Morgunblaðið - 24.12.1997, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997
51
JÓLABRIDS
Skref fyrir skref
RICHARD Pavlicek er atvinnu-
spilari og bridskennari í Banda-
ríkjunum, sem hefur komið sér
upp heimasíðu á alnetinu. Þar
kennir ýmissa grasa, m.a. eru
spil, sem „lesandinn" er leiddur í
gegnum, skref af skrefi. Hér er
eitt þeirra. Lesandinn er í suður
og þarf að svara spumingum eft-
ir því sem spilinu vindur fram.
Rétt svar kemur strax í kjölfar
hverrar spurningar, svo lesandinn
þarf að gæta sín vel að „kíkja
ekki“ óvart á svarið:
Norður gefur; allir á hættu.
Suður
♦ KDG1096
¥6543
♦ 54
♦ Á
Vestur Noröur Austur Suður
1 lauí Pass 1 spaði
Pass 2 lauf Pass 7C!
Spurning: Hvað á suður að
segja við tveimur laufum:
(a) Tvö hjörtu?
(b) Tvo spaða?
(c) Þijá spaða?
Svar: Það tekur því ekki að
melda þennan lélega hjartafjórlit,
því jafnvel þótt makker sé með
fjögur hjörtu er betra að spila
spaðasamning. Það er of lítið að
segja tvo spaða, en þrír spaðar
er mátulegt. Sögnin er ekki krafa,
en mjög áskorandi. Makker hark-
ar af sér og lyftir þremur spöðum
í fjóra:
Norður
♦ 87
¥Á2
♦ Á32
♦ K109543
III!
Suður
♦ KDG1096
¥6543
♦ 54
♦ Á
Útspilið er laufátta.
Spurning: Er laufáttan:
(a) Einspil?
(b) Hærra frá tvíspili?
(c) „Toppur af engu“?
Svar: Að öllum líkindum ein-
spil, því menn spila ógjarnan út
í tvísögðum lit blinds nema hafa
ríka ástæðu til.
Spurning: Hvaða lauf læturðu
úr borði í fyrsta slag?
(a) Tíuna?
(b) Þristinn?
Svar: Þristinn. Austur er með
stöðuna á hreinu og lætur ekki
blekkja sig til að setja mannspil
á tíuna.
Spurning: Hvað gerirðu í öðr-
um slag:
(a) Spilar hjartaás og meira
hjarta?
(b) Spilar litlu hjarta frá báðum
höndum?
(c) Ferð í trompið?
Svar: Þú átt níu slagi og besti
möguleikinn á þeim tíunda að
sinni er að reyna að trompa hjarta
í borði. En það væri ógætilegt að
opna hjartalitinn, svo best er að
spila litlu hjarta frá báðum hönd-
um og sjá hvað vörnin gerir.
Austur tekur slaginn og er ekki
höndum seinni að spila spaðaás
og meiri spaða.
Spuming: Hvar tekurðu slag-
inn: (a) Tekurðu slaginn heima
og aftrompar mótherjana?
(b) Tekurðu slaginn í blindum
og trompar lauf?
Svar: Það er sjálfsagt að kanna
laufstöðuna. Þú tekur slaginn í
borðinu og trompar lauf. Ef út-
spil vesturs var þrátt fyrir allt frá
tvílit, má fria laufið.
En þú hafðir reiknað dæmið
rétt; vestur átti eitt lauf og hend-
ir tígli þegar þú trompar lauf. Þú
tekur eitt tromp í viðbót og vestur
fylgir lit, en austur hendir tígli.
Þú mátt missa eitt lauf úr borði.
Spurning: Hvað gerirðu svo:
(a) Spilar trompi áfram?
(b) Spilar Iitlum tígli frá báðum
höndum?
(c) Spilar hjarta á ásinn?
Svar: Þú þjarmar að þeim með
trompi og hendir tígli úr borðinu.
Báðir henda tígli. Staðan er nú
þessi:
Norður
♦ ~
¥ Á
♦ Á3
♦ K109
Suður
♦ G
¥654
♦ 54
♦ ~
Upprifjun: Austur átti DG
fimmta í laufi í upphafi og tvö
tromp. Hann hefur nú hent tveim-
ur tíglum í spaða, svo hann á eft-
ir DG þriðja í laufi og þijú rauð
spil.
Spurning: Hvað gerirðu nú:
(a) Spilar hjarta á ásinn?
(b) Spilar trompi og hendir
hjartaás?
(c) Spilar trompi og hendir tígli?
Svar: Þú spilar síðasta tromp-
inu og kastar tígulhundi úr borði.
Austur hendir tíguldrottningu.
Norður
♦ ~
¥ Á
♦ Á
♦ K109
III
Suður
♦ ~
¥654
♦ 54
♦ --
Spurning: Er næsta skref að
spila:
(a) Tígli á ásinn?
(b) Hjarta á ásinn?
Svar: Lokastaðan er farin að
skýrast. Austur má aldrei henda
laufi, svo tilgangur þinn er að ná
upp þriggja spila endastöðu þar
sem austur á eftir DGx í laufi en
blindur K109. Síðan hyggstu spila
laufníu úr borði og láta austur
spila upp í gaffalinn. En til að
þetta takist, verður að strípa aust-
ur af rauðu spilunum. Austur virð-
ist ætla að halda í hjörtun sín, og
á sennilega engan tígul eftir. Þú
verður því að spila tígli og neyða
austur til að fækka við sig hjört-
um. Þá geturðu tekið á hjartaás
og sent austur inn á lauf.
Allt spilið:
Norður
♦ 87
¥ Á2
♦ Á32
♦ K109543
Vestur Austur
♦ 432 ♦ Á5
¥ K987 ¥ DGIO
♦ KG1098 ♦ D76
♦ 8 ♦ DG762
Suður
♦ KDG1096
¥6543
♦ 54
♦ Á
Fimmþraut
Hér á eftir eru fimm snúnar
þrautir til að glíma við yfir jólin,
en svörin verða í blaðinu milli jóla
og nyárs. Hver þraut ijallar um
eitt afmarkað svið íþróttarinnar:
(1) SAGNIR
Suður gefur; allir á hættu. Les-
andinn er með þessi spil í suður:
Suður
♦ ÁDG94
¥ 43
♦ ÁDG986
♦ --
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull
4 hjörtu 4 spaðar 5 hjörtu ???
Hver er sögnin?
(2) ÚTSPIL
Suður gefur; enginn á hættu.
Lesandinn er með þessi spil í vest-
ur:
Vestur
♦ K943
¥ 10987
♦ 84
♦ DG7
Sagnir ganga:
Vestur Norður Austur Suður
- - - 1 hjarta
Pass 2 lauf Pass 2 tíglar
Pass 2 spaðar*Pass 3 lauf
Pass 3 hjörtu. Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
* Fjórði liturinn.
Hvert er útspilið?
(3) ÚRSPIL
Norður
♦ Á2
¥ K32
♦ KD2
♦ ÁG863
III I
Suður
♦ K9
¥ ÁD754
♦ ÁG1093
♦ 2
Lesandinn er í suður og spilar
sjö tígla með smáum spaða út.
Ándstæðingarnir höfðu sig ekkert
í frammi í sögnum.
Hver er áætlunin?
(4) VÖRN
Suður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ 876
¥43
♦ ÁD76
♦ ÁD62
Austur
♦ G103
¥ DG109
♦ KG4
♦ G97
Vestur Norður Austur Suður
1 hjarta
Pass 2 lauf Pass 2 hjörtu
Pass 4 hjörtu Allir pass
Nú er lesandinn í austur, í vörn
gegn fjórum hjörtum suðurs.
Makker spilar út spaðafjarka,
þriðja eða fimmta hæsta, og suður
tekur tíu þína með ás. Hann legg-
ur niður hjartaás í öðrum slag og
makker fylgir lit. Síðan spilar
sagnhafi tígli á drottningu blinds.
Makker sýnir jafna tölu spila. Þú
færð slaginn á tígulkóng og ...
hvað svo?
(5) TEIKNIVINNA
Loks er það óvenjuleg þraut.
Tvær hendur eru gefnar og loka-
sögnin, sem er sjö lauf. Verkefnið
er svo að komast að því hvernig
hendur AV líta út til að hægt sé
að vinna spilið. Aðeins er um eina
legu að ræða þar sem hveiju spili
er komið fyrir á réttum stað:
Norður
♦ ÁK7
¥ D106
♦ D9742
♦ Á8
Suður
♦ 953
¥ Á84
♦ Á6
♦ DG1063
Suður getur unnið sjö lauf með
hvaða útspili sem er. Hvernig líta
spil AV út?
Góða skemmtun
og gleðilega hátíð.
Guðmundur Páll Amarson.
*.
Oskar landsmönnum gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári
LYFJA I
Opiö alla hátíöardagana
sem og alla daga ársins frá
9:00-24:00
l£b LYFJA
i. I Lágmúla 5
Lágr
S: 533 2300
<
4