Morgunblaðið - 24.12.1997, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.12.1997, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ rr Mikill vöxtur 1 verslun í Reykjavík fyrir jólin Þróunarfélagið kaupir 10,5% í Netverki Aukningin nemur 15-30% milli ára JÓLAVERSLUNIN í Reykjavík hefur aukist töluvert á milli ára og telja kaupmenn að fólk hafi almennt mema fé á milli handanna en í fyrra. Virðist veltuaukningin víða vera á bilinu 15-30% og telja margir að verslunin hafi aldrei verið meiri. Pá hefur gott veður haft hvetjandi áhrif á jólaverslunina. Landsbyggðarfólk flykkist til höfuðborgarinnar í versl- unarerindum og miðbærinn hefur tekið betur við sér en í mörg ár. Bolli Kristinsson, kaupmaður verslunarinnar 17 við Laugaveg og í Kringlunni, segh- að jólaverslunin sé tvímælalaust meiri í ár en í fyrra. „Veltuaukningin hjá 17 verslununum er ekki undir 15% milli ára og líklega um 30% hjá öðrum verslunum fyrir- tækisins. Mér heyrist aðrir verslun- areigendur hafa svipaða sögu að segja og það er greinilegt að fólk hefur meiri peninga á milli handanna en í fyrra. T.d. er mun minna um það núna að fólk biðji okkur að skipta greiðslum á milli tímabila." Góða veðrið hefur áhrif Bolli segir að gott veður hafi mikla þýðingu fyrir jólaverslun í höfuð- borginni því greinilegt sé að lands- byggðarfólk þyrpist til Reykjavíkur í verslunarerindum. „Færðin er með eindæmum góð og við höfum tekið á móti fólki hvaðanæva að af landinu en fólk af Vesturlandi, Suðurlandi og Snæfellsnesi hefur verið sérstaklega áberandi. Gott veður hefur mikla þýðingu fyrir gamla bæinn, hann hefur tekið betur við sér en í mörg ár og aukningin hefur orðið meiri þar en í Rringlunni. Gott veður leiðir líka til þess að fólk er meira á ferð- inni, ekki síst eldra fólk, og það hef- ur allt sín áhrif.“ Lengri afgreiðslutími til góðs Afgreiðslutími verslana er sígilt þrætuepli kaupmanna og finnst ýms- um hann hafa verið of langur fyrir þessi jól. Bolli er ósammála þessu. „Langur afgreiðslutími hefur leitt til þess að fólk gefur sér meiri tíma í jólainnkaupin. Það er því almennt ekki jafn stressað og áður og hefur nógan tíma. Allt gengur betur fyrh- sig, jafnt í umferðinni og í verslun- inni. Þegar afgreiðslutíminn var styttri gekk þetta ekki eins vel og við náðum ekki að veita jafn góða þjón- ustu. Oft er talað um að jólavelta verslana standi í um tvo mánuði og það er ekki hægt að anna því svo vel sé nema á svo löngum tíma ef þjón- ustan á að vera fullnægjandi. Ég finn það að viðskiptavinir eru almennt af- slappaðri og hressari en áður og ég held því að þessi langi afgi-eiðslutími sé eina vitið. Mér finnst góð heilsa og vellíðan landsmanna vera áberandi og ég óska þeim öllum gleðilegra jóla,“ segir Bolli. Verslunin hófst snemma Erla Friðriksdóttir, framkvæmda- stjóri Kringlunnar, segir að jóla- verslun hafi farið nokkuð snemma af stað í Kringlunni í ár. Hún segir erfitt að henda reiður á hversu mikil verslunin sé að umfangi í ár saman- borið við síðustu ár fyrr en að jólun- um loknum en almennt séu kaup- menn mjög ánægðir með verslunina og telji hana talsvert meiri en á sama tíma í fyrra. „Nokkrir kaupmenn sem ég talaði við á mánudag sögðu verslunina þá t.d. hafa verið meiri en á Þorláksmessu í fyrra.“ ______________________________________________________________________________________________________________■ / hvaúa kvikmyndahúsum er ,Tomnrraw IMever Oies“ sýnd7 Bond leikurinn t*ú getur unnið glæsilegan BMW 31Ei frá B&L Spurnlng 10 Þetta var sídasta spurningin í leiknum. Hlustaðu eftir svarinu á Ff/i 957 og fylltu út svarseðilinn. Heftaðu hin svörin þín við og sendu inn merkt: „FIVI957 - Bond leikurinn“, Aðalstræti 6, 101 Reykjavík, fyrir 30. desember og þú átt möguleika! HEHVll LISFANG HASKOLABIO ALFABAKKA Erlendir aðilar íhuga hlutafjárkaup ÞRÓUNARFÉLAG íslands hf. hef- ur keypt 10,5% hlut í hugbúnaðar- fyrirtækinu Netverki ehf. Kaupin eru liður í hlutafjáraukningu hjá Netverki og á fyrirtækið nú í viðræð- um við innlenda og erlenda aðila um enn frekari aukningu hlutafjár, sem áformað er að ganga frá eigi síðar en í febrúar næstkomandi. I tengslum við kaupin hefur Andri Teitsson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags- ins, tekið sæti í stjóm Netverks ehf. Netverk vinnur að smíði hugbún- aðar og verkefnum tengdum þeim fyrir símafyrirtæki, sjávarútveg, skipafélög o.fl. Aðaláherslan er á skeytakerfi eða tölvupóst, t.d. papp- írslaus viðskipti og tölvusamskipti um gervihnetti. Holberg Másson, framkvæmda- stjóri Netverks, segir að það sé mik- ill fengur að fá Þróunarfélagið í hóp hluthafa. Netverk hafi náð miklum árangri í þróun hugbúnaðar að und- anförnu og ákveðin skref hafi verið stigin í markaðssetningu og verk- efnavinnslu erlendis sem lofi góðu en nú sé kominn tími til að fylgja þess- um árangri betur eftir. „Við höfum orðið varir við mikla eftirspurn er- lendis en við þurfum aukið rekstrai'- fé til að nýta okkur vaxtarmöguleik- ana og styrkja fyrirtækið með ýms- um hætti. Þróunai-félagið hefur mikla reynslu af því að byggja upp fyrirtæki og samstarf við það mun því styrkja Netverk í sókninni á er- lenda markaði." FIS semur um lægri farmtryggingar SAMTÖK Verslunarinnar - FÍS hafa gert samning við vátrygg- ingamiðlunarfyrirtækið Alþjóð- lega miðlun fyrir hönd vátryggj- enda á Evrópumarkaði. Vegna stærðar samningsins verða iðgjöld allmiklu lægri en áður hefur sést hérlendis að sögn Stefáns Guðjóns- sonar, framkvæmdasijóra FÍS. Með samningnum breikkar Al- þjóðleg miðlun þjónustusvið sitt í tryggingum en hún sér einnig um bifreiðatryggingar fyrir Félag ís- lenskra bifreiðaeigenda og vá- tryggingar smábáta fyrir Lands- samband smábátaeigenda. Samningurinn gildir eingöngu fyrir félagsmenn FÍS og segir Stefán að skilmálarnir séu sérstak- lega gerðir með tilliti til hagsmuna þeirra fyrirtækja sem eiga aðild að FIS. „Auk íjölmargra atriða sem koma innflytjendum og útflytjend- um til góða má nefna að vörur eru tryggðar frá þeim tíma er fyrir- tækin taka við þeim af seljendum og þar til þær eru komnar í hend- ur kaupenda, hvort sem þær eru í flutningi eða í vöruhúsum. Upp- gjör tjóna og önnur þjónusta við aðildarfyrirtæki Samtaka verslun- arinnar - FIS verður í höndum Al- þjóðlegrar miðlunar. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar samningurinn var undirrit- aður og handsalaður í gær. Frá vinstri: Gísli Maack og Halldór Sigurðsson frá Alþjóðlegri miðlun og Jón Ásbjörnsson, formaður Samtaka verslunarinnar - FÍS, og Stefán Guðjónsson, framkvæmda- stjóri samtakanna. Við sama tæki- færi undirritaði Jón Ásbjörnsson samning við Alþjóðlega miðlun um allar fartryggingar fyrir útflutn- ingsfyrirtæki sitt og er hann því handhafi vátryggingaskírteinis númer eitt. Þakkarávarp Hér með sendi ég elskulegum afkomendum mínum svo og venslafólki ágœtu, líka kœrum œttingjum og góðvinum nær og fjœr, innilegar þakkirfyrir mér auðsýnda vináttu og virðingu á 90 ára afmœli mínu 3. júní sl. Og kveðið var Leikur við mig lífið sjálfi, lánið besta nefni: Afkomendur 100 hálft, hér er gott í efrii. Þakklæti mitt vil ég að nái til ykkar allra, sem hrærðu hjarta mitt með heillaóskum, skeytum, blómum og fleiri góðum gjöfum. Öllum óska ég gæfu og gengis á komandi ári og umfram- tíð alla. Kveð svo með eftirfarandi jólaóskum: Með helgum degi hœkkar sól, hugur fyllist birtu og yl. Gefi ykkur Guð sín jól og gleðji þá sem best er til. Leifur Eiríksson, Fannborg 1, Kópavogi. \ i I > \ i : i > i i \
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.