Morgunblaðið - 24.12.1997, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 24.12.1997, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 24. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ b VIÐSKIPTI Röraverk- teígæðí* Líst vel á uinfliitninginn vottun Selfossi. RÖRAVERKSMIÐJAN Set hf. á Selfossi hefur öðlast formlega vottun samkvæmt ISO 9002 gæða- staðlinum. Set hf. rekur fjölþætta framleiðslu og sölustarfsemi á sviði lagnavöru, en helstu vöru- flokkar fyrirtækisins eru forein- angruð hitaveiturör, vatnsrör, snjóbræðslurör, frárennslisrör, drenrör, hlífðarrör fyrir Ijósleið- ara, síma- og rafstrengi og raf- lagnarör. Velta Set árið 1997 er áætluð um 330 milljónir króna og hjá fyrirtækinu starfa að jafnaði 30 manns. Set er fyrst íslenskra fyrirtækja í framleiðslu á rörum til að öðlast ISO vottun. Gæðakerfi þess var tekið út og vottað af Vottun hf., en ráðgjöf við uppbyggingu þess var fengin hjá Ráðgarði hf. Undanfarin ár hefur SET flutt út foreinangruð hitaveiturör til nokkurra landa. Að sögn forráða- manna fyrirtækisins er vottunin mjög mikilvægur þáttur í að styrkja þá sókn og er liður í áætl- un Set um að efla útflutning á foreinangruðum hitaveiturörum. Frá vottun Sets, frá vinstri Kjart- an J. Kárason frá Vottun hf., Berg- steinn Einarsson, framkvæmda- sljóri Sets hf. og Gunnar H. Guð- mundsson, frá Ráðgarði sem ann- aðist ráðgjöf vegna vottunarinnar. Forstjóri Osta- og smjörsölunnar hættir eftir þrjátíu ára starf STARF forstjóra Osta- og smjor- sölunnar hefur verið auglýst laust til umsóknar en Óskar H. Gunnars- son, sem gegnt hefur starfinu síð- astliðin 30 ár, eða frá 1. janúar 1968, lætur af störfum fljótlega vegna aldurs. Osta- og smjörsalan var stofnuð árið 1958 til að þróa vinnslu á mjólkurafurðum og sjá um dreif- ingu þeirra. Á starfsferii Óskars hefur hún unnið að þróun fjöl- margra vörutegunda og orðið að stórfyrirtæki með 80 starfsmenn og 3,5 milljarða króna ársveltu. Óskar lítur sáttur um öxl og telur fyrirtækið hafa sinnt því hlut- verki nokkuð vel að efla vöruþróun í mjólkuriðnaði og fjölbreytni á neytendamarkaði. „Við höfum ávallt lagt áherslu á að fylgjast með erlendum mörkuðum og feng- ið ýmsar hugmyndir þar að vörum sem hafa síðan orðið vinsælar hér. Við höfum einnig lagt metnað okk- ar í að bjóða breitt úrval af sem flestum vöruflokkum þótt sala á sumum þeirra hafi ekki verið mik- il. Þar get ég til dæmis nefnt de- sertosta sem eru skemmtileg flóra þótt þeir skili ekki mikilli fram- legð. Ég get ekki nefnt eina vöru umfram aðra sem mér þykir sér- staklega vænt um að hafa þróað eða sett á markað. Hins vegar eru mér minnisstæðar hinar miklu framfarir, sem hafa orðið í frágangi og gökkun vörunnar. Áður var þetta allt skorið niður og pakk- að úti í búðunum sjálf- um en slíkt kæmi sem betur fer ekki til mála í dag.“ Búast má við því að miklar breytingar verði á næstu árum í osta- og smjörsölu með afnámi innflutn- ingshafta og tolla- múra í alþjóðavið- skiptum. Óskar segir breytingamar vera hið Öskar H. Gunnarsson besta mál að því leyti að þær veiti íslensk- um framleiðendum aðhald og hvetji þá til að gera betur. „Mér líst vel á innflutning- inn því hann eykur fjölbreytni á mark- aðnum og Osta- og smjörsalan hefur sjálf tekið þátt í þessu með eigin innflutningi. Is- lendingar ættu ekki að hræðast slíkar breytingar heldur búa sig undir að mæta framtíðinni," segir Óskar. I \ ©888 88 30 vjf nBrtbWSM»»«0 t 1* Ósíqim [andsmönnum öttum flCeðiCegmjóCa og farsceCdar d tfmandi dri FASTEIGN ER FRAMTIÐ FASTEIGNA Suðurlandbbraut V/: 108 Roykjavík íax 568. 7072 Si ■ •'Y-, ? 1 i V Þór Porqoírsbon, bölum. SÍMI 568 7768 MIÐLUN Sverrír KfÍGtjánsGori •ógíj. factoígnatali Óskum öllum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóld, góðs og farsæls komandi drs. Þökkum samstarfið d liðnum drum. Thórlo ^ HEILS USOKKARNIR Mest seldu HEILSUSOKKARNIR í Bandaríkjunum YHöR.Lö* ZONE PRÓTECIION pivÁ extra durabilily orm K«Bpsfc»®ldry. hecaib,; oantodoble Einstakir útivistarsokkar Hannaðir af bandarískum fótasérfræðingum Nýtt líf með Thórlo Lagaðir futtkomtega að fætinum og styrktir undir hæl og il ÚTSÖLUSTAÐIR Seglagerðin Ægir • Sportkringlan • Ellingsen • Versl. Hjólið Hestamaðurinn • Músík & Sport • Kaupfélög og Apótek Reykingar bannaðará Frankfurt- flug'velli Frankfurt. Reuters. BANN við reykingum hefur verið kunngert á alþjóðaflug- vellinum í Frankfurt frá 1. janúar 1998. Bannið er um- deilt, því að í Þýzkalandi em nánast engar hömlur á reyk- ingum. Bannið nær til 90 af hundr- aði flugstöðvarinnar og af- mörkuð svæði verða fyrir reykingarmenn. Umferð um flugvöllinn er meiri en aðra flugvelli í Evrópu. Reykingar eru eitt algeng- asta umkvörtunarefni farþega að sögn flugvallaryfirvalda, sem segja bannið er í takt við þróun í ferðaþjónustu í heimin- um. „Ekki er lengur hægt að virða óskir þeirra sem ekki reykja að vettugi,“ sagði í til- kynningu flugvallaryfirvalda. Víða reykt á vinnustöðum „Svo að segja engar hömlur em á reykingum í Þýzkalandi. Reyklaus svæði í veitingahús- um eru fágæt og reykingar í skrifstofum em algengar. Afgreiðslufólk og miðasölu- fólk reykir við vinnu sína og blæs stundum reyk framan í viðskiptavinina. Reykingar tíðkast í lyftum og fólk kveik- ir í vindlingi þegar biðraðir myndast. Reykingar eru snar þáttur í þjóðlífinu og eru seldir vindl- ingar fyrir 33,4 milljarða marka á ári. Framvarp um bann við reykingum í fyrra, sem hefði takmarkað réttindi reykingar- manna, mætti harðri and- spymu þrýstihópa tóbaksiðn- aðarins og dagaði uppi í þing- inu. íslenski hugbúnaðarsjóðurínn hf. ÍSLENSKI hugbúnaðarsjóðurinn hefur keypt 21% hlutaijár í hugbún- aðarfyrirtækinu Þróun ehf. Kaup- verð hefur ekki fengist uppgefið en það nemur nokkrum milljónum króna að sögn Sigurðar Smára Gylfasonar, framkvæmdastjóra sjóðsins. Þá hefur sjóðurinn einnig keypt 15% hlut Tæknivals í Teymi hf. en þau kaup eru háð því að aðrir hluthafar Teymis nýti ekki forkaupsrétt sinn á hlutafénu. Þróun ehf. var stofnað árið 1976 og er eitt elsta hugbúnaðarfyrirtæki landsins. Frá upphafi hefur fyrir- tækið unnið á sviði viðskiptahug- búnaðar, við ráðgjöf, hugbúnaðar- þróun og þjónustu. Öll hugbúnaðár- vinna fyrirtækisins fer nú fram í tveimur deildum, annars vegar í svonefndri BIRKI/Concorde deild og hins vegar sérverkefnadeild. Um 25 starfsmenn vinna nú hjá fyrir- tækinu og stærstu hluthafar þess em Halldór Friðgeirsson með 43% hlut, Opin kerfi með 24% og ís- lenski hugbúnaðarsjóðurinn með 21% hlut. Árið 1981 setti Þróun á markað- inn BIRKI viðskiptahugbúnaðinn en árið 1994 var ákveðið að hætta markvissri framþróun á honum og bjóða þess í stað Concorde XAL viðskiptahugbúnaðinn. Sigurður Smári segir að langmestur hluti starfs sérfræðinga í BIRKI/Conc- orde deildinni sé nú í verkefnum tengdum Concorde. „Auk þekking- ar á Concorde hefur Þróun byggt upp mikla þekkingu á gagnagrunn- um hjá sérverkefnadeild fyrirtækis- ins og unnið að margs konar þróun- arstarfi tengdu þeim. Við bindum miklar vonir við þessa fjárfestingu því Þróun er eitt öflugasta fyrir- tæki landsins á sviði þessa hugbún- aðar.“ íslenski hugbúnaðarsjóðurinn var stofnaður fyrr á þessu ári af Eignarhaldsfélaginu Alþýðubank- anum hf., Hugviti hf., íslenska fjár- sjóðnum, Olís og einstaklingum á hugbúnaðarmarkaðnum. Sjóðurinn hefur nú fjárfest í átján íslenskum tækni- og hugbúnaðarfyrirtækjum og em stærstu einstöku fjárfesting- arnar í Hugviti hf., Landsteinum ehf. og Þróun ehf. Alitalia með ísamvinnu Mílanó. Reuters. KLM og Northwest ALITALIA hyggst taka þátt í sam- vinnu KLM Royal flugfélagsins í Hollandi og Northwest flugfélags- ins í Bandaríkjunum og verður að- ild ítalska félagsins liður í víðtæk- ara samstarfi ítalskra og hollenzkra flugfélaga. Alitalia og KLM sögðu í sameig- inlegri tilkynningu að samvinna þeirra kæmi til framkvæmda í nóv- ember 1998 þegar stækkaður flug- völlur í Malpensa yrði opnaður. Aðventukvöld hjá Heklu hf. HEKLA hf. hélt nýverið aðventu- kvöld fyrir marga af helstu við- skiptavinum sínum og samstarfs- aðila. Meðal gesta þar var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarsljóri sem hér sést hlýða á söngatriði ásamt Sigfúsi Sigfússyni, forstjóra Heklu. Leiðrétt í FRÉTT á viðskiptasíðu sl. föstudag um afkomu Búlands- tinds var rangt farið með endur- metið eigið fé félagsins. Það er 1.750 milljónir króna samkvæmt útreikningum félagsins. Beðist er velvirðingar á þessu um leið og réttri tölu er komið á fram- færi. Kaupir 21 % hlut í Þróun ehf. I i i l i
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.