Morgunblaðið - 24.12.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.12.1997, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ BÓKSÖLULISTI Rðð Var Tmil/Hö<undur/Úlge(andi 1 2 NOKKRIR GÓÐIR DAGAR ÁN GUÐNÝJAR/ Davíð Oddsson/Vaka-Helgafell 2 3 FÓTSPOR Á HIMNUM/ Einar Már Guðmundsson/Mál og menning 3 1 BERT OG BAÐSTRANDAGELLURNAR/Sðren Olsson og Anders Jacobsson/Skjaldborg 4 4 PAÐ VAR ROSALEGT/HákonAðalsteinsson/Hörpuútgáfan 5 8 ÚTKALL TF-LÍF/ÓttarSveinsson/lslenska bókaútgáfan 6 7 EINAR BENEDIKTSSON/ Guðjón Friðriksson/lðunn 7 9 MEÐ BROS í BLAND - MINNINGABROT/ Magnús Óskarsson/Bókafélagið 8 - NÝJA ISLAND/Guðjón Arngrímsson/Mál og menning 9 10 MARGT BÝR í MYRKRINU/Þorgrímur Þráinsson/Vaka-Helgafell 10 - LATIBÆR I VANDRÆÐUM/Magnús Scheving/Æskan Einstakir flokkar: ÍSLENSK OG ÞÝDD SKÁLDVERK 1 1 NOKKRIR GÓÐIR DAGAR ÁN GUÐNÝJAR/ Davíð Oddsson/Vaka-Helgafell 2 2 FÓTSPOR Á HIMNUM/ Einar Már Guðmundsson/Mál og menning 3 3 FAÐIR OG MÓÐIR OG DULMAGN BERNSKUNNAR/GuðbergurBergsson/Forlagið 4 9 í DAG VARÐ ÉG KONA/ Gunnar Dal/Bókaútgáfan Vöxtur 5 6 HEFND/Sidney Sheldon/Skjaldborg 6 5 BETRUN/ Stephen King/Fróði 7 4 MÁNADÍS í MYRKRI GRAFAR/ Mary Higgins Clark/Skjaldborg 8 7 HÍBÝLIVINDANNA/LÍFSINS TRÉ/ Böðvar Guðmundsson/Mál og menning 9 10 LÍFIÐ EFTIR LÍFIÐ/ Gunnar Dal/islenska bókaútgáfan 10 8 AF RÁÐNUM HUG/ Danielle Steel/Setberg ÍSLENSK OG ÞÝDD LJÓÐ 1 1 SKAGFIRSK SKEMMTILJÓÐ/Bjarni Stefán Konráðsson tóksaman/Hólar 2 3 ÓMAR FRÁ HÖRPU HALLGRÍMS/sigurbjörn Einarsson valdi efni/Setberg 3 9-10 NEI/ Ari Jósefsson/Mál og menning 4 7 OG HUGLEIÐA STEINA/Sigfús Daðason/Forlagið 5-6 - FAGRA VERÖLD/ Tómas Guðmundsson/Mál og menning 5-6 9-10 SPÁMAÐURINN/ Kahlil Gibran/islendingasagnaútgáfan, Muninn bókaútgáfa 7- 8 - HRAÐSKEYTLUR OG FRÉTTALJÓÐ/ Hjalti Þórarinsson/Alma Þórarinsson 8- 8 4-5 ÚNGLINGURINN í SKÓGINUM/ Halldór Laxness/Vaka-Helgafell 9 2 I FJORUM LINUM/ Auðunn Bragi Sveinsson tók saman/Vestfirska forlagið 10 8 HEILYNDI/ErlingurSigurðarson/Málog menning ÆVISÖGUR QG ENDURMINNINGAR 1 1 ÞAÐ VAR ROSALEGT/ Hákon Aðalsteinsson/Hörpuútgáfan 2 3 ÚTKALL TF-LÍF/ÓttarSveinsson/lslenskabókaútgáfan 3 2 EINAR BENEDIKTSSON/Guðjón Friðriksson/lðunn 4 4 MEÐ BROS í BLAND - MINNINGARBROT/ Magnús Óskarsson/Bókafélagið 5 5 KÍNVERSKIR SKUGGAR/ Oddný Sen/lðunn 6 6 SÁLUMESSA SYNDARA/ Ingólfur Margeirsson/Hrísey 7 8 DÍANA - ÆVI HENNAR OG ARFLEIFÐ/ Anthony Holden tók saman/Bókaútgáfan Vöxtur 8 7 GÓÐRA VINA FUNDUR/ Páll Kristinn Pálsson/Forlagið 9 - BRESKA KONUNGSFJÖLSKYLDAN/ Kitty Keiiey/HKÁ 1010 KÆRI KEITH/ Jóhanna Kristjónsdóttir/Fróði ÍSLENSKAR OG ÞÝDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR 1 1 BERT OG BAÐSTRANDAGELLURNAR/ Sören Olsson og Anders Jacobsson/Skjaldborg 2 3 MARGTBÝRÍMYRKRINU/Þorgrímur Þráinsson/Vaka-Helgafell 3 5 LATIBÆR í VANDRÆÐUM/ Magnús Scheving/Æskan 4 2 STAFAKARLARNIR/Bergljót Arnalds/Skjaldborg 5 4 ENGLAJÓL/Guðrún Helgadóttir/Vaka-Helgafell 6 6 SUNDUR OG SAMAN/Helgi Jónsson/BókaútgáfanTindur 7 - ELSKU BESTA BINNA MÍN/ Kristín Helga Gunnarsdóttir/Mál og menning 8 8-8 GÆSAHÚÐ/ Helgi Jónsson/Bókaútgáfan Tindur 9 8-8 BAKKABRÆÐUR/KristínArngrímsdóttirmyndskreytti/Málogmynd 10 10 TÓTA OG TÍMINN/BergljótArnalds/Skjaldborg ALMENNT EFNI OG HANDBÆKUR 1 2 NYJA ISLAND/ Guðjón Arngrimsson/Mál og menning 2 1 VEISLUBÓK HAGKAUPS/ Matreiðslumeistarar Argentínu-steikhúss/Hagkaup 3 3 EVEREST - ÍSLENDINGAR Á HÆSTA FJALU HEIMS/ Hörður Magnússon/Mál og menning 4 7 AGGAGAGG/ Páll Hersteinsson/Ritverk 5 4 OSTALYST 3/ Dómhildur A, Sigfúsdóttir/Osta- og smjörsalan 6 6 HVERJIR ERU BESTIR?/ Ritstj. Guðjón Ingi Eiriksson og Jón Hjaltason/Bókaútgáfan Hólar 7 - VÍGDREKAR OG VOPNAGNÝR/ Friðþór Eydal/Bláskeggur 8 8 ÖLDIN OKKAR - MINNISVERÐ TÍÐIND11991-1995//iðunn 9 5 KÖKUBÓK HAGKAUPS/ Jóhannes Felixson/Hagkauþ 1010 LITLA BRANDARABÓKIN/ /Steinegg Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni Höfuðborgarsvæðið: Bókabúð Máls og menningar, Laugavegí Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla Bókabúðin Mjódd Bókabúðin Hlemmi Bóksala stúdenta v/Hringbraut Bónus, Holtagörðum Penninn-Eymundsson, Austurstræti Eymundsson, Kringlunni Hagkaup Reykjavík Penninn, Hallarmúla Penninn, Kringlunni Hagkaup Garðabæ Hagkaup Seltjarnarnesi Hagkaup Mosfellsbæ Penninn, Hafnarfirði Utan höfuðborgarsvæðisins: Bókabúð Keflavíkur, Keflavík Bókaskemman, Akranesi Bókaverslun JónasarTómassonar, ísafirði Bókaverslun Þórarins Stefánssonar, Húsavík Bókval, Akureyri Hagkaup Akureyri Hagkaup Njarðvík Kaupfélag Héraðsbúa, Egilsstöðum Tónspil, Neskaupstað Samantekt Félagsvísíndastofnunar á sölu bóka 18.-21. desember 1997. Unnið fyrir Morgunblaðið, Félag íslenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Forstjóri Þjóðhagsstofnunar um áhrif fjárlaga næsta árs Æskilegt að hafa meiri afgang á ríkissjóði ÞÓRÐIJR Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, segir að í ljósi efnahagslegra sjónarmiða hefði verið æskilegt að hafa meiri afgang á rík- issjóði á næsta ári, eins og nú horfí í þjóðarbúskapnum, en niðurstaðan varð við afgreiðslu fjárlaga ársins 1998 á Alþingi. Skv. þeim verður rík- issjóður rekinn með 100 milljóna kr. afgangi á rekstrargrunni. „Það er góðæri ríkjandi og við slíkar aðstæður er mikilvægt að rík- isfjármálin gegni með öruggum hætti því hlutverki að spoma við þenslu, ekki síst þegar litið er til þess að árið 1998 verður fimmta góð- ærisárið í röð. Því er alveg Ijóst að við erum nálægt þeim mörkum í nýt- ingu framleiðsluþátta, sem samrým- ast stöðugleika og jafnvægi í efna- hagslífinu," segir Þórður. Hann bendir einnig á að þjóðhagslegur sparnaður sé lítill hér á landi sem leitt hafi til viðskiptahalla. Stjórn- völd geti stuðlað að afgangi á við- skiptajöfnuði og lækkun erlendra skulda með því að bæta afkomu hins opinbera. Lækkun erlendra skulda í góðæri sé eitt brýnasta hagstjórnar- verkefni Islendinga. Afgangur árið 1999 verði 1-2% af landsframleiðslu Þá segir Þórður að aukin alþjóða- væðing, m.a. fyrirhuguð sameining gjaldmiðla og fleiri atriði muni hafa vaxandi þýðingu í næstu framtíð og gera auknar kröfur til hagstjórnar. Þessi þróun feli í sér að svigrúm fyr- ir stjórn peningamála fari minnk- andi. „Til að mæta þessari þróun blasir við að efla þarf hagstjómar- hlutverk ríkisfjármálanna. Eg tel því að það sé alls ekki nægjanlegt að horfa til þess hvort það sé jafnvægi eða ekki í ríkisfjármálunum, heldur Opinberu fjármálin þensluvaki á næsta ári, segir fram- kvæmdastjóri VSÍ þurfi að meta ríkisfjármálin í því ljósi að þau skili sem best hagstjórn- arhlutverki sínu,“ segir Þórður. Hann segir jákvætt að fjárlögin hafi verið afgreidd með afgangi en segir mjög mikilvægt að ná meiri ár- angri í opinberum fjái-málum á næstu árum þar á eftir. „Miðað við horfurnar eins og þær eru nú metn- ar til næstu ára, þá teldi ég skyn- samlegt að stefna að því að afgang- urinn eftir næsta ár yrði á bilinu 1- 2% af landsframleiðslu," segir hann. Gagnrýnt að ná eigi jöfnuði með sölu eigna Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSI, segir það fagnað- arefni að ríkið skuli draga saman lántökur sínar og stuðla með þeim hætti að vaxtalækkun. „Hins vegar er það áhyggjuefni og veldur von- brigðum að endum skuli náð saman með eignasölu. Til þess að ná jöfnuði í fjárlagafrumvarpinu er matið hækkað á tilteknum eignarhlutum sem ríkið ætlar að selja, það hefði einhvers staðar verið kallað bók- haldsbrella,“ segir Þórarinn. ,A-ðalatriðið er að opinberu fjár- málin eru þensluvaki á næsta ári, á tíma þegar þörf væri á að ríkið drægi saman vegna mikilla umsvifa í atvinnurekstrinum almennt. Þetta sést berlega af því að ríkið er að eyða 2,7 milljörðum meira en það afl- ar. Þó seldii' séu 2,7 milljarðar af fjölskyldusilfrinu, gera menn það ekki oft,“ segir hann. „Við gagnrýnum fjárlögin. Þau eru okkur vonbrigði að þessu leyti. Það er afar mikilvægt að ríkið selji stóra hluta ríkiseigna og það er eðli- legt að nota þá fjármuni til að greiða niður skuldir og lækka þannig vaxta- útgjöld ríkissjóðs en það er óeðlilegt að íslenski ríkissjóðurinn sé kominn í svipaða stöðu og sá rússneski, að honum sé haldið ofan við strikið með sölu ríkiseigna,“ segir Þórarinn. Vaxandi áhyggjur vegna heilbrigðismálanna Forsvai’smenn ASÍ eru ekki þeirr- ar skoðunar að niðurstaða fjárlag- anna ógni stöðugleikanum á næsta ári, að sögn Grétars Þorsteinssonar, forseta ASÍ. Allir séu þó sammála um að þegar vel árar þurfi að hafa ríkt í huga að nýta þá stöðu til að geta mætt mögru árunum. Grétar segir það hins vegar mikið áhyggjuefni að viðhorf í verðlags- málum gætu verið að breytast. Nefn- ir hann breytingar á gjaldskrám Pósts og síma og Landsvirkjunar sem dæmi um hækkanir sem ekki séu í takt við verðlagsþróunina að öðru leyti. Þessar hækkanir valdi áhyggjum því hugsanlega leiði þær til þess að aðrir aðilar í samfélaginu fylgi fordæminu og grípi til verð- hækkana. „Fjárlögin eru með þessu hefð- bundna yfn-bragði. Það eiga sér eng- ar grunvallarbreytingar stað. Það er hins vegar ekkert launungarmál að í okkar herbúðum eru vaxandi áhyggjur vegna heilbrigðismálanna. Við óttumst að þar séu hlutir að fara alvarlega úr böndunum," segir Grét- ar og bætir við að hugsanlega sé þörf á heildarendurskoðun á þeim mála- flokki. Aðalskipulag Hafnarfjarðarbæjar 1995-2015 Morgunblaðið/Kristinn GUÐMUNDUR Bjarnason umhverfisráðherra og Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri undirrita staðfest- ingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 1995-2015. Aukin áhersla lögð á umhverjBsmál GUÐMUNDUR Bjarnason um- hverfísráðherra hefur staðfest nýtt aðalskipulag fyrir Hafnarfjarðarbæ frá 1995 til 2015. Að sögn Jóhannes- ar Kjarval, skipulagsstjóra Hafnar- fjarðar, er rík áhersla lögð á um- hverfísmál í nýja skipulaginu. „Það má segja að höfuðbreyting- arnar frá fyrra skipulagi frá 1983 séu kröftug áhersla á umhvei'fíð og skýr- ari umhverfisstefna,“ sagði Jóhann- es. „Verulegt framfaraspor er tekið í allri umgengni við náttúruna í skipu- laginu en jafnframt bent á óleyst verkefni á þeim vettvangi. I því tilliti er um byrjun á ferli að ræða með ná- kvæmum náttúrufarsúttektum, land- kostaathugunum, búsetulandslagi og menningarminjum." Ný hverfí við Ásfjall í nýju aðalskipulagi er gert ráð fyrir stórum nýbyggingarsvæðum umhvei’fis Ásfjall og Grísanes eða beggja vegna Ástjarnar en hún er friðlýst svæði. „Þetta verða tvö skólahverfi með um 7.500-8.000 íbúum,“ sagði Jóhannes. „Þarna verður byggt út fyrir Reykjanes- brautina til suðurs og lagður grunn- ur að nýjum bæjarhluta, því gert er ráð fyrir miðhverfum sem eiga að þjóna stærri heildum til lengri fram- tíðar. Þarna eru því tekin íyrstu ski-efin í tvöfóldun íbúðarbyggðar í Hafnarfírði fram yfir skipulagstíma- bilið.“ Jóhannes sagði að frestað hefði verið ákvörðun um legu Reykjanes- brautar frá Garðabæ að Kaldársels- vegi í götustæði Reykjanesbrautar. „Það þai'f að vinna það mál frekar og í samvinnu við Garðabæ, Skipulag ríkisins og Vegagerðina,“ sagði hann. Löggjöfín gerir ráð fyrir að frestunin geti varað í allt að tíu ár en Jóhannes sagði að leysa þyrfti þenn- an vanda mun fyrr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.