Morgunblaðið - 24.12.1997, Blaðsíða 70
70 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
FOSTUDAGSMYNDIR SJONVARPSSTÖÐVANNA
Stöð 2 ► 11.45 Tónaflóð -
Sound of Music Sjá umfjöllun í
ramma.
Stöð 2 ►l 7.15 Rikki ríki
(Richie Rich, ‘95). Barnastjörnur
hverfa yfirleitt af tjaldinu þegar
þær komast í mútur. Svo fór um
Macauley Culkin (Home Alone).
Rikki ríki er ein síðasta myndin
hans (sem bamastjama, að
minnsta kosti). Myndin er í klass-
ískum dæmisögu-ævintýrastíl um
ríka drenginn sem á allt sem er
falt fyrir peninga en kemst að því
að ýmislegt það eftirsóknarverð-
asta í lífinu er ekki falt þó öll
heimsins verðmæti séu í boði.
Betri en á horfist. ★★
Stöð 2 ►20.45 Allir þeir sem
ætla að horfa á sjónvarp £ kvöld
eiga að stilla tæki sín á Bréfber-
ann (II Postino, ‘96), sem er sann-
kallaður gullmoli þar sem gaman
og alvara blandast saman í ljóð-
’ rænni frásögn á sérstæðri vináttu
ítalska bréfberans Marios og
chileska ljóðskáldsins Pablo
Nemda. Hvemig hún þroskar og
styrkir almúgamanninn, fyllir
hann sjálfstrausti og hvetur til
dáða í ljóðagerð og kvennamálum.
Fyrst og fremst mynd Troisi, sem
auk þess að fara ógleymanlega
með aðalhlutverkið, var einnig
einn af handritshöfundum. Troisi
var heltekinn af ólæknandi sjúk-
dómi meðan á tökum Bréfberans
stóð, kvikmyndagerðarmennirnir
færa sér það í nyt með nærmynda-
tökum af tjáningarríku og oft
þjáðu andliti leikarans. Yfirbragð
hans er allt ósvikið.
Sýn ►21.00 Geimskip og riddar-
ar á 14. öld er inntak gamanmynd-
arinnar Krossferðarinnar miklu
(The High Cmsade, ‘95), sem er
þeirrar slæmu náttúm að finnast
hvergi á prenti né á ljósvakamiðl-
um. Það boðar ekki gott, frekar en
að John Rhys-Davies er treyst fyr-
ir aðallhutverkinu.
Stöð 2 ► 22.35 Robert De Niro
leikur klókan fjárhættuspilara sem
fær starí' hjá Mafíunni í Las Veg-
as. Gerir þrjár skyssur: Gerir vin
sinn (Joe Pesci), sem reynist ótínt
varmenni, að sinni hægri hönd,
giftist gleðikonu (Sharon Stone) og
síðast en ekki síst reynir hann að
vera heiðarlegur. Scorsese hefur
aldrei verið jafn ofbeldisfullur og
er þá mikið sagt. Spilavítið
(Casino, ‘95) ★★★'/2 er því alls
ekki við hæfi barna né viðkvæmra.
Aðrir ættu að hafa ósvikið gaman
af þessari áframhaldandi rannsókn
■v
TT16Ö ftöYÖ6\íÚS6S0SU, POTYI. GðtCSU
Heímalagaðurmyntim
meðheitrisúkkulaðisóíu
vtril kr. (yrirnatm^1 ^
Borðapantanir í símar
Tónaflóð
Stöð 2 ► 11.45 Það þarf ekki að
hafa mörg orð um Tónaflóð -
(The Sound of Music, ‘65). Hún
fæddist sígild íharðan heim kvik-
myndanna og vann fljótlega það
afrek að verða langvinsælasta
mynd sögunnai- um hríð ogýta
sjálfri Á hverfanda hveli úr heið-
urssætinu. Tónaflóð ★★★V2 olli
straumhvörfum á sínum tíma, allir
fengust við söngleiki næstu árin.
Hún er kvikmyndagerð frægs
söngleiks eftir Rogers og
Hammerstein, með fjölda áheyri-
legra og heimskunnra laga. Sögu-
þráðurinn er byggður á sönnum
atburðum um flótta hinnar músík-
ölsku Von Trapp fjölskyldu frá
Austurríki nasista. Tekin í ægifeg-
urð Alpanna, með Julie Andrews í
aðalhlutverkinu og er hlý og falleg
í alla staði. Sannkölluð jólamynd.
Martins Scorsese á blóðidrifnum
undirheimum Bandaríkjanna og
myrkum persónum þeirra, sem
passa ekki inní hversdagslífið og
þola illa dagsljósið. Þetta mannlífs-
svið skoðar enginn af meira innsæi
og kunnáttu en meistari Scorsese.
Sýn ►23.20 Fyrir örfáum árum
komu tvær myndir um Hróa hött
(Robin Hood, ‘91) ★‘/2. Þessi varð
undir Kostner og félögum. Bætir
engu við sögnina um hetjuna í
Skírisskógi og hina glaðværu fé-
laga hans. Eitt af því sem vantar
er einmitt gleði, einkum hjá aðal-
leikaranum, Patrick Bergin.
Stöð 2 ►0.20 Shirley MacLaine
og Nicholas Cage eru góðir leikar-
ar sem gera annars ómerkilega
gamanmynd, Tess í pössun
(Guarding Tess, ‘94), um viðskipti
forsetafrúar Bandaríkjanna og líf-
varðar hennar, að bærilegri
skemmtun. ★★
Sjónvarpið ►0.20 Þeir sem enn
eru á fótum fá tækifæri til að sjá
býsna góða gamanmynd, Skipti-
mynt Quick Change, ‘90), sem fór
framhjá alltof mörgum á sínum
tíma. Hún segir af vellukkuðu
bankaráni undir stjórn Bills
Murray, en allt fer úrskeiðis á
flóttanum. Howard Franklin leik-
stýrir og skrifar af góðu skopskyni
og fínni keyrslu, leikhópurinn óað-
finnanlegur, með Murray i sínu ill-
skeyttasta formi, lúðanum Randy
Quaid og Geenu Davis, að
ógleymdum Jason Robards, Jr.
Fyrir alla muni missið ekki af mý-
grút annarra afbragðsleikara í litl-
um og örhlutverkum; Philip Bosco,
Stanley Tucci, Tony Shalhoub
(The Big Night), sem svo skiln-
ingssljór (arabískur) leigubílstjóri
að hann skilur ekki liti (!) o.fl. o.fl.
★★★
Stöð 2^1.55 Michael Douglas
og Andy Garcia eru fínt
löggutvíeyki - sá fyrrnefndi
harðsoðinn og óvandur að meðöl-
um, hinn gætnari en námfús -
sem sendir eru til Japan með þar-
lendan stórglæpamann. Þeir eru
ekki fyrr lentir en þeir missa hann
út úr höndunum og verða að kljást
við hann á heimaslóðum. Spenn-
andi, vel leikstýrt af Ridley Scott,
en alltof löng. ★★'/2
Sæbjörn Valdimarsson
Pantana- og skilatími fyrir fullunnar
auglýsingar um jól og áramót
Sfmbréf: 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is
I Birting Pantanatími Skilatími
Miðvikudagur 24. des. Mánud. 22.12 kl. 16.00 Þriðjud. 23.12 kl. 12.00
Sunnudagur 28. des. Mánud. 22.12 kl. 16.00 Þriðjud. 23.12 kl. 16.00
Þriðjudagur 30. des. Þriðjud. 23.12 kl. 16.00 Mánud. 29.12 kl. 12.00
Miðvikudagur 31. des. Mánud. 29.12 kl. 16.00 Þriðjud. 30.12 kl. 12.00
Laugardagur 3. jan. Þriðjud. 30.12 kl. 16.00 Föstud. 2.1 kl. 12.00
Sunnudagur 4. jan. Þriðjud. 30.12 kl. 16.00 Föstud. 2.1 kl. 16.00