin,“ sagði Hannes. Margir eldri borgarar og fleiri hafa stundað golf á Korp- úlfsstöðum nánast allan ársins hring. I gærmorgun var stór hópur að spila. Hannes sagði að seinni níu holurnar væru opnar og létu menn það duga. Sömu sögu er að segja um flesta aðra golfvelli þessa vetr- ardaga. Júlíus, sem er 83 ára og var lengst af sjómaður og útgerð- armaður í Vestmannaeyjum, sagði að það væri ekkert sér- stakt við það að menn væru að spila golf á Þorláksmessu. „Það er um að gera að þjóna guði og vera úti í náttúrunni. Við höfum verið að spila allt árið en ég man reyndar ekki eftir svona mildu veðri um þetta leyti árs,“ sagði Júlíus. Metafli á yfírstandandi ári Þorskafli jókst um 25 þús. tonn ÞORSKAFLI varð 209 þúsund tonn á árinu sem nú er að líða, og er það í fyrsta skipti síðan 1993 Smásögur Davíðs söluhæstar BÓK Davíðs Oddssonar, for- sætisráðherra Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar er efst á bóksölulista, sem Félagsvís- indastofnun tók saman fyrir Morgunblaðið, Félag íslenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana dagana 18.-21. desember og hefur færst upp úr öðru sætinu frá síðasta lista. Næstefst á listanum er bók Einars Más Guðmundssonar Fótspor á himnum. ■ Bóksölulisti/12 sem þorskafli á íslandsmiðum fer yfir 200 þúsund tonn. Jókst þorskaflinn um 25 þúsund tonn frá árinu 1996 og um 40 þúsund tonn frá árinu 1995. Nær 2,2 milljónir iesta Samkvæmt yfirliti Fiskistofu um fiskafla íslenskra skipa á árinu var árið 1997 metaflaár þar sem heild- arafli íslenskra skipa fór hátt í 2,2 milljónir lesta. Þar munaði mest um loðnu, en af henni veiddust rúmlega 1,3 milljónir tonna. Afli á öðrum tegundum var svipaður og á árinu 1996. Þó dróst ýsuafli tals- vert saman, eða úr 57 þúsund tonn- um í 43 þúsund tonn, og síldveiði innan íslensku lögsögunnar minnk- aði úr 101 þúsund tonnum í 70 þús- und tonn. Utan fiskveiðilögsögunnar jókst heildarafli íslenskra skipa um 10 þúsund tonn. Er þar eingöngu um að ræða aukna veiði á norsk-ís- lensku síldinni, en afli í öðrum teg- undum, þorski, karfa og rækju, dróst verulega saman. FISKAFLIISLENDINGA 1994 -1997 Tölur Fiskistofu: Afli íslenskra skipa innan ísl. fiskv.lögsðgu Afli í þúsundum lesta, botnfiskur óslægður 1994 1995 1996 1997* Þorskur 178 169 184 209 I Ýsa 58 60 57 43 Ufsi 64 47 40 37 I Karfi 100 90 69 72 __ liii 11 ,| _ Grálúða 28 28 22 16 | Skarkoli 12 11 11 11 Steinbítur 11 11 15 12 8 Langlúra 1 2 2 1 Sandkoli 5 6 8 8 1 Skráptlúra 2 5 6 6 Annar botnfiskur 19 19 18 21 1 Botnfiskur SAMTALS: 478 448 432 436 ÁRBsp Úthafsrækja 63 65 57 61 Innfjarðarækja 9 9 12 10 ; Humar 2 1 2 1 H Hörpuskel 8 8 9 10 ; Síld 130 110 101 70 Loðna 763 717 1.184 1.320 | Kúskel 0 2 Innan löqsöqu, SAMT.: , 1.454 1.359 1.797 1-910 X Afli íslenskra skipa 5 utan ísl. fiskv.lögsögu > Þorskur 22 34 22 6 ****&** Úthafskarfi 1 27 52 38 Rækja - Flæm.grunn 2 8 21 6 Norsk-ísl. síld 21 173 65 220 Utan löqsöqu, SAMT.: 46 242 260 270 HEILDARAFLI 1.500 1.601 2.057 2.180 * Tölur tyrlr árlð 1997 eru bráðablrgðatölur Metaðsókn í Blóð- bankann METAÐSÓKN hefúr verið í Blóðbankann síðustu dagana og segir Sveinn Guðmunds- son, forstöðulæknir Blóð- bankans, að frá 15. desember til hádegis í gær hafi nærri 550 manns gefið blóð. Um 70 höfðu gefið á hádegi í gær. Opið til hádegis Blóðbankinn verður opinn til hádegis í dag, aðfangadag, og síðan verður hægt að taka á móti litlum hópi milli kl. 10 og 12 laugardaginn 27. des- ember. Sveinn segir nauðsyn- legt vegna vinnslu á blóðflög- um að fá nýtt blóð eftir svo marga frídaga. Sveinn sagði undirtektir fólks síðustu daga sérlega ánægjulegar. „Við reyndum að minna á þörfina í fjölmiðlum fyrir nokkrum dögum og höfum svo sannarlega fengið góðar undirtektir og ekki síst nýja blóðgjafa," sagði Sveinn og vildi koma á framfæri þakk- læti til allra sem brugðið hefðu skjótt við í annríki síð- ustu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.