Morgunblaðið - 24.12.1997, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997 61
FRÉTTIR
Landslag fortíðar í
ljósmyndum frá Andalúsíu
HALDINN verður fyrirlestur
þriðjudaginn 30. desember kl. 20.30
í Ljósmyndasafni Reykjavíkur,
Borgartúni 1. Fyrirlesari verður dr.
Katrín Anna Lund mannfræðingur.
Fyrirlesturinn fjallar um hvernig
fortíð staðar endurspeglast í lands-
lagsljósmyndum. Fylgst verður með
írskum ljósmyndara sem tekur ljós-
myndir af þeim fortíðarímyndum
staðarins sem hann telur vera að
hverfa og séu jafnvel horfnar í iðu
nútíma lífshátta. A hinn bóginn
virðist sem innfæddir íbúar staðar-
ins hafi ekki sýn inní þessa fortíð
Ijósmyndarans heldur aðra fortíð
sem tengist reynslu þeirra sem af-
komendur kynslóða sem hafa alið
manninn í þessu landslagi, segir í
fréttatilkynningu.
í fyrirlestrinum verður því haldið
fram að það sé ekki nóg að líta á
staðsetningu ljósmyndara eða þess
sem virðir fyrir sér ljósmynd, í
tengslum við skynjun í rúmi heldur
verði einnig að líta á þessi sömu
tengsl í samhengi við hvernig ein-
staklingurinn staðsetur sig í tíma.
Katrín gerði vettvangsrannsókn
í Granada-héraði í Andalúsíu á
Spáni og varði doktorsritgerð sína
„Landscape, memory and tourism
in Southern Spain“ síðastliðið vor.
Katrín er stundakennari við mann-
fræðideild háskólans í Manchester,
Englandi.
I
!
Rauðakrosshúsið - neyðarathvarf
fyrir börn og unglinga
Opið allan sólar-
hringinn um
jól og áramót
| RAUÐAKROSSHÚSIÐ, neyðarat-
hvarf Rauða kross íslands, fyrir börn
og unglinga er opið ailan sólarhring-
inn um hátíðirnar eins og aðra daga
ársins. Hið sama gildir um trúnaðar-
símann - 800 5151. Reynslan sýnir
að jólin eru ekki tími gleði og ham-
ingju hjá öllum og því er full þörf
fyrir þá þjónustu sem Rauðakross-
húsið veitir nú þegar jólin ganga í
garð, segir í fréttatilkynningu.
Ungmenni sem eiga um sárt að
binda geta komið í neyðarathvarfið
við Tjarnargötu 35 og starfsmenn
þess munu leggja sig fram um að
aðstoða. Þeir sem hringja í trúnað-
arsímann geta rætt viðkvæm mál
við starfsmenn án þess að segja til
nafns.
Annasamt hefur verið í Rauða-
krosshúsinu nú í desember, bæði í
athvarfinu og trúnaðarsímanum.
Þúsundir einstaklinga og fyrirtækja
hafa stutt við rekstur Rauðakross-
hússins á árinu og vilja Rauði kross
íslands og starfsfólk Rauðakross-
hússins færa þessum aðilum bestu
þakkir fyrir, segir í fréttinni.
Lokaganga
ársins hjá
Útivist
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist
stendur fyrir tveimur dags-
ferðum sunnudaginn 28. des-
ember.
Fyrri ferðin fer frá BSÍ kl.
10.30. Ekið er að Selfjalli og
gengið þaðan niður Heiðmörk
um Elliðaárdal, Fossvogsdal
um Öskjuhlíð. Seinni ferðin
hefst kl. 13. Þátttakendur
geta mætt við BSÍ og farið
með rútu upp á Arbæjarsafn
en þar hefst gangan. Einnig
er hægt að mæta við Árbæjar-
safn. Frá Árbæjarsafni er
gengið um Elliðaárdal, Foss-
vogsdal og Öskjuhlíð.
Göngurnar enda við skrif-
stofu Utivistar, Hallveigarstíg
1, þar sem boðið er upp á
kakó og piparkökur.
Minntust látinna
Fáskrúðsfirði - Fyrir einu ári var
helgaður reitur í Kirkjugarði
Fáskrúðsfjarðar þar sem fólk
getur komið saman í kyrrð-
arstund til að minnast látinna
ættingja og vina.
Síðastliðinn sunnudag kom
fólk þar saman og tendruð voru
ljós við skilti sem þar hefur verið
komið upp. Sóknarpresturinn sr.
Carlos A. Ferrer flutti hugvekju
og bæn. Kirkjukórinn söng og
tvær konur lásu sálm og bæn.
Allmargt fólk kom í reitinn og
tendraði þar ljós en það er orðinn
siður hér að fólk komi og tendri
ljós á leiðum ættingja og hefur
það færst í vöxt síðustu ár.
?
I
í
J
I
i
í
íl 7 ?!
WiM- 5 ~75 ALVÖRUBÍÓ! onpolby
=:_____ ___ STAFRÆNT stæbstatjaldbmb)
HLJ0ÐKERFII
ÖLLUM SÖLUM!
HX
Lokað í dag, aðfangadag og jóladag
Opið á annan og þriðja í jólum
(26. og 27. des)
HOST
WANTEl)
Hasar ofl spnnna Ira
upphafi lil enrla.
bíómynd
Duchovny
(X-Files)
SPILLING
EITURLYF
LEIKRADOIR: ÁLFRUN ÖRNÓLFSDÓTTIR, EDDA HEIÐRÚN BACKMAN, ÓRN ÁRNAS0N,
ÞÓRHALLUR SIGURÐSSON, FINNUR GUÐMUNDSSON, MIST HÁLFDÁNARDÓTTIR,
ÞRÖSTUR LEÓ GUNNARSSON, SIGURÐUR SIGURJÓNSSON, JÓHANN SIGURDARSON,
GUÐFINNA RÚNARSDÓTTIR, JAK0B ÞÓR EINARSSON, BERGLJÓT ARNALDS, RÓSA
GUÐNÝ ÞÓRSDÓTTIR, SIGRÚN WAAGE, HRÓLFUR SÆMUHDSSON.
Sýnd kl. 1,3, 5 og 7
Leeioooer
G.I3ÍJANE
G.l. Jane sló rækilega í gegn i Bandaríkjunum og sat 2 uikur á
toppnum. Hasargellan Demi Moore hefur aldrei verið flottari.
Leikstjóri Ridley Scott (Alien, Blade Runner, Thelma & Louise)
DEflI ÍIOORE
STUNDUWl
V/ERÐUR ÞU AÐ TRUA
Á SJÁLFAiXI ÞiG
Sýnd kl. 4.30, 6.45, 9 og 11.30.
<• „
Laugarásbíó óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla