Morgunblaðið - 24.12.1997, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGÚR 24. DESEMBER 1997
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐÍÐ
Morgunblaðið/Kristinn
, , luuigunu
I BLIÐUNNI í miðborginni í gær var farið með borð út á gangstétt og þar gátu gestir tyllt sér niður við veitingar og kertaljós.
15-30% meiri jóla-
verslun en í fyrra
JÓLAVERSLUNIN í Reykjavík
hefur aukist töluvert á milli ára
og telja kaupmenn að fólk hafi
almennt meira fé á milli
handanna en í fyrra. Virðist
veltuaukningin víða vera á
bilinu 15-30% og telja margir
að verslunin hafí aldrei verið
meiri.
Gott veður er talið hafa haft
hveljandi áhrif á jólaverslunina.
í gærkvöldi var mikill fjöldi
fólks í miðborginni og að sögn
kaupmanna hefur miðbærinn
tekið betur við sér en í mörg ár.
Allan desembermánuð hafa
verið annir í verslanakjömum
og ( nógu var að snúast þar fram
undir miðnætti í gærkvöldi.
■ Akureyri/14
■Aukningin/16
Starfsmenn samgöngu-
fyrirtækja
A fjórða hundr-
að í verkefnum
erlendis
Á FJÓRÐA hundrað íslendinga eru
í tímabundnum verkefnum erlendis
íyrir Atlanta, Flugleiðir, Eimskip og
Samskip um jólin.
Stærsti hlutinn, eða um 260
manns, eru flugáhafnir og aðrir
starfsmenn á vegum Atlanta sem eru
staddir í Sádí-Arabíu, á Spáni, Bret-
landi og í Dóminíkanska lýðveldinu.
Helmingur þeirra er í Sádí-Arabíu.
Átta áhafnir flugvéla á vegum
Flugleiða verða staddar erlendis í
kvöld. Nokkrar þeirra koma heim
strax á morgun en ein áhöfn verður í
Halifax fram til 27. desember. Sjö
manns eru í hverri áhöfn og þær
dreifast á borgimar Baltimore, New
York, Boston, Orlando, Halifax og
Hamborg.
Sjö skip á vegum Eimskips; Goða-
foss, Lagarfoss, Dettifoss, Stuðla-
foss, Bakkafoss, Hanne Sif og Lone
Sif, verða í ferðum yfir jólin og á
þeim eru 55 íslenskir skipverjar. Eitt
skip frá Samskipum er statt í Rott>
erdam og á því eru sex íslendingar.
Rekstrarfé Sjúkrahúss Reykjavíkur
Mat borgarráðs að ríkið
bæti það sem á vantar
BORGARRÁÐ lítur svo á að ríkis-
valdið muni bæta Sjúkrahúsi
Reykjavíkur það rekstrarfé sem
skortir á fjárlögum eða um 40
milljónir á mánuði þar til tillögur
faghóps um stöðu sjúkrahúsanna í
Reykjavík liggja fyrir.
A fundi borgarráðs í gær var
lagt fram bréf heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra vegna
bréfs borgarstjóra, þar sem lýst er
yfir vilja til að skoða hugmyndir
borgarstjóra um endurskoðun á
flutningi geðdeildar, enda liggi
fyrir tillögur borgarstjóra og
Sjúkrahúss Reykjavíkur um hag-.
ræðingu er skili svipuðum spam-
aði. Jafnframt er lögð áhersla á að
aðrir þættir samkomulagsins komi
sem fyrst til framkvæmda.
Fram kemur að margsinnis hafi
verið ítrekað við stofnanir að þeim
þáttum sem samið hafi verið um
yrði flýtt og að vandséð sé hvemig
ráðuneytið geti látið málin meira
til sín taka nema tál beinnar
stjórnaríhlutunar komi. Hvað
varði stjóm Sjúkrahúss Reykja-
víkur verði það ekki gert nema
með liðsinni borgarstjóra.
Faghópur metur stöðu
sjúkrahúsanna
Ennfremur segir að í upphafi
árs 1998 muni faghópur taka til
starfa sem meta mun stöðu sjúkra-
húsanna í Reykjavík og leggur
ráðherra áherslu á að ekki verði
teknar ákvarðanir um meiriháttar
breytingar á starfsemi Sjúkrahúss
Reykjavíkur fyrr en fyrstu tillögur
hópsins liggi fyrir.
Á fundi borgarráðs var sam-
þykkt að verða við við beiðni ráð-
herra um að ekki verði teknar
ákvarðanir um meiriháttar breyt-
ingar á starfsemi Sjúkrahúss
Reykjavíkur, sem óhjákvæmilegar
væru ef fjárveitingar yrðu ekki
auknar, fyrr en að fengnum tillög-
um frá faghópnum, sem ráðherr-
ann mun skipa.
Þá segir: „Þar til væntanlegar til-
lögur koma til framkvæmda lítur
borgarráð svo á að ríkisvaldið
muni bæta Sjúkrahúsi Reykjavík-
ur það rekstrarfé sem skortir á
fjárlögum, eða um 40 mkr. á mán-
uði, til þess að halda megi
óbreyttu þjónustustigi á sjúkra-
húsum.“
Starfsmenn Samsölubakarís mótmæla
,c/ó'i/Hj/a/i ós/ar /a/a/iaw/aiam ö//am
t (j/éj/f'/ejraj'ó/a Óa a//ar/ijrir
oák/t/jfi/i á ári/ia xe/a er atJ /itía.
^-W
Saka stjórnendur MS
um virðingarleysi
STARFSFÓLK Samsölubakarís
fjölmennti að höfuðstöðvum Mjólk-
ursamsölunnar í hádegishléi í gær
og mótmælti þeim vinnubrögðum,
sem viðhöfð voru við sölu bakarísins
til Myllunnar. Við það tækifæri skil-
aði það vörum, sem Mjólkursamsal-
an hafði sent því í jólagjöf. Hákon
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Samsölubakarís hf., lítur svo á að
eigandi fyrirtækisins, Mjólkursam-
salan, hafi sjálfkrafa rift starfs-
samningi við sig þegar hún seldi
Myllunni hf. Samsölubakarí.
Hákon segist líta svo á að starfs-
samningi við hann hafi verið rift
þegar eigendaskipti áttu sér stað á
fyrirtækinu. Hann kýs að tjá sig
ekki frekar um málið að svo stöddu
að öðru leyti en því að hann eigi í
viðræðum við eigendur Myllunnar
um sín ráðningarmál.
Starfsmannafundur var haldinn
hjá Samsölubakaríi í fyrradag og
kom þar fram megn óánægja með
vinnubrögð Mjólkursamsölunnar
við söluna á fyrirtækinu. Gils
Matthíasson, trúnaðarmaður starfs-
fólks, segir að það saki stjómendur
Mjólkursamsölunnar um virðingar-
leysi m.a. vegna þess að það fékk
fyrst fregnir af sölunni í fjölmiðlum.
Gils segir enga reynslu komna á
samstarf við stjómendur Myllunnar
en tekur fram að starfsfólkinu lítist
ekki illa á þá.
Kaupverðið 250 milljónir?
Gils segir að á umræddum starfs-
mannafundi hafi komið fram í fyrir-
spum eins yfirmanns fyrirtældsins
til stjórnenda Mjólkursamsölunnar
að söluverð Samsölubakarís hafi
verið 250 milljónir króna á góðum
kjömm. Hann segir að hvorki
stjórnendur Mjólkursamsölunnar
né Myllunnar hafi borið á móti
þessari fullyrðingu á fundinum.
Sungu ekki
Heims
um ból
HAMRAHLÍÐARKÓRINN
söng ekki Heims um ból í lok
friðargöngu niður Laugaveg í
gær, sem friðarhreyfingar
standa fyrir, en gangan hefur
verið farin í átján ár. Það var
stjórnandi kórsins, Þorgerður
Ingólfsdóttir, sem tók ákvörðun
þar um, þar sem hún taldi það
ekki við hæfi eftir þá ræðu sem
flutt var á Ingólfstorgi þar sem
göngunni lauk.
Þorgerður sagði í samtali við
Morgunblaðið að fulltrúi frá
friðarhreyfingunum hefði flutt
ræðu á torginu og það hefði alls
ekki verið við hæfi að syngja
Heims um ból eftir að búið
hefði verið að að halda því fram
í ræðunni að sagan um Krist
væri skröksaga og annað í þeim
dúr. Hún hefði tekið ákvörðun
um þetta sjálf, en kórfélagar
fylgt henni eftir í þessari
ákvörðun, enda hefðu sumir fé-
lagar í kómum þegar verið
famir af staðnum þar sem þeim
hafi misboðið ræðan. Það væri
ekki við hæfi að flytja trúar-
söngva eftir svona ávarp, en
flestir jólasöngvar væra trúar-
legs eðlis.
Kristin hátfð
„Jólin eru kristin hátíð
hversu mikið sem sá kjami hef-
ur nú gleymst í daganna
amstri. Eftir þessa ræðu sem
þama var flutt hefði miklu bet-
ur passað að syngja í mesta lagi
Jóiasveinar einn og átta, en
kannski öllu helst Intema-
sjónalinn," sagði Þorgerður
ennfremur.
Tollstjóri inn-
heimtir fast-
eignagjöld
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt samkomulag sem gert
hefur verið milli fjármálaráðu-
neytisins, tollstjórans í
Reykjavík og Reykjavíkur-
borgar um að tollstjórinn í
Reykjavík taki að sér inn-
heimtu fasteignagjalda fyrir
Reykjavíkurborg.
Samkvæmt samningnum
ber tollstjóra að sjá um inn-
heimtu gjaldanna eins og er
honum heimilt að ákveða
gjaldfrest á fasteignagjöldum í
venjulegum tilfellum en ef um
afbrigðileg tilvik er að ræða
skal haft samráð við Reykja-
víkurborg. Ríkisbókhald mun
sjá um útsendingu á gíróseðl-
um í samráði við Reykjavíkur-
borg.
Lést í bílslysi
á Snæfjalla-
strönd
MAÐURINN sem beið bana í
bflslysinu á sunnan við Naut-
eyri í fyrrakvöld hét Gunnar
Guðsteinn Óskarsson, til heim-
ilis að Melgraseyri. Hann var
fæddm" 16. júní 1948.
Gunnar heitinn var fráskil-
inn og lætur eftir sig móður og
tvö uppkomin böm. Sam-
kvæmt upplýsingum lögregl-
unnar er talið að hann hafi
misst stjóm á bfl sínum í lausa-
möl þar sem hann var á ferð á
Langadalsströnd skammt
sunnan Nauteyrar. Hann var
einn í bflnum.